Morgunblaðið - 12.02.1976, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRUAR 1976
29
VELV/XKAINJDI
ÍVelvakandi svarar í síma 10-100
jkl. 14—15, frá mánudegi til föstu-’
dags.
0 Stöðvið
innflutning
Ásta Þórðardóttir hefur
skrifað Velvakanda langt bréf og
hlaupið úr einu í annað, eins og
hún orðar það i upphafi þess. Hún
segir m.a. i kafla bréfsins um
gjaldeyrissparnað:
Við eigum góða bakara, ekki
satt? Stöðvið innflutning á smá-
kökum, formkökum og tertubotn-
um. Við eigum kexverksmiðjur.
Ég er viss um að þær geta fram-
leit tekex og annað slíkt. Við
eigum smiði. Stöðvið innflutning
á innréttingum og húsgögnum.
Þvi við höfum einnig bólstara.
Við framleiðum skó. Stöðvið inn-
flutning. Hér hafa verið fram-
leiddar ágætis NlNU-sokkabuxur.
Stöðvið innflutning. Við höfum
fataverksmiðjur. Stöðvið inn-
flutning. Við framleiðum ágætis
eldavélar. Stöðvið innflutning.
Hér voru einu sinni hönnuð sjón-
vörp. Fór það fyrirtæki á haus-
inn? Og hvernig er með hrein-
lætisvörurnar, málningarvörurn-
ar, sælgætið að ógleymdum is-
lenzku teppunum. Halda má
áfram upptalningunni. Hér er
fullt af áhugasömu fólki, sem
hefur vilja á að koma upp iðnaði.
Það verður að styðja við bakið á
því, svo ekki fari allt á hausinn.
Því er nú ver og miður, að fólk
hefur ennþá þær grillur í kollin-
um frá kreppuárunum, að allt sé
flottast og bezt frá útlandinu. Það
er hægt að laga sig eftir að-
stæðum, ef viljinn er fyrir hendi.
Auðvitað verðum við að halda
áfram að flytja inn það, sem
ófáanlegt er hér, svo að heildsala
ætti ekki að þurfa að setja á Guð
_ og gaddinn. Þó við eigum i striði
við Bretann, þá getum við tekið
hann til fyrirfnyndar að þessu
leyti. Dreifið iðnaðinum um
landið. Það er I þágu byggða-
stefnu.
0 Stórbýli og
gróðurhús
Leggjum niður kotbýlin,
þar sem hver hefur ekki nema
ofan í sig og sína. Styrkjum stór-
búin eða samyrkjubúin eins og
þau eru kölluð. Stuðlum að því að
þau ein verði við lýði hér. Og
gróðurhúsum þarf að fjölga.
Reynum meiri grænmetis- og
ávaxtaframleiðslu.
0 Þingmenn sitji
2 kjörtímabil
Um þingmenninga skal hér
einnig fjallað. Oftast setjast
þessir herrar á þing ungir menn
og sitja þar til heilsuna brestur
eða ellin er að færast yfir. Og allt
er gert fyrir atkvæðið, svo komizt
verði á næsta þing. Þar ætti að
lögleiða að hver kona og karl, sem
á þing fer, fái að sitja tvö kjör-
tímabil og taka sér svo fri næstu
tvö. Þá fengju þeir að gefa kost á
sér að nýju. Þá kæmist ungt fólk,
konur og karlar, með ferskar hug-
myndir, sem þyrðu eitthvað að
segja og gera. Þá snerist ekki allt
um atkvæðið.
% Brúa þarf foilið
Launamál. Þar verður að
brúa bilið milli þeirra hæst
launuðu og þeirra lægstu: Það er
ekki hægt að láta verkamanninn
fá 3000 króna kauphækkun,
þegar þeir hæst launuðu fá 30
þúsund króna hækkun. Allir ættu
að fá sömu krónutölu á þessum
verðbólgutímum.
0 Yfirsetufólk
stofnifélag
Ásta skrifar i framhaldi af
bréfi frá Grétu um erfitt gamal-
menni á heimili hennar, sem
móðir hennar er bundin yfir:
„Ég varð meira en lítið undr-
andi yfir svari frá þér á dögunum,
er ég hafði lesið bréf frá ungri
stúlku, sem átti auðheyrilega við
mikiar áhyggjur að stríða. En þú
ert engin Tove Ditlevsen. En
Grétu vil ég segja að þvi ver og
miður eiga hún og móðir hennar
þjáningarsystur svo hundruðum
skiptir, en það er nú ekki mikil
huggun eða bót. En hugsaðu þér
bara, ef margar unglingsstúlkur
hefðu þann skilning til að bera,
eins og hún og tillitssemi gagn-
vart móður sinni, þá stæðu
margar konur á hennar aldri
betur að vigi. Þetta ástand er svo
gjörsamlega óþolandi, að það eru
bara engin orð yfir það. Að fólk á
bezta aldri skuli dæmt í fangelsi
seinni hluta ævinnar. Það er
ósanngjarnt gagnvart þessari
kynslóð, sem nú er á miðjum
aldri, og ól börnin sín upp án allra
þeirra hjálpartækja, sem við
höfum nú. Þegar svo hún er búin
að koma börnunum upp, getur
farið að strjúka um frjálst höfuð,
taka gamalmennin við. Og það er
oft svo, þótt um fjölmennar fjöl-
skyldur sé að ræða að oftast er
einn, sem fyrir valinu verður og
situr uppi með það (gamal-
mennið).
