Morgunblaðið - 21.11.1975, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1975
+ Faðir okkar ERLENDUR MAGNÚSSON. Kálfatjörn, andaðist I Borgarspltalanum 19 nóv Bömin.
+ Eiginmaður minn EINAR MAGNÚSSON, verksmiðjustjóri SR.. Seyðisfirði. andaðist 19 þ m. 1 Landspitalanum. Jarþrúður Karlsdóttir.
+ Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi BRAGI ÓLAFSSON, verkfræðingur, Sunnuvegi 13, andaðist í London hinn 1 9 þ m Marta Ólafsson, Páll Bragason, Guðbjörg Hjörleifsdóttir, Ólafur Bragason, Helga Bragadóttir, og barnabörn.
Útför eiginmanns mlns ÁSMUNDAR EIRÍKSSONAR, trúboða verður gerð frá Filadelfiukirkjunni laugardaginn 22 nóvember og hefst kl 10 00 Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vildu minnast hans er bent á starfsemi Filadelfiu Fyrir mina hönd og annarra vandamanna Þórhildur Jóhannesdóttir.
+ Hjartkær eiginmaður minn SIGHVATUR BJARNASON, Ási, Vestmannaeyjum, sem andaðist 15 þ.m„ verður jarðsunginn frá Landakirkju laugardag- inn 22. nóv kl. 1 4 00 Fyrir hönd vandamanna Guðmunda Torfadóttir.
+ Þökkum öllum þeim, sem sýndu vináttu og virðingu við andlát og útför, HALLDÓRS ÓLAFSSONAR ritstjóra, fsafirði. Sérstakar þakkir til séra Sigurðar Kristjánssonar og fjölskyldu hans Aðstandendur.
+ Hugheilar þakkir til þeirra fjölmörgu sem kvöddu og minntust móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu JÓNU KRISTINSDÓTTUR, fyrrv. Ijósmóður Vestmannaeyjum, Guð blessi ykkur öll. Sigurbjörg Hjálmarsdóttir Viggó Einarsson, Helga Hjðlmarsdóttir Árni Friðjónsson, Anna Hjálmarsdóttir, Kristleifur Einarsson Ása Hjálmarsdóttir, Haukur Ingimarsson, Fríða Hjálmarsdóttir, Birgir Indriðason, Hlff Erlendsdóttir, barnaböm og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför, GUÐMUNDAR GUNNLAUGSSONAR húsasmiðameistara, Hrauntúni 12, Keflavik. Guðlaug Stefánsdóttir. Hulda Guðmundsdóttir, Páll Jónsson. Gunnlaugur Guðmundsson, Helga Guðvarðardóttir. Jakobina Stefánsdóttír, Haraldur Ringsted, Jón Kr. Jónsson. Herdis Ellertsdóttir. Sigurlaug Guðmundsdóttir, Guðmundur Frimannsson, Hjalti Guðmundsson, Erla Andrésdóttir, Kolbrún Guðmundsdóttir. Halldór Lárusson. Kristin Guðmundsdóttir, Sigurður Ingvarsson, Svandts Guðmundsdóttir. Helgi Gamalielsson, barnaböm og bamabarnabörn.
Minning:
Magnús Bjarnason
kennari Sauðárkróki
Fæddur 13. marz 1899
Dáinn 13. nóvember 1975
Hinn 13. nóvember s.l. lézt á
Sauðárkróki einn af elztu og
merkustu borgurum bæjarins,
Magnús Bjarnason kennari.
Magnús fæddist að Stóru-Gröf í
Staðarhreppi 13. marz 1899. For-
eldrar hans voru hjónin Bjarni
Magnússon járnsmiður (f. 18.9.
1867) og Kristin Jósefsdóttir (f.
19.8 1866). Foreldrar Bjarna járn-
smiðs voru Magnús Bjarnason og
Guðrún Arnórsdóttir, sem bjuggu
á Lýtingsstöðum i Tungusveit.
