Morgunblaðið - 24.02.1976, Síða 33

Morgunblaðið - 24.02.1976, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRUAR 1976 19 (iRÍm'A HÉLT srvc SlRlkl ««wn wtírrr æ-i« gar mjög skammt var til leiksloka. Framararnir sem eru til íifsson. smeistarar ilegum baráttuleik Ragnarsson sem átti þarna sinn bezta leik í vetur. Báðir hafa þeir Þórarinn og Birgir verið nokkuð misjafnir í vetur. Birgir byrjaði illa en hefur sótt sig stöðugt, en Þór- arinn virtist hins vegar vera heldur á niðurleið, unz hann blómstraði í þessum leik. Þá áttu þeir Geir og Viðar einnig mjög góðan leik, og þá sérstaklega Viðar sem er einn af fáum íslenzkum handknattleiks- mönnum sem kunna að hjálpa hornamönnunum þannig að þeir fái svigrúm til þess að stökkva inn í teiginn með möguleika á að skora. Það hefur stundum verið rifist yfir því að það vanti hornamenn í ís- lenzka landsliðið og þar sé aðal veik- leiki þess en mikið má vera ef ekki vantar fremur menn sem kunna og geta hjálpað þeim, eins og Viðar. Þótt hæfileikar Viðars sem þjálfara Séu sízt dregnir í efa, er óhætt að fullyrða að hann ætti jafnmikið er- indi í að klæðast keppnisbúningn- um í komandi landsleikjum eins og þjálfarabúningnum. Vaxandi Framlið Það er rétt sem Geir Hallsteinsson segir í viðtali á öðrum stað á síðunni, að það er næstum ótrúlegt hvað Ingólfi Öskarssyni hefur tekizt að gera úr Framliðinu í vetur. Þarna er greinilega að koma fram mjög sterkt lið, sem aðeins þarf meiri tíma til þess að ná á toppinn, ef svo heldur sem horfir. Hannes Leifsson var bezti leikmaður Fram- liðsins í þessum leik, ekki bara vegna þess að hann gerði flest mörk heldur og vegna þess að hann stóð sig yfirleitt mjög vel í vörninni og hélt sóknarspili liðsins á góðri hreyfingu. Pálmi Pálmason stóð einnig vel fyrir sínu, en virtist samt ragari við að skjóta en oft áður, og notaði ekki færi sem hann er vanur að nýta. Pétur Jóhannesson og Sigurbergur Sigsteinsson komu einnig mjög vel út sem varnarleik- menn, en í heild var styrkur Fram- liðsins í þessum leik sem og í leikj- um liðsins að undanförnu, liðssam- vinna og kraftur. Til hamingju FH-ingar Fráleitt láta FH-ingar staðar num- ið við Islandsbikarinn einan. Eftir er bikarkeppni HSI og þar hafa þeir titil að verja, og með jafngóðum árangri og að undanförnu er ekki ólíklegt að það takist. En lokaorð þessarar greinar skulu verða: TIL HAMINGJU MEÐ ÍS- LANDSMEISTARATITIL- INN FH-INGAR! —stjl. GROTTUMENN létu ekki við sigra sina í Islandsmótinu að undanförnu sitja. Þeir létu sér það ekki nægja að tryggja sæti sitt i 1. deild, heldur bættu um betur á sunnudagskvöldið og unnu næsta öruggan sigur i leik sinum við Þrótt, 25—18. Var það sanngjarn sigur eftir atvikum, og ekki verður annað sagt en að Gróttuliðið hafi tekið næstaótrú- legum stakkaskiptum til hins betra að undanförnu. Má segja, að kaflaskipti verði hjá liðinu er Þórarinn Ragnarsson tók við þjálfun þess, en sfðan hefur sigurganga Gróttuliðsins verið nær óslitin. Leikur Gróttu og Þróttar á sunnudagskvöldið var raunar ekkert til þess að hrópa húrra fyrir. Það var helzt einstaklings- framtak ákveðinna leikmanna sem gladdi augað, og þá