Morgunblaðið - 08.01.1976, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANUAR 1976
10
t búningsherbergi Helga Tómassonar f New York leikhúsinu I Lincoln Center. Blaðamaður Mbl. ræddi Þar við hann meðan hann farðaði
sig og bjó sig undir sýningu.
Robbins er að sernja ball-
etta fyrir Helga Tómasson
HELGI Tómasson dansar að
sjálfsögðu í hinni hefðbundnu
jólasýningu New York balletts-
ins, Hnetubrjótnum. Þegar
kemur fram í desember eru all-
ar aðrar balletsýningar teknár
af dagskrá hjá NY ballettinum í
I.incoln Conter og Hnetubrjótur-
inn einn sýndui fram yfir ára-
mót, 40 sýningar alls. Iðulega
eru tvær sýningar á laugardög-
um og sunnudögum yfir
hátíðarnar, enda sækja
sýningarnar heilu fjölskyldurn-
ar, börn og fullorðnir. Það
tilheyrir jólamánuðinum og
sýningin við það miðuð. Vegna
þess hve ört er sýnt, verða aðai-
dansarar New York City
ballettsins að skiptast á um að
dansa aðalhlutverkin. Tvö pör
dansa því á víxl Sykur-
drottninguna og fylgisvein
hennar, og dansar Helgi annan
fylgisveininn. Hann útvegaði
blaðamanni Mbl. miða á þessa
eftirsóttu sýningu í New York
eitt kvöldið í desember. Og
skömmu skeinna lagði undirrit-
uð leið sína upp í Lincoln Cent-
er, áður en sýning hófst, og
spjallaði við Helga í búnings-
herbergi hans.
Helgi kvaðst vera orðinn
nokkurn veginn góður eftir
óhapp það, sem hann varð fyrir
á íslandi eða a.m.k. nógu góður
til að dansa, eins og hann orðaði
það. — Þetta var smáslys, sagði
hann, og hefði getað komið
fyrir hvar sem var. Ég var á
sviðinu i Þjóðleikhúsinu að æfa
stökk, eins og ég er vanur, en
rann til. Ég gat ekki dansað í 8
vikur eftir að ég kom hingað,
var bara á æfingum, og það var
ansi sárt. F.n sársaukinn hefur
mikið minnkað núna og ég býst
við að verða jafngóður. Fyrst
var haldið að þetta væri í
hnénu, en það var í vinstri fót-
iegg-
Þrátt fyrir það hefur Helgi
meira en nóg að gera. Meðan
Hnetubrjóturinn er á dagskrá
hjá New York City ballettinum
dansar hann ekki nema 2—3
daga í viku í stað þess að dansa
iðulega sex sinnum og þá gefst
honum tækifæri til að skreppa
frá og dansa með öðrum flokk-
um. 5. desember var í blaði
heilsíðuviðtal við hann og um
hann vegna nýrrar sýningar, er
nefndist „Stjörnur í bandarísk-
um ballet", og var að hefja
göngu sína í Westchester. Var
hann þar kallaður „stjarna
stjarnanna“. Og daginn eftir
viðtalið ætlaði hann um helgi
til Portlands til að dansa þar í
Hnetubrjótnum og einnig „Pas
deDeux“.
— Þessa dansflokka utan
New York vantar stjörnur til að
lyfta undir aðsóknina hjá sér,
sagði Helgi til skýringar. Og
þetta er sá árstími, þegar ég get
dansað með þeim. Margir
þeirra eru með Hnetubrjótinn,
sem er að verða sígild jóla-
sýning alls staðar og þá er auð-
velt fyrir mig að grípa inn í. Og
mér finnst gaman að þessu.
Fram á vor verð ég svo í 2—3
sýningum utan New York. En í
byrjun janúar byrjum við aftur
á okkar fyrri sýningarskrá hér I
New York.
Ekki bjóst Helgi við að geta
komið til Islands á listahátíðina
í júní einsoghann hefur verið
beðinn um og hann langar mjög
til að gera. Hann kvaðst vera
búinn að nefna það við stjórn
ballettflokksins, en fékk heldur
neikvæðar undirtektir. — Um
þetta leyti verða frægir ballett-
flokkar í New York, bæði
Konunglegi brezki ballettinn
og Danski ballettinn, sem ekki
hefur komið hingað í 10 ár,
útskýrði Helgi. Þeir sýna i
Metropolitanóperuhúsinu og
veita okkur harða samkeppni.
Stjórnendur New York City
ballettsins segjast sízt mega
missa sínar beztu stjörnur á
þeim tíma. Og þeim er illa við
að ég fari. Þó gæti svo farið,
þegar nær dregur og sýningar-
skráin komin, að opnist mögu-
leiki á 2—3 dögum til að
komast frá. Hvort ég vil það?
