Morgunblaðið - 08.01.1976, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANUAR 1976
| atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna |
Ungur reglusamur
maður með stúdentspróf og reynslu á mörgum sviðum at-
vinnulifs og góða enskukunnáttu óskar eftir góðri atvinnu
strax. Allt kemur til greina.
Einnig óskar ung stúlka eftir atvinnu strax. Margt kemur til
greina. Upplýsingar í síma 43438 fyrir kl. 8 á kvöldin.
Vélabókhald
Traust fyrirtæki vill ráða stúlku til starfa
við vélabókf ald, hiuta úr degi.
Einhver starfsreynsla æskileg.
Umsókn um starfið ásamt upplýsingum
um aldur menntun og fyrri störf, sendist
Mbl. fyrir 12. þ.m. merkt: „strax —
3999".
Skrifstofustarf
Stórt fyrirtæki óskar að ráða stúlku til
starfa á skrifstofu sem fyrst. Einhver
starfsreynsla og vélritunarkunnátta nauð-
synleg.
Umsókn með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist Mbl. fyrir
12 þ.m. merkt: „skrifstofustarf —
3690".
Afgreiðslustarf
Óskum eftir að ráða karlmann til starfa við
afgreiðslu og fleira í söludeild. Þarf að
hafa bílpróf.
Allar nánari uppl. veitir starfsmannastjóri
á skrifstofu félagsins að Skúlagötu 20
Sláturfélag Sudurlands.
Rösk stúlka
óskast til afgreiðslustarfa í eina af verzlun-
um okkar. Æskilegt er að umsækjandi
hafi einhverja reynslu.
Allar nánari uppl. veitir starfsmannastjóri
á skrifstofu félagsins að Skúlagötu 20.
Sláturfélag Suðurlands.
VANTAR ÞIG VINNU (n
VANTAR ÞIG FÓLK í
Vanan mann vantar
á 100 lesta bát sem er að hefja neta-
veiðar frá Ólafsvík. Uppl. í síma 93-6322
eða 93-6122.
Starf
öryggisfulltrúa
hjá íslenzka Álfélaginu h.f. í Straumsvík
er laust til umsóknar.
Nánari uppl. gefur ráðningarstjóri, sími
52365. Umsóknareyðublöð fást hjá
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar,
Reykjavík og Bókabúð Olivers Steins,
Hafnarfirði. Umsóknir óskast sendar fyrir
19. janúar 1976 í pósthólf 244, Hafnar-
firði.
íslenzka Álfélagið h. f.
Straumsvík.
Skrifstofustúlka
Óskast strax til allra almennra skrifstofu-
starfa, toll- og verðlagsútreikninga o.fl.
Umsóknir, með upplýsingum, sendist
Mbl. fyrir mánudagskvöld, merktar: Skrif-
stofa — 2227.
Sendill óskast
hálfan daginn e.h. mánudaga, miðviku-
daga og föstudaga.
Upplýsingar í síma 1 5656.
Félagsstofnun stúdenta
Bifvélavirkjar
Óskum að ráða bifvélavirkja nú þegar.
Bifreiðar og Landbúnaðarvélar,
Suðurlandsbraut 14, sími 38600.
Háseta vantar
á 140 lesta netabát frá Þorlákshöfn. Upp-
lýsingar í síma 99-3625 og 99-3635.
Lagerstörf
Röskur maður óskast til lagerstarfa sem
fyrst hjá stóru heildsölufyrirtæki.
Um er að ræða afgreiðslu á snyrtivörum,
hjúkrunarvörum og öðrum skyldum vör-
um. Einnig þarf umsækjandi að sjá um
birgðahald í tollvörugeymslu.
Aðeins kemur til greina reglusamur og
duglegur maður. Eiginhandar umsóknir
ásamt upplýsingum um aldur menntun
og fyrri störf, sendist blaðinu, merkt
„Lagervarsla 4635" fyrir 1 5. janúar n.k.
S krif stof ust ú I ka
Stúlka vön vélritun óskast til starfa á
málflutningsstofu í miðbænum. Vinnu-
tími frá kl. 1 —5 mánudaga til föstudaga.
