Morgunblaðið - 19.03.1976, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1976
23
Þorgrímur Guðlaugs
son — Minning
Þorgrímur var fæddur í Vest-
mannaeyjum 27. september 1921.
Foreldrar hans voru hjónin Sig-
riður Skaftadóttir frá Fossi og
Guðlaugur Br. Jónsson, en þau
höfðu fluttst úr Mýrdalnum til
Eyja skömmu áður. Ég minnist
þess raunar að hafa komið með
móður minni uppá vesturkvistinn
f Tungu meðan þessi frændi minn
var ennþá kornabarn, en skar sig
þegar i ætt móðurfrænda sinna,
dökkur á brún en ljós á hörund og
þótti mér hann alla tíð siðan sér-
kennilegur maður. Guðlaugur
faðir hans fékkst við ýmis
konar umsvif; útgerð, versl-
un, reisti siðan Býlið að Lyng-
felli og rak þar allstórt-
hænsnabú. Síðar fluttu þau
til Reykjavíkur þar sem Guðlaug-
ur setti á stofn heildsölu og versl-
aði einkum með gler- og postulíns-
vörur. Frameftir árum stundaði
Þorgrimur alla vinnu sem til féll
bæði til sjós og lands og þótti
kappsamur, en árið 1955 gekk
hann í félag með föður sinum, fór
þá víða um land og reyndist einn-
ig ágætur sölumaður, enda hafði
fyrirtækið á sér gott orð fyrir
heiðarleika og nákvæmni til orða
og æðis. Á þessum árum tók hann
sér fyrir hendur að reisa alla leið
til Kina til að afla se’r umboða
fyrir þeirra fræga postulin og
kom nú á daginn að þessi óskóla-
gengni maður var fullfær um að
reka erindi sín á eigin spýtur við
þá miklu verslunarmenn I ríki
Maós og varð þessi ferð hin besta
fyrir fyrirtækið. Þegar faðir hans
féll frá 1966 voru ýmsir frændur
hans i vafa um hvernig nú færi
fyrir fyrirtækinu, en að ástæðu-
lausu enda kynnist hann um þess-
ar mundir eftirlifandi konu sinni,
Sigríði Sigurðardóttur frá Merki-
gili í Skagafirði, sem reyndist
honum heilladrjúg kjölfesta i lifi
og starfi. Fyrirtæki hans gekk
ágætavel. ... Þorgrímur var einn
af þessum mönnum sem ekki fer
svo mikið fyrir þó þeir hafi tals-
vert umleikis, en var vinafastur,
ættrækinn og betri en enginn
þeim sem þurftu hjálpar við.
Heimili þeirra hjóna stóð opið við-
skiptavinum og ættingjum og var
þar hvergi skorið við nögl þvf
bæði voru höfðingjar í lund. Þor-
grímur var gallhraustur þar til
fyrir rúmu ári og síðan dugðu þar
engin ráð í móti uns yfir lauk. I
þessari erfiðu raun sýndi hann
karlmennsku til hins sfðasta og
naut í þeirri hríð frábærrar að-
hlynningar og styrks konu sinnar.
Eftir minningarathöfn f
Háteigskirkju f dag verður Ifk
Þorgríms Guðlaugssonar lagt í
mold Víkurkirkjugarðs þar sem
ættmenn hans hvíla því römm er
sú taug. Asi í Bæ
Minning:
Ásmundur Ásmunds-
son bakarameistari
Fregnin um andlát Asmundar
Asmundssonar bakarameistara
kom ekki á óvart. Hann hafði um
alllangt skeið átt við vanheilsu að
stríða. Hann lést í Landspítalan-
um aðfaranótt 11. þ.m. og hafði þá
legið þar þungt haldinn síðan
skömmu fyrir síðustu jól.
Asmundur var fæddur 20. des.
1907. Foreldrar hans voru As-
mundur Sigurðsson, bóndi á Vallá
á Kjalarnesi, og Katrin Arndís
Einarsdóttir fyrri kona hans. Þau
fluttust síðar að Fróðá á Snæfells-
nesi en Asmundur ólst upp hjá
Katrinu Asbjarnardóttur, fyrst í
Skrauthólum á Kjalarnesi og
siðan í Reykjavik. Hann hóf nám í
bakaraiðn hjá Davíð' bakara-
meistara Olafssyni árið 1923, lauk
sveinsprófi árið 1927 en hlaut
meistararéttindi i iðngrein sinni
árið 1936. Sama ár réðst hann
yfirbakari til Kexverksmiðjunnar
Esju og starfaði þar til 1975 eða
meðan honum entist heilsa. Vann
hann þar að kalla má ævistarf.
