Morgunblaðið - 23.03.1976, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ 1976
' Fat Jennings, markvörður Tottenham or knattspyrnumaður ársins I Engiandi slær knöttinn framhjá eftir
skot Brians Little, leikmanns Aston Villa í leik liðanna á dögunum. Tottenham tók 4 stig á útivöllum í
sfðustu viku og hefur liðið þokast mjög upp á við að undanförnu. Aðeins eitt lið, Liverpool, hefur náð
betri árangri í leikjum slnum á útivelli I vetur en Tottenham, en árangur Tottenham á White Hart Lane,
heimavelli félagsins hefur hins vegar ekki verið góður.
Efstu liðin léku á
útiveUi og unnu ÖÍl
Ekki skýrðust linurnar á toppnum i
ensku 1. deildar keppninni i knatt-
spyrnu neitt á laugardaginn. Fimm
efstu liðin, Q.P.R., Liverpool, Man-
chester United, Derby County og
Leeds United áttu öll leiki á útivelli
og öll sigruðu þau i leikjum sinum.
Hafa þessi lið nú nokkuð skorið sig
úr, og þá sérataklega fjögur fyrst-
nefndu liðin, og verður að teljast
mjög líklegt að slagurinn um Eng-
landsmeistaratitilinn standi milli
þeirra í ár. Og jafnari og tvísýnni
getur baráttan tæpast verið. Tveim-
ur stigum munar á Queens Park
Rangers sem er í fyrsta sæti og
Derby County sem er í fjórða sæti,
en Q.P.R. hefur leikið einum leik
meira en hin liðin þrjú, þannig að
Liverpool og Derby gætu náð Q.P.R.
að stigum en Manchester gæti hins
vegar náð eins stigs forystu, ef liðið
vinnur þann leik sem það á inni.
Leikir liðanna fimm á laugardaginn
voru allir hinir skemmtilegustu og gif-
urleg barátta í þeim frá upphafi til
enda Einna mesta athygli vakti viður-
eign Newcasle United og Manchester
United, en i henni voru skoruð hvorki
fleiri né færri mörk en sjö. en slikt er
harla óvenjulegt í ensku 1 deildar
keppninni Annar leikur á laugardag-
inn bauð þó upp á sjö mörk, en sá var
leikur Arsenal og West Ham United, en
í þeim leik sigraði Arsenal 6— 1.
Leikur Newcastle og Manchester Uni-
ted bauð upp á mikla spennu og gifur-
leg varnarmistök á báða bóga Fyrsta
mark leiksins kom þegar á 13 minútu
er vörn Newcastle-liðsins galopnaðist
og Stuart Pearson skoraði á heldur
ódýran hátt Aðeins tveimur mínútum
síðar lá knötturinn aftur í marki New-
castle og var það John Bird sem skor-
aði þá sjálfsmark á einkar klaufalegan
hátt Síðan kom að því á 18 mínútu
að vörn Manchester-liðsins gerði sig
seka um byrjendamistök og Mick
Burns skoraði Malcolm McDonald
jafnaði síðan með skalla fyrir Newcastle
á 22 mínútu og höfðu þvi verið skor-
uð fjögur mörk á tæplega 10 mínút-
um Á 41 mínútu bætti McDonald
öðru marki við, en hann var þá kominn
i allgott færi, skaut á Manchestermark-
ið og knötturinn fór í Alan Gowling og
breytti um stefnu, þannig að markvörð-
ur Manchester Umted kom ekki við
vörnum Var staðan þannig 3 — 2 fyrir
Newcastle í hálfleik En það var sem
meistaraheppni væri með Manchester-
liðinu í þessum leik, þar sem Pat
Howard skoraði annað sjálfsmark New-
castle á 50 mínútu og átta mínútum
síðar bætti Stuart Pearson fjórða Man-
chestermarkmu við eftir að Steve Cop-
pell hafði lagt knöttinn fyrir hann í
dauðafæri Áhorfendur voru 41.424
— þarf ekki að því að spyrja að alls
staðar er metaðsókn þar sem Manches-
ter United kemur við sögu
í leik Stoke og Queens Park Rangers
var það heimaliðið sem var meira með
knöttinn og átti hættulegri sóknir Vörn
Q.P.R. var þó jafnan vel á verði og
tókst að afstýra hættunni í tíma Þar
kom svo á 32 mínútu að Q P R átti
mjög fallega sókn sem gaf sigurmark
leiksins John Masson tók aukaspyrnu
og sendi knöttinn yfir vörn Stoke-
liðsins, þar sem Mick Leach náði hon-
um og sendi fyrir markið þar sem
David Webb var til staðar og skoraði
með fallegu skoti Áhorfendur voru
22.848
Mikil barátta var í leik Middles-
brough og Derby County Til að byrja
með var Derby betri aðilinn í leiknum
og náði forystu með marki á 33 mín-
útu sem hinn marksækm framherji
liðsins Charlie George skoraði Eftir að
Derby náði forystunni varð hins vegar
töluverð breyting á gangi leiksins og
Middlesbrough tók að sækja ákaflega
Allt kom þó fyrir ekki og þegar 7
minútur voru til leiksloka átti Derby
góða sóknarlotu sem lauk með skoti
Kevin Hectors og í marki Middles-
brough hafnaði knötturinn og sigur
Derby var innsiglaður Áhorfendur
voru 24 000
Frábær frammistaða markvarðar Li-
verpool-liðsins, Clemence, átti fyrst og
fremst hlut að því máli að staðan í
hálfleik liðsins við Norwich var 0—0.
