Morgunblaðið - 24.02.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.02.1976, Blaðsíða 1
36 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 44. tbl. 63. árg. ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRUAR 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Geir Hallgrímsson á Alþingi í gærkvöldi: Verðbólgan komin niður í 26% Allar þjóðir viðurkenna 200 mílur í raun nema Bretar □ □ Sjá ræðu Gcirs Hallgrfmssonar f heild á miðopnu □ □ í umræðum á Alþingi í gærkvöldi um van- trauststillögu stjórnarandstæðinga, sagði Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra, að hátterni og framkoma stjórnarandstöðunnar bæri lítt vitni ábyrgðartilfinningu, þegar tslendingar ættu í örlagaríkri baráttu út á við og viðkvæmri kjaradeilu inn á við. „Okkur íslendingum ber brýn nauðsyn til að setja niður deilur okkar inn á við, hvort sem það eru kjaradeilur eða pólitískar deilur, til þess að standa sterkir og sameinaðir út á við í baráttunni fyrir lífshags- munum okkar og sigri í 200 mílna fiskveiðilög- sögunni“, sagði forsætisráðherra ennfremur. t lok ræðu sinnar sagði Geir Hallgrfmsson, að vantrauststil- laga þessi væri ekki til þess fallin blaðsins i dag, en hér fara á eftir nokkur atriði, sem fram komu í ræðunni, sem fjallaði fyrst og fremst um landhelgismál, efna- hagsmál og kjaramáL Framhald á bls. 35 Geir Hallgrfmsson forsætisráðherra. að styrkja stöðu okkar þegar við stæðum f alvarlegri baráttu við Breta og kjaradeilum inn á við. Hún skiptir e.t.v. ekki miklu máli, sagði Geir Hallgrímsson, að öðru leyti en þvf að hún afhjúpar veika, ráðvillta og fljótfærna stjórnarandstöðu. Ræða Geirs Hallgrímssonar er birt i heild á miðopnu Morgun- Mao formaður fagnar Nixon f gær Símamynd AP Langir fundir Nixons með Mao og Hua Washington og Peking 23. febrúr AP-Reuter. NIXON, fvrrum Bandarfkjafor- seti sem nú er f hcimsókn í Kfna í boði kfnverskra ráða- manna, hefur frá komu sinni á laugardag hlotið móttökur sem um þjóðhöfðingja væri að ræða. Nixon átti í morgun nær tveggja klukkustunda fund Framhald á bls. 35 Knut Frydenlund með sáttatillögu til Briissel Norski utanríkisráðherrann fór í snögga ferð með einkaþotu til viðræðna við Luns KNUT Frydenlund utanríkisráðherra Noregs fór í snögga ferð með einkaþotu til Briissel í gær þar sem hann ræddi í klukkustund við Josef Luns, framkvæmda- stjóra Atlantshafsbandalagsins, um hugsanlega mála- miðlun Norðmanna í fiskveiðideilu Breta og tslendinga. Lenti flugvél Frydenlunds á flugvellinum í Briissel kl. 16 að fsl. tíma og átti hann klukkustundarviðræður við Luns áður en hann hélt heimleiðis á nv. Morgunblaðið náði sambandi við Jósef Luns í gærkvöldi og staðfesti hann, að hann hefði átt fund með norska utanríkisráð- herranum að ósk og frumkvæði norsku rikisstjórnarinnar.ensagð- ist ekki geta skýrt frá þeim tillög- um, sem Frydenlund hefði komið með, þar sem ekki væri enn búið að kynna þær fyrir stjórnum Is- lands og Bretlands og heyra þeirra viðbrögð. Tómas Tómasson, sendiherra Islands í Briissel, sagði í kvöld Knut Frydenlund að hann vissi ekkert um málið annað en að Frydenlund hefði komið til Bríissel og átt fund með Luns. Sagðist Tómas ekki hafa verið beðinn fyrir nein skilaboð til islenzku rikisstjórnarinnar, Lítil hætta talin á ný jum far aldri af spönsku veikinni Nokkuð miklar birgðir til af bóluefni hér á landi Genf 23. febrúar AP-Reuter ALÞJÓÐA heilbrigðismálastofnunin WIIO, f Genf gaf i dag út yfirlýsingu þar sem sagt var að sórfræðingar stofnunarinnar teldu að ckki virtist hætta á að hin mannskæða inflúensa sem felldi um 20 milljónir manna á árunum 1918—19 (spánska veikin) tæki sig upp að nýju. Yfirlýsing þessi var gefin út vegna frétta frá Banda- rfkjunum um að ungur bandarfskur hcrmaður hefi látizt af viildum inflúensku af A-stofni sem Ifktist inflúcnsu þeirri sem geisaði 1918 og 19.Þrfr aðrir fálagar hans náðu sár eftir þriggja vikna legu. Hins vegar sagði i yfirlýsing- unni, að þrátt fyrir þetta álit hefði WHO þegar gert ráðstaf- anir til framleiðslu á bóluefni gegn þessari inflúensu í stórum stíl, ef álitið reyndist rangt. Hafa rannsóknastofnanir WHO í Bretlandi og Bandaríkjunum fengið fyrirmæli um að hefja undirbúning framleiðslunnar. I samtali við Morgunblaðið sagði Ölafur Ölafsson landlæknir að nokkuð magn væri til af slíku bóluefni hér á landi. Talsmaður WHO sagði, að ekkert benti til þess að þörf væri á miklu magni af þessu bóluefni, en þó gæti enginn fullyrt um það. Hin banvæna sóttkveikja, sem um væri að ræða, væri af svonefndum „svínastofni", af A-7 stofni sem venjulegast gerði vart við sig snemma vetrar og því væri þetta orðið nokkuð seint til að veruleg hætta væri á útbreiðslu veikinnar og ekkert benti til þess að hún væri að breiðast út. Þá sagði hann að svinastofnsin- Framhald á bls. 35 enn sem komið væri, en ekki úti- lokað að svo yrði gert i fyrramálið (þriðjudag). Einar Águstsson utanríkisráð- herra sagði i samtali við Morgun- blaðið að íslenzku ríkisstjórninni hefði verið kunnugt um þessa för Frydenlunds, en hún hefði ekki verið farin að ósk eða áeggjan islenzku stjórnarinnar. Einar sagði að Frydenlund hefði til- kynnt sér það simleiðis i fyrra- dag, að hann ætti erindi til Briiss- el og vildi þá ræða þetta mál við Jósef Luns. Einar sagði að is- lenzku ríkisstjórninni hefðu ekki borizt tillögur Frydenlunds í mál- inu, en von væri á þeim. Norska fréttastofan NTB sagði i gær, að Frydenlund hefði aðeins sagt við fréttaritara NTB i Briiss- el, er hann kom af fundinum með Luns, að þeir hefði ákveðið að hafa samband áfram. Sagði frétta- stofan að þessi för Frydenlunds til Brússel undirstrikaði þær miklu áhyggjur, sem norska rikis- stjórnin hefði af deilu Breta og íslendinga og hinn mikla áhuga Norðmanna á að deilan leysist sem fyrst. Talsmaður norska utanríkis- ráðuneytisins, Egil Helle staðfesti í samtali við Morgunblaðið i gær- kvöldi, að Norðmenn hefðu unn- ið að samningu málamiðlunartil- lögu, en vildi ekki staðfesta hvort Frydenlund hefði haft þá tillögu með sér til Brussel.SagðiHelle, að islenzkum og brezkum yfirvöld- um væri kunnugt um umleitanir Norðmanna, en alls endis óvist væri hvort þær gætu orðið til þess að koma samningaviðræðum af stað á ný.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.