Morgunblaðið - 02.12.1975, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 1975
Ásökunum á Þór og UMFS
vísað til föðurhúsanna
Akureyri 20/11 '75.
,,g.k." skrifar á íþróttasíðu Morgun-
blaðsins 18. nóv., að Þór og
U.M.F.S. hafi tekið fram fyrir hendur
mótanefndar K.K.Í.
Telja má furðulegt að íþrótta-
fréttamaður og velunnari körfuknatt-
leiks skuli fara með svona fullyrð-
ingar f fjölmiðla án þess að kynna
sér alla málavexti.
Mánud. 10. nóv. hringdi fulltrúi
U.M.F.S. til undirritaðs og óskaði
eftir að fá leiktímann fluttan yfir á
laugardag 15. nóv., sama dag og
kvennalið þeirra leikur. Bað ég hann
að hringja næsta dag, en þá ætlaði
ég að vera búinn að ræða við fulltrúa
K.K.Í. á Akureyri og húsvörð íþrótta-
skemmunnar.
í leikskrá, er húsvörður hefur
fengið frá mótanefnd K.K.Í., eru
leikir á laugardag 15. nóv. M.fl.
kvenna Þór við U.M.F.S. og 3. fl.
K.A. við Leiftur. Sunnudag 16. nóv.
3. fl. Þór við Tindastól, 2. deild Þór
við U.M.F.S. og 3. deild U.S.V.H. við
Tindastól. Er þetta varð Ijóst var rætt
við fulltrúa K.K.Í. á Akureyri og til-
kynnti hann að 3. fl. leikurinn félli
niður og fannst honum ekkert
athugavert að gera þessa breytingu.
Stjórn körfuknattleiksdeildar Þórs
var sammála um að koma til móts
við U.M.F.S., af því að þetta væri
fjárhagslega hagkvæmara fyrir þá.
Laugardag 15. nóv. er leikur í
kvennaflokki hófst, mættu U.S.V.H.
f íþróttaskemmuna og töldu sig eiga
að leika við K.A. En það kannaðist
enginn við að þessi leikur væri á
skrá þennan dag, en aftur á móti 1 5.
febrúar '76.
Húsvörður bauð U.S.V.H. tíma í
húsinu á laugardag, sfðdegis, en þá
kom í Ijós að leikmenn K.A. höfðu
aldrei heyrt minnst á leik þennan
dag.
Þór og U.M.F.S. stóðu ekki í vegi
fyrir að 3. deildar leikurinn færi
fram. Það er höfuðverkur móta-
nefndar, og vfsa ég því beint til
föðurhúsanna, að þessum leik hafi
verið úthýst.
Við hér á Akureyri teljum sjálfsagt
að koma til móts við öll liðin, sem
hingað koma, f þeim tilgangi að létta
þeim ferðakostnað, þvf við þekkjum
vel hvað það kostar að fara milli
landshluta til keppni og oft og tfðum
gistingar. Ekki bara eina ferð á vetri
heldur þrjár, til fjórar í hverri fþrótta-
grein. Að lokum vil ég benda „g.k."
á að kynna sér staðreyndir áður en
hlaupið er með ádeilur f fjölmiðla.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna.
F.h. Körfuknattleiksdeildar
íþróttafélagsins Þórs
Þröstur Guðjónsson.
Reynir Santos — frumkvöðull karatefþróttarinnar á Islandi.
Efnilegir piltar
MAGNÚS Haraldsson og Þor-
steinn Aðalsteinsson heita ungu
mennirnir á meðfylgjandi mynd,
en þeir eru báðir félagar í FH og
voru s.l. sumar iðnir við að setja
íslandsmet f sinum aldursflokki,
piltaflokki, í frjálsum iþróttum.
Þorsteinn setti piltamet í stangar-
stökki með því að stökkva 2,90
metra, i hástökki, stökk 1,70
metra og i spjótkasti með þvi að
kasta karlaspjóti 39,84 metra og
sveinaspjóti 45,88 metra. Auk alls
þessa varð svo Þorsteinn sigur-
vegari i piltaflokki i þriþraut Æsk-
unnar á Laugarvatni, og keppti á
Kalla Ankaleikunum í Sviþjóð með
góðum árangri. Þar keppti
Magnús Haraldsson einnig og
náði sínu bezta i 1000 metra
hlaupi, hljóp á 3:02,8 mín.
Magnús setti i sumar piltamet I
2000 metra hlaupi, hljóp á 7:02,2
min., og i 3000 metra hlaupi hljóp
á 10:20,3 mín., í 5000 metra
hlaupi, hljóp á 18:20,4 min. og i
10.000 metra hlaupi, hljóp á
42:22,0 min
Karate - íþrótt er á langa sögu
ÞAÐ ER ekki langt stðan að
karate-íþróttin hélt innrcið sína I
íþróttalífið í Reykjavfk. Frum-
kvöðull að starfi í íþróttagrein
þessari hérlendis er Reynir
Santos, fæddur á Filippseyjum,
en hefur dvalið hérlendis um
nokkurn tíma. Reynir hefur 3 dan
gráðu í fþróttagrein þessari og
hefur kennt hana víða um lönd.
