Morgunblaðið - 24.02.1976, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 24.02.1976, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRUAR 1976 29 félk í fréttum Catherine Deneuve, 32 ára: fyrrv. eiginkona Vadims; græddist fé á að fylgja í fót- spor Bébé, þökk sé Bunuel og Polansky. Jane Fonda, 39 ára; Hollywood-klunni þangað til Vadim fór höndum um hana (og tók hana sér fyrir konu). Ann-Margaret (Olson), 35 ára; var BB viti til varnaðar viðvfkjandi Holly- wood með „djörf- um“ söngleikjum sínum; stóð sig betur í Tommv. Julie Christie, 35 ára; öðlaðist frægð fyrir „Darling", „Dr. Zhivago", og „Shampoo". Bresk BB-afstevpa. Elke Sommer, 36 ára; þýsk Bébé; fór til Hollvwood. Marisa Mell, 35 ára; lék í mvnd Ken Russels „French Dressing" 1964. + Fyrir daga Brigitte Bardot á hvlta tjaldinu voru „djörfu" kvikmvndirnar tilgerðarlegar. Eða öllu heldur falskar, óekta. Bébé var fersk eins og fjalla- loft. Gáskafull. Sönn. En hún var einnig höfuðsynd að dómi klerka jafnt sem gagnrýnenda (og oft var erfitt að gera greinarmun á ofsafengnum árásum þeirra). Og það sem var enn verra: hún vogaði sér að láta uppi að hún hefði nautn af kynmökum. Konur- og jafnvel stúlkur — gætu, og ættu raunar að njóta þeirra í ríkum mæli og velja sér mótpart engu sfður en karlar! Brigitte Bardot fullkomnaði nýja gyðjumynd. Barnslegu konuna. Tvfræðu karl-konuna. Drengslegu veruna! Sem fvrsti eiginmaður hennar og andleg- ur leiðtogi, kvikmyndaleik- stjórinn Roger Vadim, kallaði „draum allra æruverðra eigin- manna — sem aldrei rætist“. Brigitte Bardot er kvenlegum þokka nú orðið það sama og Bftlarnir eru rokkinu. Mjög auðvelt er að apa eftir þvf, en ógjörningur að endurtaka það með nokkrum varanlegum eða sönnum árangri. Vadim hóf sjálfur BB- hermiiðnaðinn og notaði til þess danska fyrirsætu, Annette Stroyberg, franska leikkonu, Catherine Deneuve, og banda- rfska leikkonu, Jane Fonda. Bretland, Bandaríkin, Þýska- land, Skandinavfa og að sjálf- sögðu Frakkland fylgdu for- dæmi Vadims. Listinn er orðinn ærið langur. Flestar höfðu hermi- dúfurnar til að bera yfirborðs- lega eiginleika frummyndar- innar — a.m.k. að vissu marki: Ifkamsvöxt, limaburð, látbragð, sftt ljóst hár vitanlega og ögn af kynferðislegu frjálslyndi. Þær gátu Ifkst Bébé í útliti; en þær Er önnur BB? höfðu ekki minnstu hugmynd um hvernig ætti að lifa eins og hún. Og áfram er haldið. Banda- rfski klámmvndaiðnaðurinn skartar a.m.k. tveimur BB- afsteypum: Marilyn Chambers og annarri dúfu af Vestur- ströndinni, Barböru Bourbon, sem kölluð hefur verið ,Jiin bláa BB“. Þær hafa eitt „fram yfir“ Brigitte. Aldurinn. Þær geta Ifka ratað á hvenær tfma- bært er að brjótast út úr mót- inu, fullorðnast og verða eitt- hvað — jafnvel þær sjálfar. Brigitte Bardot gat aldrei brotist út úr mótinu. Bardot er nefnilega og verður alltaf Bardot. Öviðjafnanleg. Mona Lisa með fótleggi. (tJr bók Tony Crawleys „Bébé: Kvikmyndir Brigitte Bardot". Observer Magazine). Britt Ekland, 34 ára; úr sænskum sölumyndum f ftalskar kvikmynd- ir; önnur eiginkona PetersSellers. Cheri Caffaro, 34 ára; vann BB- tvffarakcppni Life Magazine og fékk hlutverk f mynda- flokki um njósnar- ann Ginger. Margaret Markov, 25 ára; bandarfsk- júgóslavnesk Vadim-stjarna fyrir frumraun sfna f mvndinni „Fallegar stúlkur allar f röð". Virna Lisi, 39 ára; fékk BB-meðferð 1965 f hlutverki sem BB hafnaði í „How to Murder your Wife“. Cvbill Shepherd, 24 ára; hálaunuð fyrirsæta (Breck, Coca Cola); uppgötvuð af Vadim f fyrstu, þá af P. Bogdanovich. Carol White, 33 ára; barnastjarna frá Ilammersmith; lék f sjónvarps- þáttunum „Kata. komdu heim“. „ Barbara Bourbon, 25 ára; kölluð „hin bláa BB"; lék aðal- hlutverk f „The Private Afternoons of Pamela Mann“. Sharon Tate; lék