Morgunblaðið - 08.01.1976, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANUAR 1976
5
Heimdallur vill tafar-
laus stjórnmálaslit
MORGUNBLAÐINU barst f gær
eftirfarandi ályktun frá stjórn
Heimdallar, SUS f Reykjavík:
Stjórn Heimdallar S.U.S. mót-
mælir síendurteknum árásum
breskra herskipa á íslensk varð-
skip í íslenskri fiskveiðilögsögu
og ítrekar kröfu félagsins um
tafarlaus slit á stjórnmálasam-
bandi við Breta.
Þá beinir stjórn Heimdallar
einnig til ríkisstjórnarinnar að
hún Iáti bera fram þá kröfu í
fastaráði Atlantshafsbandalags-
ins, að Bretar verði harðlega vítt-
ir fyrir siendurteknar og fólsku-
legar hernaðaraðgerðir gegn ís-
lendingum, minnstu bandalags-
þjóðinni i NATO og þeirri einu
sem ekki hefur vopn til að verja
hendur sínar.
Stjórn Heimdallar telur útilok-
að að nokkrar samningaviðræður
geti farið fram fyrr en Bretar
hafa hypjað sig með herskip sín
og veiðiþjófa úr íslenskri fisk-
veiðilögsögu, annsið væri móðgun
við íslensku þjóðina.
Tómas Zoéga ráðínn
framkvæmdastjóri LR
NÝR framkvæmdastjóri tók við
störfum hjá Leikfélagi Reykja-
Tómas Zoéga
vfkur um sfðustu áramót. Er það
Tómas Zoéga viðskiptafræðingur.
Hann tekur við starfinu af
Guðmundi Pálssyni leikara, sem
jafnhliða leikstörfum hefur
gegnt framkvæmdastjórastarfi
hjá LR á annan áratug.
Tómas Zoega er ekki ókunnur
Leikfélagi Reykjavíkur því hann
hefur frá því á unglingsárum
verið til aðstoðar við ýmis störf á
leiksviði og hin seinni ár oft
hlaupið í skarðið sem sýningar-
stjóri á leiksýningum. Hann
hefur að undanförnu starfað hjá
Ferðaskrifstofu Zoéga.
Guðmundur Pálsson verður nú
fastráðinn leikari hjá Leikfélag-
inu og einnig hefur honum verið
falið að vera aðalfulltrúi
Leikfélagsins í byggingarnefnd
Borgarleikhúss.
Vitni vantar
Slysarannsóknadeild lögregl-
unnar hefur beðið Morgunblaðið
að auglýsa eftir vitnum að
árekstri og nokkrum ákeyrslum.
Föstudaginn 19. desember s.l.
klukkan 8.54 varð árekstur milli
tveggja bifreiða á Miklatorgi við
Snorrabraut. Þetta voru Fiatbíll,
R-40488 og Volkswagenbíll, R-
37789.
Sunnudaginn 28. desember var
ekið á bifreiðina R-32810 á
Lækjargötu vjð Hafnarstræti.
Gerðist þetta um kl. 20.30. Bif-
reiðin er rauð Cortina árgerð
1966, og skemmdist nokkuð að
aftan.
Miðvikudaginn 24. desember,
milli klukkan 15 og 16 var ekið á
bifreiðina R-26311, sem er ljósblá
Volkswagen 1200, árgerð 1971,
þar sem hún stóð við á bifreiða-
stæði við Æsufell 4. Vinstri hurð
var dælduð.
Laugardaginn 27. desember var
ekið á bifreiðina R-36519, sem er
rauður Volvo Amazon 1969, þar
sem hún stóð á bifreiðastæði við
Hjarðarhaga 30—32. Gerðist
þetta milli klukkan 17 og 19.
Vinstri hurð er dælduð.
Loks var ekið á bifreiðina R-
3265 á tímabilinu 8.50 til 9 að
morgni mánudagsins 29. desem-
ber. Bifreiðin er Ijósblá Dodge
árgerð 1966 og gerðist þetta við
Espigerði 4. Vinstra frambrétti er
beyglað.
Þeir sem hafa orðið vitni að
þessum árekstri og ákeyrslum eru
beðnir að hafa samband við slysa-
rannsóknadeild lögreglunnar í
Reykjavík. Síminn er 10200.
Nýr snjótroðari
í Bláfjöllin
Lengir skíðatímann um mánuð —
Bláfjallavegur var lagfærður
RÁÐSTAFANIR hafa verið gerð-
ar til að bæta skfðaaðstöðu í Blá-
fjöllum, en það er orðinn einhver
vinsælasti staður fyrir almenn-
ingsfþróttir á höfuðborgarsvæð-
inu. Iðulega eru þar 500—1000
manns á skfðum á sæmilegum
dögum og hefur farið upp í
3000—4000. Hefur vegurinn inn
eftir verið lagfærður f sumar, og
er verið að kaupa snjótroðara,
sem á að geta lengt skíðatfmann í
brekkunum um einn mánuð, þar
sem bæði er hægt að hindra að
fyrsti lausi snjórinn efst f brekk-
unum fjúki burt með því að troða
hann og þjappaður snjór bráðnar
seinna úr brekkunum að vorinu.
