Morgunblaðið - 19.03.1976, Page 11

Morgunblaðið - 19.03.1976, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1976 11 Pétur Kr. Hafstein lögfræðingur: Frjálshyggja í reynd r Enn um frjálst útvarp á Islandi UMRÆÐUR hafa að undanförnu farið vaxandi manna á meðal um sjálfstæða blaðamennsku og frjálst útvarp á Islandi. Dagblöð- in stefna flest hver til betri vegar, að minnsta kosti í orði kveðnu, þótt töluvert sé enn í land um heilbrigða og ómengaða blaða- mennsku. Ríkisútvarpið hefur vissulega einnig færzt nokkuð í frjálsræðisátt, en einokun þess og pólitísk yfirstjórn setur hinu talaða orði svo þröngar skorður, að ekki verður til lengdar við unað. Menn vélta því fyrir sér, hvort lýðræði geti í raun staðizt á þann hátt, að tjáningarfrelsi, sem er einn af hornsteinum þess, sé svo stórlega skert. Að sönnu er orðið frjálst á Islandi að lögum og- stjórnarskrá. En það er ekki nóg, að prentfrelsi, félagafrelsi og fundafrelsi sé varið og virt I orðum, þegar málfrelsið er í raun reyrt í viðjar ríkiseinokunar. I fyrstu útvarpslögum á Islandi, lögum um útvarpsrekstur ríkisins nr. 68/1934, sagði svo i 1. gr.: „Ríkisstjórnin hefur einkarétt til að reka útvarp á Islandi." Þessi útvarpslög giltu til ársins 1971, að vísu með breytingu árið 1966, þar sem einkaréttur ríkisstjórnar- innar var einnig látinn ná til sjón- varps, svo að ótvírætt væri, en um það höfðu skömmu áður staðið deilur fyrir dómstólum. I 2. gr. núgildandi útvarpslaga nr. 19/1971 segir svo m.a.: „Ríkisút- varpið hefur einkarétt á út- varpi, það er útsendingu til við- töku almennings á tali, tónum, myndum eða öðru efni, hvort sem er þráðlaust, með þræði eða á annan hátt. I þessu skyni reisir Ríkisútvarpið sendistöðvar og endurvarpsstöðvar eftir þörfum." Spyrja má, hvort heimilt sé að framselja þann einkarétt á út- varpsrekstri, sem ríkisstjórnin hafði áður og Ríkisútvarpið hefur nú. Eitt dæmi mun til þess. Hinn 1. maí árið 1952 veitti útvarps- stjóri varnarliðinu á Keflavíkur- flugvelli afturkallanlegt leyfi til að reka útvarp. Það varð þá þegar mjög umrætt, hvort heimilt væri án lagabreytinga að veita slíkt leyfi, en i 1. gr. þágildandi útvarpslaga var ríkisstjórninni, svo sem áður sagði, veittur einka- réttur til að reka útvarp á Islandi. Niðurstaðan varð þó sú, að laga- breytinga væri ekki þörf. Hver sem rök fyrir þeirri ályktun hafa verið, sýnist lagagrundvöllur leyfisveitingarinnar allhæpinn. Með setningu útvarpslaganna árið 1934 var ríkisstjórninni fenginn í hendur einkaréttur til að reka útvarp á Islandi, og ekki verður af lögunum ráðið né með viðurkenndum lögskýringum ályktað, að heimilt hafi verið að víkja frá þeim einkarétti án breytingar á lögum. Um framsal stjórnarstofnunar á valdi sínu segir Ölafur Jóhannesson í Stjórnarfarsrétti sínum: „Spurn- ing getur verið, hvort stjórnvald megi fela öðrum — stjórnvaldi eða einkaaðila— að fara með ákvörðunarvald sitt, með öðrum orðum, hvort stjórnvald geti framselt hið opinbera vald, sem því hefur verið fengið til með- ferðar. Þeirri spurningu verður almennt að svara neitandí. Slíkt framsal ákvörðunarvaldsins getur yfirleitt ekki átt sér stað, nema til þess sé sérstök lagaheimild." Um þetta munu flestir fræðimenn á sviði lögfræðinnar sammála, bæði erlendir og innlendir. Það er því ljóst, að útvarpsrekstur verður því aðeins heimilaður öðrum en Ríkisútvarpinu, að breyting verði gerð á útvarpslögunum sjálfum, enda taka þau óbreytt nánast berum orðum fyrir annað. Það er rétt, að menn hugleiði orsakir þess, að áður þótti annars vegar sjálfsagt ög eðlilegt, að ríkið hefði með höndum útvarps- rekstur, en nú hillir á hinn bóg- inn undir vafa um réttmæti þessa. I öndverðu þótti útvarpsrekstur bæði framandlegur og fjárfrekur, svo sem vissulega var. Að auki var tiltrú manna á forsjá ríkis- valdsins svo rótgróin, að berserk- ir hefðu ekki getað bifað henni, þegar svo umfangsmikið fyrir- tæki sem útvarp var annars vegar. I dag er rekstur frjálsrar útvarpsstöðvar hvorki fjárfrekur né framandi. Mér tæknivitrari menn og