Morgunblaðið - 30.11.1975, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. NÖVEMBER 1975
29
blomoool
!
btömoocil 1
Gródurhúsiö v/Sigtún sími 36770
Tilbúnir aðventukransar
í stórkostlegu úrvali.
Einnig allt efni í aðventukransa.
Yerið
velkomin
Astor
Fáið yður sæti
Þægileg sæti, sem má raða upp eftir ástæðum og mynda sæti, stóla og sófa.
Komið í verzlun okkar og fáið yður sæti.sem hæfir!
t>etta gerðist líka ....
Listin að lifa lengi
Itarlegar heilsufarsrannsóknir, sem hafa farið fram í Kaliforniu um tiu
ára skeið, þykja hafa sannað, að ef menn fvlqia ákveðnum lifsveniunt
sæmilega samvisku-
samlega. geti þeir
vænst þess að verða
töluvert langllfari en
gengur og gerist
U.S. News & World
Report segir frá þess-
um rannsóknum fyrir
skemmstu og tiundar
þær „sjö gullnu regl-
ur" sem menn
skyldu fara eftir. Þær
eru:
U Nægilegur svefn á hverri nóttu: átta stundir fyrir karla og sjö fyrir
kvenfólk. U Að neyta ætlð morgunverðar. 0 Að borða þrjár máltiðir á
dag og forðast að snarla. 0 Að stunda einhverskonar likamsæfingar og
þó allra helst að taka þátt i keppnisiþróttum. 0 Að neyta áfengis i hófi:
einn til tveir snafsar á dag eru til heilsubóta. 0 Að vara sig að
ofþyngjast ekki — en halda sig samt ögn ofan við þau mörk sem oftast
eru nefnd á heilsuverndartöflum. 0 Og svo eiga menn alls ekki að
reykja.
Visindamaður sá, sem stjórnaði þessum rannsóknum. fullyrðir, að 45
ára gamall Bandarikjamaður, sem fylgi að minnstakosti sex ofan-
nefndra boðorða, geti (að meðaltali) gert sér vonir um að verða 78 ára
— eða fimm árum eldri en sá, sem aðeins hlýðir fjórum eða fimm af
þessum reglum, og vel ellefu árum eldri en sá sem einungis fer að
þremur i mesta lagi.
Hin lifandi lík
Ber „að leyfa" þvi fólki að deyja, sem að mati lækna er „ólækn-
andi"? Eins og fréttir bera með sér hefur þessi spurning nú jafnvel
komið til kasta dómstóla vestur i Bandarikjum, sem eftir úrskurðum að
dæma treysta sér ekki til þess að svara jákvætt. Þá er málið og talsvert
rætt i Englandi, þar sem 37 ára gamall kvenlæknir að nafni Miriam
Stoppard hefur lýst yfir opinberlega, að hún hafi „deytt" einn af
sjúklingum sinum. Þessar upplýsingar komu fram i sjónvarpsþætti þar
sem „liknarmorð" voru tii umræðu Stoppard skýrði svo frá, að
umræddum sjúklingi, sem var 27 ára gamall maður, hefði verið haldið
lifandi með flóknum tækjabúnaði, sem var meðal annars tengdur hjarta
hans og heila. „Það var samdóma álit fjölmargra sérfræðinga sem
vitjuðu hans," sagði Stoppard i sjónvarpsþættinum, „að maðurinn væri
látinn frá læknisfræðilegu sjónarmiði. en enginn var reiðubúinn til þess
að taka tækin úr sambandi. Morgun einn, eftir að hafa hugsað þetta
eins gaumgæfilega og ég gat, stóð ég upp og slökkti á þeim."
Byttur í bolsalandi
Ofdrykkjuvandamál Sovétmanna heldur áfram að magnast. Sam-
kvæmt opinberum skýrslum voru 600.000 Rússar sakaðir um ölvun við
akstur á síðastliðnu ári og áfengisneyzla er tíðasta orsök umferðar-
slysa. Þá er áætlað, að betur en
fjórðungur vinnuslysa í Sovétríkj-
unum eigi rætur sinar að rekja til
áfengisneyslu. Sovétmenn eru
hinir ótrúlegustu svelgir miðað við
flestar aðrar þjóðir. Sveitahérað er
nefnt til, þar sem meðalneysla
sterkra drykkja var sjö litrar á
mannsbarn árið 1963 en var kom-
in upp í 26 litra tiu árum seinna!
Þegar hér var komið eyddu héraðs
búar að meðaltali tveimur rúblum
á ári til bókakaupa — en 230
rúblum i vodka!
— Að sögn yfirvalda er meira en helmingur allra afbrota i Sovétrikj-
unum framinn undir áhrifum áfengis. Og menn þykjast geta rakið niu af
hverjum tiu morðum og ofbeldisglæpum allskonar til sömu ástæðu.
Hættulegur aldursflokkur
Ættu karlmenn helst ekki að fá að aka bil fyrr en þeir eru orðnir 26
ára? Námsmeyjar tvær i Árósum hafa rannsakað þau 38 banaslys sem
urðu á þessum slóðum á árunum 1968— 74 og gerðust með þeim
hætti, að fótgangandi manneskjur týndu lifinu þegar þær urðu fyrir
bifreiðum. Sú athugun leiddi í Ijós, að i 21 af þessum 38 banaslysum
sat karlmaður á aldrinum 18—26 ára við stýrið i drápsbilnum, en
einungis ein kona í sama aldursflokki varð völd að samskonar slysi. Þrír
af hverjum fjórum hinna ungu ökumanna höfðu auk þess neytt áfengis
og jafnmargir óku bilum með bilaðar bremsur.
Sitt lítið af hverju
Meira en fjórðungur þeirra Bandarikjamanna, sem handteknir voru á
siðastliðnu ári fyrir „alvarlega glæpi" hafði ekki náð átján ára aldri . . .
Sviar eru búnir að taka timburflutningaskip i notkun. sem getur steypt
farminum af þil-
fari sinu eins og
myndin sýnir,
þegar það þykir
henta best . . .
Fimm feta há
höggmynd af
rómverskum sjáv-
arguði hefur fund-
ist á sextlu feta
dýpi i Bláa hellin-
um sem svo er
nefndur á Capri
. . . Despinu
Papadopoulos,
sem er eiginkona
hins fangelsaða gríska einræðisherra, hefur verið stefnt fyrir rétt fyrir
að svíkja hátt i fjórðu milljón króna út úr rlkissjóði á meðan maðurinn
hennar var og hét. Þótt frúin hafi endurgreitt fyrrgreinda upphæð
verður ákærunni haldið til streitu . . . Ýmsir breskir íhaldsþingmenn
sýnast nú liklegir til að krefjast þess, að dauðarefsing verði tekin upp
að nýju I Bretlandi, svosem i þeim tilvikum þegar hermdarverkamenn
verða fólki að fjörtjóni með sprengjum eða svip-
uðum morðtólum . . . Hafa Spánverjar haft
kóngalán? er eðlileg spurning eins og nú er
komið fyrir þeim. Þvi miður taldi hinn frjálslyndi
sagnfræðingur Salvador de Madariaga reynsluna
af spænskri konungsstjórn hreint ekki góða.
„Spánn hefur átt litlu láni að fagna með kóngana
sina," er haft eftir honum. „Þeir slæmu rikja
lengi og þeir góðu deyja ungir."