Þá er gert ráð fyrir að bæta hrein-
lætisaðstöðu á staðnum og einnig
að fá skfðalyftu fyrfr byrjendur.
1 sumar voru gerðar endurbæt-
ur á Bláfjallavegi í Brekkunum
við Eldborgina og við Rauðu-
hnjúka og ekið ofan í allan veginn
um 2000 rúmmetrum af gjalli.
Að Bláfjallafólkvangi standa
Reykóavík, Kópavogur, Seltjarn-
arnes og Selvogur og framkvæmd-
ir annast Bláfjallanefnd, sem
starfar í umboði sveitarfélag-
anna. Þórður Þorbjarnarson borg-
arverkfræðingur formaður nefnd-
arinnar veitti Mbl upplýsingar
um framkvæmdir i Bláfjallafólk-
vangi í vetur. Sagði hann að tvær
fullkomnar skíðalyftur hefðu þeg-
ar verið gerðar i Bláfjöllum og
næst væri áformað að koma fyrir
lyftu upp á topp á Hákolli, en þar
sem þarna eru brattar og viðsjár-
Framhald á bls. 27
Veglegar gjafír handa
fgrsta bcumi ársins
Morgunblaðið hefur nú
fengið stáðfestingu á því frá
Gunnlaugi Snædal, yfirlækni
Fæðingardeildar Landspítal-
ans, að fyrsta barn ársins hafi
verið sveinbarn hjónanna Kol-,
brúnar Jónsdóttur og Halldórs
Ölafssonar, sem fæddist kl.
00.04 eftir miðnætti á fæðingar-
deildinni. Drengurinn sem var
tekinn með keisaraskurði, var
20 merkur og 56 cm. Drengur-
inn og þau hjón fá því gjafir
þær, sem 12 fyrirtæki í Reykja-
vík ákváðu að gefa fyrsta barni
ársins 1976, eins Og fram kom í
auglýsingum i Mbl. fyrir ára-
mót. Fyrirtækin eru Hagkaup,
Heinz, Mjólkursamsalan,
Karnabær, Happdrætti Háskóla
Islands, Sól H/F, Naust,
Verzlunarbanki íslands,
Reykjalundur, Mömmusál, Jón
og Óskar Laugavegi 70 og Bona-
parte. Verða gjafirnar afhentar
siðar í þessum mánuði og þá
nánar skýrt frá málinu. Á
myndinni eru foreldrarnir og
fósturdóttir þeirra, Anna
Fanney ásamt litla bróður.
Brennuvarg-
ur gripinn
BRENNUVARGUR sá, sem lagði
eld í tvær skemmur varnarliðsins
á Keflavíkurflugvelli á síðasta
hausti, hefur nú verið gripinn.
Reyndist þarna vera að verki
varnarliðsmaður, bandarískur að
þjóðerni. Að sögn Þorgeirs
Þorsteinssonar lögreglustjóra á
flugvellinum varð tjón af völdum
brunans margar milljónir króna.
Maðurinn verður sendur í geð-
rannsókn til Bandaríkjanna.
Heimir Sigurðsson á
Tjörn í Aðaldal látinn
HEIMIR Sigurðsson að Tjörn í
Aðaldal lézt að heimili sínu laug-
ardaginn 3. janúar 68 ára að aldri.
Heimir var einn af kunnustu lax-
veiðimönnum landsins, fæddur og
uppalin á bökkum Laxár í Aðal-
dal og sl. 40 ár var hann leiðsögu-
maður veiðimanna við Laxá.
Hann fæddist í Garði í Aðaldal 1.
ágúst 1907, sonur hjónanna Sig-
urðar Baldvinssonar og Bergljót-
ar Benediktsdóttur.
Góður afli
við ísröndina
úti af Vestfjörðum
AFLI togara við Isafjarðardjúp
hefur verið mjög góður að undan-
förnu þ.e.a.s. þegar gefið hefur. Á
milli jóla og nýárs fengu þeir t.d.
góðan afla og f gær voru flestir
togararnir að landa, en þá voru
þeir yfirleitt með um 60 tonn og
komu með aflann f land vegna
veðurs.
Jón Páll Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihússins
Norðurtanga á Isafirði, sagði í
gær, að góður fiskur hefði fengizt
við isröndina um 50 mílur frá
landi þegar gefið hefði. Veður
hefði hins vegar verið mjög um-
hleypingasamt og togararnir því
lítið getað verið að. Fiskurinn,
setn fengist á þessum slóðum,
væri eingöngu stór þorskur
(göngufiskur) og mætti segja að
hann væri óvenjulega stór.
skidaþjónusta
★ Skíðaviðgerðir: Fyllum í sóla, skerpum kanta og
lagfærum skemmdir.
★ Skóviðgerðir: Lagfærum smellur, víkkum út
skó.
★ Bindingar: Stillum öryggisbindingar við skó.
★ Umboðssala: Seljum notaða skíðaskó í um-
boðssölu.
Skíðaleiga: Leigjum út skiði m/bindingum.
Seljum aðeins góðar vörur á
hagstæðu verði.
Braun skíðafatnaður.
ÚTILÍF,
Glæsibæ,
simi 30350