Morgunblaðið - 08.01.1976, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANUAR 1976
Akureyri:
200 þúsund króna
verðmætum stolið
úr Oskabúðinni
Akureyri 7. jan.
INNBROT var framið f nótt f
Úskabúðina við Strandgötu og
stolið þaðan peningum og varn-
ingi fyrir um 200 þúsund krónur.
Brotin hafði verið rúða f hurð á
aðaldyrum verzlunarinnar og
sfðan farið inn um þær. Stolið var
ýmsum varningi, m.a. skartgrip-
um, svo sem hringum og háls-
menum, en umbúðirnar yfirleitt
skildar eftir. Sumir hringarnir
kostuðu yfir 20 þúsund krónur.
Saknað er varnings fyrir
150—160 þúsund krónur og þar
að auki var stolið 40 þúsund krón-
um f peningum. Málið er f rann-
sókn hjá lögreglunni á Akureyri.
Um helgina síðustu var farið
inn í skrifstofuhúsnæði f Kaup-
vangsstræti 4 og brotist inn f
margar skrifstofur, svo sem Flug-
félags tslands, Sjálfstæðisflokks-
ins, tízkuverzlunarinnar Regfnu
og bókaverzlunarinnar Bókvals.
Þjófarnir höfðu aðeins rúmlega 4
þúsund krónur upp úr krafsinu
en hins vegar unnu þeir mikil
spjöll með því að brjóta hurðir.
Þarna voru að verki tveir 15 ára
piltar. Sv. P.
Krafla:
Rennsli
minnkar
um 40%
RENNSLIÐ úr einu holunni,
sem lokið hefur verið við við
Kröflu hefur minnkað um
40% frá þvf að gos hófst í
Leirhnjúk. Skv. upplýsingum
Guðmundar Pálmasonar, verk-
fræðings hjá Orkustofnun,.
varð fljótlega vart við rennslis-
minnkun úr holunni er gos
hófst og hefur sú þróun stöð-
ugt haldið áfram. Er holan var
fullgerð og hafði jafnað sig í
haust, var rennslið 70 kg af
vatni og gufu á sekúndu, en
skv. mælingum, sem gerðar
voru f fyrradag við Kröflu
hafði það minnkað um 40% og
er þvf komið niður f um 42 kg
á sekúndu. Sagði Guðmundur
að augljóst væri talið að sam-
band væri milli þessa og goss-
ins.
Um framvindu mála kvað
Guðmundur erfitt að spá,
minnkunin undanfarna daga
hefði verið hægari en í fyrstu
og ef gos hætti þarna væri bú-
ist við að holan næði sér upp
aftur. Þetta 70 kg rennsli var
metið til jafns við 4—5 mega-
vött, en ekki var í gærkvöldi
búið að reikna út hve mörg
megavött það væri nú.
Fremur rólegt var á jarð-
skjálftasvæðinu fyrir norðan i
gær og um kvöldmatarleytið
hafði ekki orðið vart við neina
verulega kippi frá því 4 í fyrri-
nótt, að því er sr. Sigurvin
Elíasson á Skinnastað tjáði
Mbl. svo og starfsmenn hjá
raunvísindastofnun og á virkj-
unarstað við Kröflu.
Áfengisútsölur
taka ekki lengur
við ávísunum
FJARMALARAÐUNEYTIÐ hef-
ur ritað Afengis- og tóbaksverzl-
uninni bréf, þar sem útsölustjór-
um áfengisverzlana er heimilað
að neita að taka við ávfsunum
sem greiðslu fyrir áfengi. Munu
útsölustjórar allra áfengisverzl-
ana f Reykjavfk hafa ákveðið að
hafa þennan hátt á, og mun þvf
framvegis aðeins hægt að kaupa
áfengi gegn greiðslu f bein-
hörðum peningum.
Jón Kjartansson, forstjóri
ÁTVR, tjáði Mbl. í gær, að þetta
væri tilkomið vegna mikillar mis-
notkunar ávísana við áfengis-
kaup. Það væri aðeins brot af
viðskiptavinum ATVR sem
þannig höguðu sér en meiri
hlutinn, þ.e. heiðarlegu viðskipta-
vinirnir, liði fyrir þennan hóp.
Þessi mynd var send út af brezka varnarmálaráðuneytinu sfðdegis f gær og er sögð sýna ásiglingu Þórs á
freigátuna Andromedu. Hún var komin til Bretlands fáum klukkustundum eftir atburðinn. Morgun-
blaðið fékk hana sfmsenda frá AP-fréttastofunni.
