Morgunblaðið - 24.02.1976, Síða 30
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRUAR 1976
Framhlið hins nvja Vfkingsskála f Sleggjubeinsskarði.
( Víkingar taka í notkiin glæsi-
| legan skála í Sleggjubenkarði
VÍKINGAR tóku formlega f notkun glæsi
legan skíðaskála sinn í Sleggjubeinsskarði
fyrir ofan Kolviðarhól á sunnudaginn. Var
Það var á Páskum fyrir 12 árum
að kviknaði í skála Vikings, sem
Sstóð á sama stað, brann hann tif
kaldra kola á stuttri stund, en
mannbjorg varð naumlega. Fljót-
lega eftir þennan atburð hófust
forystumenn handa við byggingu
nýs skála og hafa margir innt
óeigingjarnt starf af höndum við
byggingu hins nýja skála
Er hér um 1 80 fermetra byggingu
að ræða. timburhús á steyptum
grunni Tvöfalt gler er í húsinu og
rafmagnsupphitun Skálinn er
metmn á um 6 5 milljónir króna og
skíðalyfturnar þrjár sem eru við skál-
ann kostuðu upp settar um 2 5
milljónir króna í skálanum er áætl
að svefnpláss fyrir 60 manns, en
I
þar hafa þó sofið gott fleiri
^ Ýmsir skólar á höfuðborgarsvæð
i
inu hafa nýtt skálann undanfarið í
miðri viku, en um helgar er skálinn
opmn fyrir almenning Hefur skíða-
færi verið mjög gott í Sleggjubeins-
skarði í vetur og stöðugt fleiri sótt
þangað Á sumrin er möguleiki á að
nýta svæðið við skálann á margan
hátt Aðrar deildir Víkmgs hyggja
gott til glóðarinnar og þar t d þegar
búið að ryðja svæði fyrir handknatt-
leiksvöll Þá ganga ýmsir hinna stór-
huga forystumanna skíðadeildar
Víkings með það i maganum að
koma upp sundlaug við skálann, en
heitar uppsprettur við skálann gera
þá framkvæmd auðveldari en ella
Meðal gesta í hófinu á sunnu-
daginn var Gísli Halldórsson, forseti
íþróttasambands íslands, og sagði
hann m a í ávarpi að með framtaki
sínu hefðu Víkingar gert sitt til að
æska og almenningur í Reykjavík
hefði eignast nýtt skíðasvæði Væru
þau nú orðin þrjú Skálafell, Bláfjöll
og svæðið fyrir ofan Kolviðarhól —
Víkmgs-, ÍR og Valsskálinn auk að
stöðunnar í Hveradölum Þetta væri
mjög ánægjulegt því hann hefði
alltaf verið á móti því að einblínt
væri á Bláfjöllin. þvi þó þau væru
allra góðra gjalda verð, þá yrði
Reykjavík að hafa yfir fleiri skíða-
svæðum að ráða Hann sagðist hafa
sagt í viðtali við Morgunblaðið
1971 að eftir nokkur ár yrðu skíða-
lyftur í skiðalandi Reykjavíkur
orðnar 1 2— 1 5 Sér teldist til að nú
væru þær orðnar 1 5 talsins og gætu
Vikingar vel við sinn hlut unað þvi
þeir ættu 20% lyftnanna — eða
þrjár
Jón Aðalsteinn Jónasson for-
maður Víkings afhenti siðan
nokkrum þeirra sem hvað mest starf
hafa lagt í byggingu skálans fallega
viðurkenningarskildi Þeir sem
þannig voru heiðraðir voru Björn
fjöldi gesta viðstaddur, fluttar voru margar
ræSur og góðar gjafir gefnar skálanum og
skíðadeild Víkings.
Ólafsson, Ólafur Friðriksson,
Jóhannes Tryggvason og Agnar
Lúðvlksson — sem Jón kallaði
..ballest" félagsins Fleiri voru heiðr-
aðir og margar gjafir gefnar skál-
anum Þeir sem tóku til máls I
hófinu voru auk fyrrnefndra Agnar
Lúðvíksson, Ólafur Fríðriksson, Ólaf-
ur Jónsson, Alexander Jóhannsson,
Asgrímur Guðmundsson, Valur
Pálsson, Jónas Ásgeirsson, Frlður
Guðmundsdóttir, Valdimar Örnólfs-
son og Björn Ólafsson, formaður
Skíðadeildar Vikings Veizlustjóri
var Gunnar Már Pétursson, fyrrver-
andi formaður Vikings
Alls sátu um 60 manns hófið á
sunnudaginn, ungir og gamlir Vik-
ingar og forystumenn I Iþróttahreyf-
ingunni, og þágu Ijúfar veitingar
Kvennadeildar Vlkings
— áij.
