Morgunblaðið - 01.05.1976, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 01.05.1976, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1976 íslandsmet hjá LILJU LILJA Guðmundsdóttir er i8in vi8 fcolann og setti enn eitt íslands- metið í móti i SviþjóS i vikunni, en sem fcunnugt er æfir Lilja og keppir me8 sænsku Ii8i. MetiS setti Lilja i 1500 metra hlaupi. bætti hún eldra met sitt um 2 sekúndur og er nýja metið 4:32,0. Nálgast Lilja nú Ólympiu lágmarkið óðum, en i 800 metra hlaupi á hún þó enn meiri mögu- leika á að ná lágmarkinu eftir- sótta. Hörkoleikir í Reykjaiíkiirinéti og Litln bikarkeppninni HORKULEIKIR verða i vormót- unum I knattspyrnu i dag. Fram og Valur mætast i Reykjavíkur- mótinu á Melavellinum klukkan 16 og er þar um að ræða hálf- gerðan úrslitaleik i mótinu. Með sigri í dag má segja að Framarar hafi svo gott sem tryggt sár Reykja vikurmeistaratitilinn, en vinni Valur opnast mótið og auk þessara liða eiga Vikingar þá móguleika á sigri i mótinu. í litlu bikarkeppninni verða tveir leikir i dag og hefjast báðir klukkan 14.00. Akumesingar leika gegn hinum vorhressu Haukum á Skaganum og i Kapla- krika leikur FH við Breiðablik. Báðir þessir leikir ættu að geta orðið spennandi og verður sár- staklega gaman að vita hvernig Haukunum gengur i baráttunni við tslandsmeistarana. Jóhannes í íþróttaþœtti í ÍÞRÓTTAÞÆTTI sjónvarpsins i dag verður meðal efnis 15 min- útna kafli úr leik Celtic og Dundee Utd., sem leikinn var fyrir nokkru siðan. Celtic tapaði þessum leik 3:2 og má segja að þessi ósigurinn hafi verið sá fyrsti af fleirum sem á eftir fylgdu. en Celtic gekk mjóg illa i lok knatt- spyrnuvertfðarinnar i Skotlandi. Auk þessa leiks verður góð- akstur, badminton og golf meðal efnis i iþróttaþættinum. sem Bjami Fetixson annast. Haraldnr hefncti í liðakeppninnt HARALDUR Korneliusson hefndi að nokkru leyti ófaranna á nýafstöðnu íslandsmóti i badminton er hann i fyrrakvóld ásamt Hæng Þorsteinssyni bar sigurorð af Sigurði Haraldssyni og Jóhanni Kjartanssyni I tviliða- leik liðakeppninnar i badminton. Haraldur og Hængur kepptu fyrir a-lið TBR og unnu 18:16 og 15:9. Sigurður og Jóhann keppa hins vegar fyrir b-lið TBR og tapaði liðið i fyrrakvöld sinum fyrsta leik i liðakeppninni, úrslitin urðu 7:6 fyrir a-liðið. þannig að munurinn gat ekki verið minni. Í tvenndarfeik sigraði Haraldur einnig en þar lák hann með Jóninu Niljóníusardóttur, þeirri sfungu badmintonkonu. Þau léku gegn Sigurði Haraldssyni og Steinunni Pátursdóttur. Staða ( efri flokki liðakeppn- innar er nú þannig aðflest bendir á sigur b-liðsins þrátt fyrir tapið I fyrrakvöld. Þarf a-liðið að vinna Siglfirðinga 13:0 og b-liðið má ekki vinna KR meira en 8:5 til að a-liðið sigri f keppninni. Leikur KR og TBR-b fer fram i Laugar- dalshóllinni á morgun og hefst klukkan 14 00. Úrslitaleikimir i neðri flofcki liðakeppnínnar fara fram I KR- húsinu i dag og hefjast klukkan 13. Þar leika til úrslita KR-b, ÍA og TBS-b. Þeir Ómar Magnússon og Björn Kristófersson brugðu á leik á nýja grasvellinum í Laugardal í gær og smellti Friðþjófur ljósmyndari þá þessari mynd af þeim köppunum. Grasvellirnir komnir í sumar- skrúða en forystan er uggandi NÝI grasvöllurinn í Laugardal er nú þegar kominn í sumarskrúða og geta knattspyrnumenn Reykjavfkurfélaganna þvf horft með bjartari augum á það Islandsmót, sem senn fer f hönd. t fyrra máttu þeir