Bretar munu mótmæla
„vísvitandi ásiglingu”
SKÖMMU eftir árekstur varð-
skipsins Þórs og brezku freigát-
unnar Andromedu á Héraðsflóa f
gær sendi brezka flotamálaráðu-
neytið út frétt þar sem staðhæft
Var — samkvæmt skýrslu yfir-
manns freigátunnar — að það
hafi verið varðskipið er sigldi á
freigátuna.
Um átta leytið i gærkvöldi fékk
Morgunblaðið síðan sfmsenda
þessa mynd frá AP-fréttastofunni
í London, sem aftur hafði fengið
hana hjá varnarmálaráðuneytinu,
Dagblaðinu sagt upp
aðstöðu í Blaðaprenti
MEIRIHLUTI stjórnar Blaða-
prents hf. samþykkti á fundi sfn-
um f gær, að segja Dagblaðinu
upp aðstöðu þeirri er blaðið hefur
haft f prentsmiðjunni, þannig að
prentsmiðjan annist setningu og
umbrot blaðsins aðeins til 19. jan-
úar og prentun þess út þennan
mánuð. Stjórnarformaður Blaða-
prents Sveinn Eyjólfsson, sem
Fundað um
loðnuverð
VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegsins
kom saman til fundar í gær til að
fjalla um loðnuverð, en sem
kunnugt er hafa útgerðarmenn
hótað að skipin hætti veiðum, ef
verðákvörðun hafi ekki verið tek-
in fyrir 18. janúar n.k. Á fundin-
um í gær náðist ekki samkomulag.
um leið er framkvæmdastjóri og
einn aðaieigenda Dagblaðsins,
greiddi hins vegar atkvæði gegn
þessari samþvkkt og f samtali við
Morgunblaðið f gær taldi hann
þessa samþykkt sprottna af öðr-
um hvötum en þeim, að Blaða-
prent gæti ekki sinnt verk-
efnum fyrir Dagblaðið og hann
liti svo á að hér væri á
ferðinni tilræði gegn prent-
frelsi f landinu. Þá var f gær
gengið formlega frá samkomulagi
milli Reykjaprents, útgáfuféiags
Vfsis, og útgáfufélags Alþýðu-
blaðsins um að Reykjaprent yfir-
tæki rekstur Alþýðublaðsins,
þannig að rekstur þessara tveggja
blaða yrði eftirleiðis sameiginleg-
ur en með tveimur sjálfstæðum
ritstjórnum.
Morgunblaðið sneri sér í gær til
Ingimundar Sigfússonar, stjórn-
arformanns Reykjaprents hf., út-
gáfufélags Vísis, og spurðist fyrir
um afstöðu Reykjaprents til
prentunar Dagblaðsins I Blaða-
prenti. Ingimundur sagði:
„Þegar prentunarmál Dagblaðs-
ins komst á dagskrá í Blaðaprenti
Framhaid á bls. 27
og er f texta með henni sagt að
hún sýni hvernig varðskipið sigli
á freigátuna.
Þá barst Morgunblaðinu AP-
frétt I gær þar sem sagt er að
brezk stjórnvöld hafi borið fram
mótmæli við islenzku rfkisstjórn-
ina vegna árekstursins milli varð-
skipsins og freigátunnar.
Er haft eftir brezka utanrikis-
ráðuneytinu að brezki sendiherr-
ann í Reykjavík, Kenneth East,
hafi fengið fyrirmæli um að mót-
mæla „vfsvitandi ásiglingu" varð-
skipsins, sem sé 693 tonn að
stærð, á freigátuna Andromedu,
sem sé 2.860 tonn.
I yfirlýsingu utanrfkisráðu-
neytisins brezka segir orðrétt:
„Hr. East hefur fengið fyrirmæli
um að undirstrika að árásin á
Andromedu hafi verið gerð án
tillits til mannslffa eða grund-
vallar regla um siglingar á sjó.“
Þjóðverjar lækka löndunar-
kostnað íslenzkra fiskiskipa
LÖNDUNAR- og markaðskostn-
aður fslenzkra fiskiskipa, sem
landa f Vestur-Þýzkalandi hefur
nú verið lækkaður að mun,
þannig að nú greiða fslenzk skip
sömu upphæð fyrir löndun og f
markaðsgjöld og þýzk skip gera.
