Morgunblaðið - 20.11.1975, Page 7

Morgunblaðið - 20.11.1975, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20, NÓVEMBER 1975 7 „Ef þeir segja satt, þá er það óviljandi” „Með tilboði þessu hef- ur ríkisstjórn Geirs Hall- grfmssonar boðið Bretum að hirða hér á miðunum sem næst 3 af hverjum 10 þorskum, sem vit er talið f að veiða." — Þetta var fréttafullyrðing Þjóðvilj- ans um samningstilboð rfkisstjórnarinnar, sem gert var á þeirri stundu, er sýnt þótti, að samninga- viðræður voru að fara út um þúfur, með marg- háttuðum skilyrðum: um viðurkenningu á hinni nýju fiskveiðilandhelgi okkar nánara samkomu- lag um veiðisvæði, fjölda skipa, veiðitfma, friðunar- aðgerðir og tollfvilnanir á útfluttum sjávarafurðum. Tilboðið hljóðaði upp á 65.000 tonna „afla- I__________________________ kvóta" á bolfiski, til mjög skamms tima, þar af 55.000 tonn af þorski og 10.000 tonn af öðrum bolfiski að sögn utanrikis- ráðherra i sjónvarpsvið- tali. Sé miðað við þau 250.000 tonn af árlegum þorskafla, sem fiski- fræðingar okkar telja að færa þurfi heildaraflann niður í, meðan þorsk- stofninn er að ná sér á ný, er hér um að ræða á milli 23 og 24% en ekki 30%, eins og Þjóðviljinn stað- hæfir. Menn geta deilt um þetta samningstilboð út af fyrir sig, en hitt gegnir furðu, að Þjóðviljinn skuli undantekningarlítið en hitt þurfa að fara rangt með allar tölur og stað- hæfingar varðandi þjóð- málaumræðu i landinu. Þeir virðast keppast við að sanna þá staðhæfingu. sem um skrif blaðsins voru höfð í góðu gamni, „að það segði aldrei satt, nema óviljandi." En öllu gamni fylgir nokkur al- vara. Um samningstilboð þetta er fjallað nánar i leiðara blaðsins i dag. Frjáls eða þvinguð framlög Umræður um fjárreiður stjórnmálaflokka hafa verið ofarlega á baugi undanfarið. Eyjólfur Kon- ráð Jónsson hefur nú flutt frumvörp til laga er gera ráð fyrir bókhalds- og framtalsskyldu stjórn- málaflokka; þann veg, að fjárreiður þeirra liggi jafn- an Ijósar fyrir. Um þetta atriði hljóta landsmenn allir að vera sammála. Um hitt eru skiptar skoðanir, hvern veg skuli fjármagna starfsemi þeirra. Eyjólfur Konráð gerir ráð fyrir því í frum- varpi sínu, að fjáröflun þeirra fari einkum fram með rekstri happdrætta, sem njóti skattfrjálsra vinninga, líkt og ýmis önnur félagasamtök í landinu. Að auki verði frjáls framlög borgaranna til stjórnmálaflokka frá- dráttarbær frá skatti, á sama hátt og félagsgjöld stéttarfélaga, þó aldrei hærri upphæð en 5% skattskyldra tekna. Ragnar Arnalds vill á hinn bóginn að stjórn- málaflokkar hljóti lög- bundin framlög beint úr ríkissjóði, sem hann telur heppilegri leið en að hver og einn éinstaklingur ráði sjálfur, hvort og hve miklu hann ver til slíkrar starfsemi — eða hvaða stjórnmálaflokk þeir vilji styðja. Hér er því enn á ferð spurningin um ráð- stöfunarrétt borgaranna sjálfra á eigin fjármunum eða þvinguð framlög gegnum ríkissjóð. Mýrarljós Sovézk yfirvöld hafa nú neitað kjarneðlis- fræðingnum Andrei Sakharov um ferðafrelsi til Oslóar til að veita við- töku friðarverðlaunum