gera sér að góðu að leika flesta ieiki sfna f Reykjavfk við slæmar aðstæður en ef ekki verður mikil breyting á tfðarfarinu þá ætti aðstaðan öll að verða mun betri f sumar. Forystumenn knattspyrnufé- geta sett sig niður eða staðið í laganna eru hins vegar uggandi hæðunum umhverfis Laugardal- um fjárhaginn og telja að inn- gangseyrir verði næsta lítill meðan leikið verður á nýja gras- vellinum fyrir framan Laugar- dalshöllina. Bæði ér það að engin stúka er á nýja vellinum, aðeins stæði enn sem komið er. í annan stað er girðingin umhverfis vöil- inn það lág að ekki er erfitt fyrir þá sem ekki hafa ráð á eða það mikinn áhuga á að fylgjast ná- kvæmlega meó leik á vellinum að ínn. Hafa KRR-menn rætt þessi mál og þar munu vera uppi raddir um að fá afnumda vallarleigu af leikj- unum á nýja vellinum. Þá hafa þessi mál einnig verið rædd í íþróttaráði Reykjavíkur og þar verið Iýst óánægju yfir að „gamli“ Laugardalsvöllurinn skuli ekki verða tilbúinn fyrr en í byrjun júlí — ef vel tekst til með tyrf- ingu vallarins. Knapp aughv Is- land - og sjáíian sig í aprflhefti hins útbreidda knattspyrnublaðs „World Soccer“ er ftarlegt viðtal við Tony Knapp landsliðsþjálfara. Þar fer hann mörgum orðum um íslenzka knattspyrnu, hælir henni yfirleitt á hvert reipi og ekki verður annað sagt en grein þessi sé sérlega góð kynning fyrir íslenzka knattspvrnu. Greinin þekur opnu í blaðinu og er fvrirsögn hennar f lauslegri þýðingu „Knapp hjáipar íslendingum inn úr kuldanum". Því miður er hér ekki hægt að endurprenta grein þessa en í upp hafi viðtalsins segir Knapp frá því að þegar honum hafi verið boðin þjálfun hjá 1. deildarliðinu KR á íslandi hafi honum ekki fundist það sérlega spennandi. Því hafi þá verið lætt að honum að tæki hann þetta starf þá yrði hann um leið þjálfari landsliðsins íslenzka. Síðan er fjallað um íslenzka knattspyrnumenn, sem leikið hafa með erlendum knattspyrnu- liðum og eru þeir taldir upp. Um Jóhannes Eðvaldsson segir Tony Knapp í viðtalinu: „Þegar ég kom til Islands var hann ekki einu sinni landsliðsmaður, en lék sem tengiliður með Val. Ég var á höttunum eftir leikmanni sem gæti tekið stöðu miðvarðar f landsliðinu, leikmanni, sem skildi leikinn og gæti byggt upp spilið frá vítateig. Ég þurfti ekki að sjá 1 hann leika nema í hálftfma þegar ég vissi að ég var búinn að finna rétta leikmanninn.1' Knapp segir frá því að íslenzkir knattspyrnumenn séu ef til vil! VELLIRNIR EINS OG EFTIR PÖNTUN Morgunblaðsmenn lögðu leið sína í gær inn f Laugardal og hittu þar að máli vallarstarfsmenn með Björn Kristófersson garðyrkju- mann í broddi fylkingar. Sagði hann að allir grasvellir íþróttafé- laganna í Reykjavík væru í mjög góðu ásigkomulagi nú þegar, þannig að segja mætti að ástand þeirra væri nú eins og eftir pöntun frá knattspyrnumönn- unum. — Ætli það séu ekki þrjár vikur liðnar síðan við fundum síðast frost í jörðu hér í Laugardalnum og í heildina var veturinn mjög góður fyrir grasvellina. Lítið var um langa frostakafla og þegar mest var frostið lá yfirleitt snjór yfir þannig að ekki varð frostið til skaða, sagði Björn. — Sá völlur sem er í beztu ásigkomulági er nýi kastvöllurinn hér í Laugardalnum, hélt Björn áfram. — Það er í sjálfu sér nokkuð merkilegt því hann hefur fengið nákvæmlega sömu með- ferð og grasvöllurinn þar sem áætlað er að leika fyrstu leikina í 1. deildinni. Ástæðan kann að vera sú