Morgunblaðið - 15.04.1976, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRlL 1976
Kosningar í júní
óh jákvæmilegar
Róm, 14. apríl. Reuter.
AMINTORE Fanfani, hinn aldni
leiðtogi hægri manna f Kristilega
demókrataflokknum á Italíu, var
f kvöld kjörinn formaður lands-
ráðs hans og kom það mjög á
óvart. Stjórnmálaskýrendur telja
að þetta taki af allan vafa um að
komizt verði hjá þingkosningum f
landinu 13. eða 20. júnf n.k. til að
binda enda á stjórnmálakrepp-
una, en kosning Fanfanis bendir
til mikillar hægri sveiflu f
flokknum og er ósigur fyrir for-
mann flokksins, Benigno
Zaccagnini, sem hefur barizt
fyrir mildari afstöðu hans til
kommúnista. Er talið líklegt að
nú stefni f hörð átök milli kristi-
legra demókrata annars vegar og
sósfalista og kommúnista hins
vegar. Fanfani fékk 100 atkvæði,
30 atkvæði fóru til spillis en 54
sátu hjá. Þetta gerðist á fundi
flokksforystunnar f kvöld.
Framkvæmdir
við Hús
verzlunar-
innar að hefjast
Framkvæmdir við Hús
verzlunarinnar, sem á að rfsa f
nýja Miðbæjarkjarnanum f
Kringlumýri, eru nú að hef jast og
hefur jarðvinna þegar verið boð-
in út. Áætlað er að allri jarðvinnu
verði lokið fyrir júlflok.
Hjörtur Hjartarson, formaður
bygginganefndar hússins, sagói í
samtali við Morgunblaðið í gær,
að gert væri ráð fyrir að fyrsta
skóflustungan yrði tekin um miðj-
an maímánuð. Á þessu ári væri
áætlað að Ijúka við að steypa
kjallara hússins, sem væri 28 þús-
und rúmmetrar að stærð og meira
en helmingur að stærð hússins. í
kjallaranum verður mikill fjöldi
bílastæða.
Áformað er að ljúka við að
steypa húsið upp á árinu 1977, en
það verður 21 þúsund rúmmetrar,
Húsið á að afhenda tilbúið undir
tréverk og miðað við núverandi
verðlag mun það kosta þannig um
560 milljónir króna.
— Bahamar telja
Framhald af bls. 1
fiskimiðum eyjanna sem kynnt
hefði verið f fyrra á fundum
með fulltrúum Bandaríkja-
stjórnar væri enn við lýði og
ekkert benti til að nein breyt-
ing yrði á hvað snerti kúb-
önsku stjórnina.
Hann sagði það stefnu
stjórnarinnar að vernda auð-
lindir Bahamaeyja til nýtingar
fyrir íbúana sjálfa. í fyrra
lýstu Bahamamenn þvi yfir að
humarmið úti af Bahama-
eyjum væru á meginlands-
sökklinum og bönnuðu fiski-
bátum frá öðrum þjóðum veið-
arnar. Bitnaði bann þetta mest
á Kúbumönnum og sjómönn-
um frá Suður-Florida.
— Sakharov
Framhald af bls. 1
Hjónin, sem höfðu uppi þessi
„skrílslæti," voru að sögn Tass,
flutt til öryggisvarðstöðvar þar
sem þau viðurkenndu að hafa
slegið verðina. Frú Sakharov
-sagði í skriflegri yfirlýsingu sinni
að „hún hefði gert þetta vísvit-
andi og að hún hefði vitað hvað
hún væri að gera,“ segir frétta-
stofan og bætir við: „Sakharov
reyndi að halda þvf fram, að hann
hefði gert þetta vegna þess, að
verðirnir hefðu reynt að snúa upp
á handleggi hans. En þegar
öryggisverðirnir á stöðinni íögðu
til að hann gengist undir læknis-
skoðun til að sanna þessa yfirlýs-
ingu neitaði hann því eindregið."
