Morgunblaðið - 20.11.1975, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÖVEMBER 1975
33
VELA/AKAIMOI
Velvakandi svarar í síma 10-100
kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
0 „Rhesus-varnir“
Guðjón Guðnason læknir skrif-
ar:
„Kæri Velvakandi.
Þriðjudaginn 11. þ.m. er höfð
eftir fjögurra barna móður í pistli
þínum gagnrýni á starfsemi
„stofnunar þeirrar, sem annast
eftirlit með vanfærum konum í
Reykjavík". Konan mun senni-
lega eiga við Mæðradeild Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur og
sem forstöðumaður deildarinuar
tel ég rétt að leiðrétta misskilning
eða rangfærslu, sem kemur fram í
þessum orðum konunnar. Fyrst
vil ég reyna að útskýra lítillega,
hvað átt er við með Rhesusvörn-
um. Aðalblóðflokkar eru 4, -0, A,
B, og AB, en auk þess eru allir
ýmist það sem kallað er Rh-
jákvæðir eða Rh-neikvæðir, 85% i
fyrri flokknum,15% i þeim seinni.
Sé konan Rh-neikvæð og barns-
faðir Rh-jákvæður, þá getur
myndast I bióði móðurinnar mót-
efni, sem áhrif kunna að hafa á
hið ófædda barn. Slikt gerist
mjög sjaldan við fyrstu þungum,
en hættan er fyrir hendi hjá fjöl-
byrjum. Tekin eru 3 blóðsýni á
meðgöngutimanum frá sem næst
öllum Rh-neikvæðum mæðrum,
hið fyrsta 2 mánuðum fyrir vænt-
ánlega fæðingu barnsins, hin 6 og
3 vikum fyrir þann tíma. Í sér-
stökum tilfellum eru þessi blóð-
sýni tekin fyrr á meðgöngutiman-
um, þ.e.a.s. ef viðkomandi hefur
áður fætt barn með Rhesus-
sjúkdómi.
Ef mótefni finnast i blóði móð-
urinnar eru gerðar enn aðrar
rannsóknir og þá á legvatni, —
gerð svokölluð legvatnsspeglun.
Komi í ljós við þá rannsókn, að
fóstrið hafi orðið fyrir áhrifum
þessa Rh-misræmis, eru gerðar
viðeigandi ráðstafanir í sambandi
við fæðingu barnsins, (framköll-
uð fæðing fyrir tímann, ef ástæða
þykir, — blóðskipti ef með þarf).
S.l. 3 ár hafa allar Rh-
neikvæðar konur, sem fætt hafa
af s^r Rh-jákvæð börn og ekki
myndað í blóði sinu mótefni,
fengið strax eftir fæðingu (innan
tveggja sólarhringa) nokkurs
konar „bólusetningu" gegn Rh-
sjúkdómum þannig að smám sam-
an á þetta vandamál að hverfa hér
á landi, en við erum með þeim
fyrstu í heiminum sem komum
þessum vörnum á yfir allt landið,
á þann hátt, sem ég hefi nú reynt
að lýsa. Þetta á þannig ekki bara
við reykviskar konur, heldur er
þessi sami háttur hafður á um allt
landið.
Fjögurra barna móðirin mun
því aldrei hafa fengið 3 mótefna-
sprautur 3 mánuðum fyrir fæð-
ingu, heldur hafa verið tekin
En f einu atriði hafði lögreglan
heppnina með sér. Brúna trefil-
ínn þekkti vinnustúlkan hjá
Teklu Motander og sagði fullum
fetunt að Susann ætti hann. Og
Susann roðnaði við og samsinnti
þvf.
— Eg á trefilinn. Hann var á
hillunni frammi í forstofunni á
annan í jólum, þvf að ég skildi
hann þar cftir þegar ég kom ur
kirkjunni. bað var... afsakið að
ég verð að segja það — en það
hefur verið ósköp auðvclt fyrir
gestina okkar að taka refflinn.
Kannski Lotta sjálf?
Susann hafði farið upp á her-
hergi sitt, jafnskjótt og við höfð-
um kvatt, glugginn hennar sneri
út að vegfnum, en gluggarnir á
herbergi móður hennar f gagn-
stæða átt og hvorug sagðist hafa
heyrt eða séð hvað hin hafðizt að.
Þeir einu sem gátu alls ekki
hafa tekið þátt f þessum leik voru
Barbara og Hjördfs, sem höfðu
verið með mér inni f stofunni frá
þvf við komum heim, ásamt Tord
og Friedeborg sem höfðu verið f
hflnum á leiðinni til Kila.
— Ja, hamingjan góða. sagði
Christer þreytulega — Maður
þakkar alténd f.vrir það.
blóðsýni (reyndar í sprautur!)
þrisvar á 8. og 9. mánuði með-
göngutímans samkvæmt venju.
Til þin, Velvakandi góður, vil
ég að lokum beina þeim tilmæl-
um, svo og til annarra blaða-
manna, að þið kynnið ykkur hvort
nokkur hæfa sé fyrir vafasömum
fullyrðingum læknisfræðilegs
efnis, sem fólk biður um að fá birt
i dálkum ykkar, og að þið gerið
ykkur það ómak að hafa samband
við rétta aðila. Þannig mætti
koma í veg fyrir að valda fólki
óþarfa áhyggjum ogykkur erfiði.
Með vinsemd og virðingu.
Guðjón Guðnason."
0 Staðreyndir
Jón S. Bragason, Framnesvegi
22, Reykjavík skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Ég vil leyfa mér að gera að
umræðuefni útkomu blaðs nokk-
urs hér í borg er nefnist Stað-
reyndir. A forsíðu blaðsins er til-
gangur þess og markmió skýrt á
þann hátt, að það sé á móti lýð-
ræði fyrir stjórnræði.
