Morgunblaðið - 30.11.1975, Síða 1
1
48 SÍÐUR
275. tbl. 62. árg.
SUNNUDAGUR 30. NÖVEMBER 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ford skipar
frjálslyndan
íhaldsmann
Washington 29. nóvember —
NTB.
FORD, Bandaríkjaforseti, út-
nefndi í gær lítt þekktan Chicago-
dómara, John Paul Stevens, til að
taka sæti f hæstarétti landsins.
Stevens, sem er frjálslyndur
ihaldsmaður, kemur í stað hins
frjálslynda Williams Douglas, svo
fremi sem þingið fellst á skipan
hans. Douglas sagði af sér vegna
heitsubrests. Eiginkona Fords,
sem ýtt hafði undir það að maður
hennar skipaði konu i hæstarétt,
hefur lýst vonbrigoum sínum yfir
að karlmaður skuli hafa hreppt
dómarasætið en sagði þó að lík-
lega hefði maður sinn valið bezta
manninn. Ekki er búizt við því að
þingið setji sig upp á móti skipan
Sevens í hæstarétt.
Til Peking að
styrkja friðinn
Washington 29. nóvember — Reuter.
FORD Bandarfkjaforseti sagði f dag að hann færi til Peking til að
styrkja friðinn í Asíu og sambandið á milli Washington og Peking.
Hann lagði af stað f ferðina í morgun. og mun dveljast í fimm daga f
hinni kfnversku höfuðborg. Með í ferðinni er eiginkona hans, Betty og
18 ára gömul dóttir, Súsan. A heimleiðinni kcmur forsetinn víð á
Filippseyjum og í Indónesfu.
Sambandið á milli Kína og
Bandaríkjanna var sérstaklega
gott um það leyti, sem
Nixon fór i hana velheppn-
uðu ferð sfna þangað í
febrúar 1972 en hefur síðan
versnað. Ætlun Fords mun vera
að reyna að endurvekja hið góða
samband en Kínverjar og Banda-
ríkjamenn munu standa fjarri
hvor öðrum í afstöðu til m.a. For-
mósu og hlutverks Sovétríkjanna
f heimsmálum.
Þá mun Ford að líkindum finna
betur en nokkru sinni fyrr að
hann stendur i skugga Nixons,
sem hann tók við af fyrir 15 mán-
Framhald á bls. 47
Wellington, 29. nóvember.
Reuter.
ÞJÓÐARFLOKKIJRINN undir
forystu Robert Muldoon vann
yfirburðasigur í þingkosningun-
um í Nýja-Sjálandi og vann 10
þingsæti af Verkamannaflokkn-
um undir forvstu Wallace
Rowling forsætisráðherra.
Þegar aðeins var ótalið í þrem-
ur kjördæmum hafði Þjóðar-
flokkurinn fengið 53 þingsæti og
Verkamannaflokkurinn 31. Frá-
farandi stjórn Verkamanna-
flokksins hafði 23 þingsæta meiri-
hluta á sfðasta þingi.
FJÓRTAN fvrrverandi fanga-
verðir úr útrýmingarbúðum
nasista f Lublin f PóIIandi hafa
verið leiddir fyrir rétt f Vestur-
Þýzkalandi, ákærðir fyrir morð
á 250.000 Gyðingum. Einn
hinna ákærðu er Hermine
Ryan-Brunsteiner, sem fluttist
til Bandaríkjanna eftir heims-
stvrjöldina og hefur búið þar
síðan. Hún var framseld að
bciðni vestur-þýzkra yfirvalda
til að mæta við réttarhöldin.
Afsögn Navarros er
sögð á næsta leiti
Madnd 29. nóvember — NTB, AP
AREIÐANLEGAR heimildir hafa skýrt frá þvf, að forsætisráðherra
Spánar, Carlos Arias Navarro, muni segja af sér innan fárra daga. Það
er Juan Carlos, konungur, sem skipar eftirmann hans og margir hafa
verið nefndir sem líklegir eftirmenn Navarros.
Þeir, sem einna helzt eru taldir
koma til greina, eru Jose Maria
Areilza fyrrverandi upplýsinga-
málaráðherra og Fernandi Mar-
ica-Stiella, fyrrum utanríkisráð-
herra. Juan Carlos mun brátt
einnig skipa nýjan forseta þjóð-
þingsins, eftir að það embætti
losnaði fyrir fáum dögum. Álitið
er að konungurinn muni skipa
íhaldsaman mann í það embætti
til að geta gert frjálslyndan mann
að forsætisráðherra.