Nóbels. Borið er við vitneskju hans um rikis- leyndarmál. Nær sanni mun vera, að Sakharov hefur leyft sér þann munað að hafa skoðanir, sem ekki koma heim og saman við vilja valdhaf- anna, og láta þær í Ijós í opinberri umræðu. Þessi ákvörðun stangast þvi á við frumréttindi hverrar manneskju, réttinn til eigin skoðana, til að láta þær í Ijós og til að ferðast frá einum stað til annars. Þannig halda Sovétríkin Helsinkisáttmálann, sem þau státa þó rnest af hlut- deild sinni i. Þessi afstaða sovézkra valdhafa kemur að vísu ekki á óvart. Hún er engu að siður ein staðfesting til viðbótar við fjölda annarra um hverskonar þjóðfélag það er, sem vex af grunni þeirra „hug- sjóna", sem eru mýrarljós i hugarheimi nokkurs hluta okkar eigin þjóðar. Sr. Bernharð Guðmundsson — Addis Aheba Hvernig fyndist okkur, ef við ækjum frá Reykjavík og austur á Selfoss, og kæmumst að raun um að einungis sýslumaðurinn og skólastjórinn skildu mál okkar. Aðrir þorpsbúar töluðu aðeins heimamál sitt, sem við ekki skildum. Slík er aðstaðan hér í Eþíópíu — hér eru a.m.k. 70 tungumál töluð. Reyndar var svo lagt fyrir á keisaratímanum, að amharinja skyldi vera rfkismál. En þar sem einungis 16% þjóðarinnar eru Amharar eins og keisarinn var, og aðeins 6% ganga í skóla og læra þar amharinju, er opinbera málið engan veginn hið almenna mál. Þetta hefur að sjálfsögðu gífur- lega erfiðleika í för með sér, til dæmis er koma þarf fréttum til þjóðarinnar í heild. Það er sagt að sums staðar úti i frum- skóginum viti menn ekki enn að Haile Selassie hafi verið settur af, hvað þá að hann sé látinn. Nú hefur því verið lýst yfir að prenta megi á öðrum tungu- málum en amharinju. En það er sitthvað að mega og geta. Mörg þessara mála hafa ekki enn ver- ið rituð. Kristniboðið og Biblíu- félagið hafa hér sem annars- staðar forgöngu um að gera tungumálin rithæf, það er að finna rittákn sem samsvara hljóðum tungunnar. Þau geta verið mjög margbrotin. I amharinju eru um 230 bókstafir og það vefst fyrir mörgum aðkomumanninum sannast sagna að læra slíkt mál. Nokkr- ir hafa þó náðargáfuna og námskraftinn. Innan kristni- boðsins starfa nokkrir menn, sem náð hafa tökum á ýmsum hérlendum tungumálum. Einn þeirra er landi okkar Haraldur Ólafsson. Hann býr um þessar mundir niðri í Negelli, ekki langt frá landamærum Sóma- líu, ásamt konu sinni Björgu. Börnin þeirra tvö, Ólafur og Ragnhildur, eru í norska skólanum hér i Addis og sjá foreldra sína á jólum, páskum og í sumarleyfinu. Það er mikil spenna þarna suður frá, svo sem allsstaðar f Eþíópíu. Sómalir gerast vígreif- ir og vilja endurheimta land- svæði frá Eþiópíu, hvar ýmsir telja að olia leynist í jörðu. Reynt er að skipta stórjörðum, en landeigendur hafa safnað Iiði og varna því með vopna- valdi. Stúdentar fara um í hóp- um og eiga að kenna mönnum sósíalisma. En hvað er það. Það vita fæstir enn. Hitt vita menn, að aðalmatur heimamanna, teffkornið, er illfáanlegur og dýr, óöld vex með degi hverj- um, ráðamenn berjast inn- byrðis. Siðan keisarinn hvarf, finnst