Morgunblaðið - 12.02.1976, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.02.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1976 11 Hversu örugg er Argentfna hagsvandamál Banda- rfkjanna. Hvað deiluna f Miðausturlöndum snertir segir hún, að ef Banda- ríkjamenn neituðu að selja deiluaðilum vopn, myndu þeir neyðast til að hefja viðræður. En Iffs- réttur fóstursins er stærsta hugsjónamál hennar. „Fóstrið er mannslff og stjórnarskrá Bandaríkjanna tryggir öllum mönnum jafnrétti, en leyfi til fóstureyð- ingar gefur einni kynslóð rétt til að ráða lffi og dauða næstu kynslóða og það er hræðileg tilhugs- un,“ segir Ellen. Ellen McCormack hefur sem fyrr segir ekki beitt sér mjög persónu- lega í framboði sfnu, en hún er komin á kjörseðil- inn f forkosningunum í New Hampshire og Massachusetts og stuðn- ingsmenn hennar hafa þegar aflað 5000 dollara f 20 fylkjum, eða 100 þús. dollara sem er lágmarks- upphæð til þess að tryggja frambjóðand- anum jafnt framlag frá rfkissjóði. Ekki hafa allir mikla trú á framboði hennar og telja að hún sé alls ekki f alvarlegu framboði, heldur aðeins til að tryggja sér fé til auglýs- ingastarfsemi f baráttu sinni gegn fóstureyð- ingum. Þessum ásök- unum vfsar Ellen á bug og segir: „Atvinnustjórn- málamennirnir eru sf- fellt að gera mistök og það er ekki hægt að telja mér það til hnjóðs, að ég hef ekki staðið í þvf að gera mistök sl. 20 ár og þvf alls ekki hægt að úti- loka mig' frá framboði.“ Ellen er 4 barna móðir og gift lögregluforingja í New York. ÝMSUM þótti ummæli bandaríska sendiherrans í Argen- tínu, Roberts C. Hills fyrir skömmu um hversu gott væri að vera í landinu stinga mjög í stúf við lifnaðarhætti hans sjálfs og fjölskyldu hans svo ekki sé dýpra tekið í árinni. Hill sagði i ræðu, sem hann flutti á fundi hjá kaupsýslu- mönnum í New York, að ekki væri til muna hættulegra að búa í Buenos Aires en i öðrum stórborgum og að fjölmiðl- ar gerðu alltof mikið úr hryðjuverkum þar. Sagði hann sem dæmi um hversu örugg fjölskyldan væri, að einn sona sinna hefði hug á að gerast innflytjandi, er Hill léti af störfum sem sendiherra. Hill sendiherra við tennisleik. Vopnaður landgönguliði f baksýn. „Hvílíkt líf” Sagt frá högum bandaríska sendiherrans í Argentínu En hvað gerir þá Hillfjölskyldan til þess að tryggja þetta mikla öryggi sitt. Dálkahöfundur blaðsins Buenos Aires Heralds skrifaði fyrir skömmu i blað sitt, að bandariski sendiherrann byggi í húsi, sem minnti helzt á virki og að hann hreyfði sig vart úr stað án þess að fara í brynvarinni bifreið og með fjölda lifvarða með sér. Hins vegar er ekki hægt að lá sendiherranum þótt hann hafi vaðið fyrir neðan sig. Á sl. ári voru 1100 manns myrtir í landinu i pólitískum átökum. Sendiherrahjónin sofa i sprengjuheldu svefnherbergi, þar sem þykk stálþil eru i hverjum vegg. I svefnherberginu er einnig sjónvarps- kerfi þannig að sendiherrann getur fylgst með svæðinu umhverfis sendiráðið. Bifreið hans er eins og fyrr segir brynvarin og þegar hann fer eitthvað fylgir honum bilalest, með vopnuðum landgönguliðum og argentískum lífvörðum, sem eru i 250 manna einkaher sendiráðsins. Tveir synir hans hafa einnig sína lífverði og þegar sendiherrann leikur tennis stendur landgönguliði vopn- aður hríðskotariffli á hans vallarhelmingi og færir sig er sendiherrann skiptir um völl. Þegar sendiherrann kemur heim með bílalest sinni hleypur hann inn í húsið skv. fyrirskipun yfirmanns lífvarðadeildarinnar. Sjálfur hefur sendiherrann sagt að vinir sinir telji hann brjálað- an að vilja vera i Argentínu. Ýmsir diplómatar í Argentínu telja að bandariski sendiherrann geri of mikið úr öryggisráðstöfunum sínum. Sú saga er sögð, að eitt sinn er hann hafi verið að koma í hanastélsveizlu til sendiherra V-Evrópuríkis hafi skelfing gripið um sig meðal gesta og einn sendiherrann hrópaði upp yfir sig: „Guð minn góður, skæruliðar eru að gera árás á okkur.“ Er út var litið sáust 20—30 vopnaðir menn þjóta upp að húsinu, en þá voru bara á ferðinni lífverðir Hills og sjálfur sagði sendiherrann er hann gekk til stofu: „Hvílíkt líf það er sem þarf að lifa þessa dagana." (p^sjávarfréttir í Sjávarfréttum segir m.a. frá niðurstöðum rannsókna og ábendingum sérfræðinga um við- fangsefni, vandamál og tækifæri sjávarútvegsins á næstu árum hér á landi. »Þá eru viðtöl við skipherrana Guðmund Kjærnested og Helga Hallvarðsson um störf varðskipsmanna. • Guðni Þorsteinsson ræðir um umbúnað fiskipoka en eins og kunnugt er vakti það verulega athygli fyrir skömmu þegar einn af togurum BÚR reyndist ólöglegur. • Jens Evensen ræðir um ný- sköpun fiskveiðimála í Evrópu. • í þættinum „rannsóknir — vísindi” er viðtal við Kára Jóhannesson, sérfræðing hjá FAO, þar sem hann ræðir m.a. um nýja tækni í fiskileit, sem miklar vonir eru bundnar við • í þættinum „skipasmíðar” er sagt frá því, að Skipavík fyrirhugar stálskipasmíði.«Alþingismennirnir Sverrir Hermannsson, Jón S og Jón Ármann Héðinsson svara spurningum Sjávarfrétta um stjórnun fiskveiða og mögulegar leiðir til þess að styrkja stöðu sjávarútvegsins og framvindu landhelgismálsins. • Jónas Þorsteinsson, formaður Fiski- og farmannasambands íslands ræðir hagsmunamál fiski- og farmanna. •Þá er í blaðinu sagt frá fullkomnasta fiskiskipi Norðmanna en hönnunog framkvæmd skipsins boðar byltingu í skipasmíðum. • Og Gísli J. Ástþórs- son framleiðir plokkfisk blaðsins af sinni alkunnu snilld. Áskriftarverð er kr. 330.00 og er blaðið eingöngu selt I áskrift. Sjávarfréttir er vettvangur þeirra sem leita alhliða upplýsinga um sjávarútvegsmál. Til Sjávarfrétta. Laugavegi 178 pósthólf 1193, Rvík. Óska eftir áskrift. Nafn Heimilisfang Sími isjávarffréttin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.