Morgunblaðið - 25.06.1976, Page 1
36 SIÐUR
Ein tveggja sjðnvarpsmyndavéla Vfkings I tók þessa Ijósmynd af eyju á skurðasvæði á Mars.
Skurðirnir eru á svukölluðu Chrysesvæði. Svæðið, sem sést á myndinni, er 2.000 ferkílómetrar. Það,
sem athygli vekur við myndina, er, að aftasti hluti „eyjunnar" getur hafa myndazt við vatnsflóð
einhvern tfma f sögu reikistjörnunnar. Efnin í gfgbörmunum benda til veðrunar eða uppblásturs.
Skýrustu myndir af
Mars frá Víkingi 1.
Pasadena 24. júní. AP
— Reuter.
BANDARlSKIR//geimvfsinda-
menn voru f dag himinlifandi
eftir að hafa rannsakað Ijós-
myndir þær sem geimfarið Vfk-
ingur 1. hefur sent til jarðar af
væntanlegum lendingarstað
þess á Mars, en þar á geimskip-
ið að lenda 4. júlf. Vísinda-
mennirnir segja að myndir
Framhald á bls. 20
135. tbl. 63. árg.
FÖSTUDAGUR 25. JUNÍ 1976
1505
Washington, 24. júní. AP.
JIMMY Carter hlaut í dag stuðn-
ing 1505. fulltrúans á landsfundi
demókrata samkvæmt skoðana-
könnun AP og hefur þar með
tryggt sér útnefninguna í forseta
framboðið fyrir Demókrataflokk-
inn.
Vígvöllur
frá 1066 á
£690.000
London, 24. júní.
Reuter.
BREZKA stjórnin keypti f dag
fyrir 690.000 pund með mikils-
verðri hjálp bandarfsks aðila víg-
völlinn við Hastings þar sem Vil-
hjálmur bastarður fór með sigur
af hólmi 1066.
Vfgvöllurinn var seldur á upp-
boði þar sem umhverfismálaráðu-
neytið bauð hærra f landspilduna,
sem er 230 hektarar og talin einn
merkasti sögustaður Englands, en
auðugur aðalsmaður, jarlinn af
Lonsdale.
Talsmaður gefandans vildi að-
eins segja eftir uppboðið að pen-
ingarnir kæmu frá bandarískri
menntastofnun sem vildi halda
nafni sínu leyndu.
Talsmaðurinn sagði að stofnun-
Framhald á bls. 20
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sættir
í deilu
Araba
Kaíró, 24. júní.
AP. Reuter.
SÝRLENDINGAR og Egyptar
ákváðu f dag að binda enda á tfu
mánaða gamlar deilur sfnar og
taka að nýju upp stjórnmálasam-
band að þvf er tilkynnt var að
loknum fundi forsætisráðherra
landanna f Riyadh f Saudi-
Arabfu.
Fundinn sátu einnig forsætis-
ráðherrar Saudi-Arabfu og Ku-
waits sem hafa reynt að miðla
málum f deilunni sem varð til
þess að stjórnmálasambandinu
var slitið fyrir þremur vikum.
Forsætisráðherrarnir hvöttu til
vopnahlés f Lfbanon og friðar-
gæzlu Arabarfkja.
Hægrimenn í Libanon sögðu i
dag að þeir hefðu náð yztu varnar-
linu Palestínumanna umhverfis
flóttamannabúðir þeirra i austan-
verðri Beirút og að þar væri bar-
izt í návigi, en vinstrimenn sögðu
varnir flóttamannabúðanna væru
tryggar.
Sýrlenzkir hermenn hörfuðu i
dag frá Beirút og þorpi nálægt
flugvellinum þar í suðurátt og
fóru fram hjá hafnarborginni Si-
don. Libýskir hermenn tóku sér
stöðu þar sem sýrlenzku her-
mennirnir voru áður.
I kvöld sögðu læknarnir að
Azevedo væri á batavegi. Þeir
sögðu að hann skildi fyrirmæli
Vorster
Kissinger.