Auðvitað, ég nota hvert tæki-
færi til að komast heim.
— Annað kemur líka til, hélt
Helgi áfram. Jerome Robbins
er að semja 3 balletta fyrir
flokkinn, sem eiga að koma
fram í maí og júní og hann
notar mig alltaf mikið í sína
nýju balletta. Ballanchine er
líka að semja fyrir okkur tvo
balletta. Þetta eru tveir
frægustu „koreografar“ heims
og mjög skemmtilegt að fá að
vinna með þeim. Ballanchine er
stjórnandi New York City
ballettsins, og Jerome Robbins
er ráðinn sem einn af ballet-
meisturunum og hefur sína eig-
in dansa. I fyrra samdi hann
Dybuck fyrir mig, og Leonard
Bernstein samdi músikina. Og
nú minntist Robbins á það að
hann vildi fá mig í einhvern
eða einhverja af þessum nýju.
Raunar hefi ég dansað í flest-
um nýju balletunum hans. Þess
vegna á ég svo erfitt með að
komast frá á þessum tima.
— En ef til kæmi, hvaða
ballettar væru hugsanlegir til
uppfærslu með íslenzka ballet-
flokknum? Ég veit að menn
dreymir um það heima að fá að
sjá Giselle.
— Sú sýning er of viðamikil
enn sem komið er. Ef ég kæmi,
yrði það aðeins í stuttan tíma,
2—3 daga. Og ef þarf að æfa, þá
næðist kannski ekki nema 1
sýning. Þá væri betra að hafa
smærri balletta, nokkra „Pas
de deux“ og fá fleiri sýningar.
En ég tel ekki góðar líkur á að
ég geti farið núna.
— Annað er það, að ég hefi
rætt um það við Svein Einars-
son i Þjóðleikhúsinu að koma
upp sýningu á Hnetubrjótnum
við tónlist Tshaikowskys hélt
Helgi áfram. Þó það sé viða-
mikil sýning, þá má sýna
Hnetubrjótinn ár eftir ár um
iólaleytið. Og ekki þarf hún að
vera eins íburðarmikil að ytri
búnaði og hér. Hnetubrjótur-
inn hefur marga góða kosti til
sýningar á Islandi, Þar eru svo
mörg smáhlutverk fyrir dans-
ara sem geta gefið Islenzku
dansmeyjunum tækifæri, eins
og t.d. Kínverjarnir tveir o.fl.
Sá ballett er ekki bara fyrir
stjörnudans. Hlutverk sykur-
drottningarinnar og fylgisveins
hennar er stutt og og má alltaf
fá gestadansara i það, ef vill.
Auk þess þarf ekki dansara I öll
hlutverkin. T.d. geta leikarar
Þjóðleikhússins tekið að sér
hlutverk gestanna í jóla-
boðinu. Slíkt er oft gert. Og var
nýlega í sýningu í Tulsa, þar
sem leikfimiskennararnir í
borginni tóku að sér þau hlut-
verk. Og síðast en ekki sízt, þá
má nota börnin í balletskólan-
um í hópdansana, eins og við
gerum hér í New York. Það
veitir þeim lika tækifæri til að
dansa opinberlega. En flokkur-
inn í þessari sýningu hjá okkur
er mjög stór. Alls tðku 85—90
manns þátt í sýningunni. Hér
er þessi sýning sígild og liður í
jólahaldinu í New York. Ég er
sjálfur búinn að dansa í henni á
hverju ári i desember frá þvi ég
kom í þennan flokk eða í 5 ár.
Þetta er því eins og frí hjá mér.
Það er orð að sönnu. Sýning
New York Citý ballettsins á
Hnetubrjótnum er mjög
íburðarmikil, nánast eins og
skrautsýning. Efnið er jólalegt.
I fyrsta þætti er jólaboð og
gestirnir ganga um, börnin
ærslast og sjónhverfingamaður-
inn sýnir brögð. Eftir að þeir
kveðja sofnar litla stúlkan á
sófa við stóra jólatréð og móðir
hennar breiðir yfir hana og Iæt-
ur hana vera. En þá byrja ævin-
týrin að gerast á jólanóttina og
hún svífur út í skóginn, upp til
stjarnanna og til sætindalands-
ins. Hún fer i reglulega ævin-
týraför á borð við Lísu í Undra-
landi.
Framhald a bls. 16
Helgi tók fram búning fvlgisveins Sykurdrottningarinnar f Hnetubrjótnum, þvf nú leið að þvf að'
sýning hæfist. Ljósm. E.Pá.
Helgi er að ná sér eftir meiðslin í íslandsferðinni
I