Morgunblaðið - 12.02.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. FEBRUAR 1976
Grótta
lagði Val
ÞAU ÓVÆNTU úrslit urðu i 1.
deild íslandsmótsins i handknatt-
leik karla i gærkvöldi, aS Grótta
sigraði Val i leik liðanna I Iþrótta-
húsinu i Hafnarfirði 26—19, eft-
ir að staðan hafði verið 12—7 i
hálfleik. Var leikurinn aðeins jafn
til að byrja með en siðan náði
Gróttuliðið afgerandi forystu.
Það lék mjög skynsamlega og
beið eftir færum sem oft gáfust
hjá slakri Valsvörninni. Eftir leik-
inn sagði Þórarinn Ragnarsson,
þjálfari Gróttu, að leikmenn liðs-
ins hefðu æft mjög vel að und-
anfömu og væru staðráðnir i að
halda sæti sinu i deildinni. Mörk
Gróttu í leiknum i gær skoruðu:
Árni Indriðason 7. Magnús Sig-
urðsson 6. Björn Pétursson 4,
Hörður M. Kristjánsson 3, Gunn-
ar Lúðviksson 4, Georg Magnús-
son 1, Björn Magnússon 1. Mörk
Vals: Guðjón Magnússon 6. Jón
Pétur Jónsson 4, Jón Karlsson 3,
Þorbjörn Guðmundsson 2, Gisli
Blöndal 2. Steindór Gunnarsson
1 og Gunnar Björnsson 1.
Ftí vann
Hauka
FH SIGRAÐI Hauka 20—15 i
leik liðanna I 1. deildar keppni
fslandsmótsins i handknattleik t
Hafnarfirði i gærkvöldi og
stendur nú bezt að vigi i barátt-
unni um fslandsmeistaratitilinn.
Staðan i hálfleik var 11—8 fyrir
FH. Leikur þessi var mjög slakur,
sérstaklega af hálfu Haukanna
sem áttu sinn lélegasta leik i
vetur. Bezti maður leiksins var
Birgir Finnbogason, markvörður
FH, sem varði allan timann mjög
vel. Mörk FH skoruðu: Viðar
Simonarson 9, Guðmundur A.
Stefánsson 5, Sæmundur
Stefánsson 3, Geir Hallsteinsson
2, Ámi Guðjónsson 1, Mörk
Hauka skoruðu: Hörður Sigmars-
son 6, Svavar Geirsson 3, Ólafur
Ólafsson 2, Stefán Jónsson 1,
Sigurgeir Marteinsson 1, Ingimar
Haraldsson 1.
Rosi Mittermaier — leikur hún eftir afrek Sailers og Killys og hlýtur þrenn gullverðiaun I Alpagreinum
á Olympfuleikum?
Annað gnll Mittennaiers
Frá Þórleifi Ólafssyni I Innsbruck:
ROSI Mittermaier tókst að sigra f
svigi kvenna i Lizum I dag. Varð hún
aðeins 3/100 úr sekúndu á undan
Claudia Giordani frá ftaliu, en þriðja
f röðinni varð svo stúlka frá dverg-
rikinu Lichtenstein, Hanny Wenzel
að nafni. Þar með er Rosi Mitter-
maier búin að vinna tvo gullverð-
launapeninga á leikunum þar sem
hún sigraði i bruni kvenna s.l.
laugardag. Nú spyrja menn hér hvort
Rosi takist hið ótrúlega — að
sigra einnig i stórsvigi kvenna og
hljóta þar með fjögur gullverðlaun,
þvi ef hún sigrar i stórviginu þá hefur
hún einnig unnið Alpaþrikeppnina.
