Morgunblaðið - 21.11.1975, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÖVEMBER 1975
29
1. HÆTTUMERKI YFIR TÓKÝÓFLUGVELLI. Fuglarnir umkringja þotu þessa
sem er að hefja sig til flugs frá flugvellinum í Tókýó, en fuglamergð yfir vellinum
hefur skapað mikla hættu fyrir flugumferð að undanförnu og flugvallaryfirvöld-
um auknar áhyggjur. Þau hafa nú ákveðið að reyna að drepa eóa fæla brott
fuglana til þess að forðast slys. 19 sinnum á þessu ári hafa fuglar sogazt inn í
þotuhreyfla yfir Tókýóflugvelli.
2. HÆTTAN VERÐUR AÐ VERULEIKA í NEW YORK. — Fuglahættan er víðar
en i Japan. Á þessari mynd sjást slökkviliðsmenn bauka í braki þotu sem hrapaði
til jarðar eftir flugtak á Kennedyflugvelli. Kviknaði í vélinni er mávar soguðust
inn í hana. Ekki varð manntjón.
Bók um Brandt
+ Bók um Wllly Brandt, fyrr-
verandi kanslara Vestur-
Þýzkalands, kemur út f Banda-
rfkjunum um áramótin og þvk-
ir lfkleg til að valda þar miklu
fjaðrafoki, að þvf er New York
Times segir í dag. t bókinni
mun látið að þvf liggja, að
Willy Brandt hafi ekki verið
við eina fjölina felldur f
kvennamálum og þvf gerð
nokkur skil. En það sem mest-
um tfðindum mun scnnilega
sæta er að Brandt hafi látið
Guillaumc sjá leyniskjal frá
Nixon þáverandi forseta
Bandarfkjanna um efni
hugsanlegra viðræðna Kiss-
ingers við fulltrúa Austur-
Evrópurfkja.
Brandt sagði nýlega á fundi
flokksmanna sinna f Mann-
heim að þeir yrðu að vera vel á
verði gegn hvers konar slúðri
og óhróðri sem væri til þess
eins fallið að draga úr einingu
innan flokksins og veikja tiltrú
á honum sem forystumanni
flokksins. ^
Allir skórnir eru úr leðri
A og leðurfóðraðir,
játtk stærðir 36—39V2
Millibrúnt leður
Teg 1.
Verð 8.990 —
Rauðbrúnt með
dökkbrúnu.
Teg. 2
Verð 8.990,—
Dökkbrúnt leður
Teg. 3.
Verð 8.990.—
Vínrautt leður
Teg. 4.
Verð 8 990,-
Rauðbrúnt
leður
Teg. 5
Verð 8.990
Leðttf
skor