Morgunblaðið - 30.11.1975, Page 48

Morgunblaðið - 30.11.1975, Page 48
4 SILFUR- SKEIFAN BORÐSMJÖRLÍKI SMJÖRLÍKIÐ SEM ALUR ÞEKKJA ALLA DAGA „O SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1975 Ljósmynd Sv. Þorm. Það er óneitanlega Alpa-stemming á þessari mynd en svona getur aðdráttarlins- an blekkt augað. Þetta er auðvitað gamla góða Reykjavík með Esjuna í vetrarbúningi í baksýn. Vonzkuveður hamlar enn veiðum Breta: Aðstoðarskipin að verða olíulítil BREZKI togaraflotinn hélt sjó f gær í því stórviðri, sem gengur nú yfir miðin úti af Norðausturlandi og úti fyrir Austfjörðum. Flotinn hafði fært sig sunnar og var um hádegisbil í gær allur, 40 togarar, um 20 sjómilur úti af Dalatanga. Flestöll aðstoðarskipin voru á meðal togaranna, nema Othello, sem lá í vari fyrir sunnan Langanes. Þá hafði Miranda óskað eftir að komast í var með togarann Black Watch GY 23, en um borð i togaranum hafði slasazt maður, er vír slitnaði og slóst í fót hans. Veðrið á miðunuin var i gær mjög slæmt, 10 vindstig og um 10 metra öldur. Þá hafði Morgunblaðið spurnir af því úr talstöðvum að eftirlitsskip- in brezku væru orðin olíu- lftil. en olíubirgðaskipið Tide- pool var ekki komið á miðin í gær og hafði það tafizt vegna veðurs. Þá hafði Landhelgisgæzlan ekki haft spurnir af freigátunum tveimur, sem væntanlegar voru á miðin í gærmorgun, en búizt var við því að freigátan Brighton hefði eitthvað tafizt, þar sem hún fór til móts við hinn brennandi færeyska togara í fyrradag. Um borð i freigátunni Falmouth voru 8 brezkir blaðamann og í Miranda voru a.m.k. tveir blaðamenn.Frei- gátan Leopard mun eiga að halda heim til Bretlands um leið.og hin- ar tvær koma á miðin. Morgunblaðið ræddi í gær við Hjúkrunardeild tekur til starfa NtJ hefur Landspftalinn flutt inn á eina hæðina af þremur í húsi Öryrkjabandalagsins f Hátúni, sem hann hefur tekið þar á leigu fyrir hjúkrunarsjúklinga sína. Að sögn Páls Sigurðssonar ráðu- neytisstjóra í heilbrigðisráðu- neytinu er nú verið að auglýsa eftir starfsfólki fyrir næstu hæðina og er vonazt til að hún verði komin í gagnið fljótlega upp úr mánaðamótunum. Húsnæði þetta er tekið á leigu hjá Öryrkjabandalaginu eins og áður segir og var öll húsaleigan fyrir u.þ.b. áratug greidd fyrir- fram til að hægt yrði að fullgera húsið. Að þvi er Páll sagði eru góðar horfur á því að hægt verði að halda reksturkostnaði þessarar deildar fyrir neðan hálft daggjald á Landspítalanum, þannig að það verði ekki yfir 6 þúsund krónur en daggjaldið á Landspítalanum er í kringum 15 þúsund krónur. 1 hverri hæð í hinum nýju húsa- kynnum verða 23 rúm eða 69 rúm í allt. Nú er verið að kanna hversu margir hjúkrunar- eða langlegu- sjúklingar séu í sjúkrahúsunum hér til þess að fá gleggri hugmynd um hversu langt þessi nýja að- staða hrekkur. Er það Þór Hall- dórsson, læknir sem þessa athug- un annast, en hann hefur verið Framhald á bls. 46 skipstjórann á Othello, Mr. Why- att, sem þá lá í vari sunnan við Langanes. Skipið hafði í fyrra- kvöld óskað eftir að fara i var vegna veikinda um borð í tveimur togurum og hafði ekki farið út á haf aftur. Skipstjórinn á Othello sagði að veðrið væri „ekki mjög Framhald á bls. 47 Ný aðferð við verðlagseftirlit: Verðútreikning- ar á staðnum VERÐLAGSYFIRVÖLD hafa gef- ið fyrirmæli til allra verzlana og fyrirtækja um að gögn um verð- lagningu vara þurfti að liggja frammi í verzlunum, svo að eftir- litsmenn verðlagsyfirvalda geti fyrirvaralaust sannreynt verðút- reikninga á staðnum. Mun þessi skipan verða næstu tvo mánuði og fylgja f kjölfar hertrar verð- stöðvunar og eru jafnframt inn- leiddar, þar sem f hönd fer mikill verzlunartfmi. Georg Ölafsson, verðlagsstjóri, sagði í viðtali við Mbl. í gær, að til þessa hefði verið látið nægja að kaupmenn sendu inn verðút- reikninga, en nú yrði þessi háttur tekinn upp. Þessi starfsemi er nú að hefjast og hafa verið ráðnir 4 nýir starfsmenn til þess að annast þetta verkefni til viðbótar föstu