í „The Story of O" þegar Mansonfjöl- skyldan myrti hana f Hollywoöd, þá 26 ára. Anna Gael, 32 ára, frönsk stjarna, fædd f Búdapest („Therese og Isabelle“, ,,Nana“), nú Ladv Weymouth. Ursula Andress, 40 ára; talin fegursta kona heims, BB samsinnir þvf; nánir vinir frá um 1950. Verushka, 33 ára; greifinna af Lehndorff, „fegursta stúlka veraldar" (Ijósm. R. Avedon); lék f „Blow up“. Joev Heatherton, 31 árs, ágætis söng- kona og leikkona frá New York, með BB-hár frá náttúr- unnar hendi; evði- lögð f tveimur mvndum. Tónlist eftir JÓN ÁSGEIRSSON Flautuleikur Efnisskrá: Johann Sebastian Bach Sónata nr. 4 f C—dúr fyrir flautu og bassa continuo og sónötur nr. 2 í Es—dúr, 3 f A—dúr og 1 f h—moll, flautu og sembal. Flytjendur: Manuela Wiesler, flauta Helga Ingólfsddóttir, sembal Pétur Þorvaldsson, cello Flauta er eitt elsta og algeng- asta hljóðfæri sem sögur fara af. Það var til hjá Súmerum, indiánum Ameríku og á öllum menningarstigum asíuþjóða. Flauta er eitt þeirra hljóðfæra, sem nefnd eru náttúruhljóð- færi og talin til orðin vegna bjásturs manna við holviðar- greinar. Þverflautu er fyrst get- ið, að því að talið er, á 12. öld og er hún notuð nær eingöngu sem herhljóðfæri fram til daga Bachs. Blokkflautan var al- mennt notuð til flutnings á vandaðri tónlist og þar sem Bach ritar í raddskrá aðeins flauto, á hann við blokkflautu. 'Um 1750 er þverflautan (flauto traverso) orðin þýðingarmikið einleikshljóðfæri, en vegna gripsviðs handanna var borun tóngatanna ekki hljóðfræðilega rétt. Flautuleikarinn Theobald Boehm leysti þetta vandamál með klappa kerfi (Boehm syst- em 1830). Sú flauta sem Bach semur fyrir er því ekki lengur i notkun og má heita merkilegt hvað flautuleikarar samtímis honum réðu yfir mikilli tækni, því enn i dag eru fiautusónöt- urnar taldar mjög erfiðar i flutningi. P’ysta sónatan á efnisskránni er samin fyrir flautu og „basso continuo". 1 slíkum verkum samdi tónskáldið aðeins ein- leiksröddina og skrifaði með henni tölusettan bassa, sem til bragðbætis var leikinn á cello, en einnig leikinn á sembal að viðbættum hljómum, sem sem- balistinn varð að leika af fingr- um fram eftir bassanum. Hvort sem það er vegna hljóðfærisins, eða spilltri heyrn nútíma- mannsins um að kenna, var óþægilegt ósamræmi í styrk- leika hljóðfæranna. Sembalinn með sinn „sjarmerandi" og kvika tón, hefði að skaðlausu mátt vera hljómsterkari og enda samlagast betur hinum hljóðfærunum. Að öðru ieyti voru tónleikarnir einhverjir þeir ánægjulegustu sem undir- ritaður hefur verið viðstaddur i langan tíma. Manuela Wiesler, sem nú fyrir skömmu vann til verðlauna ásamt Snorra Sigfúsi Birgissyni í norrænni sam- keppni hljóðfæraleikara, er Austurrísk. Hún hefur lokið einleiksprófi frá tónlistaaraka- demiunni i Vinarborg og einnig numið flautuleik um eins árs skeið í Parisarborg. Hún er búsett á Islandi, gift Sigurði Ingva Snorrasyni klarinettleik- ara i Sinfóniuhljómsveit Is- lands. Tónlistarmaður á borð við Manuelu Wiesler er fyrir okkur Islendinga hreinn hval- reki og vanandi berum við gæfu til að skapa henni betri skilyrði en mörgum þeim frábæru tónlistarmönnum sem hingað hafa komið, en hrökkl- ast hafa burt af ýmsum ástaeð- um. Það mætti stinga því að stjórn sinfóniuhljómsveitarinn- ar hvort ekki sé ástæða til að bjóða henni að leika með hljóm- sveitinni á áskriftartónleikum næsta árs. Manuela Wiesler er frábær flautuleikari og var leikur hennar gæddur kraiti og til- þrifum mýkt og ótrúlegri lipurð í tóntaki og hryn. Helga Ingólfsdóttir og Pétur Þorvaldsson stóðu sig með mestu prýði. Helga er góður tónlistarmaður og þó þess hafi ekki verið getið í efnisskrá, grunar undirritaðan að hlutur Framhald á bls. 35

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.