Rosi er nú örugglega einhver vin-
sælasti keppandinn hér i Innsbruck
og kemur þar margt til: Frábær
iþróttakona, hefur aðlaðandi fram-
komu og er almennileg við alla. auk
varð
dvalið í mið-Evrópu og æft og
keppt, sagði Steinunn sem í vor
lýkur landsprófi heima í
Reykjavik. Steinunn er dóttir
hjónanna Sæmundar Óskarssonar
prófessors sem er mikill skíða-
áhugamaður og Agústu Árngríms-
dóttur. Systir Steinunnar, Ása
Hrönn Sæmundsdóttir, er líka
mikil skíðakona i sínum aldurs-
flokki, en hún er 13 ára.
Jórunn Viggósdóttir sem einnig
tók þátt í svigkeppninni fór illa út
úr henni, eins og margar aðrar
skíðakonur. Hún krosslagði skíðin
þegar í 5. hliði og féll við það.
— Ég veit ekki hvort þetta var
klaufaskapur eða ekki, en ég hef
átt það til á æfingum að undan-
förnu að krossa skiðin. Um
ástæðuna veit ég ekki, sagði
Jórunn við Morgunblaðið.
Eftir að keppninni í svigi lauk í
gær ræddi Morgunblaðið lítillega
við Hákon Ólafsson, formann
Skíðasambands íslands og aðal-
fararstjóra íslenzka Olympíuliðs-
ins. Hákon var að vonum ánægður
eftir hina ágætu frammistöðu
Steinunnar í keppninni og sagði
hann, að árangur hennar og
Halldórs Mattiassonar í 15
kílómetra skiðagöngunni hefði
sannað, að Islendingar hefðu gert
rétt í að senda þátttakendur á
þessa vetrarólympíuleika.
— Það var stundum sagt við
mig, sagði Hákon Ólafsson, að það
væri bölvuð vitleysa að vera að
senda kvenfólk i keppni á leikun-
um, — slikt væri aðeins sóun fjár-
muna. Steinunn hefur bærilega
afsannað slík ummæli með
frammistöðu sinni i dag.
Hákon sagði að árangur Stein-
unnar nú væri sennilega annar
bezti árangur sem Islendingur
Steinunn Sæmundsdóttir
hefði náð á skíðum fyrr og siðar.
Eysteinn Þórðarson varð 12. í
svigi á ólympíuleikunum I Banda-
rikjunum 1960. Ekki væri þó fylli-
lega hægt að bera það saman við
árangur Steinunnar nú, þar sem
mjög mikil framþróun hefði orðið
f skíðaíþróttinni, sem og í öðrum
íþróttagreinum og samkeppnin
væri nú orðin enn harðari en hún
var þá, og breiddin meiri.
Hákon ?agði, að stúlkurnar
ættu eftir að keppa i "tórsviginu
og strákarnir í svigi. — Svigið er
yfirleitt betri grein hjá
strákunum og þvi er óhætt að
gera sér vonir um góða frammi-
stöðu þeirra þar, sagði Hákon.
Fróðlegt verður einnig að
fylgjast með árangri stúlknanna í
stórsvigskeppninni, en sennilega
verður þar við rammari reip að
draga en i sviginu.
þess sem hún er sérstaklega falleg
stúlka.
Fram til þessa hefur engri konu
tekizt að vinna gull i bruni, svigi og
stórsvigi á Ólympíuleikum. Hins vegar
hefur tveimur karlmönnum tekizt þetta
og eru það þeir Toni Sailer frá Austur-
riki sem nú er aðalþjálfari Austurrlkis-
manna, en hann sigraði i Cortina
1956, og Frakkinn Jean Claude Killy,
sem sigraði I Grenoble 1 968
Vestur-þýzku stúlkurnar voru i
miklum ham í sviginu I dag. Af sjö
fyrstu voru þrjár vestur-þýzkar. Stein-
unn Sæmundsdóttir var fremst allra
Norðurlandastúlkna, en finnska
stúlkan Riitta Ollikka varð næst á eftir
henni, I sautjánda sæti Helzta von
Norðmanna i þessari grein, Torill Fro-
land, datt út úr keppninni.
