Morgunblaðið - 08.01.1976, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANUAR 1976
Norska
olían
þjóðnýtt
Osló — 7. jan. — AP.
NORSKA stórþingið sam-
þykkti í dag áætlun stjórn-
arinnar um að norska
rlkið ætti 95% eignaraðild að
fyrirtæki þv(, sem annast mun
vinnslu og hreinsun olíu úti
fyrir ströndum Noregs. Þing-
menn Verkamannaflokksins
og Sósfalfska vinstriflokksins
greiddu áætluninni atkvæði,
en borgaraflokkarnir voru
henni andvfgir, þar sem þeir
telja, að einkaaðilar eigi að
taka meiri þátt f olfuvinnsl-
unni, auk þess sem rfkisstjórn-
in hafi tekið þessa ákvörðun f
fljótræði.
Biskupar
kœra ekki
Jesúklám
Einkaskeyti til Mbl.
Kaupmannahöfn í gær
DANSKIR biskupar ætla ekki
að sameinast um að ákæra
kvikmyndaframleiðandann
Jens Joergen Thorsen fyrir
guðlast í umdeildri kvikmynd
eftir hann um Jesúm Krist.
Æðsti maður kaþólsku kirkj-
unnar, Hans Martensen, bisk-
up, hefur skorað á biskupa
þjóðkirkjunnar og æðstu menn
fríkirkjunnar og annarra við-
urkenndra trúarfélaga að sam-
einast um að fara þess á leit
við ríkissaksóknara að hann
ákæri Thorsen fyrir guðlast.
Aðeins tveir biskupar þjóð-
kirkjunnar hafa undirritað til-
mæli kaþólska biskupsins.
Hinir biskuparnir niu hafa
málið til athugunar eða neitað
að skrifa undir áskorunina.
Þeir biskupar sem enn fhuga
málið vilja ekki að Thorsen fái
meiri auglýsingu en orðið er.
Einn þeirra sagði: „Verk J.J.
Thorsens er guðlast, um það
eru allir biskuparnir sammála,
en jafnframt eru allir danskir
biskupar mótfallnir ritskoð-
un.“
Menningarráðherrann, Niels
Mathiesen, hefur ekki viljað
greiða umsaminn styrk frá rik-
inu til kvikmyndar Thorsens,
sem meðal annars sýnir'Jesúm
í samfaraatriðum, fyrr en
hann fær úrskurð um að húry
sé ekki guðlast. Málið er því í
athugun hjá saksóknara.
Sjálfur hefur Jens Joergen
Thorsen lýst kvikmynd sína
guðlast. Hann vill að málið
verði til lykta leitt sem fyrst
svo hann fái ríkisstyrkinn.
Lars Olsen
Madrid:
I
Japönsku flugvélarræningjarnir, sem héldu farþegum í gíslingu f flugvélinni í
Manila á dögunum, leyfðu konu að nafni Nina Sagrado að yfirgefa flugvélina vegna
hjartabilunar. Sjúkraliði styður hana i átt að sjúkrabifreið.
Bandarískir flugmenn
í ferðum til Angóla?
Washington, 6. jan. Reuter
BANDARlSKUR öldungadeildar-
maður, John Tunney, sagði í dag
að bandarfskir flugmenn flyttu
hergögn í bandarískum flugvél-
um frá Zaire til Angola og spurði
hvort þetta væru CIA-aðgerðir.
Seinna bar landvarnaráðuneytið f
Washington þetta til baka, en
samkvæmt góðum heimildum
hefur Zaire nýlega keypt nokkrar
Herculesflugvélar frá Bandaríkj-
unum.
Tunney vitnaði í sjónarvotta og
sagði að ef þetta væru CIA-
aðgerðir væru þeir „undanfari
íhlutunar f annað Vfetnam."
Hann sagði að bandarfskar C-130
Hercules-flugvélar færu fjórar til
fimm ferðir daglega til Angola.
Tunney kvaðst hafa frétt að
fulltrúar bandarísks flugfélags
hefðu orðið fyrir skothríð þegar
þeir flugu í þyrlu skammt frá
Luanda. Tunney hafði forystu um
að öldungadeiidin stöðvaði fjár-
veitingar til vopnasendinga til
Angola i síðasta mánuði.
