Morgunblaðið

Date
  • previous monthJanuary 1976next month
    MoTuWeThFrSaSu
    2930311234
    567891011
    12131415161718
    19202122232425
    2627282930311
    2345678

Morgunblaðið - 08.01.1976, Page 1

Morgunblaðið - 08.01.1976, Page 1
28 SÍÐUR 5. tbl. 63. árg. FIMMTUDAGUR 8. JANUAR 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ljósm. Friðgeir Olgeirsson ÁREKSTUR ANDROMEDU OG ÞÓRS — Þessi mynd var tekin rétt eftir að Andromeda hafði slegið afturenda sínum í stjórnborðsbóg Þórs. Til hægri á myndinni má greinilega sjá hvernig hún hefur þverbeygt fyrir varðskipið. Frú Gandhi yfirtekvu* fréttastofur Nýju Delhi, 7. jan. AP. INDVERSKA upplýsingaráðu- neytið hefur samið drög að áætlunum um að sameina allar fréttastofur landsins I eina fréttastofnun nátengda ríkis- stjórninni samkvæmt áreiðan- legum heimildum í dag. Sameiningaráætlunin snert- ir tvær enskar fréttastofur og tvær minni fréttastofur sem dreifa fréttum á hindí og yfir- mönnum og starfsmönnum þeirra hefur verið skýrt frá áformunum samkvæmt heim- ildunum. V.Sukla upplýsingaráðherra kvaðst vona að sameiningar- áformið kæmi til framkvæmda 1. febrúar. Því hefur hingað til verið haldið fram að opinber fréttastofa ríkisins verði óháð, en samkvæmt tillögunum fær stjórnin mikil áhrif á stjórn hennar. Forseti Indlands verður æðsti yfirmaður fréttastofunn- ar, en hann gerir ekkert án samþykkis stjórnar frú Indiru Gandhi forsætisráðherra. For- setinn skipar formann og 15 fulltrúa fyrstu stjórnar frétta- stofunnar, sem þar með lýtur ríkisstjórninni f raun og veru samkvæmt heimildunum. Stjórn Aldo Mor- os biðst lausnar — Horfur á kosningum á næstunni Róm, 7. jan. Reuter TALIÐ er að ein alvarlegasta stjórnarkreppa á Italfu frá strfðs- lokum komi f kjölfar lausnar- beiðni Aldo Moros forsætisráð- herra og stjórnar hans f dag. Moro lagði lausnarbeiðni sfna fyr- ir Giovanni Leone forseta þegar Sósfalistaflokkurinn hafði lýst þvf yfir, að hann styddi ekki leng- ur samsteypustjórn kristilegra demókrata og Lýðveldisflokksins, sem verið hefur við völd s.l. 13 mánuði. t yfirlýsingu Sósfalista- flokksins er sagt, að ákvörðun þessi hafi verið tekin vegna van- máttar stjórnarinnar f efnahags- málum, svo og framkomu stjórn- arinnar f garð sósfalista, sem mót- aðist af augljósri fyrirlitningu, eins og það er orðað. Horfur eru á að tilraunir til myndunar nýrrar stjórnar hefjist n.k. mánudag, en flestir telja að kosningar reynist óhjákvæmileg- ar til að leysa stjórnarkreppuna, en reglulegar kosningar eiga ekki að fara fram fyrr en árið 1977. Um leið og sósíalistar kunn- gjörðu ákvörðun sína sögðust þeir ætla að beita sér fyrir myndun bráðabirgðastjórnar með þátttöku fulltrúa sem flestra skoðanahópa, þar sem tillit yrði tekið til komm- únista. Fregnir hermdu í kvöld, að kristilegir demókratar mundu ekki fallast á að taka þátt I slíku samstarfi við kommúnista. Skoðanakannanir að undan- förnu hafa bent til þess, að flokk- ur kommúnista mundi hafa meira fylgi en kristilegir demókratar, færu kosningar fram nú, og verða þannig fjölmennasti flokkur landsins. Talið er, að ákvörðun sósíalista standi í sambandi við fregnir af stuðningi bandarísku leyniþjón- Framhald á bls. 27 Aldo Moro Höfum unnið stórsigur í upplýsingastríðbu — segir íslenzka sendiráðið í London — Það kom bersýnilega í ljós f dag, hve mikilvægt það er fvrir lslendinga að hafa brezka fréttamenn um borð f varð- skipunum og það hefur komið í ljós f frásögnum þeirra hvor aðilinn hefur rétt fyrir sér. Við höfum nú unnið stórsigur I upplýsingastrfðinu, sagði Helgi Ágústsson, sendiráðsritari f London, f samtali við Morgun- blaðið f gærkvöldi. Helgi sagði, að fréttamenn- irnir Norman Rees, frá ITN, sem var um borð í Þór, og Larry Harris, sem var um borð í Tý, hefðu sagt greinilega frá at- burðunum á íslandsmiðum. Frásagnir þeirra væru hreint frábærar. Reyndar segðu þeir ekki beinum orðum, að íslend- ingar hefðu rétt fyrir sér í öllu, en allt að því. Þá væri það ekki sfður mikilvægt að þessir fréttamenn væru mjög þekktir um allt Bretland, ekki sízt fyrir hlutlausar fréttir. Þá sagði Helgi, að íslenzka sendiráðið hefði fengið fréttir af atburðinum rétt fyrir kl. 13 í gær. Hann hefði samstundis Framhald á bls. 27

x

Morgunblaðið

Publication Type:
Collection:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Language:
Volumes:
111
Issues:
55869
Registered Articles:
3
Published:
1913-present
Available till:
31.12.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Locations:
Editor:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-present)
Haraldur Johannessen (2009-present)
Publisher:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-present)
Keyword:
Description:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Sponsor:
Supplements:

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue: 5. tölublað (08.01.1976)
https://timarit.is/issue/116366

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

5. tölublað (08.01.1976)

Actions: