Morgunblaðið - 20.11.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÖVEMBER 1975
3
NÓV
íiOTID
öKuuófin
nunn
fóiARHRincinn
IAN
NtJ ER vetur fyrir alvöru gcng-
inn f garð, og þar með sá tími
sem akstursskilvrði verða hvað
erfiðust. I október og nóvember
hafa orðið mörg og alvarleg
umferðarslys og það áður en
akstursskilyrði urðu eins og
þau geta orðið verst að
vetrarlagi, með snjó og
hálku samfara dimmviðri.
Skvndilegar veðrabrevting-
ar gera ökumönnum og
öðrum vegfarendum ifka
erfiðara fyrir. Það er aldrei
hægt að gera ráð fyrir sömu
akstursskilyrðum langan tfma
dag hvern. En það er ekki nóg
að ökumaðurinn sjálfur sé við-
búinn þessum breytingum.
Hann verður að gera ráðstafan-
ir til að bifreiðin sem hann
ekur sé einnig þannig búin, að
öryggið sé alltaf f fyrirrúmi
hvernig svo sem akstursskil-
yrði eru.
Veturinn
viðsjárverður
tími fyrir
ökumenn:
við þeirri oftrú sem virðist vera
á gagnsemi negldra hjólbarða.
Negldir hjólbarðar koma að
gagni að vissu marki, þ.e. þegar
þunnt lag ísingar er á vegum
þannig að naglarnir ná auðveld-
lega að krafsa sig í gegn og
veita viðnám. Þegar aftur á
móti klakalagið er þykkara eða
þegar snjór er mikill þá er lítið
sem ekkert gagn f negldum
hjólbörðum. T.d. getur
hemlunarvegalengdin á hörð-
um is orðið verulega lengri en á
venjulegum hjólbörðum því þá
gegna naglarnir sama hlutverki
og skautar. Og sama á við
venjulegar aðstæður, t.d. á
þurru malbiki, þá getur
hemlunarvegalengdin orðið
10—15% lengri ef hjólbarðar
eru negldir.
Ymis hjálpartæki bifreiðar-
innar eru ómissandi þegar
Nagladekk koma að litlu gagni þegar snjóþvngsli eru mikil.
að rúðuþurrkurnar gera litið
gagn. Þegar svo er, þá er nauð-
synlegt að hreinsa hvort
tveggja og eru til þess ýmis efni
sem fást á öllum bensín-
stöðvum. Þar má einnig fá is-
vara á rúðusprautur.
sem gerð var eftir þann tima
leiddi annað i ljós. Samkvæmt
henni hafði þriðjungur bif-
reiðaeigenda látið undir höfuð
leggjast að færa bifreiðir sinar
til skoðunar. Slíkt er vitavert
kæruleysi nú þegar ökuljós-
Umferðarráð varar við oftrú
á gagnsemi negldra hjólbarða
SNJÓHJÓLBARÐAR
EÐA KEÐJUR
Hinn 15. október s.l. var bif-
reiðaeigendum leyfilegt að
setja undir bifreiðir sínar
negida hjólbarða og hafa þegar
margir gert það. I reglugerð um
gerð og búnað ökutækja segir
að þegar bifreið sem er innan
við 3500 kg af leyfilegri
heildarþyngd er búin negldum
hjólbörðum skuli öll hjól vera
með negldum hjólbörðum. En
það er ekki skylda að nota
neglda hjólbarða. Einnig má
nota snjóhjólbarða með grófu
mynstri og keðjur. En sama
gildir um snjóhjólbarða og
neglda hjólbarða, þeir þurfa að
vera á öllum hjólum. Þótt
notaðir séu snjóhjólbarðar,
negldir eða ónegldir, leysir það
oft ekki allan vandann. Það
getur líka verið nauðsynlegt að
hafa meðferðis snjókeðjur til
að mæta mestu snjóþyngslun-
um þegar hjólbarðarnir, hverju
nafni sem þeir nefnast, orka
ekki lengur því hlutverki sem
þeim er ætlað.
Umferðarráð vill itrekað vara
bleyta og slap er á götum.
Hjálpartæki eins og rúðu-
þurrkur og rúðusprautur er
nauðsynlegt að séu í lagi undir
slíkum kringumstæðum. En
tjara og óhreinindi sem setjast
á framrúðuna eru oft svo mikil
SKOÐUN LJÓSA
Hinn 31. október s.l. lauk
ljósaskoðun 1975 og nú ættu
allar bifreiðar að vera með Ijós
i lagi og rétt stillt. En könnun
ÞANNIG
STÖÐUUÓS.
Þegor bifreiÖin er stöövuö ó
illo lýstri akbrout. Einnig þeg.
ar stanzað er vió gatnamót
vegna umferöar, sem ó for-
gang, eða vift umferöarljós.
LÁG LJÓS
I slæmu skyggni, s.s. þoku,
rigningu, snjókomu o. fl. I
myrkri, þegar götulýsing er
góð.
HÁ LJÓS
Á vegum, þar sem engin
gotulýsing er og ekki er
hætta ó a6 Ijósgeislinn trufli
aðra vegfarendur.
