Morgunblaðið - 21.11.1975, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1975
*
Island fékk 5 búsund tonn síldar í Norðursió;
Sumar þjóðir fyrst og
fremst komnar til að
skara eld að eigin köku
— segir Jakob Jakobsson um
fund NA-Atlantshafsnefndarinnar
„ÞETTA var allt erfiöara við-
fangs en maður hugði, og manni
fannst sem fuiltrúar sumra þjóða
á fundinum væru fyrst og fremst
komnir til að skara eld að sinni
eigin köku fremur en hugsa um
framvinduna 1 heild,“ sagði
Jakob Jakobsson fiskifræðingur,
þegar Morgunblaðið leitaði álits
hans f gærkvöldi á niðurstöðum
af fundum NA-Atlantshafs-
nefndarinnar f London.
Svo sem Morgunblaðið skýrði
frá í gær náðist samstaða um það
á elleftu stundu á fundinum, að
leyfilegt skyldi vera að veiða 87
þúsund lestir síldar í Norðursjó
fyrstu sex mánuði næsta árs. Alls
áttu 14 þjóðir á fundinum, en á
honum var fjallað um aflatak-
markanir á mörgum fiskstofnum í
Atlantshafi. Sagði Jakob í samtali
við Morgunblaðið, að í þeim til-
fellum sem samstaða hefði náðst
um aflatakmarkanir hafi verið
sætzt á tölur sem voru mun hærri
en þær sem fiskifræðingar hefðu
talið nauðsynlegt hámark.
Sem kunnugt er gerði íslenzka
sendinefndin það að tillögu sinni
á fundinum varðandi síldveiðarn-
ar í Norðursjó, að farið yrði í einu
og öllu að ráðum visindgmann-
anna og öll síldveiði í Norðursjó
yrði bönnuð allt næsta ár. Sú til-
laga var kolfelld, og að sögn Þórð-
ar Ásgeirssonar, skrifstofustjóra í
sjávarútvegsráðuneytinu, for-
Framhald á bls. 20
Borgarspítal-
inn fékk upp-
þvottavélina
UNDANFARIÐ hafa farið fram
umræður í borgarráði og borgar-
stjórn um beiðni Borgarspítalans
varðandi kaup á nýrri uppþvotta-
vél fyrir sjúkrahúsið þar sem hin
eldri væri úr sér gengin. Albert
Guðmundsson borgarfulltrúi
beitti sér gegn þessum kaupum og
taldi að lokinni athugun sem
hann gerði að vel mætti notast við
eldri uppþvottavélina enn um
sinn. Á fundi borgarstjórnar f
gærkvöldi var hins vegar felld
frestunartillaga varðandi af-
greiðslu þessarar beiðni með 12
atkvæðum gegn þremur og
ákveðið að festa kaup á nýrri vél
fyrir spítalann.
Bragi Ólafsson, for-
stjóri Fálkans, látinn
BRAGI Olafsson, verkfræðingur,
andaðist I London hinn 19. nóv-
ember sl. Bragi var einn af aðal-
eigendum Fálkans og forstjóri
hans frá 1970.
Bragi fæddist í Reykjavík árið
1918 og voru foreldrar hans Ólaf-
ur Magnússon, kaupmaður og
kona hans Guðrún Jónsdóttir.
Hann brautskráðist frá Verzlun-
arskóla íslands árið 1936, þreytti
inntökupróf í háskólann í
Manchester árið 1942 og lauk
B.Sc.-prófi frá sama skóla 1946, og
M.Sc.-prófi 1947. Hann varð verk-
fræðingur hjá Landsmiðjunni ár-
ið 1948—51, yfirverkfræðingur
hjá Vélsmiðjunni Héðni 1951—
53, framkvæmdastjóri Iðnaðar-
málastofnunar Islands frá stofn-
un 1953—55 er hann varð fram-
kvæmdastjóri Fálkans. Síðustu
árin var hann forstjóri þess fyrir-
tækis sem fyrr segir.
Bragi átti sæti í stjórn Stéttar-
félags verkfræðinga 1954 og var í
stjórn Verkfræðingafélags Is-
lands 1959—61 og í stjórn Banda-
lags háskólamanna 1962 og í1
stjórn Iðnaðarmálastofnunar Is-
lands 1962.
Gamla fólkið í
umferðarfræðslu
LÖGREGLUMENN komu í gær
1 heimsókn 1 opið hús fyrir
aldraða við Norðurbrún. Þeir
Óskar Ólason yfirlögreglu-
þjónn og Baldvin Ottósson lög-
regluþjónn fræddu gamla
fólkið um umferðina og þær
hættur sem þar leynast, sýnd
var umferðarkvikmynd og
einnig nokkrar litskuggamynd-
ir.