Magnús var sonur Bjarna Jóns-
sonar bónda á Halldórsstöðum i
Langholti og konu hans Ragnheið-
ar Magnúsdóttur prests Magnús-
sonar í Glaumbæ.
Bjarni járnsmiður ólst upp við
kröpp kjör og fór ungur að amla
fyrir sér. Hugur hans hneigðist til
smíða og nam hann járnsmíði hjá
Sigurði Ólafssyni á Hellulandi. Er
faðir hans lézt tók hann við bús-.
forráðum með móður sinni. Laust
eftir 1890 fluttist Bjarni austur á
Vopnafjörð og dvaldist þar á veg-
um Árna læknis Jónssonar, er
fyrr hafði verið læknir Skagfirð-
inga. Þar kynntist hann konuefni
sínu, Kristínu Jósefsdóttur frá
Strandhöfn í Vopnafirði. Kristín
var unglingur er hún missti móð-
ur sína og varð þá að standa fyrir
heimili föður síns, er fluttist í
Vopnafjarðarkauptún. Það var
þvf líkt á komið með hjónaefnun-
um, bæðu höfðu orðið að takast á
hendur mikil ábyrgðarstörf ung
að árum.
Bjarni og Kristín fluttust til
Skagafjarðar 1896, settust að í
Eyhildarholti og urðu þar fyrir
því tjóni að missa aleigu sína í
eldsvoða. Fluttust þau þá í Stóru-
Gröf á Langholti. Þar fæddist
Magnús sonur þeirra 13. marz
1899, en áður höfðu þau eignast
dóttur, Guðrúnu f. 19. jan. 1897.
Frá Stóru-Gröf lá leið fjölskyld-
unnar að Löngumýri í Vallhólmi,
en þaðan fluttust þau hjón með
börn sín til Sauðárkróks 1901 og
áttu þar heima upp frá þvf. Bjarni
stundaði þar járnsmíðar sem aðal-
starf. Hann tók nokkurn þátt f
félagsmálum, aðallega verkalýðs-
málum, var einn af stofnendum
Verkalýðsfélagsins Fram á staðn-
um og tók virkan þátt f störfum
þess um langt skeið.
Börn Bjarna og Kristínar, Guð-
rún og Magnús, ólust upp á Sauð-
árkróki. Guðrún varð kona Har-
aldar Júlíussonar sem var kaup-
maður þar i rúmlega hálfa öld.
Magnús kvæntist ekki og eignað-
ist ekki afkvæmi. Að loknu námi f
unglingaskóla á staðnum, braust
hann f að afla sér frekari mennt-
unar, gekk í Kennaraskólann og
brautskráðist þaðan 1924. Sfðan
hófst lífsstarfið. Hann var kenn-
ari í Tórfalækjarhreppi f A.-Hún.
1924—1927, Rfpurhréppi 1927—
1931, Holtshreppi 1931—1933 og
Austurbæjarskólanum í Reykja-
vík 1933—1934. Sfðan varð hann
kennari við barnaskólann á Sauð-
árkróki, uns hann hætti störfum
1961; hafði þá kennt svo lengi, að
hann nafði unnið til fullra eftir-
launa og taldi rétt að standa ekki í
vegi fyrir yngri mönnum.
Magnús Bjarnason var ákaflega
vinsæll kennari og gat haldið
uppi góðum aga án þess að beita
hörðu. Börnin litu á hann sem
félaga og vin. Hann var gegn
kennari og áhugasamur í bezta
lagi; fór tvívegis námsferðir til
Norðurlanda til að kynna sér
skólamál.
Auk kennslustarfa tók Magnús
mikinn þátt I félagsmálum. Hann
átti um árabil sæti í hreppsnefnd
Sauðárkróks og varð síðar bæjar-
fulltrúi. Hann varð formaður
Verkalýðsfélagsins Fram á Sauð-
árkróki 1925, í þann mund er end-
urskipulagning þess var að
hefjast, og oft síðar; bar hag
þess mjög fyrir brjósti og
þótti harðsnúinn baráttumaður.
