Morgunblaðið - 15.04.1976, Page 34

Morgunblaðið - 15.04.1976, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRlL 1976 Keramik Leikrit Jökuis Jakobssonar, Keramik, er f sjónvarpi á mánudag. BREZKA leikritaskáldið John Osborne var einhvern tfma beðinn um að skilgreina helzta muninn á því að skrifa sviðs- leikrit og sjónvarpsleikrit.. ,,Ég held, að það sé nærtækast að líkja þvf að semja sviðsleikrit við að skrifa skáldsögu," svaraði hann, „ og þvf að semja sjónvarpsleikrit við að skrifa smásögu.“ Hvort sem Jökli Jakobssyni hefur verið kunnugt um þessa skilgreiningu Osbornes eða list- ræn eðlisávfsun vísað honum leiðina, þá er KERAMIK, sjón- varpsleikrit hans, sem sjón- varpið sýnir nú um páskana, einna lfkast smásögu í formi og uppbyggingu. Og eftir að hafa átt þess kost að sjá leikritið á forsýningu á dögfinum, get ég með góðri samvizku fullyrt, að þeimstund sem fólk situr fyrir framan skjáinn að kvöldi annars páskadags er vel varið. I Keramik rær Jökull raunar á velþekkt mið í efnisaðföng- um. Þríhyrningurinn eilífi er þarna á næstu grösum, og þema leiksins er sumpart sótt í kvennaumræðu okkar daga.Við erum leidd inn á heimili brodd- borgara og kynnumst eigin- manninum — ungum og upprennandi lögfræðingi, sem framtíðin brosir við, eiginkon- unni sem er „bara húsmóðir" og syni þeirra ungum. „Hús- bóndinn" hefur sett sér markið hátt, á jafnvel borgarstjórnar- sæti í vændum og leggur metnað sinn f að sjá fjölskyldu sinni sem allra bezt farborða svo að ekkert vantar á: einbýlis- hús, bfll, lúxus innanstokks- munir og nú síðast sjávarlóð fyrir sumarbústaðinn fyrir austan Fjall. Og hann talar i þessum klissjum, sem eru svo dæmigerðar fyrir þá sem að- hyllast efnishyggju auðsins (og kallast víst verðbólguvandi hér í landi). Eiginkonan hefur þvf naumast yfir neinu að kvarta, en þegar betur er að gáð er ekki allt með felldu f sambúð þeirra hjóna. Allsnægtirnar virðast skammgóður vermir, og leiðindi og andleysi húsmóður- starfsins eru að kæfa hana. Hún hefur reynt að finna ófullnægju sinni útrás f ótal „hobbíum" og nú sfðast hefur hún lent á keramiknámskeiði. Þar kynnist hún ungri stúlku, sem er algjör andstaða hennar f lffsskoðunum og breytni en engu að sfður takast með þeim miklir kærleikar. Eiginmannin- um finnst vinkonan hafa heldur óheillavænleg áhrif á konu sína framan af, enda tekur hún að slá slöku við heimilisstörfin. En forlögin láta ekki að sér hæða og fyrr en varir hafa þau haft enda- skipti á hlutunum. Jökull vinnur yfirleitt vel úr þessu efni en honum hættir þó stöku sinnum til að verða full skáldlegur og háfleygur, sem sjónvarp þolir miklu síður en leiksvið, sérstaklega þegar um- gjörðin er jafn hversdagsleg og raunsæ sem þarna. Með fálm- kenndum vinnubrögðum f uppsetningu hefði auðveldlega mátt kafsigla verkið á þessum punktum, en þetta kemur þó naumast að sök, því að svo er vandað til sýningarinnar af hálfu sjónvarpsmanna, að þeir hafa vart gert betur í annan tíma. Hrafn Gunnlaugsson, leikstjóri og Egill Eðvaldsson stjórnandi upptöku hafa undantekningalítið verið fund- vfsir á hinn gullna meðalveg milli hins raunsæja ramma og ljóðræns texta, sem öðruhverju bregður fyrir. Ymsar aðrar lausnir þeirra þykja mér sérlega smekklega útfærðar. Ekki er þó við hæfi að fella neinn eiginlegan dóm um leik- ritið eða sýninguna meðan hún hefur ekki komið á skjáinn, og framangreint látið nægja í von um að áhugi sjónvarpsáhorf- enda sé vakinn. Þó er skylt að geta annarra aðstandenda þessarar sýningar, sem lagt hafa sitt af mörkum til að gera KERAMIK að ánægjulegri kvöldstund — leikaranna Sig- urðar Karlssonar, Hrannar Steingrímsdóttur, Höllu Guðmundsdóttur og strák- hnokkans Björns Gunnlaugs- sonar, Björns Björnssonar, sem gert hefur sannferðuga sviðs- mynd um leikritið og Snorra Þórissonar, sem annaðist myndatökuna. Þá má ekki gleyma Spilverki þjóðanna, sem lagt hefur til tónlistina, og eru það aðallega tilbrigði við ýmis laganna á síðustu plötu þess. bvs. Or Ieikritinu Keramik. H-moll messa Bachs Flutningur og hugleiðingar um textann H-MOLL messa Bachs sem Pólýfónkórinn flytur um pásk- ana verður á dagskrá útvarps á föstudag. Undirleik annast kammerhljómsveit en ein- söngvarar með kórnum eru: Guðfinna Ólafsdóttir, Rut Magnússon, Ásta Thorsteinsen, Jón Þorsteinsson, Ingimar Sig- urðsson og Halldór Vilhelms- son. Stjórnandi kórsins er Ing- ólfur Guðbrandsson. I kórnum eru um 150 manns en í kammersveitinni eru um 35 manns. H-moll messa Bachs hefur áð- ur verið tekin tii flutnings hjá kórnum en var þá flutt nokkuð stytt. Var það árið 1968. Flutningur hefst kl. 14.00 og er þá sunginn fyrri hluti verks- ins. Tekur það um eina og hálfa klukkustund. Sfðari hluti mess- unnar verður fluttur að loknum veðurfregnum kl. 22.15 . Flutn- ingi lýkur kl. 23.10. Þá verður fluttur þáttur að loknum fyrri hluta flutningsins sem nefnist Um texta Messunn- ar f H-moIl eftir Bach. Hefst þessi þáttur kl. 15.30. Það er Þórir Kr. Þórðarson prófessor sem les og hugleiðir textann. Sagði Þórir að þessi hugleið- ing fjallaði um textann sem tón- verkið er samið við sem er þá texti messunnar. Helztu liðir messunnar væru Miskunnar- bæn, dýrðarsöngur, trúarjátn- ingin og guðslambið. Ræðir Þórir um textana til að varpa meira ljósi á tónverkið en hann fjallar ekki um tónverkið sjálft. Textinn er allur á latfnu og er þetta lútersk messa á 18. öld. Liðir þessarar messu eru þeir sömu og í kaþólsku messunni að sögn Þóris og var þessi texti notaður hér á landi eftir siða- bótina og allt fram á 19. öld. Þá sagði Þórir að túlkun Bachs á textanum væri mjög áhugaverð og væri hún mjög góð. Það væri raunar slæmt að ekki var unnt að hafa tóndæmi úr flutningi verksins með hug- leiðingunni en það hefði reynzt óframkvæmanlegt af ýmsum ástæðum. Þessi túlkun lýkur upp textanum fyrir hlustend- um en nauðsynlegt er að gefa gaum að textanum er hlustað er á tónverkið. ÞÁTTURINN Áfangar sem ver- ið hefur á föstudagskvöldum í vetur verður í þessari viku á laugardagskvöldið kl. 22.25. Umsjónarmenn þáttarins eru Ásmundur Jónsson og Guðni Rúnar Ágnarsson. Guðni Rúnar sagði að þeir hefðu ekkert breytt út af venju- legu formi þáttarins þó svo hann væri nú á laugardags- kvöldi. Sagði hann að ef fólk hlustaði á þáttinn f fyrsta sinn 1-4^ ER^ hdI ( HEVRH! Eiga á þriðja þúsund plötur á laugardag væri ekki rétt að gefa rangar hugmyndir af því hvernig þátturinn væri venju- lega. Guðni Rúnar sagði að meðal efnis í þættinum á laugardag væri titillagið af nýrri plötu með Genesis. Einnig lékju þeir eitt lag af gamalli plötu með sömu hljómsveit til þess að bera saman söngvarana. Fyrir nokkru var skipt um söngvara hjá Genesis en fráfarandi söngvari var af mörgum talinn aðaldriffjöður hljómsveitarinn- ar. Það kemur hins vegar f ljós að sá söngvari sem tók við starf- inu stendur fyllilega f stykkinu og er meira að segja ákaflega líkur fyrri söngvara hljómsveit- arinnar. Þá verður leikin músík með hljómsveitinni Quintessence og flytur hún trúarbragðamúsfk enda eru trúarbrögð hljóm- sveitarmannanna nokkuð sér- stæð. Þó sagði Guðni Rúnar að þessi hljómsveit flytti þessa gerð tónlistar miklu betur en flestar aðrar sambærilegar hljómsveitir gerðu. Þá enda þeir félagar Guðni Rúnar og Ásmundur þáttinn á að spila verk sem flutt er af Calvary Quicksilver Messenger Service og væri þetta verk tón- listarleg túlkun þessarar hljóm- sveitar á upprisu Jesú Krists. Ymislegt fleira er í þættinum s.s. söngur Murrey Head sem frægur er m.a. fyrir að hafa sungið verk Júdasar f tónverk- inu Jesus-Chris Superstar. Þá sagði Guðni Rúnar að lokum að þeir félagar ættu upp undir 3.000 plötur samanlagt en nokkuð væri þó um að ræða sömu plöturnar. Má ætla að titl- arnir séu allavega vel yfir tvö þúsund. Nótt undir Jökli SÍÐASTI þáttur Haralds Ólafs- sonar, Lesið f vikunni, er i hljóðvarpi kl. 19.35 í kvöld. Þættir Haralds hafa verið viku- legir liðir í dagskránni og hefur bæði verið sagt frá og eins lesið úr ýmsum verkum. i þættinum í kvöld verður lesin frásögn eftir Sigurð Björnsson á Kvískerjum sem nefnist Nótt undir jökli. Sagði Haraldur að þetta væri ákaf- lega merkileg frásögn en Sigurður lenti undir snjóflóði og datt ofan f jökulsprungu. Þar lá hann í nærri sólarhring án þess að geta hreyft legg eða lið þar til honum var bjargað. Þátturinn er 15 mfnútna langur. Haraldur Olafsson. Sfðasti þáttur hans, Lesið f vikunni, verður f kvöld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.