Fiirstenfeldbruck, 24. júní.
Reuter. AP.
HENRY Kissinger utanrfkisráð-
herra sagði f dag að loknum við-
ræðum sfnum við John Vorster,
forsætisráðherra Suður-Afríku,
að hann væri bjartsýnn á að þær
hefðu miðað að þvf að afstýra
„yfirvofandi árekstrum“ fsunnan-
vcrðri Afrfku. Hann lýsti því yfir,
að hann mundi standa f nánu
sambandi við suður-afrfsku
stjórnina.
Kissinger sagði að bandaríska
stjórnin stæði við stefnu sfna í
málum Afrfku sem hann kunn-
gerði f vor. Aðspurður sagði hann
að taka yrði tillit til hvfta minni-
hlutans í sunnanverðri Afrfku og
tryggja hagsmuni hans við lausn
vandamálanna f Afrfku sunnan-
verðri.
Vorster sagði að viðræðurnar
hefðu verið hreinskilnislegar af
beggja hálfu. Eitt af því sem vitað
Framhald á bls. 20
tilkippilegir ef....
Róm, 24. júní. NTB.
Reuter. AP.
ITALSKI sósíalistaleiðtoginn
Francesco de Martino sagði f dag
að flokkur sinn gæti hugsað sér
að ganga til stjórnarsamstarfs
með kristilegum demókrötum ef
kommúnistaflokkurinn yrði hafð-
ur með f ráðum f mikilvægum
málum.
Hann sagði flokkstjórninni að
Lissabon, 24. júní. Reuter. AP.
JOSE Pinheiro de Azevedo, for-
sætisráðherra Portúgals og fram-
bjóðandi f forsetakosningunum á
sunnudaginn, náði meðvitund í
dag, 16 klukkustundum eftur að
hann fékk hjartaáfall, Honum er
haldið á Iffi með öndunarvél og
læknar hans vilja ekki fullyrða
hvort hann nær sér að fullu.
Læknarnir segja að f Ijós komi
að tveimur sólarhringum liðnum
hvort Azevedo nær bata, en ef
hann andast áður en kosningarn-
ar eiga að hefjast verður að fresta
þeim samkvæmt stjórnarskránni.
þessi afstaða yrði f samræmi við
kosningaloforð flokksins, en
sósfalistar hefðu áhuga á að heyra
hvaða tillögur kristilegir demó-
kratar og kommúnistar hefðu
fram að færa um myndun rfkis-
stjórnar.
De Martino lagði á það áherzlu
að sósialistar mundu ekki ræða
tillögur til lausnar stjórnarkrepp-
sem honum væru gefin munnlega
en þekkti ekki þá sem töluðu viö
hann. Fyrst þegar Azevedo náði
meðvitund sögðu læknarnir að
líkurnar á því að hann héldi lífi
Framhald á bls. 20
unni er samrýmdust ekki fyrri
yfirlýsingum flokksins. Vinstri-
flokkar yrðu að komast í ríkis-
stjórn og samráð yrði að hafa við
kommúnista.
Einn leiðtoga kommúnista,
Fernando di Giulio, kunngerði í
dag þá kröfu flokksins að hann
fengi annaðhvort forseta öldunga-
deildarinnar eða fulltrúadeiidar-
innar. Forseti öldungadeildarinn-
ar gegnir störfum forseta lýðveld-
isins ef hann forfallast.
Di Giulio kvað það skoðun
kommúnista að ekki ætti að úti-
loka þá frá mikilvægum þingemb-
ættum.
Krisíilegir demókratar hafa
hafnað því skilyrði seni sósíalistar
hafa sett fyrir stjórnarsamvinnu
með þeim og sósialistar lögðu
áherzlu á í kosningabaráttunni,
að kommúnistar taki þátt í rík-
isstjórn eða standi á bak við hana
á þingi, en kristilegir demókratar
geta ekki myndað stjórn án sam-
Framhald á bls. 20
Azevedo betri
en enn í hættu
Rhódesíumenn
fluttir á brott?
ItaLskir sósíalistar