Asmundur kvæntist árið 1929
eftirlifandi konu sinni, Gróu Astu
Jafetsdóttur, skipstjóra i Reykja-
vik, Sigurðssonar. Börn þeirra
eru; Gunnar Jafet sjómaður (f.
1929), Sigurður skrifstofumaður
(f. 1932), Gylfi sálfræðingur (f.
1936) og Guðrún húsfreyja (f.
1940).
Leiðir okkar Asmundar As-
mundssonar lágu saman í Kvöld-
skóla K.F.U.M. haustið 1929.
Hann hafði áður stundað þar nám
einn vetur með þeim ágætum að
þáverandi skólastjóri, Hallgrimur
meistari Hallgrímsson, fékk því
til leiðar komið að hann var val-
inn í skólanefndina og var þegar
gerður að gjaldkera skölans.
Gegndi hann þvi starfi eins og
öllum öðrum störfum sínum með
frábærri árvekni alla tíð. Þau ár,
sem ég var þarna skólastjóri, urð-
um við Asmundur nánir sam-
starfsmenn og tókst þá með okkur
vinátta. Atvikin höguðu því svo til
að við áttum þá og síðar ýmis
fleiri samstörf. Asmundur var
mikill verkmaður að hverju sem
hann gekk og kunni vel að skipu-
leggja störf. Hann var jafnan
glaður i bragði, fylgdist vel með
þvi sem var að gerast i þjóð-
féiaginu, las ótrúlega mikið í
fáum tómstundum og mundi allt
sem máli skipti. Hann var vamm-
laus maður sem vildi öllum vel og
einlægur trúmaður. Eg minnist
hans frá ótal samverustundum
sem einhvers traustasta félaga
sem hugsast getur og minnist
einskis styggðaryrðis af hans
vörum.
Glöggskyggni Asmundar má
nokkuð marka af því að eitt sinn
hitti ég hann í erlendri stórborg
þar sem hann hafði ekki dvalist
nema tvo daga Eg þóttist vera
þarna hagvanur og ætlaði að fara
að fræða hann um borgina. En
brátt fann ég að það var að bera í
bakkafullan lækinn því að As-
mundur vissi þá þegar allt þetta
og hafði skoðað flesta mark-
verðustu staði borgarinnar. Hann
virtist rata ámóta vel í þessum
milljónastað og heima í Reykja-
vik. Það var gaman að hitta hann
þarna ásamt konu hans, glaðan og
afþreyttan, fjarri öllu annríkinu
heima.
Hann var sívinnandi meðan
heilsa og kraftar entust og af-
kastaði miklu. A þvílíkum mönn-
um byggist mikil þjóðarbeill.
Eftir að hann var orðinn sjúkur
og aldurlag vofði sífellt yfir
heyrði ég hann aldrei mæla
æðruorð en oft hafði hann þá
gamanyrði á vörum. Nú sakna ég
þessa hollvinar og það munu
margir gera en auðvitað sárast
ástrik eiginkona hans, börn og
aðrir nánustu aðstandendur sem
mest hafa misst. Við hjónin send-
um þeim einiægar samúðarkveðj-
ur.
Sigurður Skúlason.
Hinn nýi Volvo 343 DL — Afturdyr í stfl við þessar eru mjög vinsælar meðal bflaframleið-
enda f dag og nú loks eru Volvoverksmiðjurnar komnar með bfl f þessum stærðarflokki.
Bayerische Motoren Werke f Miinchen f Vestur-Þýzkalandi hafa
verið með lítið breyttan bfl, 2002 (og 1600) í næstum 10 ár.
Samkeppnin á meginlandi Evrópu var hins vegar orðin mjög hörð
frá hinum nýrri Lancia Beta Coupé og Triumph Dolomite Sprint.
Svar BMW við þessu er „3-gerðirnar“, hér 320. BMW 320 Ifkist mest
„litla bróður", BMW 520. Þessi gerð er með 109 hestafla (DIN) vél,
1990 rúmsm með þjöppun 8, 1:1. Þetta er f grundvallaratriðum
sama vél og áður en nokkrar endurbætur hafa þó verið gerðar.
Mikilvægasta breytingin, sem bætir akstursmeðferð bílsins, er nýr
stýrisbúnaður (rack and pinion). Bremsurnar hafa einnig verið
bættar talsvert. Viðbragðið er 10,8 sek. úr 0 í 100 km/klst. og
hámarkshraðinn 170 km/klst. og vinnslan kvað vera mjög góð.
