Morgunblaðið - 02.12.1975, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1975
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1975
21
(Ljósm. Mbl. Friðþjófur).
EFST: Axel Axelsson gnæfir yfir vörn Luxemborgar-
manna, sem þó tókst að stöðva kappann með því að
koma út á móti honum.
I MIÐIÐ: Ingimar Haraldsson kominn í dauðafæri á
lfnunni er gróflega var brotið á honum og vítakast
dæmt.
NEÐST: Árni Indriðason flýgur inn í teiginn og
skorar eitt af 29 mörkum íslands í leiknum.
Skuggi stórsiprs Jngóslavín vofði yfir og
íslenzka liðið ætlaði alðrei að komast í gang
ÞAÐ var farið að fara alvarlega um menn í Laugardalshöllinni á
sunnudagskvöldið er fyrri hálfleikur í landslcik tslands og Luxem-
burgar var rúmlega hálfnaður og staðan var 6—5 fyrir gestina. Gat það
verið mögulegt að þetta lið sem er hið slakasta landslið sem hefur sðtt
okkur hingað heim, að Itölum undanskildum, settj strik f reikninginn
hjá okkur og Olympfuslagurinn yrði þegar tapaður þegar að leiknum
við Júgóslava kæmi? Nei, sem betur fer reyndist ekki svo. Eftir
frámunalega lélega byrjun sótti fslenzka liðið í sig veðrið og vann
stórsigur I leiknum 29—10, eftir að markamismunur f hálfleik hafði
aðeins verið 5 mörk, 13—7. Samkvæmt þessum úrslitum erum við
aðeins hálfdrættingar á við Júgóslavi sem settu heimsmet f markaskor-
un er þeir mættu Luxemburgurunum f Júgóslavfu, sigruðu 54—13, en
það met þeirra hefur nú verið slegið af norska landsliðinu sem leikur
hér f kvöld — það skoraði 55 mörk f Olympíuleik sfnum gegn Bretum
um helgina. Málið er þó ekki vona einfalt. Þrátt fyrir að tslendingar
sigruðu Luxemburgara „aðeins" með 19 marka mun má engan veginn
nota það sem mælikvarða né gefa upp vonina um sigur yfir Júgóslöv-
um.
Sjálfsagt hefur skuggi þessa
stórsigurs Júgóslavanna fylgt
íslenzku leikmönnunum inn á
völlinn á sunnudagskvöldið. Til
að byrja með var um algjört van-
mat á andstæðingnum að ræða.
Þaö hreinlega gleymdist að spila
vörn, og i sóknarleiknum átti
helzt að gera tvö mörk í hverri
sókn. Tók það islenzka liðið fullar
20 mínútur að hlaupa úr sér hroll-
inn, og eru þær 20 mínútur senni-1
lega það slakasta sem islenzkt
landslið hefur sýnt i leik fyrr og
síðar. Loks kom að því að farið
var að leika vörnina svona svipað
því sem búast mátti við að gæfi
bezta raun, og þar með var líka j
punkturinn settur fyrir aftan
markaskorun Luxemburgara í
leiknum. Þeir skoruðu aðeins 3
mörk í seinni hálfleiknum, öll
fremur ódýr.
Óhugsandi er með öllu að gera
þennan leik að einhverjum mæli-
kvarða á getu fslenzka liðsins. Til
þess Var samæfing leikmanna
fyrir leikinn alltof lftil og and-
stæðingurinn of auðveldur. En
ljóst má þó vera, að ýinsu þarf að
kippa f liðinn fyrir leikinn við
Júgóslavi, ef ekki á illa að fára.