Gaman væri að fá að vita hvort
útgefandi blaðsins á við svipað
eða sama stjórnræði og var á tim-
um"HitIers í Þýzkalandi og fylgi-
fiska hans. Það má ætla, því að
þar er að finna mjög svipaðan
áróður og Hitler hafði i frammi,
t.d. er talað um peningajúða og að
hinn hviti kynstofn standi hinum
svarta framar.
Ég var að vonast til að tími
fasista og annara þvilikra væri að
liða undir lok með væntanlegu
andláti Francos einræðisherra á
Spáni, en annað hefur nú komið i
ljós. Fasistar hafa nú hafið útgáfu
áðurnefnds blaðs hér á íslandi og
einnig er óskað eftir meðlimum i
samtök þeirra, samanber auglýs-
ingu í Dagblaðinu hinn 17. þ.m.
Einhverjir muna eflaust eftir
flokki þjóðernissinna er starfandi
var á árunum fyrir heimsstyrjöld-
ina, en hann lognaðist sem betur
fer út af skömmu eftir upphaf
striðsins.
Skora ég þvi á almenning að
kæfa ósóma þennan í fæðingu,
því nógir eru fjendur lýðræðisins
fyrir. Jón S. Bragason."
% Endurskinsmerki
Guðrún Aðalsteinsdóttir
hringdi vegna umræðna hér í
dálkunum um endurskinsmerki.
Hún sagðist hafa orðið vör við
uppástungur um að framleið-
endur yfirhafna saumuðu endur-
skinsmerki á t.d. úlpur, þannig að
kaupendur þyrftu ekki að hugsa
um þetta. Guðrún sagðist hafa
orðið vör við gagnrýni á framleið-
endur vegna þess að þeir hefðu
ekki sinnt þessu, en hins vegar
væri staðreyndin sú, að a.m.k. ein
fataverksmiója, Hekla, sendi frá
sér úlpur með endurskinsmerkj-
um. „Það er sjálfsagt að láta þá
njóta sannmælis, sem það eiga
skilið," sagði Guðrún, „en ég
spurðist fyrir i stórri fataverzlun
nýlega, hvort ekki væru fleiri
framleiðendur, sem þetta hefðu
gert. Sagðist afgreiðslustúlkan
ekki vita til þess. Ég vil nota
tækifærið og hvetja aðra fram-
leiðendur til að hafa yfirhafnirn-
ar með endurskinsmerkjum er
þeir senda þessar nauðsynlegu
flíkur á markað," sagði Guðrún að
lokum.
£ Strætis-
vagnarnir
„Farþegi" skrifar:
Einhver bezta og nauðsynleg-
asta þjónusta við borgarbúa eru
strætisvagnarnir. Með þeim er
hægt að ferðast um þvera og endi
langa Reykavik fyrir fáar krónur.
langi einhvern til að sjá sig um í
borginni, er til auðveld og ódýr
leið — að fara í hringferð með
strætisvagni.
Vagnarnir eru hreinlegir og
notalegir. Að þessu athuguðu, er
það hörmulegt, að skemmdir skuli
vera unnar á þeim. Það Iýsir van
þroska og lítilli siðmenningu, svo
ekki sé meira sagt.
Það er mjög eðlilegt, að rætt sé
margl um hin tiðu og sorglegu
slys í umferðinni nú á dögum.
Vafalaust eru margar ástæður til
þessara vandræða, eins og bent
hefur verið á. En vikjum þá að
strætisvögnunum. Það mun heyra
til undantekninga, ef þeir valda
slysum. Þó er ærin ástæða til þess
að svogætiorðið.þviaðvíða hafa
vagnarnir stranga áætlun, en þó
er kannski mestur vandinn með
gangandi fólkið, sem æðir út á
göturnar í veg fyrir vagnana, i
órétti. Ég fullyrði, að vagnstjór-
arnir bjarga lífi fjölda manns dag
hvern. Það sýnir, að þessir menn
eru starfi sinu vaxnir á allan hátt,
að mér finnst, eftir margra ára
ferðir með vögnunum.
0 Þegar
hálkan kemur
Nú er veturinn kominn. Þótt
enn sé veður eins gott og hugsazt
getur, þá kemur einhvern tíma
snjór og frost. Þá vandast nú mál-
ið á götum borgarinnar, eins og
auðvitað á öllum vegum, en hér
mun kreppa mest að, vegna hins
gífurlega bilafjölda. Þegar myrkr
ið, isinn og snjórinn hrjá vegfar-
endur, þá ættu þeir að hugsa um
hvernig bezt sé að bregðast vió
vandanum. En þvi miður — allir
vilja aka, — árekstrar, slys,
skemmdir og gifurleg eyðsla
verða örlög margra. Mesta og
bezta hjálpin væri að fækka bil-
unum á götum borgarinnar,
fækka slysum og spara mikið fé.
Hugleiðið þetta virðulegu borg-
arbúar, og látið ykkur sæma að
ferðast með strætisvögnunum eða
ganga nokkurn spöl Það lífgar og
hressir, er heilsugjafi og ódýrt
meðal. Jafnframt eflið þið stræt-
isvagnana og sparið eigið fé og
almennings með þvi að fækka
slysum, þvi að þau eru dýr.
Farþegi."
HÖGNI HREKKVÍSI
T. bone steik.
840 kr. kg.
Bóg steik
555 kr. kg.
Innan lærisvöðvi
1.100 kr. kg.
V2 svínaskrokkar
595 kr. kg tilbúnir í frystikistuna.
1 0 kg.nautahakk
530 kr. kg.
• > 9 . ’
Opið föstudaga kl.°8—7
Opið laugardaga kl0. 7 —12.