Höfðu þeir Johnny Miller og Ted
MacDougall átt góð skot af stuttu færi
á Liverpoolmarkið sem Clemence varði
meistaralega í seinni hálfleiknum hélt
þunginn áfram í sókn Norwich-liðsins
og hurð skall nærri hælum við mark
Liverpool hvað eftir annað, sjaldan þó
eins og þegar Phil Boyer átti skot í
þverslá af stuttu færi. Á 59 minútu
urðu svo varnarmönnum Norwich á
afdrifarfk mistök David Jones ætlaði
að senda knöttinn aftur til markvarðar
Norwich, en David Fairclough komst
inn í sendinguna og skoraði sitt fyrsta
deildarmark i vetur, mark sem vafa-
laust á eftir að reynast Liverpool-liðinu
ákaflega dýrmætt Áhorfendur að
leiknum voru 29 038
í leik Leicester og Aston Villa sem
lyktaði með jafntefli 2 — 2 skeði sá
einstæði atburður að Chris Nicholl,
leikmaður Aston Villa, skoraði öll
mörkin fjögur, en því miður fyrir hann
lentu tvö þeirra í röngu marki Hann
skoraði fyrra sjálfsmark sitt á 14 mín-
útu, en sendi síðan knöttinn í markið
hjá Leicester á 40 mínútu og stóð
þannig í hálfleik 1 — 1 í seinni hálfleik
bætti Nicholl öðru marki við í eigið
mark á 54 mínútu, en jafnaði síðan
þegar 4 mínútur voru til leiksloka Má
segja að Nicholl hafi átt þarna einstak-
an leik bæði með því að skora falleg
mörk, og sýna af sér fádæma Jdaufa-
skap Virðast sjálfsmörk vera að verða
sérfag Nicholls þar sem hann skoraði
eitt slíkt í leik Aston Villa og Totten-
ham fyrir skömmu Áhorfendur voru
24 663
Ekkert mark var skorað i fyrri hálfleik
leiks Everton og Leeds, en á 65. mín-
útu náði Leeds forystu með marki Billy
Bremner Dæmd hafði verið vítaspyrna
á Everton sem Frank Gray tók, en
markvörður Everton, Dave Lawson,
varði spyrnuna Hrökk knötturinn fram
á völlinn þar sem Bremner kom aðvíf-
andi og „negldi” í netið Á 79 minútu
breyttist staðan í 2—0 fyrir Leeds er
Joe Jordan skoraði, og á síðustu
tveimur minútunum komu tvö mörk
Mike Lyon skoraði fyrir Everton eftir
mistök David Harvey, markvarðar
Leeds, og Carl Harris skoraði siðasta
mark leiksins fyrir Leeds, þannig að
úrslitin urðu 3—1 Áhorfendur voru
28 566
Arsenal vann sinn stærsta sigur í
vetur á laugardaginn, 6—1, í leik
sínum við West Ham-liðið sem virðist
nú algjörlega heillum horfið Fyrsta
mark leiksins kom þegar á fyrstu mín-
útu og var það Alan Ball, sem það
skoraði Billy Jennings jafnaði fljótlega
fyrir West Ham. Síðan voru dæmdar
tvær vitaspyrnur með stuttu millibili á
West Ham fyrir brot varnarmanna á
Brian Kidd Mervyn Day, markvörður
West Ham, varði fyrst vítaspyrnu Alan
Ball, en í seinna skiptið lét Ball ekki að
sér hæða og skoraði örugglega. Var
það á 30 mínútu. Minútu síðar skor-
aði George Armstrong fyrir Arsenal og
breytti stöðunni í 3—1 og skömmu
fyrir lok fyrri hálfleiks bætti Brian Kidd
fjórða markinu við Kidd skoraði svo
tvö mörk til viðbótar í seinni hálfleikn-
um og átti auk þess skot í þverslá.
Áhorfendur voru 34 01 1.