Parísarblaðið Le Monde sagði i
morgun að Juan Carlos hefði gert
spænskum kommúnistum grein
fyrir því, að hann óskaði eftir að
þeir gæfu honum ráðrúm og frið
um sinn til að koma á pólitiskum
umbótum í landinu. Sagði frétta-
ritari blaðsins í Madrid að þrir af
leiðtogum Kommúnistaflokksins
hefðu staðfest þessi tilmæli kon-
ungsins. En leiðtogar kommún-
ista hafa þó ekki í hyggju á leggja
niður baráttu sína þrátt fyrir
„vopnahlésbeiðni" konungs enda
segja þeir að konungur geti ekki
komið á frjálsræði á Spáni nema
með því að breyta valdahlutfall-
inu og leita stuðnings meðal lýð-
ræðissinnaðra afla.
Juan Carlos hefur nú setið að
völdum í eina viku og ekkert
bendir til þess að honum hafi
tekizt að ná þeirri þjóðarsam
stöðu, sem Franco reyndi að ná án
árangurs i 40 ár. Hvorki stefnu-
ræða hans né náðun fanga og
stytting fangelsisdóma virðjLst
hafa tryggt honum hvlli andstöðú
afla.
I gær hvöttu meir en 200 lög-
fræðingar i Madrid til að pólitísk-
um föngum yrði veitt náóun og
lýstu þeir vonbrigðum sínum með
það hvað náðanir konungs eru
takmarkaðar. .
Stjómin tapaði
í Nýia-Sjálandi
Verkamannaflokkurinn hefur
verið í stjórn síðan 1972 og hafði
þá aðeins einu sinni verið í stjórn
síðan eftir stríð — eftir sigur sinn
í kosningunum 1957. Flokkurinn
var í stjórn óslitið á árunum 1936
til 1949.
Rowling sigraði i sínu kjördæmi
með 719 atkvæða mun miðað við
1834 atkvæði í síðustu kosning-
um. Thomas McGuigan heil-
brigðisráðherra tapaði í hinu
gamla kjördæmi Norman Kirks
sem var forsætisráðherra á undan
Rowling.
Hjón í úthverfi Los Angeles virða fyrir sér heimilisbflinn eftir að skógareldur hafði farið um hann
höndum og eyðilagt að auki heimili þeirra og eignir. Miklir skógareldar, sem geisuðu I grennd við Los
Angeles í vikunni, eyðilögðu um 50 heimili.
Rauði aðmiráUirm
rekinn í Portúgal
Lissabon, 29. nóvember. Reuter.
VÍÐTÆKAR breytingar hafa verið gerðar á yfirstjórn
portúgalska sjóhersins í kjölfar svipaðra hreinsana í
landhernunt eftir uppreisn vinstrisinnaðra hermanna.
Antonio Rosa Coutinho flotafor-
ingi, sem hefur verið kallaður
Rauði aðmirállinn vegna vinstri-
sinnaðra stjórnmálaskoðana og
var um tíma landstjóri í Angola,
hefur sagt sig úr byltingarráðinu.
Einn fárra hægrimanna sem hafa
haldið stöðum sinum í flotanum
eftir fyrri hreinsanir, Augusto
Silva Cruz aðmíráll, hefur jafn-
framt verið skipaður yfirmaður
sjóhersins í stað Figueira Soares
aðmiráls sem fylgir kommún-
istum aó málum.
Margir flóttamenn frá Angola
hafa kennt Rosa Coutinho flota-
foringja um það að þeir neyddust
til að flýja og hann dró aldrei dul
á það að hann hafði samúð með
marxistahreyfingunni MPLA. 1
tilkynningu frá byltingaráðinu er
tekið fram að aðmírállinn hafi
ekki verið viðriðinn byltingartil-
raunina á dögunum.
Fyrrverandi varaforsætisráö-
herra Portúgals, Arnao Metelo of-
ursti, hefur verið handtekinn i
sambandi við byltingartilraunina.
Hann var einnig innanríkisráð-
herra i einni stjórn Vasco
Goncalvesar fyrrum forsætisráð-
herra sem er enn forstöðumaður
herfræðistofnunar Portúgals.
Þar sem Soares flotaforingja
hefur verið vikið úr stöðu yfir-
manns flotans er talið vist að and-
stæðingar kommúnista taki við
mikilvægustu stöðum i flotanum.
Hann var skipaður yfirmaður sjó-
hersins til bráðabirgða þegar Jose
Pinheiro de Azevedo. fyrirrenn-
ari hans. var skipaður forsætis-
ráðherra.
Hermennirnir sem stóðu að
byltingartilrauninni á dögunum
fengu freigátu frá Soares. Síð-
ustu fallhlifaliöarnir sem hafa
veitt viðnám i herstööinni i
Tancos gáfust upp i nótt án þess
að veita mótspyrnu.