Morgunblaðið - 02.12.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1975
STJÓRN Kiwanisklúbbsins Helgafells í Vestmannaeyjum hefur nýlega afhent
Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 500 binda bókasafn til notkunar á Sjúkrahúsinu, en
Kiwanis hefur gefið margar stórgjafir bæði f sjúkrahúsið og elliheimiiið, m.a.
460 binda bókasafn í Elliheimilið, sjónvarp í setustofu, útvörp á’ herbergi,
jólaskraut o.fl. Það sem klúbburinn vinnur nú að er öflun endurhæfingartækja
fyrir sjúkrahúsið og elliheimilið. Á myndinni eru nokkrir félagar Helgafells í
Eyjum að ljúka við að koma bókasafninu fyrir í sjúkrahúsinu.
„Mennirnir í brúnni”
5. bindi af þáttum af starfandi skipstjórum
síðan til Reykjavíkur 1910. Hann hóf
prentnám 15 ára að aldri og hefur
starfað við þá iðn síðan Skólaganga
aðeins í barnaskóla og iðnskóla.
Hann fékkst nokkuð við þýðingar um
skeið, þýddi m a nokkrar bækur eftir
Paul Brunton og Martinus hinn danska
rithöfund
■K'
Sértilboo
í eina viku
eða meðan birgðir
endast.
SKEIFUNN115
Ljóðabók eftir Þorstein Halldórsson
HILLINGAR heitir Ijóðabók eftir
Þorstein Halldórsson. Hún er 79
blaðsiður að stærð og skiptist i frum-
samin Ijóð og þýðingar i bókinni eru
þýðingar á Ijóðum eftir Holgeir
Orachmann (Andrókles og Ijónið) og
bandaríska skáldið Walt Whitman
(úr „Grasblöðum", og Söngurinn um
þjóðveginn).
Á bókarkápu segir að Þorsteinn Hall-
dórsson sé fæddur árið 1900 að
Vörðufelli i Lundarreykjadal Borgarfirði
„fluttist þaðan i Þingvallasveitina og
Hann hefur áður sent frá sér Ijóða-
kverið „Sólblik" sem kom út 1 950.
Það er Setberg, sem getur út Hilling-
ar Þorsteins Halldórssonar
KERTIOG
mm
A SERTILBOÐSVERÐI
„Hillingar”
ÆGISÚTGÁFAN hefur nú sent frá
sér fimmta bindið af „Mönnunum í
brúnni" og hefur Guðmundur
Jakobsson skrásett allar
frásagnirnar þar.
Þorsteinn Halldórsson.
Á kápusíðu segir m a ..Með þessu
bindi lýkur frásögnum ..Mannanna í
brúnni” Tilraun þessi til að kynna
starf og strið sjómanna hefur fengið
sæmilegar viðtökur og þótt ef til vill sé
þar ekki margt að finna, sem sjómönn-
um er ekki kunnugt, þá er von út-
gefanda að þegar fram líða stundir sé
hér ýmislegt sem ekki er annarsstaðar
skráð — Samtals eru þeir 31 skip-
stjórarnir, sem teknir hafa verið tali
Víða er komið við og fáir þeir þættir
fiskveiða sem ekki eru gerð nokkur
skil. Það er því skrumlaust, að þeir.
Guðmundur Jakobsson
sem lesið hafa þessar bækur eru
fróðari en ella
Bókin er 142 bls. að stærð og, auk
þess allmargar myndaslður
Þeir sem fram koma í þessu bindi
eru: Tryggvi Blöndal skipstjóri á
Esju, Sigurður Þ. Árnason skipherra
hjá Landhelgisgæzlunni, Steinarr
Kristjánsson skipstjóri á Laxá; Bern-
harð Pálsson skipstjóri á Stapafelli
og Þórarinn Ingi Sigurðsson skip-
stjóri á Brúarfossi.
Rekstur dráttar-
báta kostar Breta
85 millj. á mán.
ÞAÐ kostar brezka skatt-
greiðendur 85,5 milljðnir
fslenzkra króna á hverjum
mánuði að reka þá fjóra
dráttarbáta, sem eru brezkum
togurum á Islandsmiðum til
verndar. Frá þessu var skýrt f
brezká biaðinu Hull Daily Mail
f síðustu viku. Þessi miklu út-
gjöld hafa verið gagnrýnd
nokkuð, þar á meðal f þinginu.
John Prescott, þingmaður
Hull, hefur gagnrýnt mjög
eyðslusemi stjórnarinnar við
verndun togara og sagði f þing-
inu að hin undarlegustu atriði
virtust njóta forgangs hjá rfkis-
stjórninni.
1 umræðunum skýrði Edward
Bishop, aðstoðarsjávarútvegs-
málaráðherra, frá þvf að leigu-
og rekstrarkostnaður Lloyds-
man og hinna dráttarbátanna
þriggja væri um 59 þúsund
sterlingspund á viku. Þar fyrir
utan er svo kostnaður birgða-
skipa og herskipa.
Annar þingmaður, Patrick
Wall, hefur bent á það, að ef
þessi fiskveiðideila verður jafn
löng þeirri sfðustu, þ.e.a.s. 6
mánuðir, verður heildar-
kostnaðurinn við dráttarbátana
513 milljónir króna.
Benti Prescott á hvað þessir
peningar gætu komið að miklu
gagni við atvipnuuppbyggingu
á Humbersidesvæðinu.
„Þessi skip gera ekki annað
en að auka spennuna, þegar
mest rfður á að draga úr
henni,“ sagði hann. „Og til að
bæta gráu ofan á svart eru
flestir sjómennirnír á dráttar-
bátunum spánskir og
portúgalskir. Humberside-
nienn fá ekki einu sinni að vera
á þeim, þrátt fvrir mikið at-
vinnulevsi á svæðinu."