Volvo-verksmiðjurnar
sænsku kynntu nýlega nýja
gerð af Volvo. Hér er um að
ræða bíl, sem á að koma í
stærðarflokkinn milli 240 bíl-
anna og Volvo 66 (áður Daf
66). Reynt hefur verið að
hafa innanrými bílsins sem
mest, innan í sterkbyggðri
grind. Gerð þessi, er heitir
Volvo 343, hefur drif á aftur-
hjólunum og er sjálfskipt. Bill
þessi er hins vegar smíðaður í
Hollandi og er þetta árangur-
inn af kaupum Volvo á Daf-
verksmiðjunum hollenzku.
Mikið er lagt upp úr örygginu
eins og á stærri gerðum Volvos-
ins. Fram- og afturpartur eru
þannig byggðir að þeir draga
mjög úr miklu höggi og eru það
þeir hlutar, sem fyrst láta und-
an í hörðum árekstri. Dyrnar
eru styrktar fyrir hliðarhöggi.
Billinn er svokallaður
„kombicoupé", sem þýðir að
hann er þriggja dyra og bak
aftursætisins er hægt að leggja
niður til að auka farangurs-
rými. Snúningsþvermálið er
lítið, 9,2 m, og ætti það að auð-
velda parkeringar.
Vélin er fjögurra strokka,
Hér getur að líta nýjan station-bíl frá Citroén með mikið geymslu-
rými. Þetta er Break Citroén CX. Hann er aðeins 30 sm lengri en
fólksbfllinn. Vélin er 1985 rúmsm, 102 hestöfl. Einnig er fáanleg
diesel-vél f bílinn, hún er 2175 rúmsm, 66 hestöfl.
B14, með handinnsogi. Sprengi-
rúmið er 1397 rúmsm, og
krafturinn 70 hestöfl (DIN) við
5500 snún./mín. Vélin er vatns-
kæld. Þjöppunarhlutfallið er
9,5:1. Viðbragð 0—80 km/klst
er tæpl. 11 sek. og hámarks-
hraðinn um 145 km/klst.
Bremsukerfið er tvöfalt og
segir aðvörunarljós i mæla-
borði til um ef bilun hefur orð-
ið í aðalkerfi. Bremsurnar eru
með vökvaaðstoð, diskar eru að
framan en skálar að aftan.
Bilinn er 4,2 m langur, 1,66 m
breiður og vegur 978 kg óhlað-
inn. Bílinn kemur á sænskan
markað í maí og sést væntan-
lega hér er haustið nálgast.
br.h.
Ný göngudeild
í heilsuvernd-
arstöðinni
Frá afhendingu lampans. T.f.v. Asgeir Gunnarsson fyrrv. form.
SPOEX, Hörður Asgeirsson fyrsti form. félagsins, Baldvin Sigurðsson
formaður SPOEX, Theodór Lillendahl f stjórn SPOEX, Hannes
Þórarinsson yfirlæknir, Helga Vigfúsdóttir hjúkrunarkona deildar-
innar ogGuðrún Lilja Þorkelsdóttir hjúkrunarkona.
OPNUÐ hefur verið í Heilsu-
verndarstöðinni við Barónsstfg f
Reykjavfk göngudeild fyrir psori-
asis- og exemsjúklinga. Er göngu-
deildin opin frá9—12 fimm daga
vikunnar en f ráði er að hún verði
opin til kl. 13. Til að fá meðhöndl-
un f fyrsta sinn þurfa sjúklingar
að framvfsa tilvísun frá húðsjúk-
dómalækni.
Á þessari nýju göngudeild geta
sjúklingarnir fengið Ijósaböð og
ennfremur þeir sem þess þurfa,
önnur böð. I tilefni opnunarinnar
gáfu Samtök psoriasis- og exem-
sjúklinga, SPOEX, lampa með út-
fjólubláum geislum til notkunar á
deildinni en slíkir lampar kosta
nú um 160 þús. kr. Fyrir hönd
samtakanna afhenti Baldvin
Sigurðsson, formaður þeirra, gjöf-
ina en Hannes Þórðarson yfir-
læknir á deildinni veitti henni
viðtöku.
Yfirlæknir á deildinni er
Hannes Þórðarson en ennfremur
starfar þar Sæmundur Kjartans-
son, sérfræðingur i húðsjúk-
dómum. Heilsuverndarstöðin
leggur til húsnæðið og hefur ráðið
hjúkrunarkonu til þessara starfa,
Helgu Vigfúsdóttur. Þar starfar
einnig ef með þarf Guðrún Lilja
Þorkelsdóttir, hjúkrunarkona.