Ir
Gfsli Halldórsson forseti ISI, Jón Aðalsteinn Jónasson formaður
Vfkings og aðrir gestir gæða sér á girnilegum Vfkingstertum.
i
k Fjórir þeirra Vfkinga sem mest hafa lagt á sig við byggingu skálans og voru heiðraðir við vfgsluna á
^ sunnudaginn, Jóhannes Tryggvason, Olafur Friðriksson, Björn Ólafsson og Agnar Lúðvfksson.
I
KR í basli með ÍBK
KEFLAVlKURSTÚLKURNAR
eru f alvarlegri fallhættu f 1.
deild kvenna eftir tap gegn KR f
Laugardalshöllinni á sunnu-
daginn. Leiknum lauk með sigri
KR 14:12 og voru tBK-stúlkurnar
óheppnar að hljóta ekki a.m.k.
annað stigið f þessum leik.
Leikur liðanna var allan tímann
mjög jafn, t.d. var staðan í hálf-
leik 5:4 fyrir KR. Um miðjan
seinni hálfleik komust IBK-
stúlkurnar yfir 10:9. Rétt fyrir
leikslok var staðan 13:12 fyrir KR
og síðasta mark leiksins gerði svo
KR úr heldur vafasömu vítakasti.
KR-stúlkurnar léku þennan leik
heldur illa. Það er ekki til mikils
að vinna fyrir iiðið úr þessu,
engin fallhætta og heldur engir
möguleikar á meistaratitlinum.
Hansina Melsted var drýgst hjá
KR-liðinu í fyrri hálfleik en
dalaði i þeim síðari. Þá kom Hjör-
dís vel út úr þessum leik.
Mörk KR: Hjördis Sigurjóns-
dóttir 5 (3v), Hansína Melsted 4,
Karólina Jónsdóttir 2 (2v), Anna
Lind Sigurðsson 1, Jónína Ólafs-
dóttir 1 og Soffía Guðmundsdóttir
eitt mark.
Mörk IBK: Guðbjörg Jónsdóttir
5(lv), Gréta íversen 2, Þorbjörg
Öskarsdóttir 2, Hanna Rúna
Jóhannsdóttir og Ingibjörg
Óskarsdóttir 1 mark hvor. — SS
Fram sigraði UBK
FRAMSTÚI.KURNAR áttu ekki í
erfiðleikum með Breiðablik f 1.
deildinni á sunnudaginn. Loka-
tölurnar urðu 17:9, eftir að staðan
hafði verið 10:5 f hálfleik. En
leikur Framliðsins var langt frá
þvf að vera sannfærandi gegn
afar slöku Kópavogsliðinu og
stúlkurnar verða að gera betur ef
þær ætla sér að eiga möguleika á
Islandsmeistaratitlinum.
Leikur liðanna var mjög lélegur
og leiðinlegur á að horfa vægast
sagt. Áhorfendum til mikillar
furðu hafði Breiðablik frumkvæð-
ið fyrstu minúturnar og komst t.d.
yfir 3:2. En þá hristu Framstúlk-
urnar af sér slenið um stund,
skoruðu 7 mörk í röð og breyttu
stöðunni i 9:3. Siðan kom deyfð í
spilið hjá Fram, staðan varð 13:9
um miðjan seinni hálfleikinn en 4
síðustu mörkin gerði Fram og
leiknum lauk 17:9.
Mörk Fram: Oddný Sigsteins-
dóttir 6 (4 v), Jóhanna Halldórs-
dóttir 4, Guðrún Sverrisdóttir 2,
Guðríður Guðjónsdóttir 2 (2 v),
Helga Magnúsdóttir 1, Jenný
Magnúsdóttir (eldri) 1 og Kristín
Orradóttir 1 mark.
Mörk UBK: Sigurborg Daða-
dóttir6 (2 v), Heiða Gunnarsdótt-
ir 1, Hrefna Snæhólm 1 og Þór-
unn Daðadóttir 1 mark.
— SS.
Heppnissigur FH
FH-STÚLKURNAR máttu teljast
heppnar að vinna Vfking f Höll-
inni á sunnudaginn. Leiknum
lauk með sigri FH 12:11, eftir að
staðan hafði verið 5:5 f hálfleik.
Vfkingsstúlkurnar höfðu mark
yfir þegar 10 mínútur voru eftir
og fengu mörg tækifæri til að
auka enn bilið en þau runnu öll
út í sandinn og FH-stúIkurnar
unnu á góðum endaspretti.