Þýzkalandsleikmennirnir tveir,
Ólafur H. Jónsson og Axel Axels-
son, voru i erfiðu hlutverki i þess-
um leik. Þeir þurftu að standa
undir öllu því lofi sem þeir hafa
verið ausnir að undanförnu, og
markaðist leikur þeirra töluvert
að þessu. Hvorugur þeirra var
nálægt sínu bezta í þessum leik,
og einkum var Axel Axelsson
óákveðinn. — Þetta var bara
sprikl í honum, sögðu leikmenn
Luxemburgar eftir leikinn. Ólaf-
ur var hins vegar atkvæðameiri,
þótt oft hafi maður séð hann
miklu betri, en oft hefur það
verið þannig að Ólafur er maður-
inn sem blómstrar gegn svo slöku
liði sem Luxemburgararnir eru
r~
Leikurinn í tölum
ÞEGAR tafla um árangur einstakra landsliðs-
manna í leiknum við Luxemhurgara á sunnudags-
kvöldið er skoðuð kemur í Ijós að nýting þeirra er
yfirleitt mjög góð. Að vfsu eru hér ekki allar
skottilraunir taldar, einungis þær sem leiddu til
þess að Luxemburgarar fengu knöttinn, hvort
sem var eftir mark eða misheppnaða tilraun.
Athyglisverð er t.d. nýting Jóns Karlssonar sem
átti í leiknum 7 skot og 6 mörk. Er slfk nýting
sennilega fátTð í landsleik. Þá kemur f Ijós að alls
misstu Islendingar knöttinn sex sinnum til
Luxemburgara fyrir klaufaskap eða mistök og
skipta Iandsliðsmennirnir þeim jafnt á milli sín.
I3LAND - LUXEMBORG 29:10 (15:7)
3KOT MÖRK VARID STöNG FRAMHJÁ bolta tapap ^ENGID VITI
Páll B.iörP'vinsson 14 9 4 1 1 1
Axel Axelsson 7 5 1 1 1
Olafur Jónsson 7 4 1 1 1
S.iörrvin B.iörnvinsson o 1 I 1 o
friírik Frióriksson p 1 1 1
Vieiíó SipurJsson 5 2 1 1 1
Stefán Gunnarsson 1 1 1
J6n Karlsson 7 6 1
Srni IndriJason 1 1
Xneimar Haraidsson 1 1
og leikur það grátt. Björgyih
Björgvinsson lék Ifka undir jafn-
,vel meira álagi í leik þessum en
þeir Ólafur og Axel, þar sem val
hans í landsliðið hefur verið tölu-
vért gagnrýnt að undanförnu. Og
Björgvin var engan veginn sjálf-
um sér líkur. Að vtsu sýndi hann
gamalkunna takta öðru hverju, en
þess á milli gerði hann mistök
sem ekki er algengt að sjá
Björgvin Björgvinsson gera.
Tveir langbeztu leikmenn
íslenzka liðsins í þessum leik —
mennirnir sem björguðu andliti
liðsins voru þeir Jón Karlsson og
Páll Björgvinsson, sem báðir áttu
þarna ágætan leik. Jón var
reyndar nokkuð lengi utan vallar,
en spil islenzka liðsins og ógnun í
spili þess var aldrei meiri en
þegar hann var inni á vellinum,
og aldrei gaf hann þumlung eftir x
baráttunni. Páll var einnig mjög
atkvæðamikill — ógnaði vel og
var virkur í sókninni, auk þess
sem hann virtist kunna manna
bezt að leika þá vörn sem Islend-
ingarnir beittu með góðum
árangri í seinni hálfleiknum —
fóru fram og reyndu að trufla
sóknir Luxemburgarliðsins. Þá
átti Viggó góða spretti í leiknum,
svo og Friðrik Friðriksson sem
lék þarna sinn fyrsta landsleik og
gerði margt laglega.
Dómarar leiksins vorufrá Vest-
ur-Þýzkalandi og var túlkun
þeirra á reglunum töluvert öðru
vísi en við eigum að venjast, en
yfirleitt voru þeir sjálfum sér
samkvæmir. Það sem helzt var
öðruvfsi hjá þessum dómurum
var að þeir hikuðu ekki við að
dæma vítakast jafnvel úti á
punktalínu, ef þeir töldu að leik-
maður hefði verið hindraður frá
upplögðu færi. Væri hins vegar
brotið harkalega á línumanni var
aukakast oftast það sem þeir
dæmdu, svo fremi sem viðkom-
andi leikmaður reyndi að skjóta
eftir að brotið var á honum.
