Morgunblaðið - 23.03.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1976
5
Nýjar upplýsingar um uppreisnar
tilraunina í Sovétflotanum
reisnin var 1
í fullkomnasta
skini flotans
KRIVAK-TUNDURSPILLIR — Herskip af sömu gerð og talið er að uppreisnin hafi
verið gerð á, en þau eru meðal fullkomnustu herskipa Sovétflotans.
Gautaborg 22. marz. Frá fréttaritara Morgunblaðsins, Pétri J. Eiríkssyni.
UPPREISN VAR GERÐ UM BORÐ I EINU AF FULLKOMNUSTU
HERSKIPUM SOVÉZKA FLOTANS A Rigaflóa I nóvember s.l. Her-
skipið reyndi að komast undan út á Eystrasalt, en var stöðvað af
orrustuflugvélum og herskipum, sem veittu eftirför. Frá þessu var
skýrt I sænska blaðinu Göteborgs Posten I gær, sem segir að álitið sé að
skipið hafi ætlað að setja stefnu f vestur til Svíþjóðar eða f suður til
Danmerkur eða Vestur-Þýzkalands. Orðrómur um atburðinn hefur
verið á kreiki, ekki sfzt f löndum Atlantshafsbandalagsins, en nú
virðist skýrari mynd hafa fengizt. Sænski herinn hefur m.a. staðfest að
hann búi yfir upplýsingum, sem bendi til þess að þessi atburður hefi
átt sér stað.
Samkvæmt sundurlausum upp-
lýsingum sem áður hafa lekið út
úr Eystrasaltslöndunum á skipið,
sem uppreisnin var gerð á, að
hafa verið lítið eftirlitsskip, en
samkvæmt nýrri upplýsingum
er þó álitið að um hafi verið að
ræða stórt herskip, líklega tund-
urspilli af Krivak-gerð, sem er
með fullkomnustu herskipum
Sovétríkjanna
• EFTIRFÖR
Mikill viðbúnaður var viðhafð-
ur við eftirförina. Herskip voru '
send út frá Riga og öðrum flota-
stöðvum og orrustuþotur vopnað-
ar hríðskotabyssum og eldflaug-1
um hófu aðför.
Strax fyrir dögun að morgni 9.
nóvember gerðu orrustuþoturnar
fyrstu tilraun til að stöðva upp-
reisnarmennina, sem þá voru
komnir gegnum Irven-sund á
milli Ösel og Kurlandsness.
Stefndi skipið í vestur út fyrir
lögsögu Sovétríkjanna.
Göteborgs Posten segir að álitið
sé, að fyrst hafi orrustuþoturnar
með skothríð úr lítilli hæð reynt
að stöðva tundurspillinn. Þegar
það hafi ekki tekizt hafi verið
gripið til þess ráðs að fella
psrengjur. Ekkert bendir
til þess að uppreisnarmenn
hafi beitt vopnum tundurspill-
isins. Talið er líklet að skip-
ið hafi ekki getað haldið fullri
ferð og að það hafi ekki lát-
ið að astjórn eins og verið hefði
ef fullskipuð og þjálfuð áhöfn
hefði verið um borð. Þegar farið
var að beita eldflaugum og önnur
herskip nálguðust gáfust upp-
reisnarmenn upp og uppgöngu-
sveitir tóku við stjórn skipsins.
Farið var með það á legu á Riga-
flóa, þar sem handtökur voru
gerðar. Engar upplýsingar eru
um það hvort tundurspillirinn
varð fyrir alvarlegum skemmd-
um, en álitið er að skothriðin hafi
verið mikil. Eitt skipanna sem
veitti eftirför, líklega freigáta af
Riga-gerð, hefur nefnilega sézt
seinna töluvert löskuð eftir
sprengingu. Er talið að ein af
orrustuflugvélunum hafi í myrkr-
inu skotið á hana eldflaugum
vegna mistaka.
Upplýsingafulltrúi sænsku
herjanna, Bengt Wikander, hefur
sagt að sænski herinn hafi undir
höndum upplýsingar sem benda
til þess að uppreisn hafi verið
gerð um borð í sovézku herskipi
við strönd Eystrasaltsríkjanna.
Hins vegar segist hann ekki geta
sagt í smáatriðum hver gangur
atburðanna var.
