Morgunblaðið - 02.12.1975, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1975
39
Geir Hallgrímsson í viðtali
við Aktuelt:
,Mannslífum ógnað
í þorskastríðinu”
Kaupmannahöfn 30. nóv. AP
I VIÐTALI við danska blaðið
Aktuelt, sem birtist s.l. sunnu-
dag, lætur Geir Hallgrímsson
forsætisráðherra þá skoðun
sfna f ljós, að mannslffum sé
ógnað í þroskastríðinu milli
Breta og Islendinga. Hann
kveðst lengi hafa verið and-
vfgur þvf að nota orðið strfð í
þessu sambandi, en „ég get
ekki verið á móti þvf þegar
Bretar hafa sent herskip sfn
inn í fslenzka fiskveiðilögsögu
til að vernda ólöglegar veiðar“,
segir forsætisráðherra f við-
talinu. „Vonandi verður þetta
strfð frábrugðið öðrum að þvf
leyti að enginn týni Iffi, en
hættan er fyrir hendi. Þessu
verðum við að gera okkur grein
fyrir, sem við og gerum.“
Forsætisráðherra kveðst vera
ákafur talsmaður þess, að
einskis yrði látið ófreistað til
að ná samningum með friðsam-
legum hætti, en sagðist ekki
mundu láta undan sfga átaka-
laust, ef friðsamleg lausn
reyndist með öllu útilokuð
„Þegar til átaka er komið á
annað borð þá spyrja menn
ekki hvort þeim falli átökin eða
ekki,“ hefur Aktuelt eftir Geir
Hallgrímssyni.
Ráðherrann tjáði blaða-
manninum, að hann teldi Is-
leninga ekki ófriðsamari en
annað fólk, svo lengi sem þeir
fengju að vinna sfn störf f friði.
„En það er satt, að þegar okkur
er gert þetta ómögulegt, þá
gerumst við ófriðsamir. Ég veit
ekki hvort þetta stafar af
hinum norska uppruna okkar
eða hvort við höfum fengið
þetta að erfðum frá trum,“
sagði Geir Hallgrfmsson.
Nýja finnska stjómin
á góðan þingmeirihluta
Fjölgað 1
starfsliði
Evensens
NORSKA stjórnin hefur sam-
þykkt tillögu frá Jens Evensen
hafréttarráðherra um að fjölgað
verði f starfsliði hans þar sem
framundan eru mikilvægar
samningaviðræður vegna fyrir-
hugaðrar útfærslu norsku fisk-
veiðilögsögunnar.
Tillögurnar koma hins vegar
ekki til framkvæmda fyrr en
Odvar Nordli tekur við starfi for-
sætisráðherra í janúar.
Tveir starfsmenn utanríkis-
ráðuneytisins sem hafa aðstoðað
Evensen Helge Vindenes og Per
Tresselt, verða fastir samstarfs-
menn hans með sendiherratign.
Ritari Evensens, Arne Treholt
verður skipaður ráðuneytisstjóri.
Norðmenn gera ráð fyrir að
þeir þurfi að standa í viðræðum
um hafréttarmál í mörgum höfuð-
borgum samtímis eftir áramót og
jafnframt aukast störf Evensens á
vettvangi SÞ í sambandi við haf-
réttarráðstefnuna. Evensen
hefur þegar farið til viðræðna við
ráðamenn í London, Bonn
Briissel, Paris, Austur-Berlin og
Varsjá og rætt við sovézka sjávar-
útvegsráðherrann Ishkov í Ösló.
Hann hefur einnig rætt við dönsk
yfirvöld og framundan eru
viðræður við Svfa.
ERLENT
Helsinki 1. desember
— NTB.
FYRSTA og brýnasta verkefni
hinnar nýju samstevpustjórnar f
Finnlandi, sem skýrt var frá f
gær, verður að gera vfðtæka áætl-
un um hvernig megi blása lffi f
atvinnulffið í landinu og draga úr
atvinnuleysinu. Flokkarnir
fimm, sem aðild eiga að stjórn-
inni, hafa ekki komið sér saman
um annað en þetta atriði, en mál-
efnasamningur á að verða tilbú-
inn eftir áramótin. Martti
Miettunern úr Miðflokkunum er
forsætisráðherra en Kalevi Sorsa.
fyrrum forsætisráðherra Jafnað-
armannaflokksins, er utanrfkis-
ráðherra. I stjórninni verða átján
ráðherrar, — 9 frá jafnaðarmönn-
um og alþýðudemókrötum sem
eru undir forystu kommúnista og
7 frá borgaraflokkunum, Mið-
flokknum, Frjálslvnda þjóðar-
flokknum og Sænska þjóðar-
flokknum, en loks eru tveir emb-
ættismenn ráðherrar f stjórninni.
