Morgunblaðið - 21.11.1975, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NOVEMBER 1975
33
VELV/VKAIMOI
Velvakandi svarar i sima 10-100
kl. 1 4— 1 5, frá mánudegi til föstu-
dags
% Um herferð
gegn
tðbaksreykingum
Kolbeinn Stefánsson skrifar
„Reykjavik 16. nóv. 1975
I dag er fæðingardagur Jónasar
Hallgrimssonar, „óskabarns
ógæfunnar". Ögæfa hans var m.a.
vínneyzla, þá var ekki orðin út-
breidd sú néyzla sem virðist ætla
að gera marga ibúa þessa lands að
„óskabörnum ógæfunnar" jafn-
hliða vínneyzlunni, en það er
tóbaksneyzlan. Undanfarið hefur
staðið I fjölmiðlum herferð gegn
vágestinum, og hefur sem betur
fer borið mikinn árangur, en bet-
ur má ef duga skal. Því miður eru
aðstandendur herferðarinnar
févana og geta ekki haldið áfram.
Það sýndi sig að f efstu bekkjum
gagnfræðaskóla er ekki óalgengt
að börnin reyki allt upp I pakka á
dag. En það eru aðrir sem ekki
eru févana; þeir sem hafa hag af
því að börnin okkar reyki pakka á
dag, tóbaksframleiðendur og
seljendur.
Að vísu eru tóbaksauglýsingar
bannaðar með lögum, en kringum
þau lög er farið eins og ævinlega
þegar nógu fjársterkir aðilar vilja
koma vilja sínum fram. Myndir
eru settar úti í glugga, getraunum
er komið af stað og þar fram eftir
götunum sem ég veit liklega ekki
nógu náið um til þess að telja allt
upp.
„Hvfti villihesturinn"
Inn á heimili mitt barst með
börnunum plagg; eitt af slíku, það
er gátuleikur frá sígarettufyrir-
tæki, verðlaunin er 15 daga dvöl á
ekta búgarði einhversstaðar. —
Ja, mikið skal til mikils vinna.
Leikurinn er fólginn i þvi að
finna „hvita villihestinn“, hvíti
hesturinn er bæði i okkar þjóðtrú
og trú margra annarra þjóða tákn
dauðans, sbr. hið víðfræga kvæði
Federico Garcia Lorca í rómaðri
þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar
úr „Blóðbrullaupi", „Stóri hvíti
hestur, háskans næturgestur, ber
þig brott að skunda".
Þegar likanið af lungum unga
mannsins sem hafði dáið úr
krabba af völdum reykinga var
sýnt i sjónvarpinu, var krabba-
æxlið hvitt, það er því ekki að
ófyrirsynju sem leita á að „hvíta
villihestinum", krabbaæxlinu,
sem var komið á sáningarstig i
lungum ungs manns sem hafði að
líkindum reykt frá 14 ára aldri.
Hversu lengi eigum við að leyfa
þetta í okkar þjóðfélagi, fleiri og
fleiri börn falla fyrir „hvíta villi-
hestinum“, Vífilsstaðir fullir af
sjúklingum sem komast ekki
— llér I Viistlinge er fólk yfir-
leitt heldur vel stætt fjárhags-
lega, sagði Hjördfs. — Þelta er
dæmigerð stórbýlasókn. Kila er
allt öðruvfsi, þar eru verksmiðjur
og verkafólk og þar er byggðin
þéttari og Ifkist meira bæjarsam-
félagi.
Þrátt fyrir vetrarkuldann var
Hjördfs Ilolm berhöfðuð enda
hugsaði ég með mér að það hlytí
að vera erfitt að finna húfu eða
hatt sem hæfði vcl þessu mikla
hári. Blá augun virtust enn
skærari f stcrkri dagsbirtunni og
ég held að hún hafi fundið til
léttis — rétt eins og ég gerði sjálf
— að sleppa frá hinum duiráðu
málum Vastlinge stundarkorn.
En við komumst brátt á snoðir
um að þessi mál eltu okkur til
Kila.
Við lögðum bílnum í bflastæði
á aðalgötunni og eftir að hafa
orðið sammála um að hittast f
saumabúð Friedeborgar Jansson
hélt Einar til rakarans, Hjördfs
fór að finna slátrarann og ég fór á
hárgreiðslustofuna. Og það var
mcðan ég sat þarna f makíndum f
þurkkunni f afstúkuðum bás að
mér skildist hversu rösklega var
slúðrað um okkur öll f Vastlinge.
lengd sfna vegna „hvfta villihests-
ins“, og það sem er sárast er að
börnin falla fyrir honum.
