Morgunblaðið - 19.03.1976, Page 18

Morgunblaðið - 19.03.1976, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1976 — 83 málverk Framhald af bls. 2 hans Vignir, Sveinn Björnsson, Sveinn Þórarinsson, Sverrir Haraldsson, Tryggvi Ölafsson, Valtýr Pétursson, Veturliði Gunnarsson, Þorvaldur Skúlason, Örlygur Sigurðsson, Benedikt Guðmundsson, Brynjólfur Þórð- arson, Einar Jónsson, Guðmund- ur frá Miðdal, Guðmundur Thorsteinsson (Muggur), Gunn- laugur Blöndal, Gunnlaugur Scheving, Isleifur Konráðsson, Jón Engilberts, Jón Þor- leifsson, Júliana Sveinsdóttir, Kurt Zier, Ölafur Túbals, Asgrimur Jónsson og Jóhannes Kjarval. Flestar eru myndirnar eftir Kjarvai, 10 talsins. — Rifú vélina Framhald af bls. 2 innar villzt/cn hann ætlaði með pakka i vöruafgreiðslu. Var hann staddur á midur heppilegum stað þegar vélin kom inn til lendingar. Að sögn Gylf-a hafðí bifreíð frá Flugumferðarstjórn af tilviljun verið ekið þarna framhjá og sá ökumaður hennar bílinn úti á brautinni. Gerði hann flugturn- inum aðvart, sem síðan gerði fiug- vélinni aðvart þar sem hún var í 3—4 feta hæð yfir Kópavogi og átti aðeíns eftir tæpa mínútu í lendingu. Voru flugmennirnir því viðbúnir hinu versta og voru ekki seinir á sér að rífa vélina upp þegar þeir sáu bílinn. Gylfi sagði að hann hefði strax á eftir kvartað til yfírvalda á flug- vellinum. Sagðiihann að atburðir eins og þessi væru alltof algengir. Flugmenn hefðu áhyggjur af þessu og teldu að ekki yrði úr bætt nema girt væri meðfram öllum flugbrautum þannig að ekki væri ha-gt að aka inn á þær nema frá flugstöðvarbyggingum. Núverandi ástand væri þannig, að aka mætti upp á brautirnar á allt of mörgum stöðum. — Leikfélag Kópavogs Framhald af bls. 2 Rauðhettu leikur Elín Ingi- mundardóttir. Formaður leik- félagsins, Björn Einarsson, sagði í gær. að það væri kannski tímanna tákn, að kona lék úlfinn, en það er Guðríður Guðbjörnsdóttir. Fyrirhugað er að sýningar á Rauðhettu verði þrjár í viku, — á laugardögum kl. 15 og á fimmtu- dögum og sunnudögum kl. 20.30. — Víkingur Framhald af bls. 32 gríms. Illut afjársöfnun verður haldið áfrani. Síðdegis í gær komu saman til fundar fulltrúar þeirra tveggja hópa, sem hafa það markmið að „halda áfram þeirri baráttu sem Guðní Þórðarson hóf með stofnun A-ir Viking," eins og það hefur verið orðað. Er þar annars vegar um að ræða starfsmenn Air Vikings, sem stofnað hafa F’lug- félagið Vfking, og hins vegar hóp áhugamanna. Arngrimur sagði að árangur fundarins í gær hefði verið mjög jákvæður .og bjóst hann fastlega við því að þessir hópar myndu sameinast til að ná fram markmiði sinu. — Verkfalls- málin Framhald af bls. 32 boðuð — mennirnir hefðu verið í verkfalli, sem síðan var frestað og frestun siðan afnumin. Þvi kvað hann ekki um nýtt verkfall að ræða heldur framhald af verk- falli, sem frestað hefði verið. Sigfinnur kvað yfirlýsingu sjó- mannann i 70 á Eskifirði vera vandamal stéttarfélagsins þar. Hvalbakur liggur nú á Reyðar- firði. Sigfuiriur sagði að þar hefði náðst samkomulag milli útgerðar- mannsins á Stöðvarfirði og áhafnarinnar um að skipið legðist f verkfall ef ekki