Morgunblaðið - 08.01.1976, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1976
11
Grænlendingar með 10 þúsund
tonn af 70 þús. tonna rækjuafla
— stofninn í mikilli hættu
FISKAREN, málgagn
sjávarútvegsins í Noregi,
segir frá því nýlega, að á
síðasta ári hafi verið veidd
70 þúsund tonn af rækju
við Grænland, sem sé fjór-
um sinnum meira en fiski-
fræðingar telji að stofninn
þoli. Segir í fréttinni, að
heildarverðmæti aflans sé
sem nemur rúmlega 2.5
milljörðum ísl. króna á ár-
inu 1975, en af aflanum
veiði erlendir togarar 55
þús. tonn. Erlendu togar-
arnir skiptist þannig, að 13
Samdráttur í flugumferð á
ísl. flugstjórnarsvæðinu
Áætlunarflug innanlands eykst um 6,9%
FLUGUMFERÐ um fslenzka flug-
stjórnarsvæðið minnkaðiá árinu
1975 um 5,2% en veruiegur sam-
dráttur varð á árinu í öilu flugi
yfir Norður-Atlantshafið. Þotur
voru 80% þeirra flugvéla, sem
fóru um fsl. flugstjórnarsvæðið.
Eins og áður hefur verið skvrt frá
tók íslenzka flugstjórnarmiðstöð-
in um þessi áramót við flugum-
ferðarstjórn f efra loftrými Græn-
landssvæðisins og við það varð fsl.
flugstjórnarsvæðið þrefalt
stærra.
Á Keflavíkurflugvelli hefur
lendingum farþegaflugvéla í
millilandaflugi fækkað um 11,0%.
Á Reykjavíkurflugvelli er fjöldi
lendinga svo til hinn sami og var
GÓÐ GJÖF — Lionsklúbbur Stykkishólms afhenti
sjúkrahúsinu á staðnum lækningatæki fyrir jól,
eins og sagði í Morgunblaðinu á Þorláksmessu. Hér
kemur mynd sem tekin var við afhendinguna, og
sýnir hún Lionsmenn og stjórnendur sjúkrahúss-
ins. Læknar þess sýndu notkun tækisins við þetta
tækifæri. Ljósm. Árni Helgason.
séu sovézkir, 22 norskir og
20 spænskir, en af þeim
veiða þeir sovézku sýnu
mest, eða rúm 20 þús. tonn.
Þá veiði Danir og Færey-
ingar samtals rúm 13 þús.
tonn, en sjálfir veiði Græn-
lendingar aðeins um 10
þúsund tonn.
Um leiðir til að takmarka
aflann segir Grönlands-
posten nýlega, að þar sem
kvótareglur Norðausturatl-
antshafsfiskveiðinefndar-
innar taki ekki til rækju-
veiði, sé útfærsla fiskveiði-
lögsögunnar við Græhland
eina leiðin til að bjarga
rækjustofninum frá út-
rýmingu og þar þurfi að
hafa skjót handtök.
árið áður, en hreyfingum, þ.e.
fjölda lendinga og flugtaka, hefur
fækkað um 16%, einkum vegna
samdráttar í kennslu- og æfinga-
flugi. Um 6,9% aukning hefur
orðið í áætlunarflugi innanlands,
en reglubundið áætlunarflug er
nú stundað til 36 flugvalla utan
Reykjavíkur.
Á árinu 1975 voru gefin út 114
ný skírteini til flugliða, en voru
119 árið áður. Á árinu voru
endurnýjuð 939 eldri flugliðaskír-
teini en árið áður voru endur-
nýjuð 707 skírteini. Skrásett voru
11 ný íslenzk loftför en 15 árið
1974 og endurnýjuð voru loftskír-
teini 82 annarra ísl. loftfara á
árinu.
NAMSKEIÐ
FYRIR VÉLSTJÓRA
í MEÐFERÐ OG VIÐHALDI Á CATERPILLAR
BÁTAVÉLUM, VERÐUR HALD-
IÐ í KENNSLUSTOFU OKKAR,
LAUGAVEGI 170—172, NÁMSKEIÐIÐ
STENDUR YFIR í 3 DAGA
FRÁ 1 3. JAN. TIL 1 5 JANÚAR.
VINSAMLEGA SKRÁIÐ YKKUR FYRIR
KL. 12 Á HÁDEGI 12. JANÚAR.
UTGERÐARMENN,
VÉLSTJÓRAR
FRÆÐSLA GERIR
GÓÐAN VÉLSTJÓRA BETRI.
HEKLA hf.
Laugavegi 170-172,- Sími 21240
Caferpilbr, Cat, og CB eru skrósett vörumerki
Vínveitingar
í opinberum
veizlum verði
bannaðar
HAUSTÞING Umdæmisstúkunnar
nr. 1 var haldið i desembermánuði
s.l. og lét þingið frá sér fara nokkrar
ályktanir um áfengismál. Þingið
átaldi harðlega þá ákvörðun meiri-
hluta borgarráðs að veita stúdentum
Háskóla fslands leyfi til vinveitinga I
Stúdentakjallaranum en þakkar jafn-
framt dómsmálaráðuneytinu fyrir af-
stöðu þess I málinu. sem leiddi til
þess að vinveitingar verða ekki
leyfðar á staðnum.
f einni ályktun þingsins segir að
Umdæmisstúkan telji ástæðu til að
átelja það að opinberir aðilar hafi
vlnveitingar I opinberum veizlum á
kostnað almennings. Beindi þingið
þvl til rlkisstjórnar og Alþingis að
bannað yrði með lögum að hafa vln
um hönd I slikum veizlum. Þá lýsti
þingið yfir vanþóknun sinni á vin-
veitingum á Edduhótelunum, þar
sem hér væri um menntastofnanir að
ræða, sem nýttar væru til hótel-
rekstrar. Vegna tiðra umferðar
slysa, sem i mörgum tilfellum má
rekja til áfengisneyzlu, hvatti haust-
þingið ýmis félagasamtök til að taka
höndum saman og vara við þeim
mikla slysavaldi, sem áfengið er.
kRóm
OTRULEGT VERÐ
Nýjar og fallegar vörur. Aðeins kr. 18.800
hvert sæti og kr. 19.500 glerborðin.
MUSCiOCsN
Grensásvegi 7
Framleiðandi:
STÁLIÐJAN H.F.
Grensásvegi 7
S. 83360.
úsgögn