Slagurinn á botninum í 1 deildinni
er einnig hinn harðasti Sheffield Uni-
ted er örugglega fallið í 2 deild, en
síðan verður það að teljast sennilegt að
tvö eftirtalinna liða Birmingham, Wol-
ves, og Burnley fylgi því niður. Hvert
þessara liða nær að bjarga sér, er erfitt
að segja um eins og málin standa nú,
en Birmingham var eina botnliðið sem
náði stigi á laugardaginn
í 2 deild hefur Bristol City svo gott
sem tryggt sér eitt af þremur efstu
sætunum, en sex önnur lið eiga góða
möguleika á að komast upp Athygli
vekur hversu vegur Bolton Wanderes
hefur verið litill að undanförnu, en liðið
varð á laugardaginn að skipta við sæti
við Sunderland Lið West Bromwich
Albion er hins vegar i miklum ham um
þessar mundir og smalar stöðugt stig-
um Er ekki óliklegt að það verði eitt
þeirra þriggja liða sem komast upp í 1
deild að þessu sinni.
1
1. DEILD
QueensPark Rangers 36 13 4 0 33—10 6 7 6 21 — 16 49
Manchester United 35 13 4 0 33—11 6 6 6 26—24 48
Liver pool 35 i 10 5 2 32—18 7 8 3 19—9 47
Derbv County 35 14 1 2 37—22 5 8 5 21—21 47
Leeds United 34 10 3 4 30—16 7 5 5 24—21 42
Manchester Citv 33 12 5 1 39—11 2 5 8 15—19 38
Ipswich Town 33 7 6 3 24—16 4 8 5 16—18 36
Middlesbrough 35 7 7 4 18—10 6 3 8 19—22 36
Tottenham Hotspur 36 4 9 4 24—28 7 5 7 27—28 36
Leicester City 35 7 8 3 25—22 3 8 6 13—22 36
Stoke City 33 7 4 6 24—21 6 4 6 17—18 34
West Ham United 36 10 4 5 25—21 3 4 10 19—38 34
Arsenal 35 10 4 4 30—14 2 5 10 12—26 33
Everton 34 7 6 4 30—22 4 5 8 19—37 33
Newcastle United 33 9 4 3 42—19 3 4 10 16—29 32
Coventry City 35 5 7 5 17—17 5 5 8 20—30 32
Norwich Citv 34 X 5 5 28—21 3 4 9 21—31 31
Aston Villa 35 9 6 2 29—16 0 7 11 14—36 31
Birmingham City 34 8 5 5 27—23 2 1 13 18—38 26
Wolverhampton
Wand. 35 5 5 7 18—20 3 3 12 22—38 24
Burnley 36 5 6 7 21—22 2 4 12 18—36 24
Sheffield United 35 2 6 10 14—29 0 3 14 10—41 13
2. DEILD
Bristol City 35 10 6 2 30—10 7 6 4 22—18 46
Sunderland 33 14 1 0 36—8 4 5 9 15—24 42
Bolton Wanderes 33 9 4 2 26—9 7 6 5 23—22 41
West Bromwich Albion 34 7 8 2 21—11 8 3 6 18—19 41
Southampton 33 14 2 1 40—12 2 5 9 16—27 39
Notts County 34 9 4 4 27—13 7 3 7 21—22 39
Luton Town 35 11 4 2 30—12 5 3 10 18—30 39
Notthingham Forest 35 9 1 7 25—18 4 9 5 21—20 36
Chelsea 35 7 7 4 23—16 5 4 8 22—27 35
Oldham Athletic 35 10 7 1 30—19 2 4 11 19—34 35
Charlton Athletic 33 10 3 4 36—27 4 4 8 14—29 35
Bristol Rovers 34 6 7 4 17—13 4 7 6 14—22 34
IIull City 35 8 3 6 22—16 5 4 9 15—24 33
Blackpool 34 6 8 3 21—20 5 3 9 12—20 33
Fulham 34 7 5 4 23—12 4 5 9 17—26 32
Oricnt 33 9 4 5 19—11 2 6 7 11—20 32
Plymouth Argvle 36 11 4 4 33—19 0 6 11 11—29 32
Carlisle United 35 7 7 3 23—19 3 5 10 15—31 32
Blackburn Rovers 34 4 6 7 17—21 3 7 7 16—23 27
Oxford United 35 5 7 6 20—22 3 4 10 13—26 27
Portsmouth 35 3 5 9 11—18 5 1 12 15—30 22
York City 34 7 1 10 22—30 14 11 8—29 21
Knattspyrnuúrsllt
KNCiLANl) 1. DKILD:
Arsonal — West llam 6—1
BirminKham —Coventry I — 1