yrði búið að semja innan 10 daga. Kvað hann útgerðarmanninn hafa staðið full- komlega við sín orð. „Það er eini útgerðarmaðurinn, sem stendur við það sem hann segir,“ sagði Sigfinnur, en bætti við að á Eski- firði og Norðfirði væri einnig allt í lagi. Vinnudeilan snýst aðeins um skuttogarana — „menn virðast vera ánægðir með annað,“ sagði Sigfinnur. Gullver frá Seyðisfirði fór út í fyrrakvöld og Ljósafell, eins og getið var í Mbl. í gær, fór út í fyrradagsmorgun. Þar var 7 mönnum sagt upp að sögn Sig- finns og aðrir ráðnir í þeirra stað. „Uppsagnirnar eru ólöglegar," sagði Sigfinnur Karlsson. A Vopnafirði kvað Sigfinnur allt vera í lagi, a.m.k. enn. Brettingur væri inni, en hann kvað einhver umbrot vera þar eins og annars staðar. Sigfinnur kvaðst vera svart- sýnn á ástandið — verkfallið og kjaradeilan lamar allt atvinnulíf á Austfjörðum „og útgerðarmenn- irnir eru vitlausir“, sagði hann og bætti við: „Þeim er stjórnað af guðföðurnum hjá Landssam- bandinu í Reykjavík, Kristjáni Ragnarssyni. En hafi Mbl. þetta eftir mér, verður að setja í sviga, að ég meina ekki að Kristján sé glæpamaður, þótt ég kalli hann guðföður.!.‘ Þá ræddi Morgunblaðið við Jón Erling Guðmundsson, útgerðar- stjóra skuttogarans Ljósafells á Fáskrúðsfirði. Þar virðist talsverð harka vera komin í spilið og hefur verkalýðsfélagið krafizt þess af kaupfélaginu að það greiddi inn- eignir félagsins í innlánsdeild kaupfélagsins, að upphæð um ein milljón króna. Jón sagði að fjár- hagur kaupfélagsins væri fremur bágborinn vegna uppbyggingar frystihússins á staðnum og ætti því kannski erfitt með að greiða þetta fyrirvaralaust. Látið væri i það skina að nota ætti fjármunina til aðstoðar þeim, sem sagt hefði verið upp. Hér væri þó um að ræða hátekjumenn, sem enn hefðu ekki verið starfslausir, nema örfáa daga og enn ættu þeir innstæður hjá útgerðarfélaginu — aflahlut. Jón Erlingur sagði að hann væri nú svo gamall sem á grönum mætti sjá. Hann kvaðst áður hafa séð framan í lögfræðing og sagðist ekki óttast að mæta þeim vegna sinna gerða í þessu máli. Hann kvaðst einnig vera kaldur fyrir því að menn skömmuðu sig. Hann sagðist hins vegar harma að þessi deila skyldi hafa risið. Skipið hefði verið að koma úr mikilli viðgerð vegna bilunar. Slíkt hefði valdið atvinnuleysi. Þar sem verk- fall var ekki skollið á, kvað hann menn hafa einbeitt sér að því að koma togaranum á sjó, því að það hefði skapað a.m.k. viku vinnu. Jón sagðist aldrei hafa heyrt að stöðva ætti vélar skips á Langa- nesröstinni, þótt verkfall væri skollið á í Reykjavík. Þess vegna töldum við að skipið ætti að fá að Ijúka veiðiferð. „Flg harrna," sagði Jón Fh’lingur, ,,að verkalýðsforystan skuli vera þannig að allir verði að sitja og standa 'eins og þessir svokölluðu forsprakkar skipa fyrir. Við höfum óskað eftir þvi hér á F’áskrúðsfirði að fá Dagsbrúnarsamninga og hef ég sjálfur hreyft þvi máli á samn- ingafundi. Þetta hefur ekki feng- izt enn og þess vegna er alltaf þessi skæruhernaður hér á Aust- fjörðum. Þessu er stjórnað af þeim Viðlagasjóðsmönnum. Þeir geta boðið allt og þeir geta boðið öllum byrginn," sagði