Morgunblaðið - 08.01.1976, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1976
7
Örlög
Bukovskýs
ViS og við berast fréttir
um örlög einstaklinga I
hinu lokaða lögreglurlki.
Sovétrlkjunum, sem vekja
svo mikla samúð með
fórnardýrunum og um leið
andúð á framferði stjórn-
valda I Sovétrlkjunum, að
almannahreyfing skapast
um heim allan til þess að
mótmæla þeirri meðferð,
sem þessir einstaklingar
sæta af hálfu sovézkra
stjórnvalda. Eitt sllkt mál
er nú á döfinni, mál so-
vézka rithöfundarins og
andófsmannsins Vladimir
Bukovskys, sem nú er
gerð tilraun til að fá leyst-
an úr fangelsi I Sovétrikj-
unum og eru það samtök-
in Amnesty International I
nokkrum löndum, sem
fyrst og fremst beita sér
fyrir aðgerðum I þeim efn-
um. Vladimir Bukovsky
afplánar nú dóm, sem
hljóðar upp á tveggja ára
fangelsisvist, fimm ára
þrælkunarvinnu og fimm
ára útlegð. Tilraunir so-
vézkra stjórnvalda til þess
að kúga, buga og eyði-
leggja þennan einstakling
hófust fyrir tlu árum, þeg-
ar hann var sendur á geð-
veikrahæli eftir að hafa
efnt til ólöglegrar listsýn-
ingar.
Lýsing
Bukovskýs
Bukovsky hefur lýst
dvöl sinni á þessu geð-
veikrahæli og þvl sem
fram fer á sllkum stofnun-
um I Sovétrtkjunum, sem
bersýnilega eru notaðar
til annars en að lækna
það fólk sem á við geð-
sjúkdóma að strlða. Hann
skýrði frá þvl, að pólitlskir
fangar væru margir á geð-
veikrahælum, þeir væru
geymdir I læstum klefum
og fengju að hreyfa sig I
eina klukkustund á dag.
Gestum væri leyft að
heimsækja þá einu sinni I
mánuði og bréf mættu
þeir fá einu sinni I mán-
uði. Hann hefur upplýst,
að ef fangi á geðveikra-
hæli gerðist sekur um
óhlýðni væri honum refs-
að með óheyrilega stórum
lyfjaskömmtum, sem ann-
að hvort gerðu þá þung-
lynda eða eirðarlausa og
sljóa. Hann hefur einnig
skýrt frá þvl, að sjálfur
hafi hann verið pyntaður
með þeim hætti að vera
rammlega vafinn inn I vot-
an striga. sem dróst svo
saman, þegar hann þorn-
aði.
Refsifæði
f fangelsi þvl, sem
Vladimir Bukovsky dvelst
um þessar mundir, er
hann á sérstöku refsifæði,
sem saman stendur aðal-
lega af saltri slld og dökku
brauði, en fregnir af
heilsu hans benda til þess
að heilsuleysi stafi fyrst
og fremst af langvarandi
næringarskorti og
lélegum aðbúnaði I fanga-
vistinni. Hann er sagður
veill fyrir hjarta, með
augnsjúkdóm, magasár,
nýrna- og lyfrasjúkdóm og
fær ekki fullnægjandi
læknisaðstoð vegna
þessara sjúkdóma. Saga
Bukovskys er hörmuleg
og I raun og veru sllk, að
við hér á fslandi skynjum
hana vart, svo fjarlæg
hugsunarhætti okkar eru
sllk vinnubrögð og slfkar
aðfarir. En sannleikurinn
er sá. að dæmið um
Bukovsky er aðeins eitt af
mörgum. Sltkum aðferð-
um beitir sovézka stjórnin
pólitlska andstæðinga
slna, þá einstaklinga sem
hafa verið mest áberandi I
andófshreyf ingunni I
Sovétrlkjunum, sem frem-
ur hefur vaxið ásmegin
hin slðustu ár. Það hlýtur
að verða nokkurt umhugs-
unarefni ráðamönnum I
Kreml að hversu marga af
þessum einstaklingum I
andófshreyf ingunni, sem
þeir setja I tugthús eða á
geðveikrahæli, hversu
marga sem þeir reyna að
kúga og buga, þá virðast
alltaf fleiri og fleiri koma I
þeirra stað og segir það
sögu út af fyrir sig.
Smíðum Neon- og plastljósaskilti.
Einnig ýmiss konar hluti
úr Acríl plasti.
Neonþjónustan hf. Smiðjuvegi 7, Sími 43777
Afastrákur
Bðkmenntir
Sigurður Haukur
Guðjónsson skrif-
ar um barna- og
unglingabækur
Ármann Kr. Einarsson
□ Höfundur: Armann Kr.