Getum við ekkert gert, það þarf
meira en eina viku á 5 eða 10 ára
fresti, þvi samtökin gegn
vágestinum eru févana, en hinir
sem fá gróðann af ónýtum lung-
um, skertum vinnukrafti, fjöl-
mörgum veikindadögum, þeir
auglýsa vöru sína áfram með
fleiri „hvítum villihestum".
Stöðvum sigð „hvíta villi-
hestsins", hættum að kaupa sígar-
rettur.
Kolbeinn Stefánsson."
% Um bjórkrár
í Englandi
Edda Snæfells skrifar:
„Vegna ósvífinnar greinar
Björns Jóhannessonar i Vel-
vakanda um bjórkrár i Englandi
langar mig til að það komi fram,
að þar sem ég hef verið búsett i
nokkur ár og kem þar líka oft að
jafnaði, er mér kunnugt um, að
strangt eftirlit er haft með öllum
bjórstofum þar og veit að svona
nokkuð fyrirfinnst þar ekki nú til
dags. Það koma eftirlitsmenn frá
bjórverksmiðjunum og líta eftir
að bjórinn sé við rétt hitastig og
alger þrifnaður sé þar, sem bjór-
inn er.
Ef einhverju er ábótavant og
þvf er ekki kippt í lag, varðar það
sektum eða uppsögn.
Þótt við séum I þorskastriði við
Breta, þá finnst mér, að rétt skuli
vera rétt, og fyrir fólk, sem aldrei
hefur komið til Englands, eru
þetta mjög villandi upplýsingar
frá Birni.
Edda Snæfel!s.“
0 Nafnskfrteini
við tóbakskaup
Kona nokkur hringdi og gerði
að umtalsefni reykingaherferð-
ina. Hún benti réttilega á að reyk-
ingar barna og unglinga eru
áhyggjuefni og benti á i því sam-
bandi, að sigarettur væru alltof
aðgengilegar börnum og ungling-
um. Hún sagði að hér gæti hvert
barn gengið inn I búð og fengið
þar keyptar sígarettur, án þess að
spurt væri um aldur. Þess vegna
vildi konan koma þeirri hugmynd
á framfæri, að sigarettur væru
ekki seldar börnum undir sextán
ára aldri og til þess að hafa eftir-
lit með þessu, yrðu sígarettur
ekki afgreiddar nema framvisað
væri nafnskírteinum, ef við-
skiptavinurinn væri á vafasömum
aldri. Hún sagðist raunar vita, að
aldrei yrði hægt að koma alveg i
veg fyrir reykingar barna og
unglinga, en það væri þó það
minnsta, að reynt væri að stemma
stigu við þeim eftir því sem hægt
væri.
0 Hvert er ráðs-
konukaupið?
Kristín Einarsdóttir hafði
samband við okkur og sagðist
hafa reynt mikið til að komast að
því hvert væri ráðskonukaup,
annaðhvort á sveitaheimili eða
heimili í þéttbýli. Hún sagði:
„Það er eins og enginn viti þetta
eða geti gefið einhverja visbend-
ingu, þannig að nú ætlaði ég að
gera úrslitatilraun."
Hafi einhver slikar upplýsingar
á takteinum mun Velvakandi
birta þær með ánægju.
HOGNI HREKKVISI
Svei mér þá! Þarna virðast einnig búa iifandi furðuver-
ur.... sjáðu bara.
Komið og sjáið
bezta
markvörð
heims,
Klaus
Kater í
Laugardalshöllinni
á laugardaginn kl. 3
PHILIPS
rakvélar
ein af 6 gerðum
Fullkomin varahlutaþjónusta
HP 1125
Bestu kaupin í milliverðflokki rafmagns-
rakvéla. Hún er með rakhaus með 3
rakhnífum, sem trygqir frábæran og
mjúkan rakstur. Þessa vél er hægt að nota
á ferðalögum um víða veröld, þar sem
hún er með innbyggðum straumbreyti.
PHILIPS
kann tökin
á tækninni
heimilistœki sf
Haf narstræti 3—Sætúni 8
S3? SIGGA V/öGA £
^6 W
0??W Yllá AQ SÁ SStf
SSM VÍÉR EXK/ íuMLýg/-
LlúA WQlNáU W' 0ú
ý/0?GÖHOE6\NOVl
V//INN VÆCflA?-
/-AUST 5£1ToR \ ?o?W