Jón Erling- ur Guðmundsson. — Leggjum áherzlu á Framhald af bls. lá miðunum og skipin eru mörg hver orðin mjög illa farin. — Við þurfum tæki og meiri mannskap til að geta haldið þessari baráttu áfram. Við erum nú að fara fram á að komið verði á fót skiptiáhöfn sem oft hefur verið rætt um og svo þarf fleiri skip. — Það er nauðsynlegt að dreifa ábyrgðinni og vinn- unni á fleiri herðar. Það er ekki nóg að færa bara út f 200 mílur og gera svo ekk- ert meira. VONANDI VTIR ÞETTA A EFTIR ALÞINGISMÖNNUM Lilja Sveinsdóttir er gift matsveinínum á Ægi, Hauki Jónssyni, og rædd- um við við hana um hvers vegna þessi tími hefði ver- ið valinn til þessara að- gerða. — Það er nú orðið nauð- syniegt að hvíla mannskap- inn og reyna að fá meira frí fyrir þá. Átökin fara harðnandi á miðunum og af þeim sökum erum við að koma þessu á framfæri. — Atökin voru aldrei svona hörð í fyrra þorska- stríði og hafa aldrei áður verið eins hörð og þau eru nú. Það þarf að drífa i að bæta aðstöðuna fyrir mannskapinn. — Það er ekki svo gott að segja fyrir um hver árang- urinn af þessu verður en við eigum eftir að sjá það. Það er vonandi að þetta ýti á eftir alþingismönnunum. Það er þó sennilegt að við þurfum að berjast meira til þess að fá þetta fram. Eg er lfka hrædd um að áhuginn sé ekki nógu mikill á þessu máli og framkvæmdirnar eru enn minni. — Giscard Framhald af bls. 15 ar og nú bætast erfiðleikar frankans við. I héraðsstjórnarkosningun- um var kosið um 1863 fulltrúa í svokölluðu kantónum (það er sameiginlegum stjórnum nokk- urra héraða). Urslitin þykja sýna óvenjumikla óánægju með störf Giscards og á það er bent að forsetinn lagðist gegn þvi fyrr í ár að komið yrði að fót fylkisþingum og lagði til að völd kantónannayrðu aukin. Tveir ráðherrar voru meðal þeirra sem biðu ósigur í kosn- ingunum. Öháðir sósíalistar fá um 100 sæti og þar sem þeir munu ýmist styðja stjórnina eða vinstriflokkana er enn ekki alveg ljóst hve mikil áhrif sigr- ar vinstriflokkanna hafa, fyrr en forsetar héraðsstjórna hafa verið kosnir. — Fulltrúar F’ramhald af bls. 15 fundarhöld innan skamms. Þá héldu landlukt ríki og rfki, sem hafa litla strandlengju, hópinn, og væri þar mikið um funda- höld. Hans. G. Andersen var að þvf spurður, hvort landhelgismálið hefði borið á góma á ráðstefn- unni: „Landhelgismálið hefur ekki verið rætt á sjálfri ráðstefn- unni, en auðvitað er um það talað manna á milli. Ég hef rætt þetta við fjölda manna, sem allir eru á einu máli um, að þessa deilu þurfi að leysa til bráðabirgða og þeir skilja nú eiginlega ekki, að það sé ekki hægt." Kaflann um lausn deilumála, sem Amerasinghe, forseti ráð- stefnunnar, lagði fram, hefur enn ekki verið ræddur á ráð- stefnunni, og sagði Hans, að það yrði ekki gert fyrr en á allsherjarfundi þegar mál væru farin að skýrast nokkuð, sem lfklega yrði um miðjan næsta mánuð. Hann sagði, að greini- lega þætti mörgum ráðstefnu- fulltrúum, að strandríki gerðu of miklar kröfur, — sérstaklega þau, sem krefðust fullra yfir- ráða innan 200 mílna. Væri mjög mikil andstaða gegn slíkum kröfum, en hins vegar væru svo þau ríki, sem