Hann er meðlimur í Shotokan
Black Belter á Filippseyjum og í
alþjóðlega karate-
þjálfarasambandinu. Hefur
Reynir unnið mikið að útbreiðslu
íþróttarinnar á tslandi og m.a.
verið stofnandi að Karatefélagi
Reykjavíkur, Karatefélagi Vest-
mannaeyja og Karatefélagi Is-
lands.
Almennt hafa menn hérlendis
fremur litla vitneskju um karate-
íþróttina og telja að þarna sé fyrst
og fremst um bardagafþrótt að
ræða, þar sem menn séu til í
slaginn eftir nokkrar klukku-
stundir. Karate-íþróttin á sér þó
djúpar rætur og markmið hennar
er bæði líkamieg og andleg
þjálfun.
Karate-íþróttin á sér um 1400
ára sögu. Frumkvöðull hennar er
maður að nafni Daruma sem
stofnaði Zen-búddistaregluna.
Hann fór frá Vestur-Indíum til
Kína í þeim tilgangi að kenna þar
trúarbrögð sín, og til þess var
ætlast að þeir sem aðhylltust
kenningar reglunnar væru í góðu
andlegu jafnvægi. Kenndi
Daruma munkunum íþrótt sem
miðaði að þessu, jafnhliða því að
vera góð líkamleg þjálfun og
nefndi hann íþróttina Shorin-ji
Kempo. íþrótt þessi hélt síðan
innreið sína í Japan, og er nú
kölluð karate. Hefur hún átt mjög
vaxandi vinsældum að fagna jafnt
á vesturlöndum og þar sem hún á
uppruna sinn. Orðið karate þýðir
„tómar hendur" og samkvæmt
skilgreiningu Funahoshi Gichin,
sem teljast ber faðir íþróttarinnar
í þeirri mynd sem hún er nú,
styðst hún við þrjá megin þætti: I
fyrsta lagi er þarna um andlega
þjálfun að ræða, í öðru lagi íþrótt
og í þriðja lagi sjálfsvörn.
Til marks um það hve karate-
íþróttin er orðin vinsæl og út-
breidd má nefna að á Ölympíu-
Torfi Tómasson endnrkjörinn
formaðnr Snndsambands íslands
SUNDÞING Sundsambands Is-
lands var haldið í Reykjavík 27.
september s.l. Fulltrúar á þing-
inu voru 17 frá 4 sambandsaðilum
auk stjörnar. Þá voru gestir
þingsins Gfsli Halldórsson, for-
seti ISt, Sveinn Björnsson, vara-
forseti tSl, og Hermann Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri tSl
svo og sundfrömuðirnir Jón Páls-
son og Jónas Halldórsson
Afhending heiðursmerkja
Formaður Sundsambandsins,
Torfi Tómasson, afhenti þremur
góðkunnum sundmönnum æðsta
heiðursmerki SSl; voru þetta þeir
Jón Pálsson og Jónas Halldórsson
sundkennarar og landsliðsþjálfar-
ar og Gísli Halldórsson forseti
Iþróttasambands Islands, en þeir
höfðu alhr átt merkisafmæli á ár-
inu 1974.
Skýrsla stjórnar.
I skýrslu stjórnar kom fram að
sundíþróttin er á leið upp úr þeim
öldudal er hún féll í í lok ársins
1972 svo og 1973. Er nú mikil
gróska meðal yngra sundfólksins,
svo sem fjöldi unglingameta
þeirra, sem sett voru á árinu sýn-
ir. Voru alls sett 600 unglingamet
og þar af setti Sonja Hreiðarsdótt-
ir Ungmennafélagi Hjarðvíkur 14
met og Brynjólfur Björnsson Ár-
manni 8 met; lofar þetta mjög
góðu um framtíðina.
Framúrskarandi árangur Þórunn-
ar Alfreðsdóttur.
Þórunn Alfreðsdóttir, Ægi, sem
valin var „Sundmaður ársins
1974“ vann mörg mjög góð afrek á
árinu og setti alls 11 íslandsmet,
sem öll eru jafnframt stúlknamet
því hún er aðeins 14 ára. Eru
mörg met hennar mjög góð á al-
þjóðamælikvarða og þá éinkum
metið í 200 m flugsundi 2:29,65
mín. sem er aðeins 6/10 úr sek-
úndu frá lágmarki SSl fyrir þátt-
töku á Olýmpíuleikunum; er þessi
árangur langbezta afrek sem fs-
lensk stúlka hefur náð i sundi.
Til viðbótar þessum 16 nietum
Þórunnar voru á árinú sett 3 önn-
ur Islandsmet; setti Vilborg
Sverrisdóttir Sundfélagi Hafnar-
fjarðar 1 met, Guðmundur Ólafs-
son, sama félagi 1 met og sveit
Ægis 1 met í boðsundi karla.