meiri fjármálafrömuðir hafa sýnt fram á með óyggjandi hætti, að rekstur litilla útvarps- stöðva er sízt umfangsmeiri en útgáfa timarita eða dagblaða. Hitt er annað, að ef til vill eimir um of eftir af hinni gömlu tiltrú á ríkis- forsjá á sem flestum sviðum — og ótrú á tæknina. Það er mikill mis- skilningur iýðræðissinna í röðum vinstri manna að fylgja ekki þessari frjálshyggjuhugsjón. Það má leiða hugann að því, hverjir ættu helzt að fylgja hug- mynd sem þessari fram á veginn. Pétur Hafsteln Henni mun hafa verið hreyft á Alþingi við umræður um útvarps- lögin árið 1971, en undirtektir dræmar. Dagblaðið Vísir hefur myndarlega tekið í árinni undir nýrri og dugmikilli ritstjórn Þorsteins Pálssonar. Hrafn Gunn- laugsson rithöfundur hefur bæði ritað þar og í Morgunblaðið ágæt- ar greinar og sýnt fram á rökleysu þeirra úrtölumanna, sem vex kostnaðarhliðin svo í augum, að þeir bera sig undan því, að „auðvaldið" svonefnda muni þar öllu ráða. I hópum lýðræðissinna við Háskóla Islands og ungra sjálfstæðismanna hefur þetta verið rætt án áþreifanlegs árangurs. Sú umræða þarf að verða miklu markvissari og dýpri. Ungt fólk hlýtur að skora tregðu hinna eldri á hólm i þessu efni. Og skrefið má ekki stíga til hálfs með því að heimila einungis landshlutasamtökum eða sveitar- félögum staðbundinn útvarps- rekstur. Þar með væri einokunar- húfan aðeins komin á annan koll. I formála að hinni ágætu bók, Birtíngur eftir Voltaire, segir Þorsteinn Gylfason frá rökræðu- fundi fyrir fáeinum árum um styrjaldir og siðferði á vegum heimspekideildarinnar í Oxford. Þar var kominn einn helzti áhrifa- maður samtíðar sinnar, prófessor Eugene V. Röstow, fyrrum rektor lagaskólans í Yale og síðar aðstoðarutanrikisráðherra Banda- rikjanna í stjórnartíð Johnsons forseta. Við siðferðisvandanum átti Rostow, að Þorsteins sögn, einfalt svar: „Siðferði er afstætt hugtak,“ sagði hann. „Eini mæli- kvarðinn sem við höfum á rétt og rangt er hvað fólk á hverjum tíma sættir sig við.“ Ég býst við og vona raunar, að mörgum þyki þetta kaldranalegt svar. Siðferðið er aldrei á jafn miklum villigötum og þegar það sættir sig við hið sama og „fólkið“. Það er ekki siðferði, sem er afstætt hugtak, heldur hug- takið fólk. Að svo búnu er skorað á alþingismenn, hvar í flokki sem þeir kunna að standa, að hrinda þessu frelsismáli úr vör með umræðum — og aðgerðum. Það er skorað á þá ríkisstjórn, sem kennir stefnu sína við frjáls- hyggju, að veita málinu brautar- gengi. Rúmenskur guð- fræðiprófessor á Islandi ^ LANDINU er nú staddur dr. Christian Klein, prófessor við Protestantischen Institut í Sibiu i Rúmeníu. Mun hann dveljast hér í nokkra daga i boói guðfræði- deildar Háskóla tslands og íslenzku þjóðkirkjunnar. Dr. Klein er jafnframt prestur lúthersku kirkjunnar i Kíbiu. Dr. Klein skrifaði doktorsrit- gerð um stöðu og hlutverk skrifta í lútherskum sið, en kennslu- greinar hans eru trúfræði og sið- fræði ásamt trúarheimspeki. Dr. Klein mun flytja hér tvo opinbera fyrirlestra, hinn fyrri n.k. föstudag kl. 13.15 í fimmtu kennslustofu háskólans en hinn síðari á mánudag kl. 10.15 á sama stað. Njotið þess örjggis, sem góð heimilistiygging vcilir. JÓN GRANNI Jakob J. Smári. Hollenskt lag. Jón granni, sem býr nú við götu næsta hér, nú við götu næsta hér, hann gjörir hvað sem er, :,: :,: já, hann bjargar sjálfum sér, :,: Og hann býr til fegurstu fíólín, fegurstu fíólín. Trillilín, trillilin Ijóðar fíólín, trillilín, trillilin ljóðar fíólín, já, trillilillilín, já trillilillilín, :,: og hans Ijúfa er nefnd Katrín. :,: Hann Jón granni „bjargar sjálfum sér“. Að sjálfsögðu er fyrirhyggja í tryggingamálum snar þáttur þess að vera sjálfbjarga. Það er boðskapur Jóns granna „við götu næsta hér“. Öíl tryggingarstarfsemi er í eðli sínu samtrygging og gagnkvæm tryggingafélög eru samtök hinna tryggðu, Samvinnutryggingar eru gagnkvæmt tryggingafélag. SAIVIVUXINUTRYGGIIXGAR ÁRMÚLA3. SiMI 38500 SAMVINNUTRYGGINGAR ERU GAGNKVÆMT TRYGGINGAFÉLAG.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.