Langbezti leikmaður Luxem-
burgaranna var Karpen Roland,
en markvörðurinn, Camille Poos,
varði vel þau skot sem komu uppi,
en hins vegar ekki eitt einasta
skot sem fór í eða með gólfi.
— stjl.
Jón Karlsson kom á óvart I Ieiknum gegn Luxemborg og skoraði
falleg mörg. Á meðfylgjandi mynd er eitt þeirra í burðarliðnum.
Leikurinn í stuttu máli
t STUTTU MALI: 39. Viggó 17:7
Landsleikur í LauKardalshöli 30. nóvember 40. Páll (v) 18:7
Olympíukeppnin f handknattleik. 41.' Björgvin 19:7
ÚRSLIT: ISLAND — LUXEMBURG 29—10 44. 19:8 Kaiser
(13—7) 46. 19:9 Théa
()anj>;ur leiksins: 48. ólafur > 49. Páll 20:9 21:9
50. Axel 22:9
Mfn. fsland Luxemburg 50. Axel 23:9
2. Axel (v) 1:0 51. Páll 24:9
3. 1:1 Koland (v) 53. Páll 25:9
4. ólafur 2:1 54. 25:10 Baistert
5. 2:2 Thóa 54. Páll (v) 26:10
9. Axel 3:2 55. Axel 27:10
13. 3:3 Roland 57. Friórik 28:10
14. 15. Páll 16. ólafur 3:4 4:4 5:4 Roland 60. Páll (v) 29:10
17. 5:5 Nigra MÖRK ISLANDS: Páll Björgvinsson 9, Jón
18. 5:6 Kaiser Karlsson 6, Axel Axelsson 5, ólafur II. Jóns-
20. Páll 6:6 son 4, Viggó Sigurðsson 2, Björgvin
21. Jón K. 7:6 Björgvinsson 1, Arni Indriðason 1, Friðrik
22. 7:7 Roland (v) Fríðriksson 1.
23. Páll 8:7 MÖRK LUXEMBURGAR: Karpvn Roland 4,
25. Jón K. 9:7 Théa 2. Kaiser René 2, Baistert Alain 1,
26. ÓlafurJ. 10:7 Nigra Joseph 1.
27. Jón K. 11:7 BROTTVtSANlR AF VELL Raymond
29. Arni 12:7 Gales í 2 mín. og 5 mfn., Thill Téa í 2 mfn. og
30. Jón K. 13:7 Nigra Joseph í 2 mín., Axel Axelsson 12 mín.
Hálfleiku r Arni Indriðason í 2 mín.
32. Jón K. 14:7 MISIIEPPNUÐ VtTAKÖST: Camllle Pnos
32. Viggó 15:7 varði vftaköst frá Axel Axels syni og Páli
36. Jón K. 16:7 BjörgvinssVni
Breytingin kom ofseint
MORGUNBLAÐIÐ fékk hinn kunna handknattleiksmann Geir Hallsteins-
son til þess að bregða sér í blaðamannshlutverk á landsleik íslands og
Luxemburg á sunnudagskvöldið. Sem kunnugt er þá var leitað eftir því við
Geir að hann gæfi kost á sér í landsliðið að þessu sinni, en vegna anna
treysti hann sér ekki til að vera með. 1 meðfylgjandi grein segir Geir álit
sitt á leiknum — leikaðferðum íslenzka liðsins og uppstillingu þess.
,,ÞAÐ er erfitt að dæma svona Ieik, til þess var
mótherjinn of veikur. En ef við snúum okkur
strax að skipulagi í sókn og vörn hjá Islending-
unum þá ætlaði að ganga erfiðlega fyrir leik-
mennina að finna hver annan í sókninni. Leik-
kerfið var aðallega byggt upp á 3:3 með Björg-
vin einan á línunni og Stefán og Friðrik úti í
hornunum til að byrja með og Axel, Ólaf og
Pál fyrir utan.