Fjármál SSl eru afar erfið og
var hallarekstur eitt ário enn og
brýn nauðsyn að finna lausn á
þessum vanda sérsambandanna,
an þau eru hér flest undir sama
hatti.
Formaður :gat þessm að Sund-
samband Norðurlanda hefði á
þingi sínu í lok ágúst s.l. sam-
þykkt að leggja niður norrænu
sundkeppnina; höfðu tvö Norður-
Torfi Tómasson, formaður Sund-
samhands Islands.
landanna, Noregur og Island, ver-
ið þessu mótfallin en ekkert getað
aðhafst. Þá var ákveðið á sama
þingi að Unglingameistaramót
Norðurlanda í sundi skyldi haldið
í Reykjavík 9.—11. júlí á næsta
sumri.
önnur verkefni sundfólksins
næsta sumar eru þátttaka í 8-
landakeppninni, sem haldin verð-
ur í Wales í júní byrjun, og Olym-
píuleikarnir í Montreal. Hefur
Þórunn Alfreðsdóttir þegar synt á
tíma sem er aðeins 6/10 úr sek-
úndu frá lágmarki því, sem Olym-
píunefnd Islands hefur samþykkt
f 200 m flugsundi, og er það von
sambandsins að fleira sundfólk
nái lágmörkum.
A þinginu urðu nokkrar um-
ræður um framkvæmd norrænu
súndkeppninnar s.l. sumar, sem
ekki þótti takast sem skyldi. Gerð-
ar voru breytingar á sundreglum;
lögð áhersla á að sem fyrst yrðu
haldin námskeið fyrir þjálfara
svo og dómáranámskeið.
Þá urðu miklar umræður um
mismun þá, sem fjölmiðlar gerðu
honum ýmsu íþróttagreinum.
Virtist nú svo komið, að engar
fþróttir ættu upp á pallborðið
nema knattleikirnir — nema ef
vera mætti frjálsaríþróttir. Kom
fram að ekki væri ætlun sund-
áhugamanna að kasta neinni rýrð
á aðrar greinar en sund, en segja
mætti að undanfarið hefðu sund-
fréttir ekki birst svo neinu næmi
hjá fjölmiðlum þótt af nógu væri
að taka af góðum árangri, fjöl-
mennum mótum og mörgum ungl-
ingametum, t.d. hefðu dagblöðin
fengið send úrslit stærsta sund-
Framhald á bls. 23
leikunum i Montreal verður hún
kynnt og má búast við að hún
verði þar með ólympíuíþrótt í ná-
inni framtíð.
Nú munu um 300 manns æfa
karateíþróttina hérlendis, en
æfingar í Reykjavík fara fram í
húsnæði Júdófélags Reykjavíkur
að Brautarholti 18, og er þar æft á
miðvikudögum og föstudögum frá
kl. 20.00—22.00. Einkunnarorð
Karatefélags Islands eru eftirfar-
andi:
1. Iþróttaiðkun
2. Þjálfun vináttu og skilnings
3. Að verða betri borgari og þegn.
Leikjabók
KKÍ
komin út
Leikjabók Körfuknatt-
ieikssambands fslands
er nú komin út. Hefur
hún að geyma ýmsan
fróðleik um körfuknatt-
leik, annan en leikja-
skrána sjálfa, eins og t.d.
kynningu á stjórn og
nefndum KKl, starfs-
reglur nokkurra nefnda,
reglugerð um körfu-
knattleiksmót, úrslit
landsleikja, úrslit í fs-
landsmóti og bikar-
keppni frá upphafi og fl.
Akveðinn eintakafjöldi
bókarinnar verður nú sendur
út til allra aðildarfélaga KKl,
en síðan verður bókin seld á
leikstöðum, skrifstofu KKI og
bókaverzlun Lárusar Blöndals.
Kostar hún kr. 300,00.
Þá hefur og verið gefin út
kennslubók fyrir dómara á
vegum dómaranefndar KKI,
hin fyrsta sinnar tegundar hér
á landi. Fjallar hún um dóm-
tækni og samvinnu dómara og
er prýdd mörgum skýringa-
myndum. Á þessi bók tvímæla-
laust eftir að verða dómurum
mikil stoð og stytta. Verður
bókin til sölu á skrifstofu KKI.
Þá^ er árshappdrætti KKl í
fullum gangi, en dregið verður
í því 15. desember n.k. Útgefn-
ir miðar eru 15.000 og eru fjöl-
margir góðir ferðavinningar í
boði, m.a. til Tyrklands og
Kaupmannahafnar. Um 40%
af miðunum eru seldir af
félögunum sjálfum, en stjórn
KKI sér um sölu hinna mið-
anna. Eiga félögin að vera
búin að gera full skil til KKI
eigi síðar en mánudaginn 1.
desember n.k.