Morgunblaðið - 21.11.1975, Síða 1
36 SÍÐUR
267. tbl. 62. árg.
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Drög að samkomulagi í Bonn:
Verulegar tilslakanir
hjá Vestur-Þjóðverjum
segir Einar
Ágústsson
VIÐRÆÐUM Islendinga og V-
Þjóöverja í Bonn sem staðið hafa
sl. tvo daga, lauk f gær með því að
samninganefndir gengu frá drög-
um að samkomuiagi, sem lögð
verða fyrir ríkisstjórn, þing-
flokka og Alþingi, ef þau hljóta
samþykki fyrrgreindra tveggja
aðila,
Ókleift reyndist f gær að fá
upplýsingar hjá rfkisst jórnum
beggja landanna um efni þessara
samkomulagsdraga, en AP-
fréttastofan taldi sig f gær hafa
áreiðanlegar heimildir fyrir þvf
að m.a. væri að finna f þeim cftir-
farandi efnisatriði:
• V-Þjóðverjar hafi fallizt á 60
þúsund tonna ársafla, sem
mun vera svo til eingöngu
karfi og ufsi.
0 Ákvæði er um fjölda togara,
sem hafa leyfi til veiða.
0 Samkvæmt heimildum AP er
gert ráð fyrir allt að 2ja ára
samningi.
0 Heimildarmenn AP segja, að
Bonnstjórnin muni beita sér
fyrir að bókun 6 taki gildi, en
AP telur spurningu, hvort
Bretar muni fallast á það, þar
sem þeir hafi ekki náð
samningum við fslendinga.
Þegar Mbl. náði tali af Einari
Agústssyni utanríkisráðherra í
Bonn síðdegis sagði hann að við-
ræðufundum hefði lokið um
hádegi og sendinefndin kæmi
heim með samkomulagsdrögin á
morgun og síðan yrðu þau lögð
fyrir ríkisstjórnina um helgina og
að svo búnu fyrir þingflokkana og
Alþingi í heild.
— Við urðum sammála um að
segja alls ekkert frá efni þessara
samningsdraga fyrr en við höfum
gert grein fyrir þeim á réttum
vettvangi, sagði ráðherra. Að-
spurður um, hvort rétt væri sem
segði í AP-fréttum, að Vestur-
Þjóðverjar teldu sig hafa gert
verulegar tilslakanir gagnvart
íslendingum sagði Einar Agústs-
son:
— Það get ég staðfest. Þeir
féllu alveg frá frystitogaraveiðum
og gerðu auk þess ýmsar lag-
Framhald á bls. 20
Varðskipið Týr og landhelgísbrjótur. — Myndin er tekin úti fyrir Austf jörðum i gærdag.
Annar tónn hjá Hattersley:
Vill viðræður—slær af
kröfum um aflamagn
ROY Hattersley, aðstoðarutan-
rfkisráðherra, vfsaði á bug kröf-
um sem komu fram á fundi Neðri
málstofunnar f gær um að brezk
herskip yrðu send á Islandsmið
til að vernda brezka togara að
veiðum þar. Hann lýsti jafnframt
þeim vilja brezku stjórnarinnar
að halda áfram viðræðum við
lslendinga en sagði að hún yrði
að verja hagsmuni brezkra
sjómanna og verkamanna í landi.
Hann kvað það ekki ófrávíkjan-
lega kröfu Breta að ársafli þeirra
Þjóðarsamstaða var
síðasta bón Francos
□ -
Sjá grcin á bls 18—19.
20.
-□
nóvember,
Madrid,
Reuter.
FRANCISCO Franco hers-
höfðingi, þjóðarleiðtogi Spánar
um 36 ára skeið, lét eftir sig
boðskap til spænsku þjóðarinn-
ar þar sem hann skorar á hana
að standa saman og forðast
Juan Carlos og Soffía prinsessa
við Ifkhörur Franco hers-
höfðingja f kapellu Pardohall-
Sfmamynd AP.
sundrungu er gæti leitt til
nýrrar borgarastyrjaldar og að
sameinast um arftaka sinn,
Juan Carlos prins.
Flestum Spánverjum virtist
létta að langri þjáningu hers-
höfðingjans væri lokið þegar
þeir heyrðu um andlát hans í
morgun og flestir virtust ugg-
andi um hvað framtíðin bæri í
skauti.
Carlos Arias Navarro for-
sætisráðherra var djúpt snort-
inn þegar hann hélt um hann
minningarræðu i útvarpi og
Framhald á bls. 20
á Islandsmiðum yrði 110.000 lest-
ir og kvaðst hafa tjáð Einari
Agústssyni utanrikisráðherra að
hann viðurkenndi að allar fisk-
veiðiþjóðir við Norður-Atlantshaf
yrðu að draga úr veiðum vegna
verndunarsjónarmiða.
Hattersley endurtók að Einar
Agústsson hefði tjáð sér að hann
hefði ekkert umboð til að bjóða
meira en 65.000 lesta kvóta.
Seinna sagði hann í sjónvarpsvið-
tali að hann væri ekki reiðubúinn
að sætta sig við 65.000 tonn þar
sem það mundi hafa I för með sér
óheyrilegt atvinnuleysi í sjávarút-
vegi Breta og skyldum greinum.
Hins vegar kvaðst hann reiðubú-
inn að taka til athugunar minni
afla en 100.000 lestir.
1 sjónvarpsviðtalinu sagði
Hattersley þegar hann var að því
spurður hvort hann mundi senda
herskip á Islandsmið að hann
vildi leyfa „aðstoðarskipunum"
að sýna hvort þau gætu veitt
nægilega vernd áður en hann at-
hugaði möguleika á frekari að-
gerðum.
Hann hafði áður sagt í þinginu
að bezt væri að aðstoðarskipin
sæju um að vernda togarana. „Ef
þau reynast ekki vandanum vaxin
verðum við að endurskoða af-
stöðu okkar. En það á eftir að
Framhald á bls. 20
Reagan
ógnað
Miami, 20. nóvember.
Reuter.
STARFSMENN leyniþjónust-
unnar réðu f dag niðurlögum
ungs manns sem vitni segja að
hafi miðað byssu að Ronald
Reagan, fyrrum rfkisstjóra
Kalifornfu.
Reagan stóð aðeins nokkra
metra frá manninum þegar
áflogin hófust en sakaði ekki.
Hann var nýbúinn að halda
ræðu á fundi með stuðnings-
mönnum sfnum skömmu eftir
að hann tilkynnti að hann gæfi
kost á sér sem forsetaefni
rcpúhlikana. (Sjá bls. 17)