Þetta gekk illa fyrst og fremst vegna þess að
hornamennirnir voru ekki nógu djúpt úti i
hornunum, en með því hefði vörn andstæðing-
anna slitnað og glufur frekar myndast fyrir
skytturnar og meira svigrúm fyrir Björgvin á
línunni. Sama var uppi á teningnum þegar
Viggó var inni, hann átti að halda breiddinni
hægra megin, en sótti út i sína stöðu, sem hann
spilar með Víkingi. Þannig varð nýtingin á
vellinum hægra megin nánast engin, enda var
hægt að telja á annarri hendinni mörkin sem
skoruð voru úr hornunum. Þar vantaði Sigur-
berg og fleiri vana hornamenn.
I fyrri hálfleik vantaði meira að láta boltarin
ganga hraðar á milli manna, heldur voru menn
að stinga niður boltanum og hnoðast inn í vörn
andstæðinganna. Einnig vorum við ragir við að
keyra upp í hröð upphlaup, sérstaklega í fyrri
hálfleiknum. Voru það reyndar yfirleitt sömu
mennirnir sem reyndu það — Páll, Friðrik,
Björgvin og Jón, en hinir sátu eftir.
Þegar tveir voru settir inn á miðja linuna
(2:4) vantaði meiri hreyfingu hjá þeim. Þeir
unnu ekki á móti boltanum og komu ekki út á
punktalínu til að draga vörnina fram öðru
hvoru. Þá sást ekki mikið af „blokkeringum"
fyrir skytturnar, náðu bakverðir Luxem-
borgarliðsins of oft að stöðva Axel, Ólaf og Pál
og fengu aðeins dæmt á sig fríkast.
Oft sáust góðar klippingar hjá skyttunum og
samvinna Björgvins og Axels er góð. Ég held
að skytturnar hafi flaskað á því að koma eins
nálægt vörninni og þeir gerðu oft á tíðum,
þeim hefði verið óhætt að reyna skot af Iengra
færi.
Ef maður lítur yfir heildina hvað sóknar-
leikinn varðar, þá var hann rétt upp byggður
gegn svona liði. Með aðallega þrjá hreyfanlega
menn fyrir utan, en eins og ég sagði áðan
vantaði méiri breidd í leikinn. Að vfsu voru
hornamennirnir nógu utarlega í byrjun hverr-
ar sóknarlotu, en sóttu sfðan út fyrir og inn á
miðjuna þannig að fimm menn voru fyrir utan.
Liðið okkar er létt og vel leikandi með 3—4
mjög fljóta og hreyfanlega menn og flestir
skjóta bæði vel og fast.
Hvað varðar varnarleikinn þá spiluðum við
of aftarlega með afturliggjandi „senter“ (5:1
leikkerfi) og fengu Luxemborgarmenn of mik-
ið næði til að hlaupa og athafna sig — og það
fyrir innan punktalínu. Getur verið að landinn
hafi verið að þreifa fyrir sér, en það tók eigi að
síður of langan tíina að breyta þessu yfir í
næstum 3:3 vörn. Um leið og það var gert fóru
þeir að skjóta lengra frá og hittu illa. Þeir
stoppuðu ekkert í hornunum og meira að segja
eini línumaðurinn þeirra fór langt út fyrir
punktalfnu til að „blokkera“ fyrir útispilar-
ana.
Þarna hefðu andstæðingarnir átt að spila
2:4, tvo inn á línu og vel inn í hornin. Þá hefðu
Islendingarnir þurft að bakka með vörnina, en
Luxemborgarmenn breyttu þessu ekki út leik-
inn og því fór sem fór; aðeins þrjú mörk í
seinni hálfleiknum. Leikur þeirra miðaðist að
því við að fá færi fyrir skytturnar á miðjunni
og hornin gleymdust, því þaðan gerði liðið
ekkert mark í leiknum.