starfsliði og eru þeir allir hálfs- dagsmenn. Sagði Georg, að hann vænti þess, að þessi nýja starfsað- ferð verðlagsyfirvalda gæfi góða raun. Þá ræddi Morgunblaðið við Magnús E. Finnsson, fram- kvæmdastjóra Kaupmannasam- taka Islands, og spurði hann um viðbrögð samtakanna vegna þessara nýju starfshátta verðlags- yfirvalda. Magnús sagði að Kaup- mannasamtökin væru ekki á móti verðlagseftirliti, ef það væri framkvæmt á þann hátt, sem Framhald á bls. 47 Danska listaverka- gjöfin afþökkuð 1 SUMAR kom til landsins danskur listaverkasafnari, Gunnar Mikkel- sen, og bauð hann íslenzka ríkinu að gjöf málverkasafn sitt, 2—300 myndir, þar á meðal að hans sögn nokkur verk eftir heimsþekkta listamenn. Menntamálaráðuneytið hefur látið kanna þetta mál mjög gaumgæfilega, og varð niðurstaðan sú, að listaverkasafnaranum var á föstudaginn ritað bréf, þar sem gjöfin var afþökkuð. Morgunblaðið ræddi í gær við til, sem ráðherrann vildi ekki Vilhjálm Hjálmarsson mennta- ræða frekar á þessu stigi. málaráðherra um þetta mál. Ráð- herrann sagði, að gjöfin hefði fyrst og fremst verið afþökkuð af tveimur ástæðum. 1 fyrsta lagi hefði dr. Selma Jónsdóttir for- stöðumaður Listasafns Islands skoðað umrætt listaverkasafn ásamt sænskum listfræðingi og einnig hefðu þau rætt við Gunnar Mikkelsen. Hefði umsögn þeirra til ráðuneytisins verið neikvæð. I öðru lagi hefðu kvaðir fylgt gjöf- inni, sem hefðu haft geysilegan kostnað í för með sér. Hefði Gunnar Mikkelsen t.d. gert það að skilyrði, að sérstakt safnhús yrði reist fyrir listaverkin og að honum yrði útvegað hús á íslandi og rífleg laun, en hann mun hafa hugsað sér að hafa umsjón með safninu. Fleiri atriði hefðu komið Öðinn á heimleið VARÐSKIPIÐ Óðinn lagði sfð- degis f gær af stað frá Arhus f Danmörku áleiðis til tslands, en gagngerðar endurbætur hafa verið gerðar á skipinu. Að sögn Péturs Sigurðssonar forstjóra Landhelgisgæzlunn- ar er Óðinn væntanlegur heim um miðja næstu viku. Hér hcima verður sett byssa í skip- ið og annar útbúnaður, en sfð- an fer það beint til gæzlu- starfa. Varðskipin verða þá orðin 6 að tölu. Skipherra á Óðni er Sigurður Árnason. Verður loðnan veidd hér allt næsta ár? FISKIFRÆÐINGAR hafa nú hugsanlega oröið þess vísari hvar loönan heldur sig í sjónum hér við land um þetta leyti ársins. Er það veigamikill áfangi í rannsóknum á hegðan loðnunnar, og er nú mikill áhugi á því að fylgjast með ferðum hennar allt næsta ár. Eru verulegar líkur á því, að reynt verði þá að veiða loðnuna allt árið um kring enda er loðnuárgangurinn sem kemur í kjölfar næstu hefðbundnu loðnuver- tíðar hinn stærsti sem fiskifræðingar vita dæmi um hingað til. Að sögn Hjálmars Vilhjálms- sonar, fiskifræðings, fór hann í rannsóknaleiðandur á Árna Frið- rikssyni 8. nóvember sl. og var skipið við rannsóknastörf fyrir Norðurlandi í tvær vikur. Sagði Hjálmar að byrjað hefði verið að leita við landsgrunnsbrúnina úti af Vestfjörðum og hefði leiðang- urinn eytt um það bil viku í að leita það svæði vandlega allt aust- ur fyrir Melrakkasléttu án þess að finna nokkuð sem talandi er um. Hófu þeir þá að leita norðar í hafinu eða á svæðinu út frá Kol- beinsey og vestur um að stranda- grunni. Varð þeim þar betur ágengt en þá var komið óstöðugt veður þannig að ekki reyndist unnt að leita meira. Sagði Hjálm- ar að helzt hefðu þeir þurft að leita lengra norður á vestnan- verðu svæðinu. Hjálmar sagði, að þessi leið- angur nú hefði verið farinn þrem- ur vikum til mánuði fyrr en undanfarin ár, þar eð þeir leið- angrar hefðu oftast orðið árangurslitlir vegna veðurs. Þess vegna hefði urðið ofaná nú að fara fyrr í von um betra næði til rannsókna vegna veðurlagsins. Hjálmar sagði einnig, að enda þótt þessi leiðangur hefði að nokkru leyti orðið veðrinu að bráð vildi hann þó ekki telja hahn með öllu árangurslausan, því að leiðangursmenn teldu sig hafa fengið betri hugmynd um það en Framhald á bls. 47

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.