Morgunblaðið - 23.03.1976, Page 14

Morgunblaðið - 23.03.1976, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1976 Alþingi í gær: Bann við laxveiði í sjó Frumvarp um sálfræðinga í efri deild Ný þingmál: Búseturöskun 1 Norð ur-Þingey j ar sýslu Skattfrelsi bókmennta- og tón- listarverðlauna Norðurlandaráðs. Eyjólfur Konráð Jónsson (S) mælti í gær fyrir nefndaráliti um stjórnarfrumvarp til skattfrelsis bókmennta- og tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs, er nýlega féllu i hlut tveggja íslenzkra listamanna. Gerir frumvarpið ráð fyrir þvi að erlend verðlaun til íslenzkra listamanna verði framvegis und- anþegin tekjuskatti og útsvari. Nefndin mælir eindregið með samþykkt frumvarpsins. Eyjólfur tók fram að nefndin hefði fengið yfírlýsingu frá fjármálaráðherra þess efnís, að hliðstæð verðlaun, er féllu í hlut Hannesar Péturs- sonar, skálds, á s.l. ári, yrðu á sama hátt skattfrjáls. Ragnhildur Helgadóttir (S) fagnaði frum- varpinu og undirtektum við það og Matthias A. Mathiesen, fjár- málaráðherra, staðfesti áður sagt um skattfrelsi verðlauna Hannes- ar Péturssonar. Almenn hegningarlög. Olafur Jóhannesson, dómsmála- ráðherra, mælti í efri deild fyrir stjórnarfrumvarpi til breytinga á hegningarlögum. Fjallar frum- varpið um reynslulausn fanga (breytingar á 40. gr. til 42. gr. hegningarlaga) og röskun á frið- helgi einstaklinga (232. gr.) Frumvarpið var staðfest í neðri deild lítið eitt breytt. Opinberar f jársafnanir. Helgi F. Seljan (K) mælti fyrir frumvarpi, er hann flytur um op- inberar fjársafnanir. Er i frum- varpinu að finna ákvæði um fyrir- komulag og uppgjör opinberra fjársafnana, sem sniðin munu í aðalatriðum eftir danskri löggjöf um sama efni. Helgi tók fram að frumvarp þetta væri á engan hátt flutt til að torvelda fjársöfnun af neinu tagi, heldur til þess eins að setja þar um ákveðin lagafyrir- mæli, er tryggi rétt þeirra, er gæfu, um uppgjör og vitneskju um framvindu mála. Lög um sálfræðinga. Axel Jónsson (S) mælti fyrir frumvarpi um sálfræðinga sem fjallar um menntunarskilyrði og starfsréttindi og lagalega staðfest- ingu á starfsheiti. Rakti Axel í ftarlegu máli sögu sálfræðimennt- unar og starfs hér á landi og þá þörf, sem fyrir hendi væri um löggjöf i þessu efni. Mælti nefnd- in með samþykkt frumvarpsins með minni háttar breytingu, er hún flytur. Jón G. Sólnes (S) taldi þörf á lagalegri staðfestingu starfsheita almennt ekki jafn rika og hér væri látið að liggja og að í frumvarpinu væru ýmis ákvæði, sem þörfnuðust vendilegrar at- hugunar. Væri því rétt að flýta sér hægt í þessari lagasetningu. Helgi F. Seljan (K) tók að sumu leyti undir orð Jóns, en var frum- varpinu hlynntur og áréttaði gildi sálfræðilegs starfs, einkum i skólakerfinu. Bann við laxveiði í sjó Jón Ármann Héðinsson (A) mælti fyrir nefndaráliti um frum- varp til laga um lax og silungs- veiði. Aðalefni frumvarpsins er skilyrðislaust bann við laxveiði í sjó. Mælir nefndin með samþykkt frumvarpsins en flytur þó tvær minni háttar breytingartillögur. Úthafsrækja fyrir Austurlandi: Helgi F. Seljan (K) hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um tilraunaveiðar á úthafsrækju fyrir Austurlandi. Gerir tillagan ráð fyrir tafarlausum tilrauna- veiðum á djúpslóðum eystra. Fengin verði amk. tvö skip til þessara veiða, veiðitilraunir standi eigi skemur en þrjá mánuði og verði rekstur skipanna í nánu samráði við fiskifræðinga. Kristján Ármannsson (F) flyt- ur þingsályktunartillögu um ráð- stafanir til að koma í veg fyrir atvinnuleysi og búseturöskun í Norður-Þingeyjarsýslu. I greinar- gerð segir: Ástæðurnar fyrir flutningi þessarar þingsályktunartillögu eru m.a.: 1. Það alvarlega ástand sem skapast hefur í vesturhluta sýsl- unnar vegna undangenginna náttúruhamfara. 