Sfðustu 10—15 mínúturnar hefði verið skyn-
Geir Hallsteinsson fylgist með leiknum úr
stúku blaðamanna.
samlegt að gefa þeim mönnum tækifæri til að
leika saman, sem byrja leikinn gegn Norð-
mönnum og hvfla Ólaf og Axel. En það er bara
einn leikur i einu!
Mitt persónulega mat er að leika hefði átt
allan leikinn í sókn og vörn eins og gert var í
seinni hálfleiknum. Þá hefðu tölur eins og 42:6
orðið útkoman í leiknum."
ÍSLENZKU leikmennirnii1 voru sæmi-
lega ánægðir með sigurinn f lciknum
við Luxenxborg. Þeir höfðu þá alltjent
unnið með 19 marka mun og það er
hægara sagt en gert að vinna andstæð-
ing með meiri mun, jafnvel þótt hann
sé lélegur. Þeir gerðu sér þó fulla
grein fyrir því að Luxemborgarleikur-
inn var aðeins upphitun fyrir enn
stærri verkefni, leiki við Noreg, Júgó-
slavíu og Sovétríkin. Einhver lands-
liðsmannanna sagði að þetta hefði
verið ágæt æfing og eitt af fvrstu skipt-
unum, sem allir lanðsliðsmennirnir
hefðu veriö saman.
Jón Karlsson komst mjög vel fram
hjá þessum leik og er við ræddum við
hann í búningsklefanum að leiknum
loknum sagðist hann bæði vera ánægð-
ur og óhress með leikinn i heild. —
Nokkrir leikmanna liðsins voru undir
mikilii pressu í þessum leik og af þeim
var krafist stórra hluta. A ég þar við þá
Ólaf Jónsson, Axel Axelsson og Björg-
vin Björgvinsson, en þessir menn hafa
sætt nokkurri gagnrýni eða þá að búist
hefur verið við algjörum stórleik af
þeirra hálfu. Þá lék Friðrik Friðriks-
son þarna sinn fyrsta landsleik og það
hefur vissulega taugaspennu f för með
sér.
ALDURSFORSETI
— Annars var það ekki aðalatriðið að
vinna endilega með mörgum mörkum,
því markatala úr þessum leik kemur
tæplega til með að ráða úrslilum í riðli
forkeppni Ólympíuleikanna. Við
ma-tum Norðmönnum á þriðjudag og
miðvikudag og þá revnir fyrst á mann-
skapinn að sýna hvað f honum býr. —
Annars er eitt atriði, sem mér finnst að
menn hafi glevmt, það er hversu ungt
landsliðið er. Ég er aldursforseti og er
ég þó ekki nema 26 ára, sagði Jön
Karlsson að lokum.
— Þetta var eins og ég bjóst við,
sagði Axel Axelsson að leiknum
loknum. — Byrjunin mjög fálmkennd
og vandræðaleg, en lagaðist er leið á
leikinn. Liðið hefur ekki verið mikið
saman enn þá og eðlilega kom það
niður á leik liðsins, en ég hef trú á
þessu liði, það á eftir að spjara sig,
sannaðu til.
Axel og Olafur taka ekki þátt f leikj-
unum við Norðmenn á þriðjudag og
miðvikudag. Þeir héldu til Þýzkalands
á mánudagsmorgun og leika með
Dankersen gegn Gummersbach f
kvöld. Um þann leik sagði Axel að
hann yrði vfst alveg örugglega bæði
harðari og erfiðari. en leikurinn við
Luxemborg. Þeir koma hins vegar til
móts við landsliðið I Danmörku og taka
þátt f leikjum þess þar, sem meðai
annars verða við danska landsliðið,
Sjálandsúrval og tvö sterk félagslið frá
Póllandi og Ungverjalandi.
Á HÆLUNUM
Ólafur Benediktsson markvörður var
langt frá því að vera ánægður með
eigin frammistöðu f þessum leik. —
Leikir við Iið eins og landslið Luxem-
borgar eru leiðinlegustu og erfiðustu
leikir sem maður tekur þátt í. And-
stæðingurinn mun lélegri og leikur
liðsins Ifkari hnoði en handknattleik.
