Morgunblaðið - 08.01.1976, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 1976
25
VELVAKAIVIDI
iVelvakandi svarar í síma 1Ó-1Ó0
kl 1 4— 1 5, frá mánudegi til föstu-
dags.
# Virðist alltaf
koma á óvart
Hér er bréf frá Kópavogs-
búa:
„Kæri Velvakandi.
Þá eru þeir komnir fyrstu erfið-
leikar vetrarins, sem orsakast
vegna snjókomu. Núna á undan-
förnum árum hefur verið miklu
minna um þetta en hér áður fyrr
og snjórinn hefur staðið skemur
við. Ég veit ekki hvort það er þess
vegna, en það er eins og þessir
erfiðleikar í umferðinni komi
alltaf jafn flatt upp á menn. Það
er alveg eins og menn reikni alls
ekki með að slíkt geti komið fyrir
og eru alltaf jafn vanbúnir því að
aka í vetrarófærð.
Þetta kom greinilega I ljós
núna. Bílar festust og lokuðu
vegum. Og hvernig átti öðruvisi
að fara þar sem sumir hverjir eru
á sléttum sumardekkjum. Ut af
fyrir sig hefði þetta ekki komið að
svo mikilli sök, ef einungis trass-
arnir hefðu orðið að líða fyrir
fyrirhyggjuleysi sitt. Þeir geta
sjálfum sér um kennt. En þvf er
nú ekki aldeilis að heilsa. Margir
aðrir, sem búa bila sina vel, urðu
að þola fyrir hina innilokaðir í
langri bilalest.
# Að vera við
öllu búinn
Ef til vill halda ýmsir að
það sé svo dýrt að búa bílinn sinn
vel undir veturinn, að það sé ekki
á allra færi. Ég held því aftur á
móti fram að það geti allir, sem á
annað borð hafa efni á að eiga bfl.
Mikill meirihluti bileigenda
hefur á siðari árum fengið sér
snjódekk, flestir negld, og láta
þar við sitja. Þetta er góður út-
búnaður í flestum tilfellum, en
nægir ekki i mikilli ófærð, eins og
verið hefur þessa dagana. Kostn-
aðurinn við að bæta úr því er
verð á keðjum. Og sá kostnaður
fæst fljótt greiddur, jafnvel á
einum degi eins og núna i vik-
unni, ef reiknað er með allt það
vinnutap, sem af þvi hlýzt, ef
menn sitja klukkutímum saman
fastir í skafli, svo ekki sé talað um
þá bensíneyðslu, sem i það fer að
spóla og spóla. Þá er og slit á
bílnum ótalið.
0 Sýnum
fyrirhyggju
Áður en negldu snjódekkin
komu til sögunnar notaði ég alltaf
keðjur á vetrum, þegar þess
þurfti með. Ég hætti þvi ekki,
þegar snjódekkin komu. Keðj-
urnar eru alltaf á sinum stað i
er það mér að kenna þótt varalitn-
um mfnum hafi verið stolið.
— Ég vildi mikið gefa til að
geta verið fluga ð vegg og hlusta á
hvað hann segir við hana, sagði
Wexford þegar þeir gengu fyrir
honið og að bílskúrnum hjð frú
Missai.
— Og hvað hún segir við hann,
sagði Burden. — Haldið þér að
það sé f lagi að láta hana ganga
lausa f nótt. Ég geri rðð fyrir að
vegabréfið hennar sé f gildi og
hún gæti stungið af þess vegna
hvenær sem er.
Wexford sagði sakleysislega.
— Ég hafði hughoð um að þér
hefðuð áhyggjur af þvf Mike, svo
að ég hef pantað herbergi á The
Olive and Dove f nótt. Hæfilegt
starf fvrir Martin. Hann verður
að sitja á vakt f alla nótt og ég
sárvorkenni honum.
Garðurinn umhverfis húsið var
geysilega stór og nánast átt-
strendur. 1 norðurátt vatt hann
sig út að Kingsbrook en hinum
megin aðskildi gerði hann frá
Kingsbrook Road. Burden opnaði
bílskúrsdyrnar og skrifaði niður
númerið á bíl Helenar Missal.
— Ég þarf að taka sýni af
dekkjunum, sagði Wexford. —
Við erum með sýni úr jarðvegin-
bflnum, og þegar færðin spilltist
eins og núna, set ég þær undir.
Það tekur mig ekki langan tíma.
Margir halda að það sé tímafrek
athöfn, en svo er ekki, það er að
segja, ef menn hafa lært hina
réttu aðferð — og hún er auðlærð.
Þetta hefur nægt mér, þótt ég
búi í úthverfi í Kópavogi, það er
að segja það hefur nægt, þar til ég
hef orðið að stanza vegna bila,
sem sitja fastir á miðjum vegi.