FORD „BJARTSVNN“
Jafnframt var sagt í Hvíta
húsinu að Ford forseti væri al-
mennt bjartsýnn á að finna mætti
lausn á deilumálunum i Angola,
en frá því var ekki skýrt hvort
áfram hefði miðað í samkomu-
lagsátt.
Blaðamenn fengu þetta svar við
fyrirspurn um ummæli Fords um
Angola í St.Louis í gær og fund
sem Henry Kissinger utanríkis-
ráðherra hefur átt með Anatoly
Dobrynin, sendiherra Rússa.
Ford sagði þegar hann var að því
spurður hvað hann mundi gera ef
Rússar héldu áfram vopnaflutn-
ingum til Angola: „Ég geri ekki
Framhald á bls. 27
GA-peningar í
ítalskri pólitík?
Róm, 7. desember. AP. Reuter.
RITARI Lýðveldisflokksins á
Italíu, Oddo Biasini, neitaði því f
dag að flokkurinn eða starfsmenn
hans hefðu fengið fjárstvrki frá
CIA og bað The New York Times
að birta bréf sem hann hefur sent
blaðinu þar að lútandi.
New York Times og Washing-
ton Post hermdu í dag að CIA
hefði aukið leynilegar aðgerðir
sínar á ítalíu að undanförnu,
meðal annars fjárhagsstuðning
við flokka andkommúnista. Lýð-
veldisflokkurinn fékk aðeins 3 af
hundraði atkvæða í þingkosn-
ingunum 1972 og hefur verið aðili
að ríkisstjórn Aldo Moros sem nú
riðar til falls.
Samkvæmt fréttinni í New
York Times hefur CIA greitt
flokkum andkommúnista tæpar
sex milljónir dollara í' reiðufé
undanfarinn mánuð í þeim til-
gangi að koma í veg fyrir fylgis-
aukningu kommúnista í næstu
kosningum. Blaðið hefur eftir
áreiðanlegum heimildum að Ford
forseti hafi samþykkt greiðslurn-
ar 8. desember og að þingmönn-
um hafi verið sagt frá þeim i
síðasta mánuði.
Blaðið segir að samkvæmt
heimildum sínum hafi Henry
Kissinger utanríkisráðherra ein-
dregið stutt CIA-greiðslurnar.
Bæði CIA og Hvíta húsið neituðu
að láta hafa nokkuð eftir sér um
fréttina sem er eftir Seymour
Hersh.
Síðdegisblaðið Washington Star
birti svipaða frétt á forsiðu og
segir að CIA eigi í vændum nýja
árekstra við þingið vegna málsins.
Það segir að CIA hafi stutt
portúgalska sósíalistaflokkinn
fjárhagslega fyrir milligöngu
sósíaldemókrata í Vestur-Evrópu,
einkum Vestur-Þýzkalandi.
Verða neðanjarðarbrautirn-
ar settar undir herstiórn?
Madrid, 7. jan. — Reuter.
VERKFALL starfsmanna neðan-
jarðarbrautarinnar í Madrid hélt
áfram f dag, enda þótt lögregla
skærist f leikinn og þrátt fyrir
hótanir stjórnarinnar um að setja
starfsmenn undir stjórn hersins,
eins og Franco gerði þegar braut-
arstarfsmennirnir fóru sfðast f
verkfall, en það var árið 1969.
Verkfallið veldur stjórn Arias-
ar verulegum erfiðleikum og í
gærkvöldi birti Juan Carlos, kon-
ungur Spánar, yfirlýsingu þar
sem sagt var, að öllum ráðum yrði
beitt til að binda endi á verkfall-
ið, — jafnvel að setja flutninga-
kerfið undir stjórn hersins. Verk-
fallsmenn hafa haldið áfram mót-
mælasetu sinni í kirkjum í út-
hverfum borgarinnar í dag og not-
aði lögreglan kylfur og táragas til
að koma um 1500 verkfallsmönn-
um út úr kirkjunum í dag. Engir
voru handteknir. Þá batt lög-
reglan enda á mótmælaaðgerðir,
sem um 300 manns tóku þátt i i
samúðarskyni við verkfallsmenn.