Maður nær aldrei að hitna, veit aldrei
hvenær skotin þeirra linu korna og svo
loksins þegar þeir sleppa tuörunni er
maður kominn á hælana og lélegustu
skot leka inn. Ég er sko ekki ánægður
með þennan leik, en lofa betri frammi-
stöðu f leikjunum við Norðmenn.
ENGINN MÆLIKVÁRÐI
— Þessi leikur er enginn mælikvarði
á raunverulega getu landsliðsins, til
þess var andstæðingurinn of lélegur,
sagði landsliðsþjálfarinn Viðar Sfmon-
arson að leiknum loknum. — Ég vissi
það af gamalli reynslu að byrjunin hjá
okkur yrði eins og hún varð, var ég þó
búinn að brýna fvrir strákunum að
vanmeta ekki andstæðinginn og leika á
fullu. Það voru gerðar miklar kröfur
til leikmannanna S þessum leik og
hjálpaðist margt að við að setja þá
undir óvenju mikla pressu f leiknum.
Júgóslavar höfðu gjörsigrað þetta lið
og stóru tölurnar frá þeim leik juku
kröfurnar til liðsins. Blaðamenn og
unnendur handknattleiksins hafa
gagnrýnt ósparlega að undanförnu og
fleira mætti nefna, sem gerði þennan
leik erfiðari en ella fyrir mannskap-
inn. _ áij.
Björgvin hefur fundið glufu á vörn andstxeðinganna og eftir send-
ingu Axels flaug Björgvin inn í teiginn og skoraði.
Þið eigið enga mögn-
leika gep Jngóslavín
- sögðn leikmenn Lnxembnrgarliðsins
— ÞIÐ hafið ekkert í Júgóslavana
að gera, sögðu leikmenn Luxem-
burgarliösins, eftir leikinn á sunnu-
dagskvöidið en þá ræddi Morgun-
blaðið við tvo þeirra, Reymond
Gales og Alain Baistert. — Skotin
hjá ykkur eru eins og sendingarnar
hjá þeim. Júgóslavneska liðið er
hreint stórkostlegt. Hver einasti
maður í liðinu er toppmaður, en
fremstur allra er þö fvrirliðinn Hor-
vant sem ta>past er ha'gt að lýsa með
orðum. Hann stjörnar öllu hjá Júgó-
slövunum og hefur vfir mikilli
tækni að ráða f leik sfnum.
Þeir félagar sögðu að leikurinn á
sunnudagskvöldið hefði verið svip-
aður og þeir hefðu búizt við. Þrír
leiknxanna liðsins hefðu áður leikið
gegn landsliði Islands, þá f Luxém-
burg, og flestir hinna hefðu séð
þann leik. — tslenzka liðið núna er
ekki eins sterkt og það lar þá, —
þaö er miklu meira óörvggi f liðinu
ykkar núna, sögðu þeir, og einstakl-
ingarnir eru líka ta^past eins sterk-
ir.
Þegar þeir félagar voru að þvf
spurðir hver þeim hefði fundist
vera bezti maður fslenzka liðsins,
þurftu þeir ekki að hugsa sig um. —
Það var Páll Björgvinsson, sögðu
þoir og einnig nefndu þeir til Jón
Karlsson og Ólaf II. Jónsson. Þeir
sögðust hafa séð til þeirra Ólafs og
Axels f sjónvarpinu úti og þvf
kannast vel við þá.
Við enduðum rabb okkar við þá
félaga með þvf að spvrja hvort þeir
héldu að lslendingar ættu ein-
hverja möguleika á að vinna Júgó-
slava hér áheimavelli.
— Þeir möguleikar eru litlir,
sögðu þeir, — í mesta lagi 20 á
móti 100. óg í Júgóslavíu getið þið
liuo gert annað en að biðja fyrir
ykkur.