Svigkeppnin var gifurlega
spennandi Eftir fyrri umferðina hafði
Pamela Behr frá Vestur-Þýzkalandi
bezta tlmann, 46,48 sek. Þá kom Rosi
Mittermaier með 46,77 sek., Danielle
Deberhard frá Frakklandi var með
46,86 sek og Claudia Giordani frá
(tallu var með 46,87 sek.
Af þeim sem höðfu bezta tíma úr
fyrri ferðinni fór Pamela Behr fyrst af
stað. Hún virtist ekki þora að' taka
neina áhættu sem llklega kostaði hana
gull eða silfur Hún náði timanum
45,63 sek. og samanlagt 1:32,31
mln. Nokkru siðar lagði Hanny Wenzel
af stað og virtist hún I upphafi stað
ráðin í að ná I verðlaun. Sumstaðar I
brautinni fór hún mjög glæfralega en
samt sýndi hún jafnan öryggi og fékk
timann 44,45 sek. og samanlagt
1:32,20 min. Þá kom Rosi Mitter-
maier, Hún fór brautinaaf miklu öryggi
og var óspart hvött af löndum sinum
og fleiri áhorfendum, Rosi komst
klakklaust gegnum öll hliðin, en þau
voru 51, og náði 43,77 sek. sem var
bezti tíminn sem náðist í brautinni.
Samanlagður timi hennar úr báðum
ferðunum var því 1:30,54 min. ítalska
stúlkan Claudia Giordani kom I mark á
tlrrianum 44,00 sek og náði þvl
samanlögðum tima 1:30,87 min, eða
rúmlega 3/100 úr sek lakari tima en
Mittermaier.
Þegar áhorfendum var Ijóst að
Mittermaier var orðin sigurvegari I
svigi eins og i bruni ætlaði allt að
tryllast. Þjóðverjar voru eðlilega
fremstir i flokki, dönsuðu þeir um
svæðið, kysstust og sungu í kór „Rosi-
Rosi'. Fréttamenn og Ijósmyndarar
ruddust að Mittermaier og munari
minnstu að hún yrði troðin undir í
látunum. Einhver hugulsamur
Þjóðverji rétti henni stórkostlega stór-
an og fallegan blómvönd, en þegar
Rosi komst út úr þvögunni seint og um
siðir var aðeins eitt blómið eftir. Hin
voru rifin af henni Loksins þegar
stúlkurnar þrjár komust á verðlauna-
pallinn var sprautað yfir þær kampa-
vini og hefur þeim sjálfsagt ekki liðið
alltof vel eftir sllkt bað.
Loks gull til
Norðmanna
I gær kom loksins að þvl að Norðmenn unnu gullverðlaun á
Ólympluleikunum í Innsbruck. Sten Stensen sigraði i 5000 metra
skautahlaupinu með nokkrum yfirburðum og hefur hann vafalaust
verið vinsælasti maður Noregs f gær, en meiri hluti þjóðarinnar
fylgdist með keppninni f beinni ðtsendingu norska sjónvarpsins.
Sten Stensen hljóp á 7:24,48 min., en tókst ekki að hnekkja Ólymptu-
metinu en það er 7:23,61 min., sett af þeim fræga kappa Ard Schenk á
Ólvmpfuleikunum f Sapporo 1972.
Sten Stensen setti nú i janúar nýtt heimsmet f 10.000 metra
skautahlaupi á móti sem fram fór I Ósló og hljóp þá vegalengd á
14:50,51 mfn. Eftir það mátti ljóst vera, að hann myndi eiga möguleika
á því að verða atkvæðamikill í Innsbruck. En eftir vonbrigði und-
anfarna daga var það álit fjöfmargra Norðmanna sem komu sem
áhorfendur til Innsbruck, að gæfan hefði algjörlega snúið bakinu við
Norðmönnum og þeir myndu ekkert gufl hljóta á þessum feikum. En
Stensen afsannaði alfar slfkar kenningar. og Norðmenn eru nú búnir
að fá móðinn aftur og gera sér vonir um fleiri góðmálma á feikjunum.