NOTUM VIÐ LJÓSIN
Trassað að fara
með þriðjung
bifreiða í
Ijósaskoðun
anna er mest þörf. Ljósin eru
þau öryggistæki bifreiðarinnar
sem mikilvægast er að séu 1 lagi
yfir skammdegistimann.,Það er
ekki nóg að hafa allar ljósaper-
ur virkar, hitt er ekki síður
mikilvægt sem því miður hefur
oft skort á, að ljósin séu rétt
stillt. Auk þess átta menn síg
oft ekki á því, að Ijósaperur,
sem virðast í fullkomnu lagi,
geta verið svo daufar að þær
gera ekki sitt gagn. Fagmaður
Framhald á bls. 20
Getur kostað 200 þúsund
að gabba slökkviliðið
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík
hefur verið gabbað þrisvar
sinnum f þessum mánuði og hafa
forráðamenn slökkviliðsins
nokkrar áhvggjur af þessum
málum. 1 öll skiptin hafa ungir
drengir vcrið að verki og f öll
skiptin hafa þeir náðst því
slökkviliðið hefur tök á því að
„frysta“ samtöl sem kallað er og
sfðan er hægt að rekja hvaðan
hringt er.
„Svona blekkingar valda miklu
tjóni og röskun," sagði Gunnar
Sigurðsson varaslökkviliðsstjóri í
samtali við Mbl. Hann sagði að
gabb gæti kostað slökkviliðið allt
að 200 þúsund krónur þegar allt
tiltækt lið væri kallað út kannski
langa leið. Auk þess gæti það hent
þegar slökkviliðið væri blekkt á
þennan hátt að þörf væri á því
annars staðar og gæti þvf orðið
óþarfa töf á því að slökkvistarf
hæfist.
„Það er mest um það að börn og
unglingar gabbi slökkviliðið og
þau nást í langflestum tilfellum.
Þá er talað við foreldra viðkom-
andi en lögreglan fylgir síðan
málinu eftir. Er full ástæða til að
foreldrar brýni fyrir börnum
sínum að leika ekki þennan ljóta
leik,“ sagði Gunnar Sigurðsson að
lokum.
Annað bindi Islenzks
ljóðasafns komið út
ALMENNA bókafélagið hefur
gefið út II. bindið af „Islenzku
ljóðasafni". Spannar það Ijóð frá
sautjándu öld til fyrri hluta 19.
aldar. Fyrsta skáldið sem safnið
tekur til er séra Hallgrímur
Pétursson en sfðasta Steingrfmur
Thorsteinsson. Um er að ræða úr-
val Ijóða þeirra skálda, sem þá
voru uppi. Bókin er 460 sfður og
hefur Kristján Karlsson, sem rit-
stýrir þessum bókaflokki, valið
Ijóðin f samvinnu við Hannes
Pétursson skáld. Aður var III.
bindið af Ijóðasafninu komið út
en það nær til frá sfðari hluta 19.
aldar og fram til upphafs þeirrar
tuttugustu.
„Islenzka ljóðasafnið11, sem
verður í 5 bindum, kemur út hjá
Bókaklúbbi AB, og eiga ekki aðrir
en klúbbfélagar kost á að kaupa
safnið. Klúbburinn, sem er árs-
gamall um þessar mundir, hefur
nú 4000 meðlimi. Klúbbfélögum
eru ekki sett önnur skilyrði en að
kaupa 4 bækur klúbbsins fyrstu
18 mánuðina eftir að þeir gerast
félagar. Bækurnar sem þeir
kaupa fá þeir sendar heim frá
klúbbnum strax við útkomu
þeirra. Þá eiga klúbbfélagar kost
á að fá bækur við vægu verði úr
hópi svonefndra valbóka
klúbbsins.
Markmið Bókaklúbbs AB er að
sjálfsögðu að gefa klúbbfélögum
kost á að eignast vandaðar bækur
með betri kjörum en ella væri
hægt.
© ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN ©
' - **■ /
Passat er bíllinn
Passat luxus-þægindi, sjálfsögð þægindi
Passat framsæti er hægt að stilla að vild
og jafnvel í þægilega svefnstöðu. Passat
er rúmgóður fimm manna bíll. Þessar
staðreyndir eru aðeins brot af öllum sjáan-
legum atriðum.
Passat er hagkvæmur og ódýr i rekstri.
Benzineyðsla. Um 8,8 I. — Viðhalds-
skoðunar er þörf aðeins einu sinni á ári
e'ða eftir 15 þús. km akstur. — Hin
viðurkennda V.W.-varahluta- og viðgerð-
arþjónusta er einnig Passat-þjónusta.
Passat er öruggur í akstri:
Allur öryggisbúnaður Passat og hinn full
komni stýris-, fjöðrunar- og hemlabúnað
ur er miðaður við hámarksorku og hraða.
ávyj Passat
er fyrirliggjandi
Verð frá kr. 1352 þúsund
Laugavegi 1 70—1 72 — Simi 21240
(Fréttatilkynning)