Morgunblaðið - 23.03.1976, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1976
ÍÞRÚTTAMANNVIRKI
Hver er stefna islenzkra yfirvafda í
gerð iþróttamannvirkjaf> Hvert er
markmiðið? Hvermg er staðan úti á
landi. og hvernig er hún á þéttbýlis-
svæðlnu', Hver hefur þróunm verið
síðustu ánn? Við hverju er að búast
næstu árin?
Vissulega væn ánægjulegt að
geta svarað þessum spurmngum, en
það get ég ekki Hms vegar fer ekki
hjá þvi, að með tilliti til þess. hvern-
ig nú er ástatt í sambandi við þessi
mál þá hef ég og minir likar auðvit-
að oft hugleitt þetta Undanfarm ár
hafa oft heyrzt óánægjuraddir,
þegar rætt hefur verið um íþrótta-
mannvirki, og siðustu mánuði hafa
þær ef til vill verið hvað háværastar
Hef ég þar lagt orð í belg, og geri
enn
Það þarf ekki að fara mörg ár aftur
í tímann til þess að geta byrjað á
byrjunmm. því það er ekki svo ýkja
langt síðan ekki voru onnur iþrótta
mannvirki í höfuðborg íslands en
Sundhöllin við Barónsstíg. braggmn
við Hálogaland og malarvöllurmn á
Melunum. og svo nokkrir leikfimi-
salir við skólana Óþarft ætti að vera
að rekja þróunma til þessa dags,
það ætti að nægja að minna á, að
nú, árið 1973, eru td þrír sund-
staðir i Reykjavik, emn íþróttasalur,
þar sem hægt er að iðka allar
gretnar íþrótta, og einn grasvöllur
hefur svo bætzt við fyrir knatt-
spyrnumennina, ef frá eru taldir æf-
mgavellir sem nokkur knattspyrnu-
félög hafa gert af miklum myndar-
skap
KNATTSPYRNU
VELLIRNIR
Enn þann dag í dag eru háðir
fjölmargir knattspyrnukappleikir í ís-
landsmótum. bæði yngri og eldri
aldursflokka. á malarvollum Ungir
og ..efmlegir” knattspyrnumenn fá
ekki að keppa á grasvelli fyrr en þeir
eru komnir í fyrstu deild, og meira
að segja þar fara nokkrir leikir fram
á gamla Melavellinum árið 1973
Ár eftir ár keppa ungu menmrnir t d
á Háskólavellmum, sem ýmist er
grjótharður eða eins og sandkassi,
og stundum eiga þeir fullt i fangi
með að sjá knöttmn fyrir ryki og skit,
og koma svo iðulega blóðugir og
margrispaðir eftir byltur leik eftir
leik Og allt i kringum völlmn eru
svo grasbalar, rennisléttir og við
áttumiklir Állir leikir annarrar deild-
ar fara fram á malarvöllum. margir á
Melavellmum Reynt er að halda
honum eins vel við og kostur er, en
hvað skyldu vera mörg ár siðan
gerður var grasvöllur handan við
bárujárnsgirðmguna, fyrir bila
vallargesta? Og hvernig er svo gras-
völlurmn. þessi eini? Honum er val-
mn staður í dal, þar sem talið var
nokkurt skjól fyrir veðri og vmdum
Sjálfsagt er það eitthvert skjól fyrir
vmdunum, en veður getur líka verið
blautt Reynslan hefur sýnt, að
þegar votviðrasamt er. þá þolir
Laugardalsvöllurmn lítið álag, og er
þess skemmst að minnast, þegar
flytja þurfti leiki i fyrstu deild ís-
landsmótsms i knattspyrnu á Mela-
völlmn, vegna þess að Laugardals-
völlurmn var ónothæfur vegna
bleytu
SUNDLAUGARNAR
Það er ef til vill ekki svo afleitt að
hafa þrjá sundstaði í Reykjavik, þar
sem ibúar eru ekki nema um eitt
hundrað þúsund En lítum á Sund-
höllin gamla er sjálfsagt ágæt á sina
visu, en hún er orðm fullorðm og
fullnægir hvergi nærri kröfum tim-
ans Um það þarf ekki að fara
mörgum orðum Sundlaug Vestur-
bæjar er líka ágæt. og vist er um