Umsókn sé skilað á afgr. Mbl. merkt
„málflutningsstofa — 3692" fyrir 12.
þ.m.
Heildverslun
Vill ráða stúlku til vélritunarstarfa, síma-
vörslu og annarra skrifstofustarfa.
Verslunarskóla- eða hliðstæð menntun
æskileg eða góð starfsreynsla.
Umsóknir með upplýsingum um fyrri
störf, aldur og menntun ásamt kaupkröfu,
sendist Mbl. fyrir hád. 12. 1. merktar:
„Áreiðanleg". — 3695.
Sérverzlun
óskar að ráða stúlku til afgreiðslustarfa
hálfan daginn.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf,
leggist inn á afgr. Mbl. merkt:
„afgreiðsla-3694".
Skrifstofustúlka
Rösk stúlka óskast til skrifstofustarfa.
Uppl. á skrifstofunni, ekki í síTna.
Sælgætisgerðin Víkingur,
Lindargötu 38.
Málmsteypimaður
Landssmiðjan óskar eftir að ráða málm-
steypimann.
Upplýsingar á skrifstofunni, sími 20680.
— Helgi
Framhald af bls. 10
Meðan við höfum rabbað
saman er öðru hverju verið að
kalla í hátalarakerfi leikhúss-
ins og tilkynna hve stutt sé í
sýninguna, hverjir eigi að vera
tilbúnir o.s.frv. Og á leiðinni
niður í búningsherbergi Helga
mættum við fjölda af litlum
ballettmeyjum. Helgi er farinn
að farða sig og búa undir
sýninguna. Hann hefur þarna
búningsherbergi og baðher-
bergi. Helgi kvaðst alla jafna
koma daglega til æfinga I leik-
húsið, fyrir utan sýningarnar.
Hann þyrfti að sjálfsögðu að
halda sér við, en ræður sjálfur
hvernig hann gerir það. — Ég
stend fyrir mínu og kem ýmist
fyrir eða eftir hádegi, sagði
hann. En flokkurinn verður að
koma á vissum tíma. Það fer
eftir því hvort ég er þreyttur
eftir sýningu kvöldið áður. En
nú get ég skroppið heim um
hádegið og geri það oft.
Helgi er nýbúinn að kaupa
hús I New Jersey og flutti í það
í júnímánuði með konu sinni og
tveimur sonum. Kristinn er 8
ára gamall og Erik að vera 4ra
ára. — Það er miklu betra fyrir
drengina að vera ekki inni í
borginni. Þeir eru að komast á
skólaaldur og þarna eru opin
svæði og tré. Þetta er lengra frá
mínum vinnustað, en þó er ég
ekki lengur að aka þangað en
þvert yfir Manhattan, þangað
sem við bjuggum áður, því um-
ferðin var þar svo mikil.
En hvað er framundan hjá
honum? — Eg býst við að dans-
flokkurinn fari til Parísar í
september eða október og sýni í
Theatre de Champs Elyséé,
svarar Helgi. Talað er um að
sýna í London í leiðinni, ef
hægt er að koma því við.
Þangað fer allur flokkurinn og
er þá tekin einkaflugvél. Það er
mikið umstang.
Aður kenndi Helgi dálítið f
ballettskóla New York City
ballettsins, sem er í Juliard-
byggingunni í Lincoln Center
og er talinn einn bezti ballet-
skóli Bandaríkjanna. Hann
kvaðst hafa kunnað þvf mjög
vel, en nú væri varla hægt að
koma við kennslu, þar sem
hann dansar svo mikið. Það
gæti þó komið sér vél að hafa
fengið þjálfun í að kenna síðar,
því ballettdansarar endast ekki
mikið fram yfir fertugt eða
fimmtugt.
— Já, ég gæti alltaf kennt
eðaopnað eiginskóla síðar meir,
sagði Helgi, er þetta barst í tal.
Annars hefi ég aldrei hugsað
fram í tímann. Bara tekið því
sem boðizt hefur og það hefur
gefizt mér vel. Ætli ég haldi
ekki þeirri uppskrift. — E.Pá.