Tass sagði að Sakharov, „þessi
alræmdi maður", hefði framið
„enn eitt skrílsverkið”. Ekkert
var vitað hvort Sakharov-hjónin |
yrðu kvödd fyrir dóm vegna máls-
ins.
Sakharov-hjónin höfðu komið
til Omsk gagngert til að vera
viðstödd réttarhöldin yfir
Djemilev sem sakaður er um and-
sovézka starfsemi. Hann er 31 árs
að aldri en hefur eytt mestum
hluta fullorðinsára sinna í fang-
elsum og vinnubúðum vegna bar-
áttu sinnar fyrir þvf að Tatararnir
fái að snúa til heimkynna sinna á
Krfmskaga úr útlegð. Hann á yfir
höfði sér þriggja ára fangelsisvist
til viðbótar. 1 dag átti enfremur
að hefjast í Moskvu réttarhöld
yfir öðrum andófsmanni, dr.
Andrei Tverdokhlebof, eðlisfræð-
ingi og ritara hinnar óopinberu
sovézku deildar Amnesty Inter-
national, en hann er sakaður um
að hafa dreift óhróðri um Sovét-
rikin.
— Ford
undirritar
Framhald af bls. 1
Bandaríkin gætu ekki staðið
við skuldbindingar sínar sam-
kvæmt gildandi samningum. i
öðru lagi að einhliða bann við
veiði útlendinga gengi í ber-
högg við ákvæði alþjóðalaga. i
þriðja lagi að taka erlendra
skipa að ólöglegum veiðum
kæmi ekki heim við alþjóðalög.
í fjórða lagi að með frumvarp-
inu væri gengið inn á valdsvið
forsetaembættisins f alþjóða-
málum.
Ford kvað þessi mál mikil-
væg en kvaðst vongóður um að
viðkomandi stjórnvöld gætu
leyst þau eða að þau mætti
leysa með lögum ef nauðsyn-
legt reyndist.
— Vængir
Framhald af bls. 2
þar sem tilkynnt var, að flugmenn
Vængja h/f hefðu gengið í félagið
og var óskað eftir samningsgerð
um kaup og kjör þeirra vegna.
Vængjum h/f var allsendis
ókunnugt um, að fyrir lægi
nokkur sá ágreiningur, sem ekki
væri hægt að jafna milliliðalaust
við flugmennina, en hafði aftur á
móti rökstudda vitneskju um
hörku og óbilgirni F.I.A. í kjara-
samningum. Á meðan stjórnin var
að hugleiða hin nýju viðhorf,
barst nýtt bréf frá F.Í.A. dagsett
22. jan. ’76 og birtist það hér á
eftir. Bréfi þessu svaraði svo
stjórn Vængja h/f 24. febrúar og
birtist svarbréfið einnig.
Flugmönnum hefir ávallt staðið
til boða að semja beint við Vængi
h/f, en allt slikt hefir strandað á
einstrengings afstöðu F.Í.A., sem
bannað hefir starfsmönnum alla
samninga, nema á þess vegum.
Eins og fram kemur í bréfi
Vængja h/f frá 24. febrúar, hafna
þeir F.Í.A. algjörlega sem samn-
ingsaðila, enda er félag þetta
klofið ofan i rót, og semja flug-
menn Loftleiða og Flugfélags ís-
lands hvorir um sig, beint við sitt
félag. Það eru aðeins Vængir h/f,
sem eiga að sæta þvl að fást við
samninganefnd, sem skipuð er af.
F.I.A., á þann hátt að einn
nefndarmaður er starfsmaður
Vængja h/f, annar Flugfélags Is-
lands og sá þriðji Cargolux.
Þannig var málið lagt fyrir sátta-
semjara ríkisins. í þessu sam-
bandi má einnig benda á, að
Vængir h/f eru hið eina af litlu
flugfélögunum sem F.I.A. hefir
nokkru sinni skipt sér af. Flug-
menn Vængja h/f hafa án þess að
gera sér það ljóst, orðið peð I
valdatafli innan F.l.A. Stjórn
Vængja harmar það, að umræddir
flugmenn, sem allir hafa reynst
hinir nýtustu starfsmenn, skuli
þannig missa atvinnu sina, algjör-
lega að ástæðulausu.