Teg. 4
Litur: Antik brúnt
Verðkr 3185
• EFTIR BYLTINGAR
AFMÆLIÐ
Uppreisnin átti sér stað að-
fararnótt 9. nóvember s.l. Hátíða-
höld höfðu þá staðið yfir um öll
Sovétríkin vegna byltingarafmæl-
isins, sem haldið er upp á 7. nóv-
ember í samræmi við gamla rúss-
neska tímatalið. Hvort það var
byltingarafmælið sem gaf upp-
reisnarmönnum tækifæri til að
reyna flótta er ekki vitað, né held-
ur vita menn hve stór hluti áhafn-
arinnar tók þátt í uppreisninni.
Samkvæmt ákveðnum blaða-
fréttum á pólitiskur yfirmaður
um borð og aðstoðarmaður hans
að hafa staðið fyrir flóttatilraun-
inni. Það þykir þó fremur ótrú-
legt þar sem mikinn hluta yfir-
manna þarf til að unnt sé að sigla
skipinu. Það hefði því ekki verið
nóg að lokainni skipherrann, eins
og orðrómur hefur verið um að
gert hafi verið.
Tundurspillirinn fór frá Riga i
skjóli náttmyrkurs og sigldi út
Rigaflóa. Hann hafði töluverða
siglingu að baki þegar fyrst var
gert viðvart um för hans. Ein-
hver í landi eða um borð í öðrum
herskipum í Rígahöfn hefur farið
að gruna eitthvað misjafnt, þar
sem engin skipun hafði verið gef-
in um för tundurspillisins. Grun-
urinn var staðfestur þegar hann
svaraði ekki er hann var kallaður
upp.
Teg. 1
Litur: Vínrautt verð kr. 3285
leg. 5
Litur: Svart.
Verðkr. 3185
Teg. 2
Litur: Cogriac brúnt
Verð kr. 3285
Fyrirlestrar
um biblíuþýðingu
Teg. ö
Litur: Rautt. Verð kr. 31 85
I FRÉTT frá Háskóla Islands
kemur fram að I boði guðfræði-
deildar Háskólans er á landinu
dr. Birger Olsson dósent við Upp-
salaháskóla og mun hann flytja
tvo fyrirlestra um biblfuþýðingu
og textagreiningu.
Fyrri fyrirlesturinn sem fluttur
verður í dag i fimmtu kennslu-
stofu Háskólans nefnist „Tolka
inte, bara översátt", eða þáttur
ritskýringar við þýðingu Biblí-
unnar. Síðari fyrirlesturinn á
fimmtudag á sama stað og nefnist
hann „Strukturanalysoch textför-
stáelse" eða nokkur dæmi um
greiningu texta í Nýja testament-
inu.
Dr. Birger Olsson er dósent í
Nýjatestamentisfræðum við Upp-
salaháskóla og hefur auk þess
starfað mikið að biblíuþýðingar-
málum. Hann beitir aðferðum
nýrra málvísinda í biblíurann-
sóknum sínum og hefur vakið
verðskuldaða athygli bæði heima
fyrir og erlendis.
Fyrirlestrarnir verða fluttir á
sænsku og er öllum heimill að-
gangur.
• AGAVANDAMÁL
Göteborgs Posten segir að allt
bendi til þess að gripið hafi verið
til skjótra aðgerða af hálfu so-
vézkra yfirvalda til að þagga at-
burðinn niður og að fólk utan
innsta hrings stjórnvalda fái
aldrei að vita nánar um hann.
Hins vegar sé það ljóst að Rauði
flotinn eigi við agavandamál að
stríða. Margar greinar i sovézkum
blöðum árin 1974 og 1975 hafi
fjallað um það efni og jafnvel
málgagn flotans, Krasnaja
Zvezda, hefur einstaka sinnum
tekið málið upp. A aðfangadag
1974 var meira að segja tundur-
spillirinn Storozjevoj nefndur
með nafni, en hann er einn tund-
urspillanna sem eru af Krivak-
gerð. Greinarhöfundur setti út á
lélega stjórnmálaþekkingu um
borð í skipinu. Aðrir höfundar
hafa talað um agaleysi og kæru-
leysi. Það hefur meira að segja
verið látið að þvi liggja að unnin
Teg. 3 — *
Litur: Dökkbrúnt H
Verð kr. 3285"
Teg. 7
Litur Svart
r ostsendum verð kr .3185
Skóverzlun Þórðar Péturssonar
0 Kirkjustræti 8 v/ Austurvöll sími 14181 X
hafi verið skemmdarverk