Stjórnin hefur stuðning meir en
V* þingmanna á finnska þinginu.
Forsætisráðherrann, Martti
Miettunen, er 68 ára að aldri.
Sama dag og tilkynnt var um að
hann yrði forsætisráðherra, þ.e. á
sunnudag, var hann einnig valinn
formaður vináttufélags Finn-
lands og Sovétrfkjanna. Hann er
fyrrverandi fylkismaður f Lapp-
landi en á sér fjölþættan stjórn-
málaferil. A sjötta áratugnum var
hann forsætisráðherra minni-
hlutastjórnar. Hann hafði ekki
tekið þátt f stjórnmálastarfi í
mörg ár er Kekkonen forseti fól
honum öllum á óvænt að stjórna
tilraunum til stjórnarmyndunar.
Tólf af ráðherrunum eru þing-
menn. Alþýðudemókratar eiga
fjóra ráðherra, — atvinnumála-
ráðherra, Húsnæðismálaráðherra,
samgöngumálaráðherra og
menntamálaráðherra. Paul
Paavela frá jafnaðarmönnum er
fjármálaráðherra ogErro Rantale
frá sama flokki er iðnaðarráð-
herra. Nýi varnarmálaráðherrann
er Ingvar S. Melin frá sænska
þjóðarflokknum. Heimo Linna frá
Miðflokknum er landbúnaðarráð-
herra og Irma Toivanen frá
Frjálslynda þjóðarflokknum er
félagsmálaráðherra.
Bretar halda
til streitu
úreltum lagabókstaf
- segir Observer
BREZKA blaðið Observer, sem
kemur út á sunnudögum, gerir
fiskveiðideilu Breta og ts-
lendinga ftarleg skil nú um
helgina. 1 forystugrein er fjall-
að um málið, auk þess sem birt
er viðtal, sem fréttamaður
blaðsins, Laurence Mark, átti
við Geir Hallgrfmsson forsætis-
ráðherra hér f Reykjavfk.
1 forystugreininni segir, að
framkoma íslendinga f málinu
ráðist af ósanngirni, en um leið
kemur fram sú skoðun blaðsins,
að afstaða Breta til málsins sé
ekki byggð á traustum forsend-
um.
„Brezka stjórnin getur sýnt
fram á lagalegt réttmæti þeirr-
ar ákvörðunar að senda flotann
á Islandsmið til að vernda
brezka togara fyrir áreitni,"
segir blaðið, ,,en stjórnmála-
iega séð getur þessi ákvörðun
reynzt miður sannfærandi." I
þessu sambandi bendir blaðið á
vaxandi stuðning við vfðtæka
fiskveiðilögsögu í heiminum,
viðurkenningu brezku stjórnar
innar og togaraeigenda á þess-
arí staðreynd, svo og því, að um
einhliða útfærslu verði að
ræða, ef Hafréttarráðstefna SÞ
komist ekki að slíkri niður-
stöðu. „Það, að Bretar halda til
streitu úreltum lagabókstaf,
sem á ekki fylgi að fagna meðal
þorra þjóða heims og breytt
verður innan tíðar, verður því
Framhald á bls. 26
„Hörmuleg
afstaða”
segja Bretar
London 1. desember — AP.
TALSMAÐUR brezka utanrfkis-
ráðuneytisins fordæmdi harðlega
s.I. laugardag ummæli Einars Ag-
ústssonar, utanrfkisráðherra, um
að fslendingar hefðu engan
áhuga á að ræða við Breta að nýju
eins og sakir stæðu. „Þessar yfir-
lýsingar eru f algjörri andstöðu
við afstöðu okkar. Við höfum gert
allt sem við getum til að komast
að sanngjörnu samkomulagi og
við erum enn tilbúnir til við-
ræðna.“