Morgunblaðið - 19.03.1976, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1976
Kjarvalsstaðir:
Basar í Bernhöfts-
Þorsteinn M.
Jónsson látinn
% Brezku skáldin sem koma fram á Ijóðakvöldinu á Kjarvalsstöðum á sunnudagskvöld nk. — Skotinn
David McDuff lcngst til vinstri, þá Peter Mortimer og Keith Armstrong, báðir frá Newcastle. (Ljósm.
Mbl. Friðþjófur).
Þr jú brezk skáld á
ljóða- og tónlistar-
torfuhúsi
NEMENDUR þriðja árs f Hand-
íða- og Myndlistarskólanum efna
til basars og kaffisölu f einu af
húsum Bernhöftstorfunnar eftir
að hafa rutt húsið drasli, snurfus-
að og málað svo það er orðið hið
vistlegasta að innan miðað við
það sem áður var. Tilgangurinn
hjá þessu vaska fólki er að afla
farareyris f námsferð til Hollands
um páskana þar sem ætlunin er
að skoða hin ýmsu listasöfn og
svo einnig að vekja athygli að
„hinum manneskjulegu húsum
Bernhöftstorfunnar", eins og þau
orðuðu það við blaðamenn.
Basarinn er opinn kl. 11—7 i
dag og frá kl. 10—7 á laugardag.
Þarna verða á boðstólum munir
og myndir eftir nemendurna
sjálfa, sem eru 32 talsins. Með
kaffinu sem verður á boðstólum
verður borin fram sérstök torfu-
bolla, sem Bernhöftsbakarí bak-
ar, en einnig standa myndlistar-
nemarnir fyrir happdrætti með
málverkum eftir 34 kunna mynd-
listarmenn og hafa þeir gefið
verk sín til happdrættisins. Mið-
inn kostar aðeins 200 kr. og dreg-
ið verður 15. maí þannig á næstu
daga á eftir verða númer birt i
blöðunum. Einnig eru þrjár bæk-
ur vinningar i happdrættinu.
Fjármálaráðuneytið veitti
skólafólkinu leyfi til basarhalds-
ins i Torfunni og Torfusamtökin
aðstoðuðu með ráðum og dáð við
framkvæmd verksins, hreinsun
og málun.
Nokkur hundruð munir, allir
unnir af nemendum sjálfum i vet-
ur, verða seldir á basarnum, til
þess að fá upp í kostnað fyrir
væntanlegt listskoðunarferðalag
til Amsterdam, Haag, Rotterdam,
Kaupmannahafnar og Málmeyjar,
en til þessarar ferðar hefur hóp-
urinn fengið nokkurn styrk frá
menntamálaráðuneytinu.
Basarinn undirbúinn.
Ljósmynd Mbl. Friðþjófur.
sonur hjónanna Jóns Olafssonar
bónda þar og konu hans Vilborgar
Þorsteinsdóttur. Þorsteinn var
kennari að mennt, en gerðist
snemma mikill athafnamaður,
stofnaði og rak skóla, stundaði
búskap og rak útgerð. Einnig stóð
hann að bókaútgáfu.
Þorsteinn sat á Alþingi fyrir
Norður-Múlasýslu á árunum 1916
til 1923 og stofnaði hann þá m.a.
þingflokk Framsóknarmanna.
Einnig var hann um skeið bæjar-
fulltrúi á Akureyri. Þá var hann
og einn af forystumönnum Góð-
templarareglunnar á lslandi og
Rotaryhreyfingarinnar.
Yfirlýsing
frá Guðna
Þórðarsyni
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi yfirlvsing frá Guðna
Þórðarsyni, forstjóra ferðaskrif-
stofunnar Sunnu:
Vegna mikils áhuga og fyrir-
spurna frá almenningi og vegna
þess að á fáum dögum hafa sam-
tök verið stofnuð í þeim tilgangi
að halda áfram flugrekstri til að
stuðla að samkeppni i utanlands-
flugi og ódýrum orlofsferðum
þykir mér rétt að fram komi við-
horf mitt til þessara mála eins og
þau nú standa.
Ég kýs ekkert fremur en árang-
ur náist í því mikilsverða hags-
munamáli almennings sem hér
eru í húsi. Ég treysti því að sam-
vinna takist milli þeirra aðila,
sem nú vinna að þessu markmiði.
Ef sú samvinna tekst mun ekki
standa á mér að rniðla dugmiklum
athafnamönnum og samtökum al-
mennings af þeirri reynslu og við-
skiptasamböndum, sem starfsemi
mín hefir skapað.
Guðni Þórðarson.
kvöldi
EFNT verður til Ijóðakvölds
með tónlistarívafi á Kjarvals-
stöðum nk. sunnudagskvöld og
hefst það kl. 10 eða strax eftir
að Asgrímssýningunni, sem þar
stendur yfir, hefur verið lokað.