sérstak- lega falleg mörk sem Björn Pétursson Gróttuleikmaður skor- aðl, á sinn gamla og góða hátt, svo og mörk sem Bjarni Jónsson gerði sem sum hver voru hin glæsileg- ustu. Fyrri hálfleikur liðsins var nokkuð jafn, en Þróttarar virtust þá öllu betri aðilinn og voru þeir tveimur mörkum yfir í hálfleik 13—11. Eftir að Arni Indriðason, sem óneitanlega hefur verið helzti máttarstólpi Gróttuliðsins i vetur meiddist og varð að yfirgefa völlinn, áttu fæstir von á öðru en Þrótti tækist að ná báðum stigun- um út úr leiknum. En það kom hins vegar í ljós að það varð Þrótti meira áfall að missa Mar- tein Arnason markvörð sinn út vegna meiðsla en Gróttu að missa Árna og á kafla i seinni hálfleikn- um tókst Gróttu að taka leikinn algjörlega í sínar hendur. Á þessum leikkafla gekk hvorki né rak hjá Þrótti í sókn né vörn. Skot voru reynd í tima og ótíma, og hefðu leikmennirnir verið með hatta hefðu þeir sjálfsagt tekið ofan fyrir Gróttumönnum er þeir löbbuðu i gegnum hripleka vörnina. Undir lokin, þegar úrslit leiks- ins voru ráðin, lögðu Þróttarar greinilega áherzlu á að láta markakónginn, Friðrik Friðriks- son, skjóta, en hann var engan veginn öruggur með titil sinn. En að þessu sinni var Friðrik ekki sjálfum sér likur — átti mikinn tjölda skota, en skoraði ekki úr þeim gagnstætt venju. Meira að segja vitakast sem hann fékk mis- heppnaðist. En markakóngs- titillinn var eigi að síður i höfn, og hlýtur það að veraskemmtilegt fyrir þennan unga og stórefnilega leikmann að hljóta slíkan titil fyrsta árið sitt i 1. deildinni. En Friðrik var ekki einn Þróttara um að spjara sig i vetur. Það hefur liðið allt gert. Enginn átti von á því að það gerði miklar rósir, því slíkt eru þau lið sem koma upp úr 2. deild ekki vön að gera á fyrsta ári sínu í 1. deildinni. Aðalkeppi- kefli Þróttara að þessu sinní hlaut að vera að halda sér í deildinni, og það hefur liðið gert með hinum mesta sóma. Þar með má segja að Þróttarar hafi stigið yfir erfiðan þröskuld, og framundan sé leiðin að enn betri árangri sem liðið hefur burði til þess að ná. Sveinlaugur Krist jánsson sleppur inn úr horninu og skorar fvrir Þrótt. Hemiann með 15 mörk og Hafliði $ þegar Leiknir sigraði IBK 31:25 HIÐ UNGA félag Leiknir f Breið- holti hefur staðið sig með ágæt- um í 2. deildinni f vetur og tryggt stöðu sfna þar örugglega. A laugardaginn lék Leiknir við tBK f Laugardalshöllinni og sigraði 31:25. Var sigur liðsins aldrei í hættu. Það var áberandi við leik Leiknis gegn Keflvfkingum að BETRIÆFIMSÖM SKÓP SIGIIII — Því er ekki að neita að ég var smeykur fyrir þennan leik, sagði þjálfari FH-inga, Reynir Ólafsson. eftir úrslitaleikinn á sunnudagskvóld, en inni I búnings- klefanum var Reynir umkringdur ánægðum stuðnings- mönnum FH-liðsins. — Ég hefði ekki verið hræddur hefðu það verið Valsmenn sem við áttum að mæta. en Framliðið hefur verið I miklum uppgangi að undanförnu og einhvern veginn er það þannig að mér finnst alltaf erfitt að vera með lið á móti Fram. Við vorum heppnir að þvi leyti að við fengum óskabyrjun I leiknum og það skapaði strax sigurstemmningu I FH-liðinu sem hélzt til loka. Þegar Reynir var spurður