Um sinn var hann formaður
Ungmennasambands Skaga-
fjarðar. Hann sat í fyrstu
stjórn Varmahlíðarfélags og upp
frá því, meðan það starfaði. Enn-
fremur var hann um skeið I stjórn
K.S.
Magnús hóf ungur stjórnmála-
afskipti, gekk í Alþýðuflokkinn,
var í stjórn flokksfélagsins á
Sauðárkróki og átti sæti í mið-
stjórn flokksins. Hann var og oft i
framboði fyrir hann. En honum
var það ekki nóg. Hann var fjár-
hagslegur bakhjall flokksdeildar-
innar.
Árið 1924 gerðist Magnús félagi
I stúkunni Gleym mér eigi og var
lengstum i stjórn hennar meðan
hún starfaði.
Það er langt frá því að öll fé-
lagsmálastörf Magnúsar hafi ver-
ið tíunduð, en þetta ætti að nægja
til að sýna, að hann naut trausts
+
Útför
SIGURBJÖRNS ÁRNASONAR,
verður gerð frá Fossvogskirkju i
dag föstudaginn 21. þ m kl
13 30.
Hallur Sigurbjörnsson.
Benedikt Bjömsson.
t
Elskulegi eiginmaður minn
DAVID F. CROSIER
44c Heritage Village
Southburry, Conn. 06488, U.S.A.
andaðist þann 14 þ.m.
Þeir sem vildu minnast hins látna eru vinsamlegast beðnir um að láta
Minningarsjóð Thor Thors njóta þess Má leggja minningargjafir inn á
Glró-reikning Ísl.-Ameriska félagsins Nr. 70100
Guðrún P. Crosier
+
Útför litlu dóttur okkar,
ERLU HJÖRDÍSAR,
er lézt á Landspitalanum 15 nóvember, fer fram frá kirkju Óháða
safnaðarins föstudaginn 21 nóvember kl. 3 e h
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Bli'hdrafélagið
Magnea Guðmundsdóttir,
Kjartan Ólafsson, Blikahólum 2, Reykjavík.
+
Þökkum hjartanlega auðsýnda vináttu og samúð við andlát og jarðarför
litla drengsins okkar,
VIGNIS ARNAR HALLVARÐSSONAR,
Hallvarður Agnarsson, Bima Arinbjamardóttir,
Arinbjörn Arinbjamarson. Svanhildur Þorbjamardóttir
Edda Arinbjarnardóttir.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför
SIGURLÍNU HARALDSDÓTTUR,
Áshllð 13. Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við Gauta Arnþórssyni, yfirlækni, Eiriki Sveins-
syni og öðru starfsfólki handlæknisdeildar Fjórðungssjúkrahúss
Akureyrar
Einnig kærar þakkirtil Lilju Hallgrimsdóttur.
Ólöf Sigtryggsdóttir, Jóhann Guðmundsson,
Sigtryggur Sigtryggsson. Alda Guðmundsdóttir,
Sigrlður Sigtryggsdóttir. Magnús Jónsson
og barnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eiginmanns mins,
föður, tengdaföður og afa,
JÓNS R. EYJÓLFSSONAR
Háeyri Bergi Keflavlk
Innilegar þakkir færum við einnig starfsfélögum hans hjá Loftleiðum
Keflavikurflugvelli
Jóhanna Kristjánsdóttir
Inga Jónsdóttir Dave Kilgus
Halldóra Jónsdóttir Haraldur Alexandersson
Eyjólfur Jónsson
Oddur Jónsson
Jóhanna Jónsdóttir
Kristján Jónsson
og barnabörn
+
Maðurinn minn
LÁRUS GUOMUNDSSON,
kennari
lézt 1 8. nóv.
Fyrir hönd ættingja og vina
Sigríður Jónsdóttir