Morgunblaðið - 30.11.1975, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1975
11
Holdið er torvelt að
temja
eftir Snjólaugu Bragadóttur frá Skáldalæk.
Holdið er torvelt að temja er samtímasaga úr
borgarlífinu um listamenn og lífsglatt fólk, þar
sem ástin á það til að hafa endaskipti á tilver-
unni og enginn veit hver annars konu hlýtur að
lokum. Spennan vex frá fyrstu blaðsíðu og
heldur stíganda allt til enda. Þetta er fjórða bók
hinnar ungu skáldkonu. Hinar fyrri voru allar
uppseldar en fást nú aftur ( bókabúðum.
Jökull Jakobsson:
Feilnóta í fimmtu
sinfóníunni
Mannleg náttúra lætur ekki að sér hæða, nú
fremur en fyrri daginn. Kona þingmannsefnisins
í Arnarnesinu býr í ástlausu hjónabandi og
leitar sífellt burt frá veruleikanum með síð-
hærðum strákslána í Þingholtunum. Það er
talsvert önnur sinfónía sem hljómar í bedda-
ræflinum undir bárujárnssúðinni eða í bein-
hvíta hjónarúminu í svefnherberginu gegnt
Gálgahrauni. Einn getur kaliað fram undursam-
lega tóne j ,.->r v n annar nær engu nema óræðu
surgi.
Landaf undirnir miklu Handan við sjóndeildarhring
LÖND OG LANDKÖNNUN :
Mannkynssagan frá nýju sjónarhorni
Nýr, stórmerkur bókaflokkur í þýðingu Steindórs Steindórssonar.
Mannkynssöguna má skoða frá mörgum sjónarhornum. Eitt þeirra er könnunarsaga veraldar-
innar, sem er í senn fróðleg og spennandi. Bókaflokkurinn Lönd og landkönnun er könnunar-
saga einstakra heimshluta. Mjög ítarleg yfirlitskort sýna glögglega hinar einstöku landkönnunar-
ferðir og texti bókanna talar ekki einn sínu máli, heldur er lesandinn leiddur í gegnum söguna
með sérstaklega völdum litmyndum á hverri síðu af stöðum, mönnum og mannvirkjum og
verður þannig sjálfur þátttakandi í þessum sögufrægu ferðum.
LÖND OG LANDKÖNNUN
Landa-
fundirnir miklu
LÖND OG LANDKÖNNUN
Handan vió
sjóndcildadiring
IanCamcron
FRÖMUÐIR LANDAFUNDA:
Spennandi saga einstakra landkönnuða
Þessi bókaflokkur rekst ekki á hinn sem auglýstur er hér að ofan, heldur hið gagnstæða.
Ritstjóri: Sir Vivian Fuchs.
Þýðendur: Kristín Thorlacius og Rögnvaldur Finnbogason.
Þróunarsaga mannkynsins er samofin sífelldri leit þess að löndum og leiðum og hver nýr
áfangi að baki þeirra er gerðust frömuðir landafunda er merkur kafli í mannkynssögunni.
í þessum nýja bókaflokki er saga einstakra landafundafrömuða sögð mjög ítarlega, mun ítar-
legar en hægt er í hinum flokknum, þar sem megináherzlan er lögð á einstök tímabil og sagt
er frá mörgum í senn. I fyrra kom út fyrsta bókin í þessum flokki um MAGELLAN og fyrstu
hnattsiglinguna. Önnur bókin, sem er nýútkomin segir frá KAPTEIN SCOTT og harmleiknum
á Suðurskautinu. I bókinni eru 116 myndir sem teknar voru í hinum afdrifaríka leiðangri.
Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi:
Horfnir starfshættir
Formáli eftir dr. Kristján Eldjárn.
Daglaunamaðurinn, þúsundþjalasmiðurinn,
fræðaþulurinn og hinn ritgjarni orðhagi, Guð-
mundur frá Lundi, hefur skilað samtíð sinni
bók sem mun lifa í framtíðinni. Hér eru á ferð-
inni fróðleiksþættir og heimildir um lífsbjargráð
og menningarsnið á sviðum horfins þjóðlífs sem
íslenskri menningarsögu er mikill fengur í.
Þetta er bók sem á erindi til allra sem unna
þjóðlegum fróðleik og með nokkrum sanni má
segja að hún brúi bilið milli bókar Jónasar frá
Hrafnagili og okkar daga.
ijffté
hifturfm ín)tmm ffimn
y - Immálá ritúr
.4 f ^ ikkn<tját} hidjúnt
Dr. Gina Cerminara:
Svo sem maðurinn sáir
Edgar Cayce um lögmál orsaka og afleiðinga.
Þýðing og formáli: Ævar R. Kvaran.
Hvað eru örlög — hver ræður þeim — höfum
við lifað áður? Þessum spurningum svarar dul-
spekingurinn Edgar Cayce í fimmtu bókinni sem
kemur út um hann á íslensku. Hann segir frá
Karmalögmálinu, sem þýðandinn Ævar R.
Kvaran segir vera staðfestingu á algildu al-
heimslögmáli um orsök og afleiðingu, sem
enginn fái undan komist. Þekkingaruppsprettu
Cayces má nota til þess að öðlast fagra lífs-
stefnu og taka styrkum höndum um stjórnvöl
eigin lífs.
Ár gullna apans
Fimmta bók Colin Forbes.
Þýðandi: Björn Jónsson.
Þrjár milljónir sterlingspunda voru greiddar
fyrir kvikmyndaréttinn.
Olía, arabar, skemmdarverk, allt eru þetta orð
sem hljóma í eyrum okkar daglega og aldrei er
að vita hvenær og hvar næsta sprengja spring-
ur. Þetta er hörkuspennandi bók er segir frá
ráni arabiskra skemmdarverkamanna á risa-
stóru olíuskipi, sem þeir hyggjast sprengja í
loft upp I höfninni í San Francisco. Atburða-
rásin er vægðarlaus og við hæfi óskeikullar
frásagnargáfu höfundarins.
Matreiðslubókin þín
í máli og myndum.
Ib Wessman þýddi og staðfærði.
Þetta er bókin sem konan gefur eiginmanninum
í tilefni kvennaársins. í bókinni eru 535 upp-
skriftir af stórum og smáum réttum, og þó
segir talan ekki allt því sum númerin fela í sér
fleiri en einn rétt, jafnvel heila hátíðarmatseðla.
Litmynd er af hverjum rétti og bókin því mjög
handhæg í notkun. Sérstakur kafli er um krydd
og kryddjurtir, þar sem sagt er frá uppruna
kryddtegunda og notkun.
Matrejöslu-
bókin þín
í máti ny myvítmn
GÓÐ BÓK ER GULLIBETRI
Örn og Örlygur, Vesturgötu 42, Sími: 25722
1