Óskar Ólason sagði að gamla
fólkið hefði verið mjög ánægt
með þessa umferðarfræðslu og
þeir hjá lögreglunni hefðu ekki
síður verið ánægðir með undir-
tektir gamla fólksins. Þarna
voru 150 manns í gær og áður
hefur lögreglan komið á svip-
aðan fund á Hallveigarstöðum
og voru þar á annað hundrað
manns Þessari umferðar-
fræðslu fyrir gamla fólkið
verður haldið áfram.
.~r, ....
1 ELDLlNUNNI — Myndina tók Friðþjófur Helgason, ljósmyndari Morgunblaðs-
ins.'í landhelgisflugi í gær, og á stærstu myndinni má sjá verndarskipið Star
Aquarius, en á neðri myndunum brezkan togara að ólöglegum veiðum og síðan
hvar varðskip setur á fulla ferð eftir einum veiðiþjófinum.
Gott útlit fyrir verð
á minnkaskinnum
Rætt við Barrie Phipps, flokkunarstjóra Hudson Bay
HERLENDIS er nú staddur mað-
ur frá loðdýramarkaðnum Hud-
son Bay f London, en það fyrir-
tæki selur flest minnkaskinn,
sem Islendingar framleiða.
Maðurinn er Barris Phipps
flokkunarstjóri, en hann hefur
komið hingað til Iands undan-
Barrie Phipps,
farin þrjú ár, heimsótt minka-
búin og gefið framleiðendum góð
ráð.
Barrie Phipps sagði I viðtali við
Mbl. í gær að þau þrjú ár, sem
hann hefði haft afskipti af minka-
framleiðslu íslenzkra minkabúa
hefðu orðið miklar framfarir og
gæði skinnanna aukizt. Einnig
hefði búunum farið mikið fram
hvað snerti framleiðslu á lit og
stærð skinna. Hann sagði að
heildarfjöldi læða hefði og aukizt,
sem væri ánægjulegt merki þess
að möguleikar væru á aukningu
framleiðslunnar, þar sem hér-
lendis væri tiltölulega ódýrt að
fæða dýrin, en bú í flestum
minkaræktunarlöndum ættu við
æ meiri erfiðleika að etja vegna
fæðiskostnaðar dýranna.
Markaðshorfur fyrir minka-
skinn á þessum vetri eru mjög
góðar, Barrie Phipps sagði að t.d.
í London væri engar óseldar
birgðir af minkaskinnum, nema
þá um væri að ræða léleg skinn.
Þá kvað hann sáralitlar birgðir
hjá framleiðendum vara úr
minkaskinnum. I Bandaríkjunum
er minkaskinnamarkaðurinn á
uppleið og smásöluverð hefur þar
hækkað töluvert. Þá hefur 50%
innborgunarskylda, sem sett
‘ hafði verið á minkaskinnainn-
flutning til ítalíu, verið felld
niður. Árlega er eftirspurn á
ítaliu að magni til 3 til 4 milljónir
skinna svo að Italíumarkaðurinn
eykur til muna eftirspurn eftir
minkaskinnum, en aftur á móti —
þegar markaðurinn lokaðist, félli
verðið talsvert.
Barrie Phipps sagðist bjartsýnn
á markaðsþróunina. Kara-
kúlskinn hefði selzt mjög vel og
Framhald á bls. 20
Erlendur Magnússon
á Kálfatjörn látinn
ERLENDUR Magnússon, bóndi á
Kálfatjörn andaðist I Borgarspft-
alanum sl. miðvikudagskvöld 85
ára að aldri.
Erlendur var fæddur í Tíða-
gerði á Vatnsleysuströnd árið
1890 og voru foreldrar hans
Magnús Magnússon, bóndi þar og
kona hans Herdfs Jónsdóttir. Er-
lendur var útgerðarmaður í Tíða-
gerði árið 1911 og bóndi þar til
1920. Þá fluttist hann að Kálfa-
tjörn og rak þar búskap síðan.
Einnig rak hann útgerð þaðan til
ársins 1946.
Erlendur átti sæti í sóknar-
nefnd frá 1914 og var safnaðarfull
trúi, meðhjálpari og fjárhalds-
maður Kálfatjarnarkirkju frá
1942. Hann var oddviti hrepps-
nefndar frá 1922—28 og aftur f
hreppsnefnd 1931—58. Þá var
hann formaður Búnaðarfélags
Vatnsleysustrandarhrepps og
skattnefndarmaður frá 1929 auk
þess sem hann var fulltrúi Gull-
bringusýslu á fundum Stéttar-
sambands bænda var í sýslunefnd
og fulltrúi á fundum Mjólkur-
félags Reykjavíkur um árabil svo
að eitthvað sé nefnt.
Erlendur var kvæntur Kristfnu
Þorleifínu Gunnarsdóttur, en
.nissti konu sfna árið 1957.