Hingað til lands eru komin tvö
ensk Ijóöskáld, Keith
Armstrong og Peter Mortimer,
en þeir eru báðir í svonefndum
Tvneside-hópi (The Tvnesiole
Poets ) í Newcastle, sem mjög
hefur haft sig í frammi á
undanförnum árum. Munu þeir
báðir lesa upp Ijóð eftir sig á
þessu kvöldi ásamt Skotanum
David McDuff. Hann dvelst hér
á landi við nám en hefur einnig
fengi/.t við Ijóðagerð og þýð-
ingu hans á Ijóðum rússneska
skáldsins Osip Mandelslam
hefur komið út bæði í Englandi
og Bandaríkjunum. Hefur
þessi þýðing fengið lofsam-
legar umsagnir vtra
Auk Bretanna þriggja munu
nokkur islcnzk skáld lesa upp
úr verkum sínum á þessu ljóða-
kvöldi, svo sem Þorsteinn frá
Hamri, Nína Björk Arnadóttir,
ÞORSTEINN M. Jónsson, fyrrum
alþingismaður og skólastjóri er
látinn á Vífilsstöðum á 91. aldurs-
ári. Þorsteinn er síöasti nefndar-
maður í sambandslaganefndinni
frá 1918, sem andast.
Þorsteinn M. Jónsson fæddist
að Utnyrðingsstöðum í Suður-
Múlasýslu hinn 20. ágúst 1885,
Rifu vélina upp þegar bíll-
inn blasti við á brautinni
Jóhann Hjálmarsson, Steinunn
Sigurðardóttir, Hrafn Gunn-
laugsson og Þorvarður Helga-
son, svo ' að einhverjir séu
nefndir. Þá mun flokkur hljóm-
listarmanna sem kalla sig
Diabolis in Musiea koma fram
inn á milli ljóðalestursins og
flytja frumsamin verk, én þessi
flokkur hefur vakið töluverða
athygli undanfarið, þótt nýr sé
af nálinni.
Um Tyneside-hópinn sem
þeir félagar Keith Armstrong
og Peter Mortimer eru í, er það
að segja, að þetta er óformlegur
félagsskapur 15—20 ljóðskálda
I norðausturhluta Engíands,
sem hefur það markmið að
vekja áhuga almennings að
nýju á Ijóðlistinni. Beita þeir til
þess ýmsum og oft nýstárlegum
aðferðum, efna til ljöðakvölda,
flytja ljóðin með undirleik
hljómlístarmanna, fara i skóla
og á ýmsar opinberar sam-
kundur, leggja undir sig útvarp
og sjónvarp eins oft og þeir
megna, og lesa jafnvel upp ljóð
sín á strætum og torgum úti í
von um að ljóðlistin nái þannig
eyrum vegfarenda.
O Söngflokkurinn Diabolis in Musica.
„ÞEGAR við urðum varir við^bil-
inn á brautinni framundan var
ekki annað að gera en rífa vélina
upp. Ef við hefðum ekki getað
það hefðu afleiðingarnar vafa-
laust orðið ægilegar þvi hillinn
stóð einmitt á brautinni þar sem
hjól vélarinnar hefðu snerl
Leikfélag
Kópavogs
frumsýnir
Rauðhettu
I KVÖLD kl. 20.30 frumsýnir
Leikfélag Kópavogs leikritið
Rauðhettu eftir Robert Burkner.
Leikfélag Kópavogs sýndi leik-
rit ið á lei kárin u 1961 —62.
Leikstjóri er Jóhanna Norð-
fjörð, en leikendur eru átta að
tölu. Ljóð og tónlist hefur Þóra
Steingrímsdóttir samið, en dansa
Ingibjörg Björnsdóttir.
Framhald á bls. 18
Gylfi Jónsson.
hana." Það er Gylfi Jónsson, flug-
stjóri á Fokkervél Fl, sem þetta
mælir, en Gylfi og aðstoðarmaður
hans gátu með snarræði komið i
veg fvrir stórslvs á miðviku-
83 málverk á upp-
boði Klausturhóla
GUÐMUNDUR Axelsson list-
munasali og uppboðshaldari í
Klausturhólum heldur stórt mál-
verkauppboð í Súlnasai Hótel
Sögu á .-.unnudaginn kl. 15. A upp-
boðinu eru 83 númer og eru
mvndirnar til sýnis í Klaustur-
hólum i dag og á morgun kl. 9 til
18.
A uppboðinu eiga eftirtaldir
málarar verk: Ágústa Thors,
Bjarni Guðjónsson, Bragi Ás-
geirsson, Eggert Guðmunds-
son, Eiríkur Smith, Eyjólfur J.
Eyfells, Guðbjartur Þorleifsson,
Guðmundur Hinriksson, Guðrún
Rafnsdóttir, Gunnar 1. Guðjóns-
son, Gunnar S. Magnússon,
Gunnar Þorleifsson, Hafsteinn
Austmann, Hákon Oddgeir
Hákonarson, Hreinn Elíasson,
Hringur Jóhannesson, Jakob
Hafstein, Jónas Guðmundsson,
Karólína Lárusdóttir, Ölöf Gríma,
Pétur Friðrik, Ragnar Páll, Sigur-
Framhald á bls. 18
daginn þegar þeir voru að koma
inn til lendingar og við blasti bíll
á miðri braut. I vélinni voru rúm-
lega 20 farþegar.
Hríðarveður var þegar þetta
gerðist og skyggni slæmt og var
vélin í radarflugi. Vegna hríðar-
innar hafði ökumaður bifreiðar-
Framhald á bls. 18
Þorsteinn M. Jónsson.