Morgunblaðið - 30.11.1975, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÖVEMBER 1975
7
Við tendrum í dag fyrsta
Ijósið á aðventukransinum.
Sá atburður táknar tímamót,
en hann hefureinnig boð-
skap að bera.
Tímamótin eru þau, að í
dag hefst aðventan, jóla-
fastan, og um leið nýtt kirkju-
ár. Áramótin, sem verða að
mánuði liðnum, eru hin
veraldlegu áramót. Árið, sem
þá hefst, er byggt upp af
366 dögum almanaksins.
Kirkjuárið myndast með
nokkuð öðrum hætti. Það tel-
ur fyrst og fremst helgi-
dagana, rauðu dagana á
dagatalinu. Almanaksárið
skiptist í árstíðir. Kirkjuárið
hefur einnig sín afmörkuðu
tímabil. Kirkjan einkennir
þau með því að leggja
áherslu á vissa þætti kristins
boðskapará hverju tímabili.
Jafnframt undirstrikar kirkjan
boðskap hvers tímabils með
ákveðnum litum i messu-
klæðum, litum sem breytast
eftirtíðum kirkjuársins.
Boðskapur Ijóssins á að-
ventukransinum er um komu
jólanna. Þau nálgast, koma
Krists færist sífellt nær, og
þess vegna tendrum við æ
fleiri Ijós, er nær dregur jól-
um, uns altendrað jólatré
tekur við, í fyllingu timans.
Höfuðtexti fyrsta sunnu-
dags í aðventu er frásögn
Mattheusar af innreið J.esú í
Jerúsalem. Boðskapur henn-
ar á mjög vel við á þessum
tímamótum. Kristurerað
koma. Hann erað halda
innreið sína í líf okkar. —
„Sjá, konungurþinn kemur
til þín," er tónað í kirkjunum í
dag, og söfnuðurinn svarar:
„Greiðið veg Drottins, gjörið
beinar brautir hans." Við er-
um minnt á, að „Krists er
koma fyrir höndum", að við
eigum að ryðja öllum
hindrunum úrvegi hans, búa
hugi og líf allt undir að taka á
móti honum. Um það fjallar
boðskapur aðventunnar I
heild.
Litur messuklæðanna, sem
undirstrikar þennan boð-
skap, erfjólublár. Hann
táknar iðrun og yfirbót. Hann
minnir okkur á, að við þurf-
um að iðrast, við þurfum að
ryðja burt öllu, sem við finn-
um, að er rangt, samrýmist
ekki boðskap Krists, en
eignast I staðinn þá hluti,
sem bera í sér kærleika,
fegurð og hreinleika og varna
honum því ekki vegarins, er
hann kemur, en standa miklu
fremur sem vörður við veg
hans inn að hjörtum okkar.
Latneska orðið aðventa,
sem notað er um jólaföstuna,
þýðir koma, koma Jesú til
safnaðarins. Orðin: Hann
kemur gætu verið
einkunnarorð aðventunnar,
og þau segja okkur vel til-
gang og eðli þessa fjögurra
vikna timabils, sem fram
undan er. Það er undir-
búningstími fyrir komu
Krists.
Og víst er undirbúningur-
inn mikill þennan tíma, sem í
hönd fer. Hann felur í sér
mestu kauptíð ársins. Aldrei
er heldur meira bakað á
heimilunum, allt er gert
hreint, sópað og prýtt, svo að
jólin geti komið, haldið
innreið sína á heimilin. Við
gætum kallað aðventutim-
ann eftirvæntingardaga eins
og kirkjan nefnir stundum
dagana frá uppstigningar-
degi til hvítasunnu, er
postularnir biðu eftir þvi, að
Jesús sendi þeim heilagan
anda sinn. Eftirvænting
aðventunnar er í okkar aug-
um ekki minni, og við
keppumst við að gera jóla-
legt í kringum okkur. Um
það er ekki nema gott eitt að
segja, meðan það gengur
ekki út i öfgar, meðan það
skaparekki ofþreytu, sem
hindrar, að jólanna verði not-
ið á eðlilegan hátt, meðan
ekki er gengið svo nærri
pyngjunni, að það hafi óhóf-
leg eftirköst í áhyggjum.