Strax I fyrsta hfaupinu I gærmorgun náðist mjög góður árangur er
Svfinn Sandel hljóp á 7:39,69 mfnútum. Stóð það afrek ekki lengi þvf f
öðrum riðli hfjóp Hollendingurinn Hans van Heiden, sem nefndur
hefur verið arftaki Ard Schenk. Stikaði hann stórum og kom f markið
á 7:26,54 mfnútum, sem að margra dómi átti að nægja honum til
sigurs.
Sten Stensen hljóp svo f þriðja riðli. Hann fór fremur hægt af stað en
jók sfðan ferðina og um mitt hlaupið var hann kominn með betri
millitfma en Helden og þegar 2/3 hlutar hlaupsins voru búnir hjá
honum var ljóst að hann myndi bæta árangur Hollendingsins nema
eitthvað óvænt kæmi fyrir. Ekkert slHit kom upp á og Stensen kom f
markið á 7:24,48 mfn. 1 næsta riðli náði svo Piet Kleine frá Holiandi
enn betri tfma en landi hans og komst f annað sætið.
31
Svig
kvenna
SIGURVEGARAR I svigi kvenna é
Ólympiuleikunum i Innsbruck i
gsr urðu eftirtaldar:
R. Mittermaier.
V-Þýzkal. 1:30,54
C. Giordani,
ítaliu 1:30,87
H. Wenzel.
Lichtst. 1:32,20
D. Debernard.
Frakkl. 132,24
P. Behr,
V-Þýzkal. 1:32,31
S. Cochrane,
Bandar. 1:33,34
C. Hofmeister,
V-Þýzkal. 1:33,72
W. Bieler,
ítaliu 1:35,66
D. Kuzmanova,
Tékkéslv. 1:35.70
M. Seaton,
Bandar. 1:37,87
5000 m
skautahlaup
Sten Stensen,
Noregí 7:24,48
Piet Kleine,
Hollandi 7:26,47
Hans van Helden,
Hollandi 7:26,54
Victor Varlamov,
Sovétr. 7:30.97
Klaus Wunderlich,
V-Þýzkal. 7:33,82
Dan Carroll,
Bandar. 7:36.46
Vladimir Ivanov,
Sovétr. 7:37.73
Göran Sandler.
Svlþj. 7:39.69
Jan Egil Storholt,
Noregi 7:40,06
Colin Coates,
Ástral. 7:41.27
Young-Ha Lee,
S-Kóreu 7:44,21
Mike Woods,
Bandar. 7:48,08
Amud Sjöbrend,
Noregi 7:48,28
4x10 km
ganga
Sveit:
Finnlands 2:07,59,72
Noregs 2:09.58,63
Sovétrikjanna 2:10,51,46
Svíþjóðar 2:11,16.88
Sviss 2:11,28,53
Bandarikjanna 2:11,41.35
italiu 2:12.07,12
Austurrikis 2:12,22,80
V-Þýzkalands 2:12,38,96
Tékkóslóvakiu 2:12,43,29
Frakklands 2:13.05.26
Kanada 2:15,31,85
Póllands 2:16.06,63
Búlgariu 2:19.45,66
Skipting
verðlauna
EFTIR keppni gærdagsins á
Ólympiuleikunum i Innsbruck var
skipting verSlauna sem hér segir:
G S B
Sovétrfkin 10 4 7
A-Þýzkaland 6 4 3
V-Þýzkaland 2 4 1
Finnland 2 2 1
Bandarikin 1 3 4
Sviss 1 2 1
Austurriki 1 1 2
Noregur 1 1 1
Italia 0 1 1
Holland 0 1 1
Kanada 0 1 0
Sviþjóð 0 0 1
Lichtenstein 0 0 1