Morgunblaðið hafði samband
við tvo fréttaritara sina, þá Árna
Helgason I Stykkishólmi og
Matthias Jóhannsson á Siglufirði
og spurði þá hvernig fólki á
þessum stöðum litist á að Vængir
hættu áætlunarflugi sínu þangað.
Matthías Jóhannsson á Siglu-
firði sagði, að ef félagið hætti
flugi til Siglufjarðar væri búið að
skera á lífæð staðarins. Vængir
hefðu veitt sérstaklega góða fyrir-
greiðslu til þessa og strax I gær
þegar félagið hætti vörumóttöku
hefði komið I ljós hve Siglfirð-
ingar væru orðnir háðir þessari
þjónustu.
„Fólk hér skorar á stjórn félags-
ins að gefast ekki upp. Hér eru
allir tilbúnir til að leggja sitt af
mörkum til þess að félagið geti
dafnað, t.d. með þvi að leggja
fram fé, ef til greina kæmi að
auka hlutfé þess.“
Þá sagði Matthlas, að bæjarráð
Siglufjarðar myndi fjallað sér-
staklega um þetta vandamál.
Arni Helgason I Stykkishólmi
sagði að þessi ákvörðun myndi
koma sér illa á Snæfellsnesi. Að
visu gengi áætlunarblll milli
Reykjavíkur og Snæfellsness, og
myndi hann fá nóg verkefni ef
flugið legðist niður. Áætlunarbíll-
inn hefði gengið I mörg ár, en að
undanförnu hefði farþegum með
honum fækkað mikið, þar sem
flestir hefðu kosið að fljúga. —
Það kemur sér illa fyrir okkur
Stykkishólmsbúa ef flugið leggst
niður, en ástandið verður enn
verra á Sandi og i Ólafsvík, ef
þessi samgönguæð verður ekki til
eftir skamman tíma.
— Blóm
vikunnar
Framhald af bls. 17
áburðarkalki.
Plöntunin fer þannig fram:
1. Götin á botni ilátanna eru
hulið með pottbrotum eða
bréfi.
2. llátin fyllt af moldarblönd-
unni upp að brún, siðan er
moldinni léttilega þjappað
niður uns 1—2 sm borð er á.
3. Móta skal holu fyrir jurtina
með litlum trépinna eða vísi-
fingri. Áður en plantan er flutt
úr sáðilátinu skal vökva ræki-
lega til þess að moldin loði sem
bezt við ræturnar.
4. Þegar fræplöntunni hefur
verið komið fyrir I holunni skal
moldinni þrýst þéttingsfast að
rótinni. Sé dreifplantað I kassa
er vaxtarrýmið haft 4—6 sm á
kant. Smávaxin sumarblóm
þurfa minna vaxtarrými en kál-
tegundir.
5. Þegar dreifplöntun er lokið
skal vökvað rækilega með garð-
könnu með fínum dreifara.
6. Gott er að dreifa litlu einu
af brassicol-dufti yfir moldina
til þess að verjast sníkjusvepp-
um.
7. Eftir gróðursetningu skulu
plönturnar hafðar á 10—15°C
hita og I góðri birtu þar til þær
verða fluttar á vaxtarstað úti I
garði og allan þann tíma skulu
þær vökvaðar daglega.
Leiðbeiningar um gróður-
setningu úti koma siðar.
EIS.
— Selfangari
Framhald af bls. 44
kom I ljós, að selfangarinn Kvit-
ungen frá Tromsö var ekki mjög
langt fyrir norðan flakið af For-
tuna.
Til að þyrlan gæti komist fram
og til baka, var eldsneytisflugvél
frá Wood Brigde I Englandi send
af stað og önnur frá Keflavík
kl 12.45 og átti Herkules-
eldsneytisvél að fylgja henni eftir
og fylla tanka hennar eftir því
sem þörf krefði á Norðurleiðinni,
en enska vélin átti á fylla á á
heimleið. Var gert ráð fyrir að
þyrlan kæmi yfir svæðið kl. 17,
tæki þá skipbrotsmennina og
flytti þá til Meistaravíkur á Græn-
landi. Skömmu eftir að vélarnar
lögðu af stað tilkynnti Kvitungen
að skipsmenn þar sæju til manna
á fsnum.