# Rafkerfið.
Og ekki nóg með það að
bílar komist ekki áfram vegna
þess að hjólbúnaður sé ekki í lagi,
sumir drepa á sér og vélin neitar
að ganga. Stafar það af því að
skefur inn á vélina og
rafbúnaðurinn blotnar.
Eitt af því nauðsynlegasta fyrir
veturinn er að sjá um, að
rafbúnaður bifreiðarinnar sé i
fullkomnu lagi og varinn, eftir
því sem hægt er. Það sparar
mönnum marga svitadropa siðar
meir, ef þetta er gert strax á
haustin.
Séð hef ég mann dag eftir dag
ýta bilnum sinum að brekku og
látið hann þar renna í gang, eftir
að kólna tekur í veðri. Það er eins
og það hvarfli aldrei að honum, að
hann þurfi að fá sér nýjan geymi,
eða láta lagfæra útleiðslu í raf-
kerfinu. Kannski er hann að
spara, en sá sparnaður er dýr og
erfiður.
Jæja, Velvakandi góður, ég heí
þetta þá ekki lengra að sinni,
vona bara að þú hafir ekki verið
einn af þeim, sem ég bölvaði sem
mest i gær, þegar ég komst ekki
leiðar minnar á velútbúnum bíl.
Kópavogsbúi.“
% Á ekki keðjur
Velvakandi skal fúslega
viðurkenna, að hann á ekki keðj-
ur, en hann varð samt engum til
trafala i umferðinni umræddan
dag. Að visu hætti hann sér ekki
mikið á bílnum, komst með lagni
út á umferðargötur, sem höfðu
verið ruddar, og það gekk allt
slysalaust.
Einu sinni voru til keðjur á
heimilinu og þær notaðar, en
siðan hafa negldu dekkin verið
látin duga.
Maður, sem leit inn til Velvak-
anda og á heima í Hafnarfirði,
tjáði honum, að hann bæri ekki
við að koma á bílnum sínum i
bæinn, þegar færðin væri eins og
að undanförnu. Þá ferðast hann
alltaf með strætisvögnum á milli.
Hann sagðist einu sinni hafa
orðið að skilja bilinn sinn eftir á
miðri leið, en á það vildi hann
ekki hætta oftar. Rutt hefði verið
að bílnum og stórsá á lakkinu,
þegar hann loks varð laus.
En þetta með keðjurnar, Vel-
vakandi er að hugsa málið.
HÖGNI HREKKVÍSI
/-/7
„Gleymdu ekki puttanum þarna!“
SIMI I MIMI ER 10004
Fjölbreytt og skemmtilegt tungumálanám
sýningarsalur
Tökum allar notaðar bifreiðar i umboðssölu
Til sölu
Fíat 600 árg. '73, Fiat 1 26 Berlina árg. '74 Fiat 1.26 Berlina árg. '75 Fiat 1 25 Special árg. ' 7 1 Fiat 1 25 Special árg '72 Fiat 1 27 Berlina árg. '72 Fiat 1 28 Berlina árq. '72 Fiat 128 Berlina árg. ’ 7 1 Fiat 1 28 Berlina árg. '75 Fiat 1 28 Station árg. '74 Fiat 1 28 Sport SL árg. '73 Fiat 1 28 Sport SL árg. '74 Fiat 1 28 Rally árg. '73 Fiat 1 28 Rally árg. '74 Fiat 1 28 Rally árg. '75 Fiat 1 32 Special árg. '73 Fiat 1 32 Special árg. '74 Fiat 132 GLS árg. '74
HAGSTÆÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR
FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
Davíð Sigurðsson h.f.,
SÍÐUMÚLA 35 SÍMAR 38845 — 38888.
ISLENZK
M' MATVÆLI
lcefood Hvaleyrarbraut 4—6, HafnarfirUi.
Eigum ^
.o
fyrirliggjandi:
REYKTAN LAX
GRAVLAX
REYKTA SÍLD
REYKTA ÝSU
REYKTANLUNDA
HÖRPUFISK
Tökum lax í reykingu ^ _____
og útbúum gravlax. T*
Kaupum einnig frosinn lax til reykingar.
Sendum (póstkröfu
VAKÚM PAKKAÐ EF ÓSKAÐ ER.
íslenzk matvæli
Sími 51455
k
<
Útsala — Útsala
á hljómplötum,
aðeins í 2 daga.
Úrval af stórum hljómplötum á verði frá
aðeins
Fást eingöngu í verzlun
okkar Hafnarstræti 3
%
heimilistæki sf
Hljomplötudeild
Hafnarstræti 3 - 20455.
J