Morgunblaðið - 19.03.1976, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1976
25
fólk í
fréttum
Allt er
hey í
harðindum
+ Hollywood má muna sinn fff
il fegri. Hún skipar ekki ieng-
ur þann sess innan kvikmynda-
iónaðarins sem hún löngum
hafði. 1 örvæntingarfullri til-
raun til að baða sig á ný í Ijóma
liðinna ára hefur nú verið
gripið til þess ráðs að gera kvik-
myndir um einkalíf þeirra leik-
ara sem gert hafa garðinn
frægan. Sá er þó hængurinn á,
að líf þeirra var oftast nær
hversdagslegra en látið var í
veðri vaka.
Fyrir nokkru var frumsýnd
mvnd um leikarana Clark
Gable og Carole Lomhard, sem
fengið hefur þá einkunn, að
vera dýrasta og jafnframt
heimskulegasta mvndin í
Hollywood á því herrans ári
1976.
Ætla má, að á þessum vel-
mektarárum sinum hafi þau
hjónin haft í ýmsu að snúast
starfs síns vegna en hjá þvi er
algerlega sneitt. Eftir mynd-
inni að dæma virðist samband
þeirra eingöngu hafasnúizt um
hina áköfustu ástaleiki. Sagt er
að með þessari mynd hafi
Hollvwood komizt langt i að
kveða sjálfa sig í kútinn —
óviljandi þó.
Clark Gable og Carole Lombard — hjónaband þeirra var einungis
Ifkamleg ást, ef trúaskal kvikmyndinni.
+ Rithöfundurinn Micky Spill-
ane, sem einkum hefur skrifað
um kalda karla og kynæsandi
konur, hefur nú krafizt skilnað-
ar frá konu sinni, dansmeynni
Sherri. Ástæðan: Ástleitni
hennar tefur hann við skrift-
irnar.
+ Leikkonan Ginger Rogers
lætur ekki deigan siga þó að
komin sé fast að hálfsjötugu.
Hér hjólar hún sér til heilsu-
bótar í Hljómskálagarðinum
þeirra i Nýju-Jórvík en þar
skemmtir hún á Waldorf-
Ástoria hótelinu við miklar og
góðar undirtektir.
BO BB & BO
BRUNA-ÚTSALA
Ýmsar vörur á
sérlega lógu verði
FESTI Frakkastíg 13
==^=== (í kjallaranum)
Ný sending af
ÓDÝRU
^TOSHIBA
EINAR FARESTVEIT
BERGSTAÐASTRÆTI 10A
SÍMI 1-69-95
10" sjónvarpstækj-
um komin bæði fyr-
ir 12 og 220 volt.
Verð kr. 48.665 -
Greiðsluskilmálar.
20.000 við útb.,
síðan 10.000 á
mánuði.
& CO. HF.
litmyndir
yðar á 3 dögum
Þér notið Kodak fHmu, við
gerum myndir yðar á Kodak
Ektacolor-pappír og myndgæðin
verða frábær
Umboðsmenn um land allt
— ávallt feti framar
HANS PETERSEN HF