En jólin koma ekki i þess-
um hlutum. Þau koma ekki i
jólagjöfum, ekki i jólakökum,
ekki heldur með jólasveinum
eða jólaskrauti. Jólin koma
ekki í neinni ytri dýrð
Jesús Kristur kemur í gleði
hins kristna manns, sem i
auðmýkt og kærleika opnar
honum hjarta sitt, býr honum
þar rúm og gefur honum hug
og hönd, lif og starf. —
Hvað slikur maður gerir svo í
gleði sinni til að láta hana i
Ijós út á við, hvað hann reyn-
ir til að gera eins bjart og
fallegt hið ytra og hann þráir
að sé hið innra, það er annað
mál. Einnig, hvað hann gerir
til að gefa öðrum af gleði
sinni. í þvi Ijósi séð eru jóla-
undirbúningur og jólagjafir
fagrir siðir og göfgandi. En
þar, sem hið rétta hugarfar
vantar, eru þeir innantómt
skrum, og sú hætta er víða
fólgin að þrátt fyrir mikinn
undirbúning verði Kristi út-
hýst úr hjörtum, sem eru
ofhlaðin, kannski ekki illum,
en fávísum og fánýtum
hugrenningum.
Hver er svo okkar afstaða
til þessara hluta, lesandi
minn? Hver eru okkar jól? í
hverju er okkar jólagleði fólg-
in? Er okkur kannski báðum
full þörf að íhuga þetta? —
Já, áreiðanlega. Og ef við
gerum það í fullri einlægni,
þá munum við komast að
þeirri niðurstöðu, að við þurf-
um lika mikinn undirbúning
hiS innra. Þar þarf að gera
hreint, ekki síður í híbýlum
sálarinnar en líkamans. Við
þurfum að ryðja burt hinum
óhreinu hugsunum, rýma
fyrir hinum hreinu, fyrir öllu,
sem er fagurt, satt og gott.
Það verða engin jól, nema
þau komi fyrst hið innra,
nema Kristur hafi fengið rúm
i hjörtum mannanna, þannig
rúm, að koma hans hafi áhrif
á líf þeirra til góðs.
Við finnum vel, að við
þurfum á þessum undir-
búningi að halda. Þess þurfa
allir menn. Enginn er full-
kominn. Og kirkja Krists
hefur lengi skilið þessa miklu
þörf mannssálnanna. Þess
vegna var aðventan ákveðin,
timabil hins huglæga undir-
búnings að komu jólanna,
árlegri komu Krists inn í and-
legt líf mannkynsins.
Göngum öll mót helgri
hátið með einlægum hug,
þeim hug, sem lýsirsérsvo
vel í þessum Ijóðlínum:
,,Ég kem i auðmýkt, Kristur hár,
ég krýp sem barnið snærri en
smár.
Ég þrái frið og þyrstur bið:
Ó, gleym mérekki Guð."
„Ó, kom minn Jesu. kom sem
fyrst,
ó, kom og mér í brjósti gist,
ó, kom þú, segir sála mín,
ó, seg við mig: Ég kem til þin."
Aðventan
Rowenfo
Rowenta
Champion
vasakveikjarar leöur
engir steinar
engar rafhlööur.
Heildsölubirgðir
Halldór Eiríksson & Co
Sími 83422. J
Hvers virði er lífið
fyrir þig
eða fjölskyldu þína?
Secumar Björgunarvesti
eru samanbrotin, fyrirferðalítil og létt, en blásast út
sjálfkrafa, þegar notandinn fellur í vatn.
Secumar halda höfðinu upp úr vatni og því ekki hætta á
drukknun.
Secumar ætti hver maður að nota daglega við sjó-
mennsku, vinnu í höfnum, brúarsmiði.vatnavörzlu.
Secumar eru viðurkennd af Siglingamálastofnun rikisins
á skuttogara.
/
\unna% <S$>geiióó(m Lf
Reykjavfk, sími 35200.
Platignum svifflugmodel
4 tegundir frægra flugvélagerða. Spitfire, Hurricane,
Mitsubishi A6M Zero, Focke-Wulf Fw 190, i einum
pakka. Auk þess fylgja litir og leiðbeiningar á íslenzku.
Módelin, sem auðvelt er að búa til og gaman er að
fljúga. Fást í bóka- ritfanga- og leíkfangaverslunum.
HEILDSÖLUBIRGÐIR
ANDVARI HF.
Sundaborg sími 84722