það. að þar hefur margur maðurinn
notið lífsms Og Sundlaugar Reykja-
vikur í Laugardal. þær eru lika
ágætar — svo langt sem það nær
Það er nefnilega ekki nóg að hafa
laugina sjálfa — vatnið Við Sund-
laug Vesturbæjar gleymdist til
dæmis alveg á sínum tíma að gera
ráð fyrir þvi, að sundlaugargestir
þyrftu annað athafnasvæði en bara
vatmð Og sama má segja um laug-
arnar í Laugardal
IÞROTTAHUS
Hvermg er svo þetta eina iþrótta-
hús höfuðborgarinnar, þar sem unnt
er að iðka allar gremar iþrótta, sem
venjulega eru iðkaðar mnanhúss, og
þar sem áhorfendur eru ekki óvel-
komnir? Það hefur oft verið gagn-
rýnt og ætti að vera óþarft að fara
mörgum orðum um það hér, enda
nú svo komið. að allir hafa viður-
kennt galla þess og ókosti, meira að
segja nánustu aðstandendur, sem
þó reyndu að telja sjálfum sér og
öðrum trú um það lengi vel, að þetta
væri glæsilegt mannvirki, búið mikl-
um kostum Þeir báru höfuðið hátt
og gera reyndar enn, þótt þeir viður-
kenni galla hússins Nú segja þeir
bara, að það hafi á sínum tima verið
reist bæði sem iþróttahús og lika
fyrir vörusýnmgar Þess vegna sé
það svona Annars hefði það auðvit
að orðið allt öðruvísi, ef það hefði
bara verið reist fyrir iþróttaiðkanir
Sumir vilja nú reyndar efast um það,
og ég er emn þeirra Lítum bara á
þau iþróttamannvirki, sem byrjað
hefur verið að reisa eftir að „Höllin"
i Laugardal var fullgerð
Þessi dæmi læt ég nægja og eftir-
læt lesendum að svara fyrstu spum-
mgunni. sem varpað var fram í upp-
hafi þessa gremarkorns —
HVERTER
MARKMIÐIÐ?
Hvað er það, sem vakir fyrir.
mönnum. þegar reisa skal íþrótta-
mannvirki? í sundlaugina þarf vatn
í íþróttasalnum verður lofthæðin að
vera svo og svo mikil; hann þarf að
vera svo og svo stór gólfflóturinn
(alls ekki nógu .stór), og svo þarf
búningsklefa, helzt tvo, ef karlar og
konur skyldu koma á sama tíma
Fleiri þarf ekki, þótt stundum komi
margir flokkar til keppni eða æfinga
á sama tíma Það er svo sjaldan Og
svo er betra að hafa niðurföll í
baðklefunum, reynslan hefur sýnt
það hm síðari ár!
Mikið hefur verið skrifað og
skrafað um hin ýmsu iþróttamann-
virki, og þá hefur mest borið á
mismunandi skoðunum um stærð
og gerð leikvalla; það hefur verið
gagnrýnt, að ekki skuli vera nema
einn grasvöllur fyrir knattspyrnu-
menn i höfuðborginni; að enn skuli
fjöldi knattspyrnuleikja um allt land
fara fram á ma.'arvöllum, að ekki
skuli vera nema emn iþróttasalur i
höfuðborgmm. þar sem unnt er að
stunda allar þær íþróttir, sem
iðkaðar eru innanhúss, það er með
20x40 metra velli, að nokkra senti-
metra vantar til þess að brautar-
breidd sé lögleg á hlaupabrautum,
að nokkra sentimetra vantar til þess
að unnt sé að stunda dýfingar í laug
um. o.s frv Þessi gagnrýni á fullan
rétt á sér og er að mínu viti nauðsyn-
Grein sú sem hér fer
birtist í Samvinnunni
fyrir tæpum þremur
árum og er rituð af Jóni
Asgeirssyni, formanni
Samtaka íþróttafrétta-
manna. Fjallar hún vítt
og breitt um byggingu
og hönnun iþróttamann-
virkja, en um þá hluti
hafa að undanförnu
verið miklar umræður
manna á meðal og í fjöl-
miðlum. Þó grein þessi
sé ekki ný af nálinni á
hún þó enn fullan rétt á
sér og er hér birt sem
innlegg i þær umræður.
