Morgunblaðið - 30.11.1975, Side 3

Morgunblaðið - 30.11.1975, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1975 3 „Samt þekki ég mig ekki í þessum síbreytilega bœ” Rabbað við íslenzkar konur búsettar í Grimsby HÉR Á landi er nú í heimsókn 70 manna hópur Islendinga, sem búsettir eru í Bretlandi og m.a. er þar á annan tug íslenskra kvenna sem eiga heima í fiskimannabænum Grimsby. Hópurinn er hér á vegum Félags Islendinga í London og er þetta þriðja árið sem félagið efnir til 5 daga ferðar hingað rétt fyrir jólin, en fararstjóri er Ólafur Guðmundsson, formaður félagsins í London. Við hittum að máli þrjár konur búsettar í Grimsby og fara viðtölin hér á eftir: „Dásamlegt að sjá breytingarnar hér Svana og Guðbjörg. Ljósmynd Mbl. Sv. Þorm. „Mismunandi fas Islend- inga og Englendinga 99 Svana Aðalsteinsson hefur búið í Grimsby í 43 ár. Fyrri maður hennar, Englendingur, fórst í síðari heimsstyrjöldinni, en seinni maður hennar, Páll heitinn Aðalsteinsson, var skip- stjóri og útgerðarmaður í Grimsby um árabil. Svana kvað það fastan sið hjá íslenzku konunum í Grimsby að hittast hálfsmánaðarlega, þ.e. annan hvern fimmtudag, heima hjá hver annarri og spjalla saman. „Við erum 15 íslenzku konurnar,“ sagði hún,“ sem búum þarna og þegar við hitt- umst tölum við um Island og það sem er að gerast hér heima og við erum hérna einar 11 frá Grimsby í heimsókn núna.“ „Líkar þér vel í Grimsby"? „Mér hefur alltaf líkað alveg prýðilega þar. Það er svo vin- samlegt fólk þar og tekur manni vel. Við höfum aldrei fundið fyrir því í þorskastríð- um að þá sé óþægilegt að vera Islendingur í Bretlandi, fólkið hefur ekkert á möti okkur, en blöðin gera oft meira úr hlutun- um en efni standa til i raun- inni.“ „Og svo er skroppið heim?“ „Það er mjög gaman að koma heim, ég hef komið nú á hverju ári s.l. þrjú ár með Félagi Is- lendinga í London, en það er bara tæplega nógu löng viðdvöl. Við konurnar erum flestar félagar í félaginu í London og á þjóðhátiðardaginn okkar, 17. Framhald á bls. 47 Guðbjörg Edmundson hefur verið gift í Grimsby í 25 ár, en ytra hefur hún búið tveimur árum lengur. Hún er hér nú með 6 ára gamalli dóttur sinni, en maður hennar, Rafn, er fæddur í Bretlandi, sonur Agústs Ebenezersonar skip- stjóra í Grimsby, ættuðum úr Djúpinu. „Það eru tvö ár síðan ég kom síðast heim,“ sagði hún, „maður reynir að koma eins oft og hægt er og það er alltaf jafn gaman að koma heim og hitta skyld- fólk og vini. Ég er úr Bildudal við Arnarfjörð, fædd þar og uppalin, en fór þaðan tiFGrims- by 16 ára gömul. Þar höldum við saman íslenzku konurnar og þá er reynt að hafa allt eins islenzkt og hægt er, pönnukök- ur með rjóma, rúgbrauð með kæfu, fslenzka að sjálfsögðu töluð og málin rædd. Ég kann vel við mig í Grimsby, því fólk- ið þar er gott og vinalegt. Ég er hrifin af Englandi, en það er alltaf gott að koma heim, við erum alltaf Islendingar og gerum okkur lika grein fyrir því að fas Islendinga og Eng- lendinga er ekki með sama hætti. Við myndum t.d. minnast á þorskastríð við Breta búsetta hér, en ytra er aldrei ymprað á slíkum málum við okkur.“ Dfsa með börnum sfnum tvelmur. Ljfamynd Mbi. s>. Þorm. „Hlýlegra þeg- ar inn er komið” „Ég hef búið í Grimsby í 11 ár,“ sagði Dísa Hallet í rabbi við okkur, „fór utan 1964 þá 19 ára gömul og vann hjá Þórarni Olgeirssyni." Eiginmaður Dísu er Englend- ingur og eiga þau tvö börn, 9 ára dreng og 5 ára telpu, sem bæði eru með móður sinni hér í heimsókn. „Við notum núna þessi hag- kvæmu fargjöld sem hægt er að fá yfir veturinn, það er of dýrt að koma heim yfir sumartím- ann.“ „Hvernig finnst þér að búa í Grimsby?" „Það er mjög gott og ég kann vel við það. Við hittumst þar hálfsmánaðarlega fslenzku kon- urnar og það er skemmtilegt. Það er ekkert vandamál að vera íslendingur í Grimsby, jafnvel þótt kastist í kekki í þorska- stríðum. Hins vegar hefur bróðir minn verið að stríða mér með því að ég fái ekki að fara úr landi núna vegna þess að ég er með brezkan passa, hann vill halda slíkum í gíslingu hér.“ „Finnst þér sérstök breyting eiga sér stað hér á milli þess sem þú kemur heim?“ „Nei, engin sérstök, en upp- byggingin er mikil. Breiðholtið t.d. er ekki mjög skemmtilegt að sjá utan frá, en þess ber að geta að í Bretlandí er meira lagt upp úr útliti húsa að utan. En þegar maður kemur inn í íbúðir í Breiðholtinu, þá eru heimilin miklu huggulegri og hlýlegri en þegar komið er inn á brezk heimili. Hins vegar verður maður mest var við dýrtíðina, af öllum breytingum, og nú kaupi ég ekkert nema kæfu, skyr, hangi- kjöt og slíkt lostæti. Hins vegar sakna ég fjölskyldunnar mikið þegar ég er úti og þeim mun meir sem ég verð eldri. Það er svona þegar maður kem- ur frá stórri fjölskyldu." Kanaríeyjar 1975—1976 GRAN CANARIA: Nú eru aðeins laus sæti i eftirtaldar ferðir: 4. des. 2 vikur 25. marz 3 vikur 22. april 3 vikur Verð frá kr. 42.800. TENERIFE: 4. jan 2 vikur 1 8 jan 2 vikur 1 feb 1 9 dagar 1 9 feb. 24 dagar 1 4 marz 3 vikur 4 april 1 8 daqar Allir fara í ferð með ÚTSÝN Sýningar í Kaupmannahöfn drottför 1 5. feb Scand menswear faii Brottför 14 marz. Scand fashion week Brottför 23. apr. Scand gold & silver fair. Verð frá kr. 38.300 Frankfurt Hópferð á teppasýningu 13. —19. jan. Verð frá FERÐASKRIFSTOFAN ÚTSÝN AUSTURSTRÆTI 17 Bangkok og Pattaya Ógleymanleg ævintrýaferð Brottför: 1 9. des 15. feb. Kenya Brottför: 13. marz Safari og vikudvöl við *^^^^ndlandshaf. /jj^ SÍMAR 26611 OG 20100 Costa Del Sol Páskaferð Brottför 1 4. apríl 1 8 dagar. Skíðaferðir til Lech í Austurríki Brottför 1 5. jan og 7. febr. Verð með gistingu og Vi fæði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.