Burnley—Tottenham 1—2
Everton — Leeds 1—3
Lelcester — Aston Villa 2—2
Manchester City — Wolves 3—2
Midrileshrough—Derby 0—2
Newcastle — Manchester Lftd. 3—4
Norwieh—Liverpool 0 — 1
Sheffield Utd. — Ipswieh I—2
Stoke —Q.P.R. 0—1
ENCLAND 2. DEILD:
Bristol City — Fulham ö—0
Charlton — Blaekburn 2—1
Chelsea — Bristol Rovers 0—0
NottsCounty—Blaekpool 1—2
Olrihant — Sunderland I — 1
Orient — Luton 3—0
Oxford—Portsmouth 1—0
Plymouth—IIull 1 — 1
Southampton—('arlisle 1 — 1
W.B.A. — Bolton 2—0
York—NotthinKham 3—2
ENCLAND 3. DEILD:
Brikhton —Swindon 2—0
Bury — Hereford 2—3
Chester—Chesterfield 2—1
Colehester — Gíllingham 2—2
Halifáx — Wrexham 0—1
Mansfield — Crystal Palaee 1—1
Millwali — Port Vale 1—0
Preston —Grimsby 0—0
Rotherham—Sheff. Wed. 1—0
Shrewsbury—Cardiff 3 — 1
Walsall—Aldershot 4—I
ENCLANI) 4 DEILD:
Bradford — Torquay 3—1
Brentford —Crewe 0—0
Cambridke — Southport 2—2
Doneaster—Exeter 0—0
Huddersfield—Bamslev I—2
Newport — Hartlepool 0—1
Northampton — Boumemauth 6—0
Rcariing— Darlington 4—1
Seunthorp—Lincoln 0—2
Watford—Tranmere 2—2
Workington — Roehdale 0—0
SKOTLAND tJRVALSDEI LD:
Dundee—Celtie 0—1
Hihernian — Dundee Utd. 0—1
Motherwell—Aherdeen 2—1
Rangrrs—Hearts 3—1
St. Johnstone — Ayr Utd. 1—2
SKO/KA VOKKIKARKEPPNIN
Al bion Kovers — Arbroat h 1 —0
Berwiek — Alloa 2—2
Clyde — Raith Rovers 2—2
Clydebank
— Queen of the South 4—0
Dunfermline — Hamilton 1—2
EastFife — Brechin 2—0
Forfar — Meadowbank 3—3
Kilmarnock—Falkirk 0—1
Montrose —East Stirlink 3—0
Queens Park —Cowoenbeath 2—0
St. Mirren — Partiek 1—2
Stenhousemuir—Dumbarton 2—1
StirlinK—Morton 0—1
Stranraer — Airdrieonians 0—1
PÓLLAND 1. DEILD:
CKS — Slask 2—1
Wisla—Legia 2—0
Lech — Corn ik 1 —2
Polonia — LKS 1 — 1
/aglebie—Row 0—2
Stal Miele — Pogon 2—ö
Ruch— StalRZ 0—0
Widzew — Szom bierk i I —ö
AUSTURRlKI 1. DEILD:
Austria Salzhurg
— Admira Waeker 1—1
SturmCraz—SW Innshruek ö—3
Austria WAC — Grazer AK 5—0
Austria Klaj'enfurt
— Voeest Linz o—0
Linzer ASK — Rapid Vln 2—3
FRAKKLAND l.DEILD:
Valeneiennes — Metz 3—0
Lyons — Lille 3—()
Nantes — Saint Etienne 3—0
Strassbourg—Bastia l—3
Soehauz—Monaeo 4—0
Nice — Marseilles 2—1
Bordeaux — Paris St. Cermain 2—1
Nimes — Avigon 1—0
Troves — Lens 1 — 1
Nancy—Theims 3—1
SPÁNN 1. DEILD:
Sevilla — Racing 3—1
Atletieo Madrid — Real Oviedo 3—1
Granada — Hercules 0—0
Barcelona — Real Betis 3—1
Athletio Bilbao—Las Palmas 1—0
Salamanca — Real Sociedad 1—2
Elche — Espanol 2—1
Sporting—Valencia 1—1
Real /aragoza — Real Madrid 3—1
IIOLLAND 1. DEILD:
Feyenoord — Go Ahead Eagies 4—2
FC Amsterdam—NEC 1—1
Utrecht — MVV 2—1
AZ67 — Eindhoven 2—0
deCraafsehap — FCTwente 1 — 1
PSV — Telstar 6—1
Roda—Ajaz 0—0
FCIIaag—Sparta 1—0
Exeelsior — NAC 0—2
BELClA 1. DEILD:
FC Malinois — Raeing Malines 4—1
Molenheek—Berchem 5—0
Liegeois — CS Briigge 0—Ö
LaLouviere—Beveren 1—1
FC Brtigge —Ostend 5—0
Beringen—Anderleeht 2—0
Beerschot—Waregem 2—1
Lokeren — Standard Liege 1—0
Antwerpen—Charleroi 1—1