um mótið i heild, sagði hann: — Það er mln skoðun að leikirnir framan af vetri hafi verið mjög slakir, og það er ekki fyrr en fyrst núna undir lok mótsins að liðin eru farin að sýna sæmilegan handknattleik. Ástæðan fyrir þessu er vafalaust sú, að flest liðin urðu fyrir mikilli blóðtöku fyrir keppnistima- bilið er þeirra beztu menn fluttu til útlanda. Það tók tangan tíma að jafna sig eftir þetta. — finna nýja menn til þess að taka við hlutverkum þeirra sem fóru. — Þegar Reynir var að þvi spurður hver væri ástæð- an fyrir þvi að FH-liðið hefði byrjað fremur slaklega, en siðan sótt svo mikið i sig veðrið sem raun bæri vitni svaraði hann: — Æfingasókn hjá liðinu var ekki góð framan af, og auk þess gat Viðar Simonarson lltið einbeitt sér að verkefnum með FH, þar sem hann var bundinn yfir þjálfun landsliðsins. En strax og við fórum að eygja möguleika á íslandsmeistaratitlinum batnaði æfinga sóknin mikið, og stemmningin i liðinu hefur verið mjög góð að undanförnu og náði svo hámarki sínu á réttum tima, nú i kvöld. ___stj| sömu leikmennirnir tóku vfirleitt aö sér það hlutverk að Ijúka sókn- arlotum liðsins. Var þjálfarinn og fyrirliðinn Hermann Gunnarsson þar fremstur i flokki en Hafliði Pétursson stóð honum ekki langt að baki. Skoraði Hermann 15 mörk en Hafliði 8. Skottilraunir þeirra félaga voru öllu fleiri, lik- lega um 40 talsins. 1 IBK liðinu var Ifka einn maður áberandi drýgstur f sókninni, Þorsteinn Ólafsson með 9 mörk. Það var aðeins fyrsta kortérið af leiknum sem hann var i jafn- vægi en uppfrá þvi fóru Leiknis- menn að síga framúr. I hálfleik var staðan 16:10 þeim í vil. I seinni hálfleiknum smájók Leiknir forskotið og var það mest 10 mörk, 31:21. En þegar hér var komið sögu var mjög farið að draga af markakóngum liðsins, þeim Hermanni og Hafliða enda búnir að vera inná allan tímann. Skoraði IBK fjögur síðustu mörk leiksins og lokatölurnar urðu 31:25. Sem fyrr segir voru þeir Her- mann og Hafliði langmest áber- andi i liði Leiknis. Hermann skaut feiknarlega mikið og upp- skar 15 mörk. Voru sum þeirra mjög falleg. Er ekki nokkur vafi á því að Hermann gæti gengið inn í hvaða 1. deildar lið sem er í dag og orðið þar einn af burðarásun- um. Hafliði myndi vafalaust einnig gera það gott i 1. deild ef hann legði rækt við íþróttina. Af öðrum leikmönnum Leiknis má nefna ágætan hornamann, Árna Einarsson, Guðmund Vigfússon og Finnboga Kristjánsson mark- vörð, sem varði oft á tiðum ágæta vel. 1 liði Keflavíkur voru mest áberandi þeir Þorsteinn Ólafsson. sá ágæti markvörður úr knatt- spyrnuliði þeirra Keflvikinga og vinstri handar skytta að nafni Guðmundur Jóhannesson. Kefl- víkingarnir spiluðu oft ágætan sóknarleik en vörn og markvarzla varslakari en hjá Leikni. Mörk Leiknis: Hermann Gunnarsson 15 (1 v), Hafliði Pétursson 8 (1 v). Arni Einars- son 3, Arni Jóhannesson 2, Guð- mundur Vigfússon 2, og As- mundur Kristinsson 1 mark. Mörk IBK: Þorsteinn Ólafsson 9 (4 v), Guðntundur Jóhannesson 5, Grétar Grétarsson 3, Helgi Ragnarsson 3, Einar Leifsson 2, Rúnar Georgsson 2 og Friðrik Ragnarsson 1 mark. — SS.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.