Að sögn Hannesar Hafstein
kom fljótt I ljós að flugvélarnar
myndu fá meiri mótvind á ieið-
inni en gert hafði verið ráð fyrir I
upphafi og gekk því fljótt á elds-
neytisbirgðir þyrlunnar, en engu
að slður héldu vélarnar áfram för
sinni. Kl. 17 kom sfðan skeyti frá
Kvitungen þess efnis að þeir
hefðu brotizt áfram til skipbrots-
mannanna og væru þeir komnir
um borð heilir á húfi. Þá var
ákveðið að flugvélarnar sneru
við, enda allsendis óvlst hvort
þyrlan hefði nægt eldsneyti fram
og til baka, ef mennirnir hefðu
verið teknir um borð I hana. Kom
þyrlan ásamt annarri eldsneytis-
vélinni til Akureyrar kl. 18 I gær-
kvöidi, en hin eldsneytisvélin
lenti I Keflavfk kl. 18.45. Gert var
ráð fyrir að þyrlan yrði um kyrrt
á Akureyri I nótt, en von var á
eldsneytisvélinni, sem lenti á Ak-
ureyri til Keflavlkur kl. 19.30.
— Magnús
Framhald af bls.44
með áburð á skíði sín. Þá gerði
nokkra golu er keppnin var
nýhafin og höfðu þeir sem
höfðu hærra rásnúmer hana I
fang. Meðal þeirra var Halldór
Matthíasson.
Þá var einnig keppt I 10 km
göngu 17—19 ára. Sigurvegari
varð Haukur Sigurðsson Ólafs-
firði, gekk á 41:02 mín. Annar
varð Þorsteinn Þorvaldsson
Ólafsfirði á 42:36 mín. og
þriðji varð Jónas Gunnlaugs-
son isafirði á 44:57 mfn.
—sigbj.g.
— Féll út
Framhald af bls. 2
verjar honum um borð aftur.
Meiddist Bjarni á fæti við að
rekast I eitthvað er honum
skolaði fyrir borð.
Sæljón kom svo I land I
morgun og landaði 73 lestum
af fiski og hefur þá fengið 460
lestir á vertíðinni og er afla-
hæsti bátur hér I dag. Otaberg
landaði 30 lestum I gær. Þá
landaði Hólmanes 90 lestum I
gær og Hólmatindur 100
lestum I dag. Veður hér I dag
er ágætt, sunnan gola og 5
stiga hiti. — Ævar.
— Útvarp
Framhald af bls. 32
lendukapphlaup og heims-
valdastefna á 19. öld.
14.00 Dagskrárstjóri f eina
klukkustund
Hannes Pétursson skáld ræð-
ur dagskránni.
15.00 Fyrsta danslagakeppni
á tslandi
Svavar Gests dregur fram f
tali og tónum ýmiskonar
fróðleik frá danslagakeppni
á Hótel tslandi 1939.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Framhaldsleikritið:
„Upp á kant við kerfið"
OUe Lánsberg bjó til flutn-
ings eftir sögu Leifs Pandur-
os.
Þýðandi: Hólmfrfður Gunn-
arsdóttir. Leikstjóri: GIsli
Alfreðsson.
Persónur og leikendur ( átt-
unda og sfðasta þætti:
Davfð / Hjalti Rögnvaldsson
Lfsa / Ragnheiður Steindórs-
dóttir
Schmidt, læknir / Ævar R.
Kvaran
Marfanna / Helga Stephen-
sen
Traubert / Helgi Skúlason
Mamma / Herdfs Þorvalds-
dóttir
Kamma / Sigrún Björnsdótt-
ir
Hugo / Bjarni Steingrfmsson
17.05 • Barnatfmi: Guðrún
Birna Hannesdóttir stjórnar
Samfelld dagskrá um H.C.