Það eru stofnuð hundavina-
félög, kattavinafélög og guð má
vita hvað öll þau félög eru, sem
sett eru á stofn. Væri nú ekki tími
til kominn að þetta aumingja yfir-
setu fólk stofnaði með sér félag?
Það gæti e.t.v. létt svolitið undir
hvað með öðru. Væri ekki nær að
bæta við fullkomnum stofnunum
fyrir gamla fólkið og láta þvi liða
vel, í stað þess t.d. að fara að
prjála brú yfir Borgarfjörðinn,
þótt hún sé bráðnauðsynleg. En
þeir eldast nú einnig sem að
henni standa, ef guð lofar, og
mætti segja mér að þeir yrðu
hamingjusamari að geta átt góða
og áhyggjulausa elli i notalegu
umhverfi, I stað þess að aka eða
láta aka sér fram og til baka yfir
Borgarfjarðarbrúna.
Að lokum vildi ég óska þess að
hægt væri að uppræta þann hugs-
unarhátt að afkomendur séu að
borga gamla skuld. Það er nú
bara svo, að enginn biður um til-
veru sina. Ég bið svo að heilsa
Grétu og óska móður hennar til
hamingju með að eiga slíka
dóttur."
Velvakandi getur tekið undir
það síðasta. Og raunar er það mis-
skilningur að hann hafi ekki fulla
samúð með móður og dóttur í
erfiðum aðstæðum — bara líka
svolitla samúð með ömmunni.
Hugmynd Ástu er ekki svo vit-
laus, það hjálpar oft að geta talað
saman um sameiginlegt böl og
fundið sameiginlega lausn, til að
létta á erfiðleikunum. Hugsunar-
hátturinn að borga gamla fólkinu
er nú greinilega á undanhaldi hér
sem annars staðar. 1 grein um
fólksfjölgun i erlendu blaði las
Velvakandi nýlega að ein af
ástæðunum fyrir því að farið er
að draga úr fólksfjölgun hjá
þróuðu rikjunum, væri sú að með
aukinni velferð og sameigin-
legum tryggingum fyrir gamla
fólkið, þá minnkaði áhugi unga
fólksins á að eiga börn til að halla
sér að í ellinni, og það drægi úr
löngun fólks til að ala upp stóran
barnahóp. Og enginn biður um
tilveru sina, eins og Ásta segir.
sögu, sagði hann, — Söguna um
Doon og Minnu.
Quadrant var sá eini sem bærði
á sér. Hann rétti út höndina eftir
jakka sem lá á koffortinu við
hliðina á Helen Míssal. Svo tók
hann guilsfgarettuveski upp úr
jakkavasanum og kveikti sér f
með eldspýtu.
— Þegar Margaret Godfrey flutti
hingað í fyrsta skíptið hóf Wex-
ford máls, — var hún aðeins 16
ára. Hún hafði fengið gamaldags
uppeldi og var þar af leiðandi
hneykslunargjörn og siðavönd.
Hún var hreint ekkert þroskuð
stúlka heldur dálftið sveitaleg f
öllum hugsunarhætti.... Eruð
þér ekki sammála frú Missal?
— Þér getið sjálfsagt orðað það
svona....
— Til að leyna feimni sinni og
vandræðum með sjálfa sig tók
hún á sig eins konar gervi, ef svo
má orða það og reyndi að sveipa
sig dularhulu. Fyrir þá sem eru
ástfangnir kann slíkt að vera
heillandi. Og þannig áhrif hafði
framkoma hennar að minnsta
kosti á Doon.
Doon hafði allt scm hugsazt gat,
peninga, gott útlit. Ég efast ekki
um að Mínna — en það var nafnið
HÖGNI HREKKVÍSI
V2 nautaskrokkar 398 kr. kg.
Innifalið í verði
útb. pökkun,
merking.
Unghænur 'VÍ''
350 kr. kg. 10 stykki I kassa. ^ 'f
Holdakjúklingar. — Grill kjúklingar. -
Ali hænur — Kjúklingalæri og Kjúklingabringur.
Nauga Bóg
og Grillsteik
550 kr. kg.
Nauta T. Bone
840 kr. kg.
Nautasnitchel
1.100 kr. kg.
Nauta Roast -
Beef 980 kr. kg
Folaldabuff 81
kr. kg.
* * r
I V,"
Hakkað kjöt
Nautahakk 590 kr. kg.
Kindahakk495 kr. kg.
Folaldahakk 250 kr. kg.
Saltkjötshakk 495 kr. kg
Laugalœk 2, REYKJAVIK, Simi 3 50 20
Opið föstudaga kl. 8—7
Opið laugardaga kl. 7 —12