þeim flest vera á hverfanda hveli. Fáu að treysta og byggja á. Það gekk nú reyndar á ýmsu hér á 16. öld er Oddur Gottskálkson fór með leyndum út I fjós f Skálholti og þýddi þar Nýja testamentið yfir á íslenzku. Allur almenningur fékk þar með aðgang að boð- skap þess og fann þar skjól og fótfestu i hretviðrum næstu alda á landinu kalda. Og sagan endurtekur sig. Aftur situr fslendingur á kyrrlátum stað á gangmiklum tímum og snarar Bibliutextum yfir á mál fátækrar þjóðar. Haraldur er langt kominn með þýðingarstarf sitt yfir á mál Boranafólksins, sem talað er í suðurhluta Eþiópíu. I ýmsu til- Iiti er mikill munur á Islending- um og Boronum — og þó. Biblían er nefnilega litblind og gerir ekki mannamun. Hún tal- ar til manneskjunnar, hver og hvar sem hún er. Brátt mun því Nýja testa- mentið verða prentað á Borana- máli með stórum bókstöfum, svo léttara sé nýlæsum. Fólk mun einnig læra að lesa á það með bandprjónaaðferðinni eins og feður okkar. Það verður mikil breyting. Áður urðu menn að læra amharinju til þéss að geta lesið Biblíuna rétt eins og við yrðum að læra frönsku eða þýzku til þess arna. Mikil lestrarkennslu-herferð mun fylgja í kjölfar þýðingar- innar. Það mun færa mörgum manninurú frelsi, frelsið að geta sjálfur séð hvað stendur á blöðum og haft aðgang að bók- um. — Sannleikurinn mun gera yður frjálsa. — Það renna upp nýir tímar meðal Borana. Enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Rauðhærður og freknóttur órabelgur af As- vallagötunni las Islandssöguna sina fyrir tíma í Melaskólanum. Varla hefur hann órað fyrir þvi þá, að hann myndi síðar feta í fótspor Odds meðal Borana i Blálandi. r Víkingur: Gummersbach laugardaginn 22. nóv. kl. 3.00 Forsalan hefst í dag í tjaldi við Útvegsbankann LEIKUR SEM ENGINN MÁ LÁTA FRAM HJÁ SÉR FARA. Kaupgarður auglýsir ÚTSÖLU meðan birgðir endast á Akra smjörlíki & Akra bökunarsmjörlíki í jólabaksturinn RÉTT VERÐ: OKKAR VERÐ: SPARNAÐUR: Akra 500 gr. 129.— pr. stk. 112.— pr. stk. 17.— pr. stk. Bökunar- smjörlíki 119.— pr. stk. 103.— pr. stk. 16.— pr. stk. * I baksturinn: Bökunardropar (10 teg.) Kókósmjöl Kökuskraut Súkkat Hveiti Flórsykur OpiS: föstudag 9—12 & 1 3—22 laugardag 9—12. Sykur Púðursykur Suðusúkkulaði Hnetur Rúsínur Smjörpappír Súkkulaðispænir Kaupgarður ■ WU Smiöjuvegi 9 Kopavog novLr FYRIR VIÐRAÐANLEGT Nýja Novis samstæðan er ætluð ungu fólki ó öllum aldri. Novis er skemmtilega einföld og hagkvæm lausn fyrir þó, sem leita að litríkum hillu- og skópasamstæðum, sem byggja mö upp í einingum, eftir hendinni. | Novis er nýtt kerfi með nýtízkulegum blæ. ÚTSÖLUSTAÐIR: Reykjavík: Kristján Siggeirsson hf. I L Húsið Híbýlaprýði Dúna Akranes: Verzl. Bjarg Borgarnes: Verzl. Stjarnan Bolungarvík: Verzl. Virkinn, Bernódus Halldórsson Siglufjörður: Akureyri: Húsavík: Selfoss: Keflavík: Bólsturgerðin Augsýn hf. Hlynur sf. Kjörhúsgögn Garðarshólmi hf. FRAMLEIÐANDI: KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF. HÚSGAGNAVERKSMIÐJA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.