Morgunblaðið - 21.11.1975, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.11.1975, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21 NÖVEMBER 1975 * * * J********************** * ♦ * * * * * * * * ♦ * * * * ♦ ♦ * * * * * * * * * * * * * * Skólavörðustíg og Bergstaðastræti. * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * ♦ * * * * * Hvað er starmíx? Starmix er heiti á vestur-þýzkum gæðavörum, sem við höfum fengið umboð fyrir. Fyrsta sendingin er komin og við bjóðum viðskiptavinum okkar, gömlum og nýjum, að líta við og skoða varninginn — hrærivélar, ryksugur (einnig iðnaðarryksugur), kaffikönnur, hárþurrkur og ýmis önnur heimilistæki. Flestir vita, að við selj- um CANDY þvottavélar og kæliskápa, PFAFF saumavélar, PASSAP prjónavélar, ITT frysti- kistur og kæliskápa, en nú aukum við vöruúrval okkar og þjónustu, með því að bæta STARMIX heimilistækjunum í hóp- inn. Við látum okkur ekki nægja að selja þessar þekktu vöruteg- undir — við leggjum einnig metnað okkar í að hafa góðan vara- hlutalager og viðgerða- þjónustu. ICELANDIC LYRICS- ÍSLENSK LJÓÐ VALIN AF PRÓFESSOR RICHARD BECK bESSI GULLFALLEGA ÚTGAFA AF LjÓOUM ÍSLENSKRA ÖNDVEGIS- SKÁLDA, A FRUMMÁLI OG I ENSKRI ÞÝÐINGU ER NÚ FÁANLEG AFTUR I MJÖG TAKMÖRKUÐU UPPLAGI. ÚTSÖLUSTAÐIR: BÓKABÚÐ LÁRUSAR BLÖNDAL SKOLAVÖROUSTÍG 2 OG VESTURVERI BÓKABÚÐ JÓNASAR EGGERTSSONAR ROFABÆ 7 BÓKABÚO MÁLS OG MENNINGAR LAUGAVEGI 18 BÓKAVERSLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR AUSTURSTRÆTI 18 BÓKAVERSLUN SNÆBJARNAR HAFNARSTRÆTI 4 BÓKABÚÐ KEFLAVÍKUR HAFNARGÖTU 32 HELGAFELL LAUGAVEGI ÍOO ÍSAFOLD AUSTURSTRÆTI 8 BÓKIN KOSTAR AÐEINS KR. 1,800 Brfreiðaeigendur Á meðan þér bíðið er bifreiðin ryksuguð, þvegin og bónuð. Opið alla daga vikunnar Virka daga frá kl. 8—18.40 sunnudaga frá kl. 9—18.40 BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐIN HF., SIGTÚNI 3. Danskir listamenn 1 Norræna húsinu Laugardaginn 22. nóvember n.k. kl. 16:00 og þriðjudaginn 25. nóv. kl. 20:30 kemur danski tón- listarmaðurinn Evald Thomsen ásamt Hardy syni sínum fram á tónleikum í Norræna húsinu. Tónlist sú, sem þeir Evald flytja, er gamla alþýðulega dans- tónlistin, sem öldum saman hefur verið leikin við brúðkaup og önnur veizluhöld í sveitum Dan- merkur. Það er danstónlist án texta, sem skapar gleði og sam- kennd, þar sem menn koma saman. Þessi danstónlist er 1 eðli sínu almenningseign — dansar- arnir og hljómfallið, er hið sama frá héraði til hérðas, en hver ein- stakur flytjandi, sjálfur spilarinn, ljær tónlistinni sitt einkenni. Undanfarin ár hefur áhuginn á alþýðlegri tónlist mjög vaxið, og Evald Thomsen hefur orðið læri- meistari unga fólksins, sem hefur lagt frá sér rafmagnsgítarinn og tekið sér fiðluna í hönd, svo sem De Nordiske Spillemænd og Lirum Larum, sem hafa gefið út hljómplötur með gamalli tónlist. Þeir byggja á anda Evald Thomsens og sækja lög til hans. Evald hefur leikið á fjölmörgum tónleikum innanlands og utan, meðal annars lék hann fyrir fjöldadansi í sumarbúðum hjá Det Ny Samfund í Thy 1970. Hann hefur leikið inn á 4 hljóm- plötur, og frá 1971 er hann rikis- ráðinn spilari — en ekki hefur það orðið til þess, að hann yrði neitt leiðari á að spila. Kaffisala Dóm- kirkiukvenna ÞEGAR haustar að og félagsstarf hinna einstöku félaga og félaga- samtaka er komið i fullan gang, efna félögin gjarnan til kaffisölu og halda basara til'styrktar þeim stofnunum, sem þau starfa fyrir. Á sunnudaginn kemur, 23. nóv. efnir kirkjunefnd kvenna Dóm- kirkjunnar til hinnar árlegu kaffisölu sinnar i Tjarnarbúð i nágrenni kirkjunnar, og verður húsið opnað kl. 2.30. Einnig verð- ur basar í sambandi við kaffisöl- una fyrir kaffigesti. Kirkjukaffi Dómkirkjunnar hefur jafnan þótt rausnarlegt og hefur notið mikilla vinsælda hinna mörgu velunnara Dóm- kirkjunnar, sem nú eru dreifðir mjög um allan bæ. Gefst gömlum kunningjum gott tækifæri til að hittast þarna og rabba saman um stund yfir kaffi- bolla, þar sem ljúffengar kökur og annað góðgæti verður fram borið. Þá gefst kaffigestunum tæki- færi til að kaupa vel unna muni á basar nefndarinnar, sem konurn- ar hafa unnið og gefið á basarinn. Hafa þær komið saman á hverju fimmtudagskvöldi síðustu vikurn- ar á kirkjulofti Dómkirkjunnar og unnið af kappi fyrir basarinn. Hafa þessi vinnukvöld verið kon- unum alveg sérstakar ánægju- stundic 1 sambandi við kaffisöl- una verður einnig happdrætti með góðum munum. Ágóða kaffisölunnar, basars og happdrættis verður varið eins og áður til þess að prýða Dómkirkj- un, afla henni góðra gripa og styðja safnaðarstarfið. Sóknargjöld kirknanna hrökkva nú vart lengur fyrir nauðsynlegustu útgjöldum svo að störf kvenfélaganna og hinna frjálsu samtaka innan safnaðanna eru vissulega þýðingarmikil, og margt væri fátæklegra í starfi safnaða Reykjavíkur, ef starfs kvenfélaganna nyti ekki við. Með þvi að sækja kaffisölu kirkjunefndarinnar er safnaðar- fólk og velunnarar Dómkirkjunn- ar að styðja safnaðarstarfið og sýna ræktarsemi sinni gömlu kirkju. Sunnud. 30. nóv. gengst kirkju- nefnd kvenna fyrir aðventukvöldi í Dómkirkjunni, 1. sunnud. í að- ventu kl. 8.30. Hafa aðventukvöldin verið með sérstökum jólablæ og átt miklum vinsældum að fagna, enda er að- ventutíminn undirbúningstimi undir jólahátiðina. Styðjum öll kaffisölu kirkju- nefndar kvenna á sunnudaginn kemur. Óskar J. Þorláksson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.