Að sjálfsögðu eru
iþróttasiður Morgun-
blaðsins opnar fyrir
skoðanaskiptum um
þessi mál.
leg En það er ekki nóg með, að
þess sé ekki gætt, að sjálf iþrótta-
svæðin fullnægi nútímakröfum og
séu i samræmi við alþjóðareglur
Það er líka annað, sem gleymist og
hefur ekki verið gagnrýnt sem
skyldi Þar á ég við þá aðstöðu, sem
nauðsynleg er i tengslum við
íþróttamannvirki, bæði fyrir iðk-
endurna sjálfa, áhorfendur og starfs-
lið
Þessu til frekari skýringar læt ég
fylgja upplýsingar um sund-
höll í Edmborg í Edinborg búa um
500 þús manns Samanburður er
hms vegar alls ekki óraunhæfur
þegar á það er litið, að auk þeirrar
sundlaugar, sem hér er sýnd, eru
margar fleiri í borginni Rétt er að
taka fram, að margir urðu til þess að
gagnrýna yfirvöld, þegar ákveðið
var að reisa þetta mannvirki það
þótti i of mikið lagt Enda þótt ekki
séu mörg ár liðm frá því sundhöllin
var opnuð, hefur það þegar komið í
Ijós, að nýtingin er meiri en bjart-
sýnustu menn þorðu að vona; að-
sókn fer sívaxandi, og nú eru allir
sammála um það, að sundhöllin eigi
fullan rétt á sér Þetta dæmi tek ég
ekki til þess að sýna fram á, að
nauðsynlegt sé að reisa slikt mann-
virki í Reykjavik, heldur til þess að
sýna hve öllu er haganlega fyrir
komið, og til þess að sýna, að mark-
miðið hjá þeim í Edmborg hefur
verið annað en að gera bara sund-
laug sem slíka — Það þarf meira
en aðeins vatnið
Það yrði alltof langt mál að rekja
allt það, sem upp á er boðið í þessu
íþróttamannvirki Nægir að benda á
laugarnar þrjár — em 50 metra
laug, ein æfingalaug fyrir byrjendur,
og dýfingalaug þar sem eru dýfinga-
pallar í 10 metra hæð, 7,5 metra
hæð, og auk þess eru fjögur stökk-
bretti, þrjú í 3 metra hæð og eitt í 1
metra hæð Gert er ráð fyrir að um
700 manns rúmist í aðallauginni
samtimi$ — áhorfendasvæði er fyrir
um 2500 manns, búningsherbergi
eru sérstaklega rúmgóð og vönduð,
og lamaðir og fatlaðir komast allra
sinna ferða, og hafa sérstaka bún-
mgsklefa Fleira mætti nefna, ems
og tíl dæmis veitingastofuna, þar
sem fólk getur fengið sér mat, kaffi,
gosdrykki o fI og um leið notið
útsýnis yfir laugarnar Þarna eru
fullkomin tæki til þess að taka tima i
keppni og tafla, sem á má letra
næstum hvað sem er — öllu stjórn-
að af tölvu
Og hvað skyldi nú þetta hafa
kostað allt saman? Eina og hálfa
milljón sterlingspunda eða um 330
milljónir íslenzkra króna, með öllum
tækjum, húsgögnum og öðru til-
heyrandi Til samanburðar má svo
geta þess, að Laugardalslaugin
kostaði um 60 milljómr króna, og
þar fór drjúgur hluti í gerð áhorf-
endasvæðis, sem nýtist mjög illa
Fleiri dæmi mætti taka í Váners-
borg í Svíþjóð búa um 30 þúsund
manns Þar er stór íþróttahöll, knatt-
spyrnuvöllur með lýsingu. vélfryst
skautasvell, ishokkyvöllur og
hlaupabraut, hvort tveggja með lýs-
ingu, lyftingasalur, leikfimisalur,
júdósalur, fundaherbergi fyrir æsku-
lýðssamtök staðarms, skátahreyfing-
una og iþróttafélögir* veitingasalur
fyrir hundrað manns, gistiherbergi
