Morgunblaðið - 08.01.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANUAR 1976 13
FRÁ LEIÐBEININGASTÖÐ HÚSMÆÐRA
Innleggsnótur
SVO getur farið að nauðsynlegt
sé að hafa skipti á einhverri
jólagjöf. Hluturinn sem gefinn
var reynist ónothæfur, t.d. get-
ur flíkin verið allt of stór eða
þá of lítil.
Þegar þannig stendur á hafa
kaupmenn skipt vörunni fyrir
viðskiptavini sína, þótt þeir séu
ekki skyldugir til þess sam-
kvæmt kaupalögunum. En hins-
vegar þykir það góður
verslunarháttur að veita við-
skiptavinum sínum þá
þjónustu. Að sjálfsögðu má
neytandinn ekki vera búinn að
nota flíkina eða lesa bókina,
hlutur sem þarf að skipta,
verður að vera alveg lýtalaus.
Yfirleitt getur kaupmaður
með litilli fyrirhöfn skipt vör-
unni, látið viðskiptavininn hafa
aðra flík eða aðra bók í staðinn
fyrir þá flík eða bók sem hann
kom með. En þó getur stundum
staðið þannig á, að viðskipta-
vinurinn finni ekkert f
versluninni sem hann vill eiga.
I slíkum tilvikum láta kaup-
menn viðskiptavinum sínum í
té innleggsnótu sem unnt er að
taka út á síðar meir. Hér á landi
endurgreiða kaupmenn yfir-
leitt ekki andvirði vörunnar.
Hinsvegar getur kaupandinn
samið um það um leið og ein-
hver vara er keypt að mega
skila henni aftur innan til-
tekins tíma og fá endur-
greiðslu. Kaupandi getur með
því móti tryggt sér að fá t.d.
tækifæri til að sjá hvort gólf-
teppið eða stóllinn fari vel í
stofunni heima. I slíkum tilvik-
um er sjálfsagt að fara fram á
að fá nótu fyrir andvirði vör-
unnar með ákvæðum um skila-
frest, svo að ekkert fari á milli
mála.
Yfirleitt er það góð venja að
taka nótu fyrir vöru sem ef til
vill kann að þurfa að skipta
síðar meir einhverra hluta
vegna. Ekki er unnt að ætlast
til að kaupmaður skipti vöru
— þegar
skipta
þarf jóla-
gjöfunum
sem ekki hefur verið keypt i
verslun hans. Ekki er heldur
unnt að ætlast til að kaupmaður
skipti vöru sem keypt hefur
verið fyrir mörgum mánuðum.
Jólagjöfum skal því skipta sem
allra fyrst.
Samkvæmt fyrningarlögun-
um frá 1905 nr. 14 3. gr. fyrnist
innleggsnóta á fjórum árum.
Það er þvf góð regla ekki síst á
verðbólgutímum að taka sem
fyrst út á innleggsnótu. Annað
vandamál kann líka aó skapast
á tímum þegar örar breytingar
eiga sér stað, það kemur stund-
um fyrir að verslun hættir
starfsemi sinni eða skiptir um
eiganda og þá kann að vera
erfitt fyrir neytandann að fá
nokkurt verðmæti út á inn-
leggsnótuna.
Að lokum skal á það bent að
hafi kaupmaður selt gallaða
vöru getur kaupandinn krafist
að fá aðra vöru í staðinn eða að
rifta kaupunum þ.e. að skila
hinu selda aftur og fá endur-
greiðslu. í slíkum tilvikum þarf
kaupandi ekki að sætta sig við
að fá einungis innleggsnótu. Ef
kaupandi álítur að vara sé göll-
uð, verður hann að tilkynna það
seljandanum þegar í stað.
Sigrfður Haraldsdóttir.
rMALASKOLI—26908
Danska, enska, þýzka, franska, spænska
ítalska og íslenzka fyrir útlendinga.
Innritun daglega.
Kennsla hefst 1 2. jan.
Skólinn ertil húsa að Miðstræti 7.
Miðstræti er miðsvæðis.
Næst síðasti innritunardagur
U26908—HALLDORS
-)JaZZBaLL©CC8KÓLÍ BÚPU
Dömur n
athugið
líkcim/icekl
Byrjum aftur eftir
jólafrí 1 2. jan.
Líkamsrækt og
megrun fyrir dömur á
öllum aldri
Upplýsingar og innritun í síma 83730 frá
kl. 1 —6, 6., 7. og 8. jan.
it Morgun-, dag- og kvöldtímar
it Sturtur, sauna, tæki og Ijós
Sérstakir megrunartímar 4 sinnum í
viku.
jazzbaiieCCsKóli bútu
Nýtt úrval af
kápum
frá hinu þekk
tízkuhúsi í
Robin
í Belgíu.
þcrnhard
laKdal
KIÖRGARD!
Vönduð kápa.
Valin flík.
SIÐASTI INNRITUNARDAGUR
UNGLINGAR
Allir nýjustu táningadansarnir — svo sem
Hustler, Bump (Boom), Kung Fu, El
Bimbo, Brazilian Carneval, Harlem og
rnargir fleiri.
AIH. Skírteini verða afhent sunnudaginn 11. janúar milli kl. 1—7 í Brautarholti 4 og Drafnarfelli 4.
Innritun daglega frá kl. 1 0—1 2 og 1 —7.
REYKJAVÍK
Brautarholt 4 símar 20345 og 24959.
Breiðholt. Kennt verður í nýju húsnæði að
Drafnarfelli 4 simi 74444.
KÓPAVOGUR
Félagsheimilið simi 84829.
HAFNARFJÖRÐUR
Góðtemplarahúsið simi 84829.
SELTJARNARNES
Félagsheimilið simi 84829.
KEFLAVÍK
Tjarnarlundur sími 1 690 kl. 5.—7.