Kom þetta til framkvæfnda um
áramótin, en fslenzk yfirvöld
höfðu sett þessa ósk fram þegar
viðræður um landhelgismálið
áttu sér stað við Þjóðverja.
Ágúst Einarsson hjá Landssam-
bandi íslenzkra útvegsmanna
sagði þegar Morgunblaðið hafði
samband við hann í gær, að mark-
aðskostnaður hefði lækkað úr
4'A% í 4%. Þá hefði Iöndunar-
kostnaður einnig lækkað mikið.
Hver sfðutogari, sem landaði fyrir
áramót í Þýzkalandi þurfti áður
að borga 4.68 mörk fyrir hver 100
kíló, sem landað var, en er nú 3.60
mörk á 100 kíló. Fyrir fisk f köss-
um þurfti áður að borga 1.78
mörk á kassa en er nú 1.64 mörk.
Skuttogari, sem kemur með
isaðan fisk f stíum þarf nú að
greiða 3.98 mörk fyrir hver 100
kíló, en áður var upphæðin 5.02
mörk. Ef fiskurinn er i kössum
þarf nú að borga 1.80 mörk á
kassa en áður 1.91 mörk.
Þá sagði Ágúst, að gerður hefði
verið samanburður á löndunar-
kostnaði 4 landana í Belgíu miðað
við þessar nýju tölur í Þýzka-
landi. Komið hefði f ljós, að
löndunarkostnaður þ.e. upp-
skipun, Iaun, kranaleiga o.fl. væri
fjórfalt meiri f Belgíu eftir þessa
breytingu. Því væri greinilegt, að
ef menn ætluðu sér að selja í
Belgíu, þyrftu þeir að fá mun
hærra verð þar en í Þýzkalandi.
T.d. væru til dæmi um að heildar-
kostnaður vegna sölu í Belgíu
hefði farið upp í 34% en í Þýzka-
landi væri hann yfirleitt
24—26%.
Verður fallið frá leyf-
issviptingu Sunnu?
herra yrði auðvitað að meta það
hvort þessar breytingar væru svo
miklar að það gjörbreytti málinu.
Þá barst Morgunblaðinu frétta-
Framhald á bls. 27
Eldurí
Keflavík
I FYRRINÖTT kom upp eldur i
Fiskiðjunni f Keflavík, sem er
fiskimjölsverksmiðja. Slökkvilið
var kallað til og gat það ráðið
niðurlögum eldsins, sem var í
sílói. Litlar skemmdir urðu.
Leigubflstjóri, sem átti leið
framhjá verksmiðjunni varð elds-
ins var og gerði viðvart um hann.
Má telja vfst að þarna hefði orðið
stórtjón ef eldsins hefði ekki
orðið vart f tæka tfð.
INNAN fárra daga á að koma til
framkvæmda svipting sú á ferða-
skrifstofuleyfi til handa Sunnu,
sem samgönguráðuneytið ákvað f
kjölfar Alþýðubankamálsins og
aðildar Air Viking að þvf. Morg-
unblaðið sneri sér f gær til Brynj-
ólfs Ingólfssonar, ráðuneytis-
stjóra f samgönguráðuneytinu, og
spurði hann hvort nokkurrar
breytingar væri að vænta á
ákvörðun ráðuneytisins f þessu
efni.
Brynjólfur svaraði þvf, að ýms-
ar fjárhagslegar forsendur
ákvörðunar ráðuneytisins varð-
andi Sunnu hefðu verulega
breytzt til batnaðar fyrir Sunnu á
sfðustu dögum, þ.e. að skuldir fyr-
irtækisins hefðu lækkað mikið.
Málið væri hins vegar í athugun.
Hann var þá spurður að því hvort
til greina kæmi að fallið yrði frá
leyfissviptingunni af þessum sök-
um og sagði Brynjólfur að ráð-
6 togarar seldu fyrir
101,8 millj. kr. á 6 dögum
TVEIR togarar, Vigri og Otur,
seldu f V-Þýzkalandi f gær og
fengu gott verð fyrir aflann.
Vigri seldi 155.6 lestir f Bremer-
haven fyrir alls 237.832 mörk eða
15.4 millj. króna. Meðalverð pr.
kfló var kr. 99.29. Otur seldi 98
lestir f Cuxhaven fyrir 166.728
mörk eða 10.8 millj. kr. Meðal-
verð pr. kfló var kr. 110.55.
Á siðastliðnum þremur dögum
hafa sex íslenzkir togarar selt afla
í Þýzkalandi fyrir alls 101.8 millj.
króna.