Morgunblaðið - 30.11.1975, Side 14

Morgunblaðið - 30.11.1975, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1975 Hljómplötugaprýni Þokkabót: Bætiflákar 003 Steinar hf. Þokkabót skipa: Gylfi Gunnars- son, hljómgftar, söngur. Ingólf- ur Steinsson, hljómgftar, raf- gftar, söngur. Halldór Gunnars- son, hljómborð, munnharpa, ■ söngur. Magnús Einarsson, bassi, hljómgítar, slædgítar, söngur. Eggert Þorleifsson, ■ flauta klarinett, söngur. Ragn- ar Eymundsson, trommur. Aðstoðarmenn eru: Reynír Sigurðsson, slagverk. Jón Ár- sæll, Jón Karl, Ólafur Þórðar- son, djúpar raddir. Fyrir stuttu kom út önnur LP :r;x>. plata Þokkabótar og nefnist hún Bætiflákar. Að þessu sinni sýnir hljómsveitin á sér fleiri hliðar en á fyrri plötu sinni. Platan skiptist í tvennt og hef- ur hlið A yfirskriftina ,,Flug- vélar“ og hlið B „Sólarhring- ur“. Af þessu tvennu er „Sólar- hringur“ mun forvitnilegri áheyrnar. Sólarhringur er sam- stæða fimm laga er heita: Morg- unn, Dagur, Kvöld, Vögguvísa og Nótt. I hverju laganna er reynt að laða fram anja dags- stundar með hljóðfæraleik, söng og textum og segja má að það takist all vel. Sérstaklega má nefna lögin Dagur (lag: Magnús Einarsson og Ingólfur Steinsson, ljóð: Halldór Gunn- arsson) og Nótt (lag: Ingólfur Steinsson, ljóð: Halldór Gunn- arsson), sem eru jafn andstæð að áhrifum en ekki gæðum. Dagur er mjög fjölbreytt, létt og líflegt lag. Hljóðfæraleikur og söngur er mjög góður og fjölbreyttur og útsetning öll sérlega góð. Slagverk Reynis Sigurðssonar gefur laginu mjög skemmtilegan blæ. Nótt er hinsvegar rólegt lag og kennir töluverðra jassáhrifa í því. Meginhluti lagsins er lipurt og fjölbreytt jam-session þar sem hljóðfæraleikararnir sýna mik- inn frumleika og tilfinningu. Lágar og dimmar raddir skila vel dularfullum áhrifum nátt- Sfuífsíóan er f umsjón Ásmundar Jóns- sonar og Baldurs J. Baldurssonar. S SAM-koma ■ SAM-klúbbsins Cabaret er vafalaust einhver efnilegasta hljómsveit sem fram hefur komið hér f áraraðir. Örn Bjarnason lék og söng trúbadorsöngva. Þriðjudagskvöldið þann 18. þessa mánaðar stóð endur- vakinn SAM-klúbbur fyrir SAM-kvöldi í tilefni af útgáfu blaðsins Samson. Á þessu kvöldi voru seld meðlimaskír- teini og tilgangur klúbbsins kynntur, sem í sjálfu sér er mjög ánægjulegur og nauðsyn- legur, þ.e. kynning nýrra hljómsveita og tónlistarmanna þeirra. Ásamt þessu voru nýjar íslenzkar plötur kynntar. Spurningin er bara sú, hvernig þessi klúbbur mun standa sig í framtíðinni sem áframhaldandi framtak fyrir þá sem hafa gengið í hann. Það hcfur nefni- lega sýnt sig að stofnaðir hafa verið klúbbar hérlendis, scm svo lítið heyrist frá þegar borguð hafa verið meðlimaskír- teini. Framkvæmdahlið kvöldsins samanborið við stefnuskrá klúbbsins verður að teljast all neikvæð. Kynningar voru Iitlar sem engar, svo sem á meðlim- um þeirra hljómsveita, er þarna komu fram og á því efni er þær fluttu. Undirbúningur kvöldsins var einnig greinilega í algjöru lágmarki, sbr. þær stöðugu seinkanir, scm áttu sér stað á dagskránni. Dagskráin hófst með leik hljómsveitarinr.ar Bláber sem þarna kom óvænt í stað Eikar- irinar. Bláber lék einkum taktþunga tónlist undir bluesáhrifum líkt og al- gengt var skömmu fyrir eða í kringum árið 1970. En áhrif Framhald á bls. 21 Hljómsveitin Bláber lék einkum taktþunga tónlist undir bluesáhrifum. Hljómsveitin Sheriff. — Mikil „hard-rokk“ hljómsveit. Jakob Magnússon - Ameríkuferðin - Whitebadiman ENN Á nv mun Jakob Magnús- son hafa horfið ð erlenda grund og nú til Danmerkur. Hér á landi hefur hann annars dvalið undanfarnar tvær vikur eða svo eftir alllanga og stranga Ameríkuferð. En með Jakobi I þessari ferð var hljómsveit hans, The Whitebachman Trio, sem skipað er auk hans þeim John Giblin, Alan Murphy og Preston Ross Hevman. Sökum þessa höfðum við samband við Jakob og báðum hann að greina okkur frá þvf, sem drifið hefur á hans daga undanfarnar vikur og mánuði og jafnframt frá ýmsum áformum um komandi tfma og annars konar hugleið- ingum. „Eiginlega byrjun þessa alls verö ég að telja heimkomu mína í sumar, þegar ég færði Whitebachman tríóið með mér og ferðaðist með það ásamt Stuðmönnum um landið. Á þessu ferðalagi má scgja, að ég hafi gert mér Ijósa staðreynd f sambandi við rekst- ur hljómsveita. Það að reka hljómsveit svipar mjög til fjöl- skyldureksturs, þ.e. hefur f för með sér sömu erfiðleika. Þegar hlynnt er meira að öðru af- kvæminu, sem í þessu tilfelli var Whitebachman tríóið, þá verður hitt, þ.e.a.s. Stuðmcnn, óánægt. Ástæðan fyrir þvf, að ég hlynnti meira að White- bachman trfóinu en Stuðmönn- um var einfaldlega sú, að við þurftum að nota tímann vel til að samæfa hljómsveitina sem bezt fyrir plötuupptökuna í Los Ange'es. Einmitt með þetta í huga fórum við í kringum land- ið og spiluðum fyrir landann." Um Bandaríkjaferðina hafði Jakob þetta að segja: „Við lögðum af stað frá Islandi einhverntfma um mánaðamót ágúst-september. Fyrst komum við til New York, þar sem hljómsveitin spilaði f nokkurn tíma á klúbhum og tók upp grunna f lögin á væntan- lega plötu. Ég stjórnaði þarna Jakob og amma Ragnheiður á Hvftárbakka skoða peysu. einnig upptöku á plötu með fsfirzku hljómsveitinni ÝR. Meðan þær upptökur stóðu yfir voru hinir meðlimir Trfósins aðgerðalausir og sótti þess vegna að þeim nokkur órói. Töldu þeir sinn hlut bágan líkt og Stuðmenn fyrr. A þessu varð þó fljótlega breyting til batnaðar, þ.e. þegar ferðin í gegnum Bandaríkin hófst. Ök- um við alla leiðina og spiluðum við og við í klúbbum. Markmið þessarar ferðar var sem sagt hugsað til að samæfa hljóm- sveitina enn betur. Þegar við komum til Los Angeles leigð- um við þar hús og hófum sfðan upptökur á ný í Record Plant stúdíóinu, sem er eins konar afsliippunarstúdíó með sund- laug, gufubaði, bar og ýmsum öðrum þægindum." Næst var Jakob spurður um tónlist væntanlegrar plötu og höfunda hennar. „Tónlistin er nokkurs konar mclodfskt „good time-funk“ og er allt efnið eftir mig að undan- skildu einu lagi, sem er eftir John Giblin. Einnig munum myrkursins. Lögin Morgunn og Kvöld skila áhrifum sínum einnig vel og i Vögguvísu er ófrumlegri, með undantekning- um þó. Eftirtektarverðustu lög- in eru Flugvélar (lag: Ilalldór Gunnarsson, ljóð: Hannes Pét- ursson) og Sveinbjörn Égilsson (lag: Gylfi Gunnarsson, ljóð: Þórarinn Eldjárn). Flugvélar er leikandi Iétt og melódískt lag með skemmtilegum slæd- gítarleik, en söngur er þó kannski dálítið vandræðalegur og/eða tilgerðarlegur. Lagið Sveinbjörn Egilsson einkennist af léttum jassáhrifum og fersk- um og fjölbreyttum söng. Tónlistarleg gæði annarra laga eru heldur síðri og má þar nefna: Dufl og dans, semdjóm- ar eins og barnavísa þó textinn sé ekki í þeim dúr. MÖvekvæði sem er dáJitið einhæft og ómelódískt, Miðvikudagur, sem hljómar hversdagslega og söng- ur er dálítið of hátíðlegur á köflum, og Mansöng, sem er létt og einfalt alþýðulag. Klari- nettunotkun og söngur í laginu Við Austurvöll minna á gömul revíulög, Kardimommubæinn eða Pétur og Úlfinn. Síðasta lagið sem er Unaðsreitur, sígild vögguvísulaglína leikin á gítara. Flugvélar (hlið A) er öllu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.