Einarsson,
□ Teikningar: Þóra Sigurðar-
dóttir.
Q Prentun: Prentverk Odds
Björnssonar h.f.
Q] Utgefandi: Bókaforlag Odds
Björnssonar.
Að mörgu nýr Armann birtist
á þessum síðum. Hann hefir
löngum þulið ævintýrasagnir
um afrek unglinga, teflt góðu
móti illu, ausið af þeirri sál-
fræðilegu staðreynd, að í heimi
bernsku og unglingsára haldast
draumur og veruleiki í hendur,
og með þrautseigju og elju
hefir hann náð mikilli leikni í
að gæða draum hins unga um
sjálfan sig holdi og blóði, gert
hetjur, sem unglingum hefir
þótt gaman að kynnast. En hér
snýr hann blaðinu við, segir að
vísu ævintýri enn, en hér er
það ekki ævintýri draumsins
heldur lífsins, sem hann glímir
við, ævintýrið, er lítil vera
heldur móti þroskans ljósi.
Bókin er blik af þeirri birtu, er
lítill snáði kveikir í brjósti afa
sfns, hlýjar myndir og sannar,
því að lesandinn heyrir sem
undirleik orðanna hjartslátt
höfundarins sjálfs. Mér finnast
frásagnirnar góðar, stærstar
fyrir það, að höfundurinn er
hreinlega á hnjánum i lotning
fyrir undrinu þvi er hæfileika-
gjafir vöggunnar taka að
birtast og þroskast í mann. Er
hann fylgir snáðanum eftir, þá
er hann ekki aðeins að læra að
þekkja hann betur, heldur
sjálfan sig og alla menn. Já
okkur er boðið í smiðju lífsins
og í sindri frá höggum mót-
unarhamarsins bregður höf-
undur upp myndum sínum.
Flestar benda þær til þeirrar
staðreyndar, að þú átt veröld-
ina með öðrum, systrum og
bræðrum. Stundum þarf afa-
kútur baðkar; stundum blóma-
beð; stundum liti, t. þa. læra
það, að í veröldinni, sem hann
er fæddur til, er hann ekki einn
heldur iifa þar dýr og menn,
sem tillit þarf að taka til. Til er
og það sem drengurinn ræður
ekki við, hann mætir hnefum
heimsins fær þá i andlit, verður
undir, tekur að leita föður,
þráir faðm, þráir kærleika, sem
hann geti drekkt sorg sinni f.
Atvikin úr lífi drengsins, sem
höfundur velur, eru fjölbreytt
og bráðskemmtileg.
Höfundur kann að segja frá,
það dylst engum, á stundum
nálgast stíll hans Ijóð, það sýnir
hrifni hans á afakút, brjóst
hans ljóðar af gleði: „Blátært
vatnið glitraði f silfurstrengj-
um á dökku berginu, og iðu-
kastið niðri í gilinu minnti á
breiðu hvítra blómknappa"
Sem hestunnandi verð ég að
benda höfundi á, að sögnin að
frýsa merkir allt annað en að
kumra.
En meðal annarra orða, af
hverju valdirðu ekki bókinni
nafnið hamingjublómið, þú
þarft ekki að leita þess, þú hef-
ir það vissulega hjá þér?
Að öllu samanlögðu álít ég, að
hér sé nýr Ármann á ferð,
stiginn frá heimi hillinganna
inná akur raunveruleikans,
stærri og meiri en áður.
Teikningar eru skemmtilegar
og mjög vel við hæfi, kannski
hefði mynd og texti mátt ná
betri takti á stundum (10), en
hvað um það, bókin væri
fátækari miklu án þeirra.
Próförk mjög vel lesin.
Prentun og frágangur allur
útgefanda til sóma.
Hafið þökk fyrir.
10 tegundir af
samkvæmisskóm \
Nú voru að koma tíu gerðir af Itölskum samkvæmisskóm fyrir konur. Skórnir eru
svartir (úr leðri), gull og silfurlitaðir og eru þeir úr gerfiefnum. Ein skógerðin er fyrir
hávaxnar konur. lágir hælar og þunnur sóli. Þessir léttu og fallegu samkvæmisskór
kosta 5000 krónur pariö. Skóstærðirnar eru 4—8 og hálf númer þar í milli
SKÓBÚÐIN SUÐURVERI GRÁFELDUR HF
Stigahlíð 45 sími 83225 Ingólfsstræti 5 simi 26540
Dilkakjöt
á gamla
verðinu
ATH.
breyttan
opnunartíma
föstudaga til kl. 8
laugardaga 10-12
SKEIFUNNI15IISIMI 86566