Fregnir frá verkfallsnefnd
brautarstarfsmannanna herma,
að þeir krefjist nærri 50% kaup-
hækkunar, en meðallaun þeirra
nema nú um 42.500 ísl. krónum á
mánuði.
Verkalýðsleiðtogar á Spáni
segja, að viðbrögð stjórnvalda við
verkfallinu verði prófsteinn á
hæfni hennar til að takast á við
kjaramál í landinu. Þeir segja
ennfremur, að harkalegar aðgerð-
ir gagnvart verkfallsmönnum
muni einungis hafa í för með sér
auknar kröfur annarra stétta,
svo sem málmiðnaðarmanna og
þeirra, sem starfa i byggingar-
iðnaði. 13 þúsund starfsmenn í
málmiðjuveri, sem er í eigu
bandarískra aðila, boðuðu í dag
sólarhringsverkfall í samúðar-
skyni við starfsmenn neðan-
jarðarbrautarinnar. Haft er eftir
áreiðanlegum heimildum i
Madrid, að stjórnin hafi gert ráð-
stafanir til að setja brautarstarf-
semina undir stjórn hersins, og
muni hún gefa út yfirlýsingu þar
að lútandi hverfi starfsmenn ekki
til vinnu innan sólarhrings. Sömu
heimildir herma, að stjórnin sé
fús til að hefja samningaviðræður
við verkfallsmenn, en hún telji
verkfallið ólöglegt og til þess efnt
af stjórnmálalegum ástæðum.
Fœrri til
Brazilíu
Rio de Janeiro,
7. janúar. Reuter.
FERÐASKRIFSTOFUR í
Norður-Ameríku hafa aflýst
rúmlega 1.000 hótelpöntunum
í Brasilíu í janúar og febrúar
þar sem Brasilía greiddi at-
kvæði með ályktunartillögu á
Allsherjarþinginu þar sem
zionismi og kynþáttastefna
voru lögð að jöfnu.
Flugvélar frá
Kúbu miUilenda
á Azor-eyjum
Lissabon, 7. janúar. Reuter.
JAIME Gama, háttsettur
maður f flokki portúgalskra
sósfalista, sagði f dag að
kúbanskar flugvélar notuðu
flugvöllinn Santa Maria á
Azor-eyjum til millilendinga á
leió þeirra til Angola með her-
gögn.
Blaðið A Uniao á Azor-
eyjum sagði fyrst frá þessu f
sfðasta mánuði, en portúgalska
stjórnin hefur hvorki staðfest
fréttina né borið hana til baka.
Viðsjár á
landamœnan
Bankok, 7. janúar. Reuter.
THAILENZKUR landamæra-
vörður beið bana í nótt og
fimm særðust þegar þeir stigu
á jarðsprengju sem kambó-
dískir hermenn höfðu komið
fyrir og á eftir skiptust 100
kambódískir hermenn og thail-
enzkir landamæraverðir á
skotum. 51 kambódískur her-
maður og átta kennarar flúðu
til Thailands í gær.
Spáir hœgfara
frelsisþróun
París, 7. janúar. Reuter.
SPÆNSKI verkalýðsleiðtog-
inn Marcelino Camacho sagði f
dag að Spánverjar væru á
frelsisbraut en spáði þvf að sú
þróun yrði hæg. Hann sagði að
verkföllum og öllum öðrum
tiltækum ráðum yrði beitt til
að hraða þróuninni.
Plyuchsch
látinn laus
fyrir helyi?
Vín, 7. janúar. AP.
STÆRÐFRÆÐINGURINN
Leonid Plyuschsch verður ef
til vill látinn laus áður en vega-
bréfsáritun hans rennur út á
laugardag, að sögn Amnesty
International i Austurríki í
dag. Búizt hafði verið við að
honum yrði sleppt úr sovézku
geðveikrahæli fyrr í vikunni.
Stærðfræðingurinn, kona
hans og tveir synir þeirra hafa
leyfi til að ferðast til Austur-
ríkis eða tsraels að sögn starfs-
manna Amnesty. Þeir segja að
þeim verði gert að ferðast
hverju í sínu lagi til landa-
mæra Sovétríkjanna og Ung-
verjalands. Fjölskyldan verður
liklega nokkrar vikur í Vín.