fyrir tuttugu manns, og aðstaða til
þess að hýsa á annað hundrað
manns að auki, gufuböð, búnings-
klefar og böð, bowling o fl Og allt
þetta kostaði eitthvað rétt rúmlega
eina Laugardalshöll
FRAMKVÆMDIRNAR
í LAUGARDAL
Ég hef átt þess kost að sjá margar
iþróttahallir á Norðurlöndum og
víðar i Evrópu á undanförnum árum,
og fyrir skömmu skoðaði ég íþrótta-
mannvirki af ýmsu tagi i Bretlandi,
Wales og Skotlandi Og þvi fleiri
slíka staði, sem ég hef séð, því
meira verð ég undrandi og vonsvik-
mn, þegar ég geri samanburð á
þeirri aðstöðu, sem ég þekki hér
í þessu sambandi langar mig til
þess að nefna framkvæmdirnar i
Laugardal Þar eru nú íþróttahöllin,
Laugardalsvöllurinn, Laugardals-
laugin og skrifstofubygging íþrótta-
sambands íslands Og nú er verið að
vinna að frekari framkvæmdum
Þannig er verið að reisa viðbótar-
byggmgu við skrifstofuhúsið,
íþróttamiðstöðma og auk ÍSÍ eru
KSÍ og ÍBR eignaraðilar Þá er verið
að vinna við gerð fleiri íþróttavalla af
ýmsu tagi — einhvern tima á að
koma skautasvæði og eitthvað fleira
vist líka
Nokkuð er liðið siðan fram-
kvæmdir hófust þarna íþróttahöllin
var tekin í notkun árið 1 965, eftir að
íþróttamennirnir höfðu sjálfir tekið
að sér að Ijúka framkvæmdum, þvi
þeim leiddist seinagangurinn Enn
þann dag i dag er ekki unnt að
komast að eða frá Höllinni nema
eina leið, og skapast algjört um-
ferðaröngþveiti þar í hvert skipti,
sem eitthvað er þar um að vera
Ég hirði ekki um að rekja allt það,
sem ég finn „Höllinni" sjálfri til
foráttu, en þeir, sem til þekkja, geta
gert samanburð á aðstöðunni þar og
til dæmis í Sundhöllinni í Edinborg,
sem getið er hér að framan Ég vil
aðeins setja hér fram skoðanir mínar
i sambandi við svæðið í Laugardal
og fyrirhugaðar framkvæmdir þar
Nú eru þarna fyrir, eins og áður er
getið, íþróttamiðstöðin, íþróttahöllin,
Laugardalsvöllurinn og Laugardals-
laugin Og öll eru þessi mannvirki,
að mínu mati, ófullkomin, sum mjög
ófullkomin Það vantar það, sem við
á að éta Tökum dæmi Hvað er gert
fyrir áhorfendur á Laugardalsvellin-
um? Væri til dæmis ekki skemmti-
legt að geta komið inneftir nokkru
áður en kappleikir eða mót hefjast,
hitt kunningja og rabbað saman yfir
kaffibolla? Eða á eftir? Væri ekki
munur fyrir keppendurna sjálfa að
geta búið sig vel undir keppni, við
góðar aðstæður<> Væri ekki gott ef
þeir gætu hitzt eftir keppni til þess
að skiptast á skoðunum, einhvers
staðar í öðru umhverfi en nú er, það
er i búnmgsherbergjunum? Er það
ekki ömurlegt, að ekki skuli vera
hægt að halda fundi mnan íþrótta-
hreyfingarinnar nema einhvers
staðar úti i bæ? Eða námskeið? Það
er að visu hægt að halda stjórnar-
fundi i íþróttamiðstöðinni, en það er
hvergi rúm fyrir fjölmennari hópa en
venjulega eru i stjórnum og nefnd-
um hreyfmgarinnar Og hvergi er
hægt að fá kaffisopa Og hefði ekki
verið skynsamlegra að hafa skrif-
stofur íþróttahreyfingarinnar í sömu
byggingu og eitthvað annað, í stað
þess að reisa sérstakt hús fyrir þær?