2. Grundvöllur hefðbundinnar útgerðar frá Þórshöfn brostinn, á sama tima sem nýtt og fullkomið frystihús stendur tilbúið til notk- unar. 3. Yfirvofandi rekstrarstöðvun togaraútgerðar á Raufarhöfn, en hún er undirstaða atvinnulifs staðarins. 4. Brýn nauðsyn fyrirgreiðslu til þeirra ungu bænda í Hóls- fjallabyggð sem þar hyggja á fasta búsetu. En hætta er á að þeim snúist hugur, verði dráttur þar á. Og er þá e.t.v. skammt að bíða algjörrar eyðingar byggðar í Fjallahreppi. 5. Dráttur sá sem orðið hefur á framkvæmd þingsályktunar Al- þingis frá árinu 1972 um gerð sérstakrar byggðaþróunaráætlun- ar fyrir Norður-Þingeyjarsýslu. Hámarkslaun Stefán Jónsson (K) flytur þingsályktunartillögu þess efnis, að undirbúin verði löggjöf um hámarkslaun, þar sem kveðið verði á um að ekki megi greiða hærri laun hér á landi en sem svarar tvöföldum vinnulaunum verkamanns miðað við 40 stunda vinnuviku. Jafnframt verði loku fyrir það skotið að einstaklingar gegni nema einu fastlaunuðu starfi og komið verði í veg fyrir duldar launagreiðslur í formi fríðinda. Með breytingu á skatta- lögum verði að því stefnt að einkafyrirtæki hagnist ekki á lög- bundinni lækkun hæstu launa, en fé sem þannig sparast renni til ríkissjóðs til almennrar kjara- jöfnunar. Nýir þingmenn KarlG. Sigurbergsson. Vigfús Jónsson, bóndi á Laxamýri, tekur sæti Lárusar Jónssonar (S) á Alþingi í fjar- veru hins síðarnefnda í opinber- um erindum erlendis. Vigfús er annar varaþingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Norðurlandskjördæmi eystra. Karl G. Sigurbergsson hefur tekið sæti Gils Guðmundssonar (K) í fjarveru hans erlendis í opinberum erindagjörðum. Karl er 1. varaþihgmaður Alþýðu- bandalagsins i Reykjaneskjör- dæmi. Svipmyndir frá A Iþingi Ingólfur Jónsson, fyrrv. ráðherra og fyrsti þingtnaður Sunn- lendinga, er einn svipmesti persónuleiki þingsins. Hann er einn helzti talsmaður Sjálfstæðisflokksins í landbúnaðar-, iðnaðar- og orkumálum. Þingsályktunartillaga hans um endurvinnsluiðnað, sem nú er í meðförum þingsins, hefur vakið verðskuldaða athygli. Odddur Ólafsson, læknir, sem hér sést ásamt Halldóri Ásgrfmssyni (F) og Sverri Hermannssyni (S) er helzti talsmaður Sjálfstæðis- flokksins á þingi i heilbrigðismálum. Hann lætur og atvinnumál mjög til sfn taka, einkum sjávarútvegsmál. Ragnhildur Helgadóttir, forseti neðri deildar Álþingis og fráfarandi forseti þings Norðurlandaráðs, er ein örfárra kvenna á Alþingi. Auk hennar sitja nú á þingi Geirþrúður H. Bernhöft (S), Sigurlaug-Bjarnadóttir (S), Svava Jakobsdóttir (K) og Vilborg Harðardóttir (K, Ragnhildur var 1. flm. frumvarps um fæðingar- orlof kvenna í aðildarfélögum ASl, sem nú er orðið að lögum, og flytur nú, ásamt Sigurlaugu Bjarnadóttur, frumvarp um fæðingar- orlof búandkvenna. Karlvel Pálmason (SFV), sem nú hefur borið til baka blaðafregnir (Vísir og Tfminn) um hugsanlega brottför sfna úr Samtökunum, er látið var að þvf liggja að honum hefði verið boðið fyrsta sæti á tveimur öðrum frumboðslistum á Vestfjörðum: hjá Alþýðuflokkn- um og Alþýðubandalaginu. Vigfús Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.