Andersen
Danski drengjakórinn syng-
ur. Unnur Björk Lárusdóttir
(9 ára) og Guðjón Sigurðsson
(16 ára) lesa.
18.00 Lúðrasveit Kópavogs
leikur
Stjórnandi: Björn Guðjóns-
son. Kynnir: Jón Múli Arna-
son.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar
19.30 Frá Hallgrfmi Scheving
Dr. Finnbogi Guðmundsson
flytur erindi.
20.00 Einsöngur f útvarpssal:
Hreinn Lfndal syngur lög eft-
ir Grieg, Schubert, Donaudy,
Tosti og Respighi. Ólafur
Vignir Albertsson leikur á
pfanó.
20.20 Að vera húmoristi
Björn Vignir Sigurpálsson og
Árni Þórarinsson sjá um
þáttinn.
21.05 Kvöldtónleikar
Flytjendur: Sinfónfuhljóm-
sveit útvarpsins f Hamborg
og Gerhard Puchelt pfanó-
leikari. Stjórnandi: Heribert
Esser.
a. „Egmont" — forleikur eft-
ir Beethoven.
b. Pfanókonsert nr. 1 f C-dúr
op. 11 eftir Weber.
c. Sinfónfa f D-dúr eftir
Schubert.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Danslög
(23. 55 Fréttir)
01.00 Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDIkGUR
20. aprfl
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. landsmálabl.),
9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55: Séra
Gunnar Björnsson flytur.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Hreiðar Stefánsson
byrjar að lesa söguna
„Snjalla snáða“ eftir Jennu
og Hreiðar Stefánsson.
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Fiskispjall kl. 10.05: Ásgeir
Jakobsson flytur.
Hin gömlu kynni kl. 10.25:
Valborg Bentsdóttir sér um
þáttinn.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Félagar f Sinfónfuhljómsveit
sænska útvarpsins leika
Barokksvftu op. 23 eftir Kurt
Atterberg; Höfundur stjórn-
ar / Suisse Romande hljóm-
sveitin leikur Sinfónfu nr. 4 f
a-moll op. 63 eftir Jean Sibel-
ius; Ernest Ansermet stjórn-
ar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.20 „Réttindi", smásaga
eftir Hreiðar Eirfksson
Jón Aðils leikari les.
15.00 Miðdegistónleikar
Alexandre Lagoya og
Andrew Dawes leika
Konsertsónötu fyrir gítar og
fiðlu eftir Niccolo Paganini.
Francois Thinaf leikur
Pfanósónötu f es-moll eftir
Paul Dukas.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatfminn
Finnborg Scheving sér um
tfmann.
17.00 Lagið mitt
Berglind Bjarnadóttir sér
um óskalagaþátt fyrir börn
yngri en tólf ára.
17.30 Framburðarkennsla f
spænsku og þýzku.
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Karl fyrsti Stúart
Brot úr sögu Stúartanna f há-
sæti Stóra-Bretlands f saman-
tekt Jóhanns Hjaltasonar.
Jón örn Marinósson les
fyrsta hluta erindisins.
20.00 Lög unga fólksins
Ragnheiður Drffa Steinþórs-
dóttir kynnir.
20.50 Áð skoða og skilgreina
Kristján Guðmundsson sér
um þátt fyrir unglinga.
21.30 Söngur f þjóðlagastfl
Tómas Jónsson og Helgi Árn-
grfmsson flytja frumsamin
lög f útvarpssal.
21.50 Kristfræði Nýja testa-
mentisins
Dr. Jakob Jónsson flytur
þrettánda erindi sitt: Kyrios.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir
Kvöldsagan: „Sá svarti senu-
þjófur", ævisaga Haralds
Björnssonar
Höfundurinn Njörður P.
Njarðvík, les (10).
22.40 Harmonikulög
Jo Ann Castle leikur.
23.00 A hljóðbergi
Dylan Thomas: Heim til
Swansea. (Return Journey to
Swansea). Höfundurinn og
leikarar brezka útvarpsins
flytja.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.