Hefði ekki mátt gera ráð fyrir þeim
i Laugardalshöllinm, á Laugardals-
vellinum eða Laugardalslauginni?
Og nú er verið að reisa viðbótar-
byggingu, sem kostar margar
milljónir króna, og á sama tima er
mestur hluti neðstu hæðar íþrótta-
miðstöðvarinnar leigður út aðilum,
sem ekkert eiga skylt við íþrótta-
hreyfinguna sjálfa Nú eru þar
endurskoðendaskrifstofa og verk-
fræðistofa Ha? Hvert er markmiðið?
GÓÐ FJÁRFESTING
í mörgum smábæjum i Danmörku
og sjálfsagt víðar eru vegleg iþrótta-
hús Þar fer fram margs konar
keppni og æfingar Þar er lika að-
staða til að halda fundi, þangað geta
íbúarnir komið til þess að hittast og
spjalla saman, þar hafa hin ýmsu
félög og klúbbar aðsetur; foreldrar
geta komið með börn sin -og horft á
þau i leik og starfi og tekið þátt í því
með þeim Þar er aðstaða til hvers
konar dægrastyttingar, þar er hægt
að spila, tefla, borða, spjalla við
kunningjana, iðka iþróttir, dansa,
syngja og leika sér, eða bara „slappa
af".
í Laugardalnum hefði átt að reisa
slíkt iþróttahús eða íþróttamiðstöð
Og það er hægt enn íþróttamiðstöð
fyrir unga sem gamla, hvort sem
þeir vilja æfa sig, keppa, halda
fundi, eða bara sýna sig og sjá aðra
Og að sjálfsögðu ætti að reisa slíkt
mannvirki I samráði við fræðsluyfir-
völd Það ætti líka að vera hægur
vandi — iþróttir og fræðsla undir
menntamálaráðuneytið Þá væri
hægt að nýta staðinn enn betur, og
hann kæmi áreiðanlega báðum aðil-
um i góðar þarfir.
Raunar mætti skrifa langt mál um
samstarf íþróttahreyfingarinnar og
fræðsluyfirvalda, og það er gert á
þessum vettvangi í þetta sinn
í þeirri íþróttamiðstöð, sem mér
finnst að ætti að reisa i Laugardaln-
um, ætti að vera eins konar kjarni
Þar væri miðja hringsins Þá væri
unnt að halda stórmót, skákeinvígi,
fimleikahátiðir, ráðstefnur, sýningar
og hvaðeina, allt á sama stað í
iþróttamiðstöðmni væri stjórnunar-
aðstaða, gistiherbergi og veitinga-
stofa, kennslustofur og böð með
niðurföllum Síðan færi að sjálf-
sögðu fram keppni á völlunum í
kring, í Höllinni og i Lauginni.
Þörfin er vissulega fyrir hendi, og
því fé, sem varið yrði til þessa, væri
vel varið Að fjárfesta í mannfólkinu
sjálfu er góð fjárfesting —