vildu takmarka sjálfa efnahagslög- söguna, og aðalverkefni fs- lenzku sendinefndarinnar yrði að standa gegn þeim málflutn- ingi. „Hættan stafar sem sagt bæði frá þeim rfkjum, sem gera of miklar kröfur, og þeim, sem vilja, að réttur strandríkja sé sem minnstur," sagði Hans G. Andersen að lokum. — Nýrri atlögu Framhald af bls. 1 Frávik á skráningu evrópsku gjaldmiðlanna mega vera 2.25% innbyrðis og þeir héldu sig allir innan þeirra marka í dag. Vestur- þýzki seðiabankinn keypti 25 milljónir dala til að halda hækk- uninni á markinu í skefjum. Japansbanki keypti 100 milljónir dollara til að hefta hækkun jensins sem fór upp í 299.45 dollara í Evrópu og seldist þar með á hærra verði en nokkru sinni á undanförnum sex mánuð- um. Róttækar ráðstafanir ítölsku stjórnarinnar treystu stöðu lír- unnar sem féil um 5.5% á fimm tímum i gær. Bankavextir voru hækkaðir um fjóra af hundraði, sem á sér enga hliðstæðu, úr átta í 12%. Verð á bensíni var hækkað um 14% og skattar á neyzluvöru voru stórhækkaðir. Þar að auki voru settar strangar hömlur á gjaldeyrisviðskipti til að hamla gegn spákaupmennsku. Við lokun var gengi lírunnar skráð 875 gagnvart dollar miðað við allt að 890 í gær, en þar með hefur verðið hækkað um 27% síðan í janúar. Svissneski frankinn hélzt stöð- ugur í dag gagnvart markinu. Staða pundsins hefur sjaldan verið eins stöðug í þessum mán- uði. Litil breyting varð á stöðu franska frankans gagnvart doll- aranum en hann lækkaði gagn- vart markinu. Verðið á frank- anum hefur lækkað um 5.3% síðan hann var slitinn úr tengsl- um við snákinn. — Kartöflur Framhald af bls. 32 að nú sé áformað að koma kart- öflunum á skip 26. marz n.k. svo að fyrirsjáanlegt er, að þær verða komnar hingað til lands í fyrsta lagi í byrjun apríl n.k. Jóhann vildi ekki frekar tjá sig um þetta mál, en vísaði til ítarlegrar fréttatilkynningar frá blaðafulltrúa landbúnaðar- ins, sem væntanleg væri í dag, föstudag. Kartöfluskorturinn mun vera tilfinnanlegastur á höfuðborgarsvæðinu. Annars staðar er ástandið betra, t.d. á Norðurlandi, þar sem kartöflu- spretta var miklu betri en sunn- anlands. — Healey Framhald af bls. 1 sæti í ríkisstjórn sem væri undir forystu Callaghans en það hefur ekki verið staðfest. Enda þótt Roy Jenkins eigi sér mjög dyggan hóp stuðnings- manna er þó samdóma álit manna að styrkur Caliaghans liggi í því að hann hafi mesta möguleika á að ná breiðustum stuðningi innan flokksins. Ekki telja fréttaskýr- endur loku fyrir það skotið að Anthony Crossland gæti orðið eins konar málamiðlunarmaður, ef mjög ótt og hart verður barizt, þar sem hann hefur lagt áherzlu á það í málflutningi sínum aé allt kapp eigi að leggja á að setja niður þær mögnuðu deilur sem séu milli manna innan Verka- mannaflokksins. — Skíðaferðirnar F’ramhald af bls. 30 Aihliða íþróttamaður úr Kópavogi Athygli okkar vakti dug- mikill og lipur skíðamaður af yngri kynslóðinni, sem flaug fimlega niður brekkurnar. Tókum við hann tali og sagðist piltur heita Sigtryggur Ölafs- son, 12 ára gamall úr Kópavogs- skóla Sagðist hann æfa flestar íþróttir, ýmist með HK eða Breiðabliki í