að hann var sleginn sjaldnar í fyrrasumar. — Ætli við förum ekki að slá vellina í næstu viku og svo þarf að valta þá áður en óhætt er að fara að leika á þeim. Annars er völlur- inn mjög þéttur og knattspyrnu- mennirnir ættu ekki að þurfa að kvarta yfir aðstöðunni i sumar, sagði Björn að lokum. PRESSULEIKUR 11. MAl Morgunblaðið getur fyllilega tekið undir orð Björns um að völlurinn sé þegar orðinn góður, hvanngrænn og fallegur. Líklegt er að fyrsti leikurinn á hinum nýja velli verði pressuleikur þann 11. mai, en islandsmótið hefst þar síðan 15. mai. Hefur KRR verið ritað bréf og ráðið beðið um afnot af vellinum, en þess er að minnast að síðastliðið vor fékkst ekki að- staða til pressuleiks í Reykjavík vegna breyttrar tekjuskiptingar við pressuleiki og var leikið í Keflavík í staðinn. —áij. þeir einu raunverulegu áhuga- menn, sem eftir séu. Hann rekur árangur sinn með landsliðið og frá því er greint er honum var formlega boðin landsliðsþjálfara- staðan. „Ég spurði þá hvort þeir hefðu raunverulega landslið? Á móti hverjum lékuð þið? Svörin sem ég fékk voru þau segir Knapp, að ísland hefði tapað 8:0 fyrir Holland og 14:2 fyrir Dön- um.“ Síðan er rakinn árangur Isiands i leikjum undir stjórn Knapps og hinn góði árangur isienzka lands- líðsins ekki dulinn. Knapp segir frá því að á leiðinni heim frá Rússlandi eftir að íslenzka Iands- liðið tapaði þar 0:1 í fyrrahaust hafi hann verið að blaða í gegnum „Rothmans“(bók um knattspyrnu í Evrópu). — Þar sá ég að á Islandi eru skráðir 11.000 knatt- spyrnumenn og af þeim treysti ég 20 til að leika í landsliði. I rúss- landi sé hins vegar skráð 4H milljón knattspyrnumanna og sé athyglisvert að bera þær tölur saman. —áij. Dodiertv hefnr aldrei iniið leik á Wemhliy MANCHESTER United og Southampton mætast i úrslitaleik bikarkeppn- inrjar á Wembley I dag Mikið er I húfi fyrir liðin því sigur i bikarkeppninni er hápunkturinn I lífi brezks knattspyrnumanns. Manchester United er nú að nýju komið á toppinn eftir átta frekar mögur ár Það Manchester United sem árið 1 968 varð fyrst brezkra liða — og það eina hingað til — til að sigra í Evrópukeppninni er liðið sigraði Benfica 7:4. Sá sigur var uppskera mikillar vinnu Sir Matt Busbys, sem af stakri eljusemi hafði byggt upp nýtt liðeftir flugslysið mikla við Munchen tíu árum áður. Skömmu slðar dró Busby sig I hlé og fyrir Manchester-liðið lá leiðin niður á við næstu árin Það var ekki fyrr en Tommy Docherty tók við liðinu að aftur fór að rætast úr hjá United Að vlsu féll liðið niður I 2. deild nokkru eftir að hann tók við, en dvölin þar varð ekki löng Skotinn sjálfumglaði byggði upp nýtt, ungt lið Liðið sigraði strax I 2. deild, varð I 3. sæti I 1 deildinni I ár og einnig I úrslitum bikarkeppninnar Liðið er sókndjarft og skemmtilega leikandi, enda kunna áhorfendur vel að meta leik þess. Manchester-liðið er talið mun sigurstranglegra I leiknum i dag þó svo að Tommy Docherty hafi aldrei unnið á Wembley — hvorki sem leikmaður eða framkvæmdastjóri Southampton, sem flyst nú upp í 1. deild, byggir vonir slnar á þeim Peter Osgood og Mike Cahnnon, enska landsliðsmanninum Einnig benda þeir á að Sunderland gerði sér litið fyrir og sigraði Leeds I úrslitaleik bikarkeppninnar 1972, þannig að það eru ekki alltaf þeir sem fyrirfram eru taldir sterkari sem hljóta sigurlaunin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.