Leikur liðanna var sá bezti af
þeim þremur kvennaleikjum, sem
fram fóru síðdegis á sunnu-
daginn. Hann var allan tímann
mjög jafn og mikil barátta i leikn-
um. Um miðjan seinni hálfleikinn
virtist sem FH ætlaði að siga
framúr og sigra þegar liðið komst
yfir 9:7, en Víkingsstúlkurnar
gáfust ekki upp og gátu breytt
stöðunni i 10:9 sér í vil. Þær
fengu ágæt tækifæri til að auka
bilið en tókst það ekki og FH náði
góðum spretti og sigraði 12:11.
FH-stúlkurnar léku nú lakar en
þær hafa gert bezt i vetur. Beztan
leik sýndu þær Svanhvít og
Katrín í sókninni en Gyða Úlfars-
dóttir stóð fyrir sinu í markinu.
Víkingsliðið hefur sýnt mestar
framfarir allra liða í vetur.
Sóknarleikur liðsins er orðinn
miklu hraðari og beittari en hann
var og margar ungar stúlkur eru
að koma upp í liðinu. Má þar
nefna önnu Björnsdóttur og
Hebu Hallsdóttur. Þá hefur mark-
varzlan batnað við afturkomu
Þórdísar Magnúsdóttur í liðið.
Mörk FH: Svanhvít Magnús-
dóttir 5 (2v), Katrín Danivals-
dóttir 3, Sigrún Sigurðardóttir 2
og Sylvia Hallsteinsdóttir 1 mark.
Mörk Víkings: Heba Hallsdóttir
2, Jóhanna Magnúsdóttir 2,
Sigrún Olgeirsdóttir 2, Ástrós
Guðmundsdóttir, Halídóra
Jóhannesdóttir, Anna Björns-
dóttir og Ragnheiður Guðjóns-
dóttir 1 mark hver.
— SS.
Fjögur lið eiga möguleika
eftir að Ármann vann Val
MEÐ 15—12 sigri sfnum yfir Val
f 1. deildar keppni Islandsmóts
kvenna f handknattleik galopnaði
Armann keppnina. Hefði Valur
sigrað f þessum leik má segja að
liðið hefði verið nokkurn veginn
á grænni grein, en ósigur þess
þýðir að nú standa Framstúlk-
urnar bezt að vfgi, en raunar eru
það fjögur lið sem berjast um
titilinn: Fram, Valur, Ármann og
FH. Hvert þessara liða sigrar er
óhugsandi að spá um á þessu stigi
málsins, en það hafði verið
skoðun margra að Valsstúlkurnar
yrðu vfirburðasigurvegarar í mót-
inu að þessu sinni, ekki sfzt eftir
að Fram missti einn sinn bezta
leikmann, Arnþrúði Karlsdóttur
út vegna meiðsla.
En Ármannsstúlkurnar sýndu
það rækilega á sunnudagskvöldið
að Valur er ekkert óvinnandi vígi.
Skynsamlegur og yfirvegaður
leikur þeirra færði þeim sigurinn
öðru fremur, en ekki er samt
hægt að neita því að Valsstúlk-
urnar voru óvenjulega daufar í
dálkinn í leik þessum.
Ármann náði strax forystu í
leiknum og komst fljótlega i 4—1.
Tóku Ármannsstúlkurnar
Sigrúnu Guðmundsdóttur strax
úr umferð og svo vel að hún náði
tæpast að hreyfa sig. Svaraði Val-
ur með því að taka Guðrúnu
Sigurþórsdóttur úr umferð, en
Erla Sverrisdóttir fékk hins vegar
að leika lausum hala um sinn og
naut sín vel. Staðan í hálfleik var
8—6 fyrir Ármann, og fljótlega i
seinni hálfleiknum var staðan
orðin 12—8 fyrir Ármann. Gripu
Valsstúlkurnar þá til þess ráðs að
taka bæði Guðrúnu og Erlu úr
umferð, og riðlaðist leikur
Ármannsstúlknanna mjög við
það. Þegar 4 mínútur voru til
leiksloka var munurinn orðinn
aðeins eitt mark, 13—12, og allt
virtist geta gerst. En Ármanns-
stúlkurnar héldu knettinum
undir lokin og kunnu að bíða eftir
færum, meðan Valsstúlkumar
voru ákaflega óþolinmóðar og
fóru illa með tækifæri sín. Skor-
aði Ármann 2 síðustu mörk leiks-
ins og sigraði sem áður segir
15—12.
Mörk Armanns: Erla Sverris-
dóttir 5, Þórunn Hafstein 4,
Guðrún Sigurþórsdóttir 3, Auður
Rafnsdóttir 1, Anna Gunnars-
dóttir 1, Sigriður Brynjólfsdóttir
1.
Mörk Vals: Sigrún Guðmunds-
dóttir 4, Björg Guðmundsdóttir 3,
Ragnheiður Lárusdóttir 3, Sólrún
Ástvaldsdóttir 1, Elfn Kristins-
dóttir 1.
— stjl.