Kópavogi. Skíðin væru sitt uppáhald og hann færi eins oft og hann gæti á skíði, oftast í Bláfjöll, en þar á Breiðablik skála ogskíðalyftur. Við tókum eftir því að Sig- tryggur var á vönduðum skíð- um og búningur hans var ekki lakari en þeirra, sem kepptu á Ölympiuleikum. Spurðum hann því hversu mikið útbúnaðurinn hefði kostað. — Ég hugsa að þetta allt hafi kostað um 50 þúsund krónur, svaraði Sigtryggur. Eg safnaði mér fyrir þessu með því að selja blöð, aðallega Dagblaðið, bætti hann við og var þar með rokinn af stað, en ekki komst hann beint í brekkurnar því biðröð hafði myndazt við skiða- lyftuna og stöðugt fjölgaði fólk- inu í Hveradölum. ______t ( t______ -áij. — Margrét og Tony Framhald af bls. 1 loknum athugunum lögfræði- legra ráðgjafa brezka kónga- fólksins, segir í Reuters-frétt. Verði aðeins veitt leyfi til skilnaðar að borði og sæng getur hvorugur aðili geng- ið í nýtt hjónaband, • en með því yrði hjá þvi komizt að prinsessan þyrfti að mæta fyrir skilnaðar- rétti. Er talið að Elísabet Bretadrottning leggi á það áherzlu að systir hennar kom- ist hjá slíku, enda málið mjög viðkvæmt og vandmeðfarið innan konungsfjölskyldunnar. Margrét prinsessa hefur undanfarnar helgar dvalið á sveitasetri í Wiltshire en einn eigenda þess er vinur hennar, Llewellyn, sem hún hefur sézt mikið með að undanförnu. Fréttir um yfirvofandi skilnað Margrétar hafa oft komizt á kreik áður og fjallað hefur verið um sambúðarörðugleika hennar og Snowdons lávarðar, en talið er að Elísabetu Breta- drottningu hafi fram að þessu tekizt að telja systur sína á að stíga ekki skrefið til fulls. Forvitnir áhugamenn um hjónabandsmál prinsessunnar hafa streymt til áðurnefnds sveitaseturs eftir að fréttir nú benda til þess sem í aðsigi er, en þar hefur verið komið upp skiltum og óviðkomandi stranglega bannaður aðgangur. — Aðstoð S.Þ Framhald af bls. 1 landamærunum að Rhódesíu og skorað var á öll ríki að veita Mozambique tafarlaust fjárhags- lega, tæknilega og aðra aðstoð. Ut anríkisr áðherra Mozambique, Joaquin Chissano, sagði á blaðamannafundi að „ef einhverjir Kúbumenn eða Rússar væru í landinu mætti ekki líta svo á að það stæði í sambandi við baráttuna gegn Zimbabwe (Rhódesíu)." Hann sagði að enginn Kúbumaður væri í Mozambique en hins vegar væri i ráði að fá nokkra hagfræðiráðu- nauta frá Kúbu. Aðspurður um vopnasendingar til Mozambique sagði Chissano: „Við vitum ekkert um þungavopn frá erlendum ríkjum, en við mundum ekki banna þjóð Zimbabwe að fá hjálp frá öðrum löndum." Chissano sagði að Mozambique þyrfti 57 milljón dollara til brýn- ustu þarfa á þessu ári en ótil- teknar viðbótarupphæðir þyrfti til framtíðarframkvæmda. I 57 milljón dollara upphæðinni er innifalin átta milljón dollara skuld Rhódesiustjórnar fyrir afnot af höfnum og járnbrautum Mozambique. Kurt Waldheim, framkvæmda- stjóri SÞ, sagði að nokkur lönd hefðu þegar tjáð sig fús að veita Mozambique aðstoð og hann mundi bráðlega senda nefnd til landsins að kanna þarfir þess. Ráðið fordæmdi allar „Arásar- aðgerðir" Rhódesiu gegn Mozambique.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.